Dagblaðið Vísir - DV - 22.07.1989, Qupperneq 10

Dagblaðið Vísir - DV - 22.07.1989, Qupperneq 10
10 LAUGARDAGUR 22. JÚLÍ 1989. „Þetta er ótrúlegt." Þannig hljóm- uðu raddir þeirra sem sáu fyrrum fegurðardrottningu íslands, Unni Steinsson, gamla. Og það er það. Á rúmum klukkutíma var hægt að breyta ungri, stórglæsilegri stúlk- unni i gamla og frekar þreytulega konu. „Ég veit ekki hvernig mannin- um mínum kemur til með að lítast á þetta,“ sagði Unnur. En sjálf virtist hún bara sátt við ellimynd sína. DV-myndir Hanna Ung fegurðardís og ungur myndar- legur karlmaöur orðin áttræð gamal- menni á nokkrum tímum. Getur það verið? Jú, þegar „réttu græjurnar", eins og Laddi segir, eru annars vegar þá er alveg ótrúlegt hvað hægt er að gera. Helgarblaðið fékk Unni Steinsson, fyrrum fegurðardrottningu íslands, og Atla Eðvaldsson, fyrirhða ís- lenska landsliðsins í knattspymu, til að láta farða sig og var ætlunin aö gera þau eins og fimmtíu árum eldri en þau eru í dag. Hvemig kemur fegurðardrottning til með að líta út um áttrætt? Víst leyndi eftirvæntingin sér ekki, jafnt á meðal fómarlambanna sjálfra og áhorfenda. Þegar Unnur og Ath vom fengin í tilraunastarfsemina tóku þau bæði strax mjög vel í uppátækið. „Já, það væri mjög sniðugt. Mér þætti gaman að sjá hvernig ég kem th með að hta út í ellinni," sagði Unnur þegar Helgarblaðiö sló á þráð- inn til hennar og bar undir hana hugmyndina. Og Ath tók í sama streng: „Mig hefur lengi langað til að sjá hvemig gamall karl ég verð.“ Það var ungur fórðunarmeistari, Hildur Hauksdóttir, sem tók að sér verkið. Hún er nýlega komin heim frá námi í förðun í London. Hhdur starfar nú sem hárskeri á hár- greiðslu- og rakarastofunni Hár í Hafnarfirði og hefur tekið að sér fórðun fyrir tímarit og áhugamanna- leikhús. Ekki fór hjá þvi að viðstaddir létu undrun sína í ljósi þegar undirbún- ingiu- stóð sem hæst og einhver lét þau orð falla að varla væri hægt að gera unga konu eins og Unni að gam- alh. En verkið var hafið og viðstadd- ir fylgdust spenntir með. Fyrst voru ahar hnur sem hægt var aö mynda í andhtinu dýpkaðar með brúnum ht. Þar á eftir setti Hhdur ákveðið efni á húðina sem hún þurrkaöi á með hárþurrku. Á meðan efnið er þurrkað á er húðin teygð til eins og hægt er. Efninu má líkja við gúmmí og yfirleitt þarf að setja 2-3 lög af þvi á andhtið th að ná fram góðum hrukkum. Því næst er andlit- ið snyrt th meö því að búa th dæmis th sprungnar æðar fyrir neðan aug- un og bæta roða í kinnarnar. Vilvera gömul sæt kona Unnur eltist ískygghega hratt á meðan á förðuninni stóð. Sjálf fylgd- ist hún vel með gangi mála í litlum spegh og sagði, þegar forðunin var rétt hálfnuð, að hún myndi nú löngu vera farin í andhtslyftingu áður en hún yrði svona gömul. „Ég vh nú óska þess að verða sæt gömul kona,“ sagði Unnur, „ef eitt- hvað annað kemur í Ijós eftir þessa fórðun þá veit ég ekki hvemig mann- inum mínum líst á. Annars á ég ör- ugglega eftir að verða mjög gömul. Lifhncm er það löng og svo verður fólkið í minni ætt yfirleitt mjög gam- alt,“ sagði Unnur og hló. Þeim karlmönnum, sem leið áttu framhjá á meðan á förðuninni stóð, leist ekkert ahtof vel á að verið væri að gera Unni þetta. „Nei, það getur ekki verið að þetta sé Unnur Steins- son,“ sagði einn þeirra, eða „hvernig getið þið gert henni þetta?" „Ég get vel ímyndað mér mig sem gamlan karl, keyrandi um á sportbíl og eltandi ungu stelpurnar," sagði Atli Eðvaldsson sem að förðuninni lokinni iangaði mest til að bregða sér á ball á Hrafnistu með Unni Steinsson. Þegar hrukkumar þóttu orðið nógu margar varð að taka háriö til endurskoöunar. Hárið var tekið í hnút og gráum hárht var úðað yfir það. Er slæðan var komin um háls- inn var unga, fallega konan orðin ansi gömul; svona rétt á einum og hálfum tíma. Og hvernig leist henni á sjálfa sig? Lík ömmu sinni „Mér fannst ég sjá mynd ömmu minnar, heitinnar, í speglinum,“ sagði Unnur þegar hún hafði skoðað ellimynd sína í speglinum. Ekki var að heyra annað á henni en að hún væri bara ánægð meö útkomuna og kviði ekki útlitinu í elhnni.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.