Dagblaðið Vísir - DV - 31.07.1989, Blaðsíða 2
2
MÁNUDAGUR 31. JÚLl 1989.
Fréttir
Sigurður Viggósson, oddviti Patrekshrepps:
„Hlutafjársjóður á að koma
inn í stofnun félagsins“
- Útgerðarfélag til að koma í veg fyrir hrun staðarins
Hreppsnefnd Patrekshrepps sam-
þykkti á skyndifundi í gær aö beita
sér fyrir stofnun útgeröarfélags til
aö reyna aö kaupa skip og eignir
Hraðfrystihúss Patreksfjarðar sem
nú eru að tapast á nauðungarupp-
boðum. Var boðað til fundarins í
framhaldi af samþykkt stjórnar
Hraðfrystihússins sem lýsti yfir
gjaldþroti á fostudaginn.
Sigurður Viggósson, oddviti Pat-
rekshrepps og stjómarformaður
Hraðfrystihússins, sagði í samtali við
DV í morgun að hér væri um hlutafé-
lag að ræða. „Tilgangurinn með
stofnun þess er að bjarga skipum og
öðrum eignum sem eru að tapast í
gjaldþrotum og á nauðungarupp-
boðum. Þannig verður reynt að end-
urheimta vertíðarbátinn Patrek sem
var sleginn Fiskveiðasjóði íslands
fyrir um mánuði. Auk þess eru skip
hraðfrystihússins nú lent í gjald-
þroti. Hér er um að ræða togarann
Sigurey og togskipið Þrym,“ sagði
Sigurður.
- Hvarmunhreppsnefndinleitaeftir
stuðningi?
„Við ætlum að leita eftir stuðningi
hjá fiskvinnsluaðilum á staðnum,
opinberum aðilum og til Byggða-
stofnunar. Samkvæmt okkar túlkun
á Hlutafjársjóður byggðastofnunar
að koma inn í stofnun slíks félags
sem byggt er á grunni gjaldþrotafyr-
irtækis - hins vegar hafnaði sjóður-
inn beiðni hraðfrystihússins í síð-
ustu viku um þátttöku í fjárhagslegri
endurskipulagningu fyrirtækisins,“
sagði Sigurður.
Hér hefur ríkt atvinnuleysi síðan í
október - 40 hafa verið á atvinnuleys-
isskrá auk jafnmargra farandverka-
manna sem fóru annað. Því þarf
þetta starf að ganga fljótt fyrir sig til
að árangur náist. Við höfum sent rík-
isstjórn skeyti þar sem óskað er eftir
aðstoð til að koma í veg fyrir hrun
staðarins," sagði Sigurður.
í kvöld hefur verið boðaður fundur
með fulltrúum fiskvinnslumanna á
Patreksfirði þar sem samþykkt
hreppsnefndarinar verður rædd.
-ÓTT
Forseti íslands á vik-
ingaslóðum í Kanada
Anna Maria Guðmundsdóttir, blómastúlka Hveragerðis 1989, ásamt öðrum
þátttakendum í keppninni. DV-mynd Kristján
Blómastúlka
Hveragerðis
Kristján Einarsson, DV, Selfossi:
Ásta María Guðmundsdóttir, 19
ára stúlka úr Hverageröi, var valin
blómastúlka sumarsins í Hveragerði
aðfaranótt sl. sunnudags. Krýning-
arathöfnin átti að fara fram um mið-
nætti en var frestað vegna þess að
gesti vantaöi í húsið og fór fram kl.
2.30. Um tvöleytið var húsið orðið
fullt af fólki og dómnefndin fór að
velja stúlkur til keppninnar. Alls
tóku sex stúlkur þátt í henni.
Sigurvegarinn, Ásta María, vinnur
í Búnaðarbankanum í sumar er
stundar tungumálanám yfir vetrar-
mánuðina. Hefur gott vald á ensku
og spænsku og í vetur verður hún í
frönskunámi í Frakklandi. Eftir það
ætlar hún að skerpa á Norðurlanda-
málunum og dvelja við nám á ein-
hverju Norðurlandanna.
Agúst Hjörtur, DV, Ottawa:
Tíu daga opinber heimsókn for-
seta íslands, Vigdísar Finnbogadótt-
ur, til Kanada hófst á laugardag í St.
John’s á Nýfundnalandi. Meðal
þeirra sem tóku á móti forsetanum
við komuna voru James A. McGrath,
fylkisstjóri Nýfundnalands, Clyde
Kwells, forsætisráðherra fylkisins,
John Crosbie, ráðherra utanríkisvið-
skipta, og John J. Murphy, borgar-
stjóri St. John’s.
í þessari tíu daga ferð mun forset-
inn sækja heim sex af tíu fylkjum
Kanada. í fyrri hluta feröarinnar
beinist athyglin að stjómmála- og
viðskiptatengslum landanna tveggja
en í seinni hlutanum að menningar-
tengslum þegar forsetinn heimsækir
byggðir Vestur-íslendinga.
Eftir stuttan fund með forsætisráð-
herra Nýfundnalands á laugardag
mætti forsetinn í móttöku sem út-
flutningsráð skipulagði fyrir hönd
íslenskra fyrirtækja sem viðskipti
eiga við Nýfundnaland. Að sögn ÍTlfs
Sigurmundssonar, starfsmanns út-
flutningsráðs í New York, tókst mót-
takan með ágætum. Ingjaldur
Hannibalsson, formaður útflutn-
ingsráðs, hélt ræðu um viðskipti
landanna og sýnd var kvikmynd um
íslenskan fiskiðnað. Þá var hinum
erlendu viðskiptavinum boðið upp á
íslenskar veitingar og vakti íslensk-
ur graflax mikla lukku.
Síðdegis átti forsetinn fund með
ráðgjafamefnd Nýfimdnalands-
stjómar um stöðu kvenna. Á laugar-
dagskvöldiö sat forsetinn síðan
kvöldverðarboð í boði forsætisráð-
herra fylkisins og konu hans.
í gærmorgun hélt forsetinn á vík-
ingaslóðir og heimsótti L’Anse aux
Forseti Islands, Vigdis Finnbogadóttur, var gerö að heiöursfélaga í gleð-
skapsklúbbnum í Nova Scotia. Þetta er elsti klúbburinn i Norður-Ameríku,
stofnaður 1609, og er Vigdís sjöundi heiðursfélaginn. Skirteinið afhenti John
Buchanan, forsætisráðherra Nova Scotia, og gekkst forsetinn undir það
loforð að tala vel um Nova Scotia og ibúa þess og koma einhvern tíma aftur.
Neadows þjóögarðinn nyrst á Ný-
fundnalandi. Arið 1961 fundust þar
leifar víkingabyggðar sem taldar em
öraggasta sönnun þess að íslending-
ar hafl fyrstir hvítra manna haft vet-
ursetu í Norður-Ameríku.
Síðdegis hélt forseti íslands ásamt
fóruneyti til Halifax í Nova Scotia
þar sem Lloyd R. Crouse fylkisstjóri
og John N. Buchanan, forsætisráð-
herra Nova Scotia, voru meðal þeirra
sem buðu forsetann velkominn. Um
kvöldið héldu John N. Buchanan og
frú mikla veislu til heiðurs forsetan-
um. Um flmm hundrað manns sátu
veisluna en til hennar var boðið, auk
fyrirmanna fylkisins, öllum íslend-
ingum og Vestur-íslendingum sem í
náðist.
í veislunni var forseti íslands gerð-
ur að sérstökum heiðursfélaga í gleö-
skapsklúbbi Nova Scotia. Vigdís er
sjöundi heiðursfélagi þessa klúbbs
sem er sennilega sá elsti í Norður-
Ameríku en hann var stofnaður árið
1609. Áður en Vigdís var gerð að heið-
ursfélaga í gleðskapsklúbbnum
þurfti hún að gangast undir próf.
Hún varð meðal annars að lofa að
tala vel um Nova Scotia og íbúa þess
og koma einhvem tíma aftur í heim-
sókn til Nova Scotia.
í ræðu, sem forsetinn hélt, varð
henni tíðrætt um Guðrúnu Þorbjam-
ardóttur sem feröaðist bæði til
Grænlands og Vínlands og gekk að
lokum frá Noregi alla leið suður til
Rómar. Að sögn Vigdísar var það
Við komuna til St. John’s á Nýfundnalandi færði þessi niu ára stúlka for-
seta íslands blómvönd. DV-símamyndir Reuter
kona sem kunni sig á mannamótum
og var ekki laust við að áhorfendur
bæra þær stöllur saman í huganum.
Aö sögn Péturs Guðjónssonar, for-
stjóra Marels hf. í Halifax, vakti ræða
forsetans mikla lukku meðal veislu-
gesta. Þá sagöi Pétur að fylkisstjórn-
in í Nova Scotia ætti mikið lof skilið
fýrir rausnarskap og fyrirmyndar-
undirbúnig við komu forsetans.
í dag mun forsetinn heimsækj;
sjávarminjasafn austurstrandarinn
ar, fylkissafnið og listasafn Nov<
Scotia. Þá verður móttaka og hádeg
isverður í boði útflutningsráðs áðu:
en haldið verður af stað til Ottawa
höfuðborgar Kanada.
GrænMðungar:
Hætta aðgerðum
TaJið er að Grænfriðungar til-
kynni á blaðamannafundi á
morgun að þeir rauni hætta að-
gerðum gegn íslendingum fram
til ársins 1991.
Samkvæmt heimildum DV
munu nokkrir félagar Grænfriö-
unga koma híngað til lands efúr
nokkrar vikur öl viðræðna viö
íslensk stjómvöld. Mun niður-
staða þess fundar hafa áhrif á
hvort Grænfriðungar beiti sér
fyrir því að Islendingar nái aftur
samningura við þá veitingastaði
sem hættu að kaupa af þeim fisk-
afurðir, eða hvort aðeins veröur
umvopnahléaöræða. -GHK