Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 31.07.1989, Qupperneq 8

Dagblaðið Vísir - DV - 31.07.1989, Qupperneq 8
8 MÁNUDAGUR 31. JÚLÍ 1989. Viðskipti____________________________________________________________________pv Ný flugstöð á Sauðárkróki: Góð aðstaða fyrir farþega Þórhallur Asmimdsson, DV, Sauðárkróki: Stórum áfanga í farþegaflugi til Sauðárkróks var fagnað þegar ný og glæsileg flugstöð var tekin í notkun á Alexandersflugvelli á dögunum. Menn hefur lengi dreymt um góða aðstöðu fyrir farþega sem um völlinn fara, en nýja stöðin leysir 50 fermetra skúrbyggingu af hólmi. Mikið vatn er runnið til sjávar síðan þáverandi samgönguráðherra, Halldór E. Sig- urðsson, sagði við komu sína til Sauðárkróks: „Hér þarf að byggja nýjan skúr.“ Hátt í eitt hundrað manns var við- statt opnunarathöfnina. Meðal gesta voru samgönguráðherra, Steingrím- ur Sigfússon, flugmálastjóri, Pétur Einarsson, og þingmenn kjördæmis- ins. Séra Hjálmar Jónsson blessaði húsið og þá starfsemi sem þar fer fram. Margar ræður voru fluttar og einnig söng Jóhann Már Jóhannsson nokkur skagfirsk lög við undirleik Sólveigar Önnu Jónsdóttur. í ræðum minntust margir Alex- anders Jóhannessonar, fyrrverandi háskólarektors og eins aöalfrum- kvöðuls flugsins á íslandi, en þennan dag var hðið 101 ár frá fæðingu Alex- anders og eitt ár frá því Sauðár- króksflugvefli var gefið nafn hans. Af þessu tilefni afhenti Sigurður Blöndal, skógarvörður á Hallorms- stað, málverk af dr. Alexander, sem nákominn ættingi hans, Steinunn Guðmundsdóttir, gaf flugstöðinni til minningar um frænda sinn. Nýja flugstöðin er 250 fermetrar að Flugmálastjóri, Pétur Einarsson, af- hendir Árna Blandon (lugvallar- stjóra lykla að stöðinni. DV-mynd Þórhallur Nýja flugstöðin. stærö aö turni meðtöldum. Aðal- verktaki var Byggingafélagið Hlyn- ur, yflrsmiöur Atli Már Óskarsson. Rafsjá hf. sá um raflögn, Hannes Helgason um pípulagnir, Þórarinn og Albert um málningarvinnu, Bflkk og pípulagnir um blikksmíði, Rúnar DV-mynd Þórhallur Ingólfsson um dúklagnir, Vélsmiðja Sauðárkróks og Vélaverkstæði KS um jámsmíði og Kristján Arason um múrverk. Hönnuðir voru Benjamín Magnússon, Þorkell Jónsson og Magnús Siguroddsson. Vopnaflörður: Loðnumjölið allt farið Jóhann Amason, DV, Vopnafirði: „Það eru hér eftir 200 tonn af gufu- þurrkuðu fiskimjöli sem fer á næstu dögum og þá verður lokið við að lesta héðan mjöl frá síðustu vertíð," sagði Sveinbjöm Sigmundsson, verk- smiðjustjóri á Vopnafiröi, í samtafl við DV. Nýlega lestaði Hvassafell 540 tonn af loðnumjöfl hér og var það önnur lestunin úr þeim 1200 tonnum af loðnumjöli sem fengust á vertíð- inni. Verksmiðjan sér um að bræða fisk- úrgang sem kemur frá frystihúsi og saltfisksverkun og er það gert hálfs- mánaðarlega. Með bættri þurrkun- artækni verða Vopnfirðingar fltið sem ekkert varir við reykmengun frá verksmiðjunni og eru flestir því fegn- ir, ekki síst í því frábæra veðri sem verið hefur hér í sumar. Hvassafellió við bryggju á Vopnafirði I góðviðrinu. DV-mynd Jóhann Losað úr sekkjunum í lest Hvassafells. DV-mynd Jóhann íslenskt veitingahús í Noregi: Geysir í Osló Nýtt íslenskt veitingahús, Geysir, var opnaö í Osló á þjóðhátíðardag- inn, 17. júní. Er veitingahúsiö við Keysersgate 4, um það bil 600 metra frá Karl Jóhannsgötu og við hlið Hotel Munch þar sem margir íslend- ingar gista. Tekur staðurinn 32 í sæti, og er kjallarinn höggvinn út í granít. Myndir eftir Pál S. Pálsson prýða veggi. Mun staðurinn vera í háum klassa, eða eins og gerist best hér á landi. Er boðið upp á íslenskan mat, bæði kjöt- og fiskrétti. Með haustinu er t.d. ætlunin að bjóða upp á hangi- ket, og í janúar og febrúar verður þorramaturinn að sjálfsögöu á boð- stólum, með íslensku brennivíni og svartadauða. Verð á réttum er sam- keppnishæft og undir verði betri veitingahúsa í Osló. Framkvæmdastjóri Geysis er Ámi Valur Sólonsson, Ófl Jón Ólafsson er aðstoöaryfirkokkur og Gissur Guðmundsson er yfirkokkur. Munu þeir að mestu leyti sjá um alla þjón- ustu sjálfir ásamt eiginkonum sínum og einum þjóni sem er í hlutastarfi. Á þennan hátt næst fram mjög per- sónulegurandiástaðnum. -GHK Peningamarkaður INNLÁNSVEXTIR (%) hæst Innlán óverðtryggð Sparisjóðsbækurób. 12-16 Úb Sparireikningar 3jamán.uppsögn 12.5-17 Úb 6mán. uppsögn 15-17 Úb 12 mán. uppsogn 13-17 Úb 18mán. uppsögn 27 Ib Tékkareikningar, alm. 3-9 Ab Sértékkareikningar 4-15 lb,Ab Innlán verðtryggð Sparireikningar 3ja mán. uppsögn 1,5-2 Vb 6mán. uppsögn 2,5-3,5 Allir Innlán meðsérkjörum 21-25 nema Sp AB Innlán gengistryggð Bandaríkjadalir 7,5-8,5 Ab Sterlingspund 12,5-13 Sb.Ab Vestur-þýsk mörk 5,25-6 Sb.Ab Danskar krónur 7,75-8,5 Bb,lb,- ÚTLÁNSVEXTIR (%) b,Sp,A- b lægst Útlán óverðtryggð Almennirvíxlar(fon/.) 29,5-34,5 Bb Viöskiptavíxlar(forv-) (1) kaupgengi Almennskuldabréf 31,5-37,5 Bb Viðskiptaskuldabréf(l) kaupgengi Allir . Hlaupareikningar(yfirdr.) 35,5-39 Lb Utlán verðtryggð . Skuldabréf 7-8,25 Lb Útlán til framleiðslu Isl. krónur 25-36 Úb SDR 9,75-10,25 Lb Bandaríkjadalir 10,5 Allir Sterlingspund 15,5-15,75 Allir Vestur-þýsk mörk 8,25-8,5 nema Úb Úb Húsnæðislán 3,5 Lífeyrissjóðslán 5-9 Dráttarvextir 45,6 MEÐALVEXTIR överðtr. júlí 89 35.3 Verðtr. júlí 89 7.4 VÍSITÖLUR Lánskjaravísitalaágúst 2557 stig Byggingavísitala ágúst 465stig Byggingavísitala ágúst 145,3stig Húsaleiguvísitala 5%hækkun l.júlf VERÐBRÉFASJÓÐIR Gengi bréfa verðbréfasjóöa Einingabréf 1 4,065 Einingabréf 2 2,251 Einingabréf 3 2,660 Skammtímabréf 1,397 Lífeyrisbréf 2,044 Gengisbréf 1,814 Kjarabréf 4,041 Markbréf 2,147 Tekjubréf 1,748 Skyndibréf 1,225 Fjolþjóðabréf 1.268 Sjóðsbréf 1 1,948 Sjóðsbréf 2 1,559 Sjóðsbréf 3 1,375 Sjóösbréf 4 1,147 Vaxtasjóösbréf 1,3770 HLUTABREF Söluverð að lokinni jöfnun m.v. 100 nafnv.: Sjóvá-Almennar hf. 300 kr. Eimskip 368 kr. Flugleiöir 172 kr. Hampiðjan 165 kr. Hlutabréfasjóður 130 kr. lönaðarbankinn 159 kr. Skagstrendingur hf. 212 kr. Útvegsbankinn hf. 135 kr. Verslunarbankinn 146 kr. Tollvörugeymslan hf. 109 kr. Frá Geysi í Osló. (1) Við kaup á viðskiptavlxlum og viðskiptaskuldabréfum, útgefnum af þriðja aöila, er miðað við sérstakt kaup- gengi, kge. Skammstafanir: Ab = Alþýðubankinn, Bb= Búnaðarbankinn, lb = lðnaðar- bankinn, Lb = Landsbankinn, Sb = Samvinnubankinn, Úb= Útvegsbankinn, Vb = Verslunarbankinn, Sp = Sparisjóð- irnir. Nðnari upplýsingar um peningamarkaö- Inn blrtast f DV á llmmtudögum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.