Dagblaðið Vísir - DV - 31.07.1989, Síða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 31.07.1989, Síða 4
4 MÁNUDAGUR 31. JÚLÍ 1989. Fréttir Þörungaplágan í Adríahafinu: Islenskir farþegar hafa lítið kvartað - segir Halldóra Friðjónsdóttir fararstjóri á Rimini „Suma daga er sjórinn hreinn. En þegar hvessir berast þörungamir aö landi með öldunum. I byrjun júlí var þetta meira en hefur minnkaö núna - nú er meira um heillega en minni fláka að ræöa. En þetta er ekkert hættulegt fyrirbrigöi þó sjórinn hafl stundum veriö lítiö spennandi ásýndar," sagði Halldóra Friðjóns- dóttir, sem veitir forstöðu skrifstofu Samvinnuferöa-Landsýnar á Rimini, í samtali við DV í gær. - Hefur þetta ástand á ströndinni haft einhver áhrif á ykkar farþega? „Nei, það hefur veriö lítið um kvartanir enda lítiö hægt aö bera sig illa vegna þess sem náttúran gerir - þó vissulega eigi maðurinn þarna einhvern hlut að verki. Fólkið hefur það gott og fer í sjóinn þegar hann er hreinn. Að öðrum kosti er legiö á ströndinni og notast við sturtur eða farið í sundlaugagarða. - Eigið þið von á fleiri farþegum? „Þeir sem eru hér nú fara heim í dag, mánudag, og þá kemur vél meö annað fólk í staðinn - ég vona að það veröi 118 manns. Mér skilst aö þör- ungarnir á ströndinni hafi haft áhrif á Þjóðverja en að Skandinavar láti þetta ekki á sig fá. Svona fyrirbrigði er ekkert nýtt - þetta hefur t.d. gerst í Norðursjónum við strendur Þýska- lands og Hollands,“ sagði Halldóra. Helgi Jóhannsson, framkvæmda- stjóri Samvinnuferða-Landsýnar, var nýlega staddur á Rimini. Sagði hann við DV að fólk gæti yfirleitt baðað sig í sjónum á morgnana en síðdegis „á innfallinu" kæmu þessir brúnleitu þörungar upp að strönd- inni og notaðist fólk þá við aðra kosti. „Hins vegar koma nú heilir dagar með hreinum sjó - þetta er að minnka," sagði Helgi. íslendingar leggja minnsta áherslu á sjóböö „Það var gerð athyglisverð skoð- anakönnun á flugvellinum þar sem 40 íslendingar svöruðu ýmsum spumingum um það sem þeir leggja mesta áherslu á í sólarlandaferð- um,“ sagði Helgi. „Þar kom í ljós að hópurinn lagði langminnsta áherslu á sjóböð. Sóhn er númer eitt, síðan aðbúnaður, þá viðmót innfæddra og skemmtistaðir. Sjórinn er í neðsta sæti. Þessu er hins vegar öfugt farið með aðrar þjóðir,“ sagði Helgi. -ÓTT „Sá týpiski" af- hendir Ferðafélagann Um helgina hófst dreifing á Feröafélaganum, bækiingi íþrótta- sambands lögreglumanna og Um- ferðarráös. Geta vegfarendur átt von á því á næstu dögum aö verða stöðvaöir af lögreglumönnum sem afhenda bæklinginn til halds og trausts - nú er mesta ferðahelgi ársins framundan. Ferðafélaginn verður afhentur að undangenginni athugun á ástandi bifreiðar og þeim sem í henni eru. Böm fá afhent raðspil frá Tann- vemdarráði. Vilji feröafólk nálgast bæklinginn sjálft er hægt að fá hann á nær öllum lögreglustöðvum landsins. í bæklingnum em m.a. viðtöl viö tónlistarmenn um ökulag þeirra, leiðbeiningar um hvemig skal at- hafna sig á slysstað, frásögn af klúbbi 17 - nýstofnuöu félagi ungs fólks, þrautir og leikir fyrir böm, íslandskort og fleirl hagnýtar upp- lýsingar. -ÓTT „Já, já, héma er Ferðafélaginn - svona týpiskt svona rit fyrir fullorðna, jú, jú, og böm líka. Og svo fáið þið lika hérna svona raðspii sem þið getið - ja, það skiptir ekki mðli - þið finnið bara út Úr þvíl“ Kristján Olafsson neytendafrömuður komst f sneröngu við hinn almenna neyt- anda um helgina þegar hann hóf dreifingu á Ferðafélaganum ásamt lögreglumönnum. Næstu daga eiga vegfarendur von á að fá bækinginn af hentan - verslunarmannahelgin fer að ganga f garð. DV-mynd S Ógnarvöxtur þörunga vegna áburðar frá Pó: Þjóðverjar og Austur- ríkismenn afpanta ferðir til Adríahafsins - sjávarhiti 4-5 gráðum hærri en í meðalári Júlímánuöur hefur veriö slæmur fyrir ferðamannaiðnað ítala við botn Adríahafsins. Ástæðan er að áburð- ar- og fosfatefni hafa borist frá ánni Pó frá iðnaðarhverfum Norður-ítal- íu. Hafa efnin haft mjög hvetjandi áhrif á vöxt þömnga sem hafa borist upp aö 200 km strandlengjunni, m.a. viö Rimini, Riccione og Cattolica. Auk þess hefur myndast sjófroða við yflrborðið vegna sjávarsaltsins sem gerir strendumar lítt fýsilegar til baða. Arnaldo Adriato, forsvarsmaöur kristilega demókrataflokksins á ítal- íu, hefur sagt, að ástandið viö Adría- hafið sé svo slæmt að það jafnist á við að Fiatverksmiöjunum yrði lokað í 10 skipti. Hins vegar hafa stjómvöld ákveðið aö veita um 540 milljörðum íslenskra króna til þess að stemma stigu við þessari fjölgun þömnga. Fjölgunin á reyndar einnig rætur sínar að rekja til þess að sjávarhiti í Adríahafinu er 4-5 gráðum meiri en í meðalári - orsökin er mjög mildur vetur. Þrátt fyrir aðgerðir stjórn- valda hefur þó bókunum á sumum stöðum fækkað um 40% og afbókanir frá þýskum og austurrískum aðilum hafa minnkað aðsókn mjög. Hápunktur feröamannatímans í þessari svonefndu „Kaliforníu ítal- íu“ gengur nú í hönd. Fólki hefur fækkað á fimmtánfaldri sólbekkja- breiðunni á ströndinni. Sumum finnst það til bóta. En þessi strönd aflar ítalskri feröamannaþjónustu um þriðjungi tekna og em forsvars- menn ferðamaála þar því mjög ugg- andi. -ÓTT í dag mælir Dagfari Bónleiðir borgarar Stærsta spurningin í íslenskum stjómmálum um þessar mundir er sú hvort Borgaraflokkurinn fær inngöngu í ríkisstjórnina. Virðist fátt vera því til fyrirstöðu að Borg- araflokkurinn gerist formlegur að- ili að stjórninni nema þá það eitt að ganga frá því formlega. Málin hafa eiginlega staðið þannig allt frá því að Albert hvarf úr landi aö Borgarflokkurinn hefur verið til- búinn til stjómarsamstarfs. Stjórn- arflokkamir sjálfir hafa viljað fá Borgaraflokkinn í stjórnina og ver- ið tilbúnir til þess. Ákvörðun tafð- ist um tíma meðan Steingrímur fór í lax og Júlíus Sólnes fór í golf en að öðm leyti er ekkert því til fyrir- stöðu. Sumir hafa verið að tala um mál- efnalega fyrirstöðu á annan hvom veginn og nefna þá aðallega matar- skattinn í því sambandi. Matar- skatturinn er ekkert vandamál segja ráðherramir sem hafa fullan skilning á þvi að Borgaraflokkur- inn berst fyrir afnámi matarskatts- ins. í rauninni hafa menn ekki séð að Borgaraflokkurinn hafl annaö markmið heldur en að fella niður matarskattinn og þess vegna er málefnaleg samstaða milli Borg- araflokksins og stjómarflokkanna um önnur mál. En ef menn era sammála um allt, hvað er þá að? Steingrímur er kom- inn úr laxinum og Júlli úr golfinu og allt er klappað og klárt. Hvaö dvelur orminn langa? Alþýðublað- ið var að gera því skóna um daginn að Borgaraflokkurinn væri svo mikill Framsóknarflokkur að hann væri meiri Framsóknarflokkur en Framsóknarflokkurinn. En varla getur það verið til skaða eftir pólit- íska trúlofun þeirra Steingríms og Jóns Baldvins. Ekki hefur hnífur- inn gengiö á miili þessara flokka í neinu máli og er það þá nokkuð verra aö fá nýjan Framsóknarflokk til viðbótar við gamla Framsóknar- flokkinn? Illar tungur segja aö Borgara- flokkurinn sé dauður og ekkert gagn af flokki sem lifir ekki lengur en fram að næstu kosningum. Dav- íð borgarstjóri orðaði þetta svo að ef Borgaraflokkurinn gengi inn í ríkisstjórnina þá væri það svipað og líkiö risi upp og fremdi harakíri á sjálfu sér! En ef hægt er að hafa gagn af líki er þaö þá ekki betra en aö hafa ekki gagn af neinum? Lík gera ekki neinum mein, nema þá sjálfum sér! Dauður flokkur er betri en lifandi flokkur sem getur tekið upp á því að gera öðmm mein. Ef Borgaraflokkurinn er dauður þá stafar það af þvi að vinsældir eru orðnar að engu. Og ef hann er svona óvinsæll að hann fái ekki atkvæði í næstu kosningum, er hann þá ekki vel fallinn til að ganga formlega til liðs við ríkisstjómina sem telur sér það helst til tekna að vera óvinsæl? Ríkisstjómin þarf óvinsæla flokka til að halda við óvinsældum sínum og það er leitun á öðrum eins flokki og Borgaraflokknum í þeim tilgangi. Albert naut vinsælda en hann er farinn. Ingi Björn naut góðs af Albert en hann er líka far- inn. Kjósendur bundu um tíma ein- hverjar vonir við Borgaraflokkinn en þeir eru löngu famir. Það er þess vegna búið að sótthreinsa flokkinn af öllum hugsanlegum vinsældum og fylgi til aö samlagast ríkisstjóminni. Júlíus og kompaní vita satt að segja ekki hvað þeir geta gert fleira til að þóknast ráð- herrunum. Þeir vilja að vísu verða ráðherrar sjálfir en stjórnarflokk- arnir hafa enn ekki fundiö ráð- herrastóla fyrir nýju ráðherrana en em að öðru leyti tilbúnir til að taka þá inn í stjómina. Sennilega munu sumarið og vet- urinn líða án þess að formlega verði gengið frá þessari stjórnar- myndun. Sem gerir ekki svo mikið til því allir eru sammála um aö Borgaraflokkurinn fari í stjóm. Þetta vita borgaraflokksmenn og greiða auðvitaö atkvæði meö stjórninni sem þeir ætla að styðja á meðan á biðinni stendur. Ráðherrastólamir bíða þeirra um leið og þeir finnast. Framsókn er tilbúin til að gefa eftir stól ef hinir stjórnarflokkarnir gefa eftir stóla. Kratamir em tilbúnir til að gefa eftir stól ef hinir gefa eftir sína stóla. Og allaballarnir eru sömu- leiðis fúsir til að gefa eftir stól þeg- ar hinir em búnir að ákveöa hvaða stóla þeir gefa eftir. Það á bara eft- ir að ganga frá þessu formlega. Lík- ið bíður vonandi rólegt á meöan. Dagfari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.