Dagblaðið Vísir - DV - 22.07.1989, Blaðsíða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 22.07.1989, Blaðsíða 26
38 LAUGARDAGUR 22. JÚLl 1989. LífsstQI________________ Skálafellsjökull: Fallegt útsýni og öræfakyrrð - á vélsleða og í snjóbíl Birnutindar og Miðfellsegg séð frá þjóðveginum. DV-myndir J.Mar Skálinn á Þormóðshnútu. Veðrið í útlöndum HITASTIG IGRÁÐUM 1 «15 lill 11 «115 16 «120 20 «125 ! 30stigeða m. Byggt á veöurfrónum Veöurstofu Islantis kl. 12 á hádegl, föstudag „Viltu ekki setjast á sleðann og keyra af stað?“ sagði Tryggvi Áma- son við blaðamann DV þegar hann brá sér upp á Skálafellsjökul. „En ég hef aldrei sest upp á vél- sleða og kann ekki að keyra þá,“ var svarið sem hann fékk. „Það gerir ekkert til, ég sest aftan á hjá þér og segi þér til meðan þú ert að ná töku á akstrinum,“ svaraði Tryggvi að bragði. Þá var ekki undankomu auðið. Raunar hélt undirrituð að fólki, sem cddrei hefði komið nálægt vélsleðum, væri ekki leyft að fá slík tæki í hend- umar vegna þess að það væri svo ógurlegur vandi að keyra þá, en svo er hins vegar ekki, og áður en ég vissi af var ég farin að keyra eins og herforingi um jökulinn. Hótelstjórinn á Edduhótelinu I Nesjaskóla, Unnur Ása Jónsdóttir, og sýslumaður Austur-Skaftfellinga, Páll Björnsson, ræðast við. Tveirjöklar Heinabergsjökull fellur suður frá Vatnajökli á mótum Suðursveitar og Mýra. Klofnar hann um Hafrafell í tvo jökla og nefnist vestri jökullinn Skálafellsjökull en sá eystri Heina- bergsjökull. Skálafellsjökull er tignarlegur skriðjökull. Frá hringveginum er akfær vegur að skála Jöklaferða hf., sem er á Þormóðshnútu, en síðustu 7 kílómetramir em þó eingöngu fær- ir fjórhjóladrifsbílum. Raunar er nú unnið að lagningu nýs vegar upp að jöklinum og mun hann auðvelda aksturinn að jöklinum þegar hann verður kominn í gagnið. Daglegar rútuferðir em frá Höfn á jökulinn og þeir sem eru á fólksbílum geta því skipulagt ferð að jökhnum með tilliti til ferða rútunnar og tekið sér far með henni þann hluta leiðar- innar sem er ófær fyrir þá. Snjóbílar ogvélsleðar Tveir snjóbílar em í forum á jöklin- um, traust farartæki en hægfara. Úr þeim er hægt aö njóta stórkost- legs útsýnis yfir jökuhnn og ná- grannasveitimar. Auk snjóbhanna eru 6-7 vélsleðar th leigu á jökhnum. Hægt er að skipuleggja mjög skemmtilega dagstimd með því að fara í útsýnisferð á jökuhnn í snjó- bh, leigja sér vélsleða eða sameina þetta tvennt. Bimudaiur og Miðfellsegg Ferðin hefst við skálann á Þor- móðshnútu en hann stendur í um það bh 800 metra hæð. Leiðin með snjóbílnum hggur inn í Birnudal, sem er í um 1.250 metra hæð, og upp á Miðfehsegg, sem er í 1.128 metra hæð, og tekur ferðin um tvær th tvær og hálfa klukkustund. Við jökulröndina efst á tindunum þrífast líth, smágerð blóm, en það þarf hins vegar að hta vel í kringum sig th aö koma auga á plönturnar. Hjörleifur Guttormsson, líffræðing- ur og alþingismaður, mun hafa fund- ið á annan tug plantna við jökulrönd- ina síðasthðiö sumar. Fahegast er samt útsýnið yfir ná- grennið aht, ýfir th Hafnar og Eystra- Homs og yfir Mýramar og Suður- sveitina og langt út á haf og svo yfir jökuhnn sem virkar eins og endalaus víðátta ofan af Miðfellsegginni. Þegar skarkahnn í sleðunum og snjóbíln- um er þagnaður kemst maður svo ekki hjá því að hlusta á hina djúpu öræfakyrrð sem ríkir á jöklinum. Leiðsögn umjökulinn Ef fólk er ekki búið að fá nóg af fegurð jökulsins (sem tæpast er hægt) eftir útsýnisferðina í snjóbhn- um er kjörið að fara á vélsleða og kanna jökuhnn nánar. Sjónarhornið á jökulinn er aht annað af sleðanum en úr bhnum þar sem hann fer miklu hraðar yfir og því hægt að kanna fleiri staði. Fyrir þá sem vhja er hægt að fá leiðsögn um jökulinn og raunar er htið vit í öðm fyrir fólk sem ekki er vant slíkum ferðum, því það getur verið vihugjamt á snjó- breiðunni. Veðursæld Mikh veðursæld er á þessum slóð- um og þó að þaö sé þoka og lélegt skyggni á Höfn er eins víst að það sé glaðasólskin á jökhnum. í skálanum á Þormóðshnútu er aðstaða th að gista í svefnpokaplássi fyrir þá sem vhja dvelja lengur á jökl- inum en í nokkra klukkutíma. Það er jafnvel hægt að bregða sér á skíði, en góð aðstaða er th þess á jökhnum og hægt er að fá skíði leigð hjá Jökla- ferðum ef þess er óskað. -J.Mar Tryggvi Árnason hjá Jöklaferðum hf. uppi á Miðfellsegg. Hagnýtar upplýsingar Skoðunarferð i snjóbil á Skála- fellsjökul, sem tekur 2-2'A klukku- stund, kostar 3.200 krónur. Svefnpokagisting í skála kostar 500 krónur. Hálft gjald greiðist fyrir böra á aldrinum 6-12 ára. Leiga á vélsleða: Fyrir fyrstu klukkustundina greiðast 1900 krónur, leiga á hveija klukkustund eför það er 1350 krónur. Heilsdagsleiga fyrir vélsleða, hámark átta klukkustundir, er 7.100 krónur. Gjald fyrir farþega á sleða er 600 krónur og ef leiðsögu- maður er með í förinni tekur hann 500 krónur á klukkutímann. Boðið er upp á þrenns konar ævintýraferöir á vélsleðum, en lág- marksfjöldi í hverri ferð eru {jórir. Panta verður hveija ferö með aö minnsta kosti þriggja daga fyrir- vara. Skálafehsjökull - Kverkfjöh - SkálafeUsjökuU, 8.100 krónur. SkálafellsjökuU - Esjufjöll - SkálafeUsjökuU, 6.000 krónur. SkálafeUsjökuU - BrókaijökuU - Skálafellsjökull, 4.800 krónur. Innifahð í verði em tryggingar, hjálmar, eldsneyti og leiðsögumað- ur. Nánari upplýsingar gefur Tryggvi Árnason í síma 97-81095 og Ami Stefánsson í síma 97-81240. Austurleiö er með daglegar ferðir á Skálafellsjökul frá Höfn og kostar fariö 1500 krónur. Upplýsingar í síma 97-81361. -J.Mar

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.