Dagblaðið Vísir - DV - 31.07.1989, Síða 12
12
MÁNUDAGUR 31. JÚLÍ 1989.
Uflönd
Þfódaratkvædagreidsla í Chile
Forsetl Chile, Pinochel, greiðir atkvæði i þjóðaratkvæðagreiðslu í Chile.
Svo virðist sem íbúar Chile hafi samþykkt með yfirgnæfandi meiri-
hluta stjómarskrárumbætur sem kosið var um í þjóðaratkvæðagreiðslu
þar í laadi um helgina. Herstjómin í Chile og stjórnarandstaðan komu
sér saman um tiliögur að umbótum til að freista þess aö koma á lýöræöi.
Þegar búiö var að telja sextíu prósent atkvæða tilkynnti talsmaður inn-
anríkisráðuneytisins aö áttatíu og fimm prósent væm fylgjandi breyting-
unum. Níu prósent felldu tillögumar en sex prósent atkvæða vom ógild.
Breytingamar fela i sér að skoröur verði settar á vald hersins þegar borg-
araleg stjóm tekur við á næsta ári.
Aldrei var nein spuming um hver niðurstaða kosninganna yrði. Bæði
herstjómin og stjómarandstaðan hvöttu rúmlega sjö milljón kosninga-
bæra íbúa landsins tii að samþykkja breytingamar.
Segja skilid vid marxisma
Sfjómarfiokkurinn í Mozambique, Frelimo, hefur sagt skilið við marx-
ísk-leniníska hugmyndafræðí sína og rekið tvo harðlínumandsta úr
stjórnmálaráðinu í von um að fá uppreisnarraenn að samningaborðinu
til að binda enda á tíu ára bardaga í landinu.
Vestrænir stjómarerindrekar sögðu að breytingamar endurspegluðu
meira raunsæi innan ríkisstjóraarinnar sem er að reyna að reisa landið
úr efiiahagslegum rústum eftir borgarastyrjöldina.
Ný stefiruskrá Frelimo var samþykkt á þingi flokksins á sunnudag og
felur hún í sér miklar breytingar á hugmyndafræði flokksins sem hefur
stjómað landinu frá því það fékk sjálfstæði frá Portúgal 1975.
Skógareklar í Bandaríkjunum
Nokkur böm virða fyrir sér afleiðingar skógarelda sem geisað hafa i
Bandaríkjunum. Símamynd Reuter
Miklir eldar hafa eyðilagt um 28 þúsund hektara lands í fjórum fylkjum
Bandarflganna. Enn geisa eldar og er hætta á frekari eyðileggingu skóg-
og kjarrlendis að sögn slökkviliðsmanna.
Tíu þúsund slökkviliðsmenn reyna að herrya eldana og nota m.a. til
þess þyrlur. Þúsundir sjálfboðaliða taka þátt í björgunaraðgerðunura en
þessir eldar em þeir verstu sem kviknaö hafa í Bandaríkjunum þaö sem
af er sumri.
í vesturfylkjum landsins era miklir hitar, um 38 gráður, og vindasamt.
Aö sögn embættismanna er ástandið nú mun verra en vant er.
Hertoginn úr leik
Filippus, drottningarmaður á Englandi, var dæmdur úr leik í virtri sigl-
ingakeppni í Bretlandi á suimudag eftir að hann lenti í árekstri viö aðra
skútu. Hertoginn var við stjómvölinn á Yeoman XXVm. þegar hún rakst
á skútuna Amadeus í upphafi kappsiglingarinnar á Iaugardag. Enginn
slasaðist í árekstrinum.
Beirút nær undirlögd
Harðir bardagar hafa geisað í Beirút, höfuðborg Líbanons, síðustu daga
og eru tveir þriðju borgarinnar nú undirlagðir. Nær því öll borgin brenn-
ur, segja heimildarmenn, og viröist friður nú fjær en nokkru sinni fyrr
þrátt fyrir friðartilraunir fulltrúa arababandalagsins. Borgarastyijöld
hefur staðið í Líbanon í fjórtán ár.
Fallbyssuskotum rigndi yfir sjúkrahús, skóla og aðrar byggingar í borg-
inni sem margar urðu alelda. Bensínstöð í vesturhluta borgarinnar varð
fyrir árás og bensíni rigndi yfir nærliggjandi hús. Margir íbúar lokuöust
inni vegna elda.
Sýrlenskir hermenn og kristnir börðust í borginni og i um áttatíu nær-
liggjandi þorpum og bæjum. Samkvæmt upplýsingum sjúkraliða og lækna
eru mörg böm og konur meöal fórnarlamba. Um tvö hundruð og fimm-
tíu þúsund af rúmlega milljón íbúum Beirútborgar höfðust viö í myrkum
neðarýarðarbyrgjum klukkustundum saman. Hundruð þúsunda borg-
arbúa hafa fiúið á öruggari staði.
Fréttaskýrendur segja að bardagar síðustu daga sýni að enginn stríðsað-
ila sé tilbúinn til samstarfs við fúlltrúa arababandalagsins sem vinna að
því aö koma á friöi. Aoun hershöfðingi, leiðtogi hermanna kristinna, vill
að fjörutíu þúsimd manna herliö Sýrlendinga hverfi á brott úr landinu
en þaö hefur veriö í Líbanon í þrettán ár. Sýrlendingar segjast ekki á leið
á brott svo fremi sem bandamenn þeirra vilji að þeir séu um kyrrt
Að minnsta kosti fimm hundruð og tíu manns hafa látist og tvö þúsund
særst í Líbanon síöan um miöjan marsmánuð. Reuter
DV
Brottflutningur her-
sveitanna hafinn
Indverskir hermenn halda heim frá Sri Lanka á laugardag.
Simamynd Reuter
Indverjar kvöddu heim lítinn hluta
hersveita sinna á Sri Lanka á laugar-
dag sem er liður í áframhaldandi til-
raunum ríkisstjórnanna tveggja til
að binda enda á ættflokkadeilur á Sri
Lanka. Sex hundruð hermenn af 45
þúsund manna liði Indverja komu til
Madras í gær.
Brottflutningur hermannanna var
skilyrði fyrir því að viðræður hæfust
á ný milli Indlands og Sri Lanka um
brottflutning friðarsveita Indverja og
leiðir til að tryggja framtíð minni-
hluta tamíla á eyjunni.
Utanríkisráðherra Sri Lanka,
Ranjan Wijeratne, ræddi á laugardag
við indverskan starfsbróður sinn,
Narasimha Rao, í Nýju Delhi og
vamarmálaráðherra Indlands, Kris-
hnan Chandra Pant. í tilkynningu
frá indverska utanríkisráðuneytinu
sagði að viðræðurnar_hefðu veriö
vinsamlegar. Heimildir á Sri Lanka
hermdu að viðræðumar hefðu geng-
ið vel. Sendinefnd Sri Lanka hittir
Rajiv Gandhi, forsætisráðherra Ind-
lands, í dag.
Indverjar hafa neitað að flytja her-
menn sína á brott fyrr en tamílar
hafi fengið sjálfstjórn eins og gert er
ráð fyrir í samkomulagi frá 1987.
Mikill fjöldi tamíla býr á Indlandi.
En Premadasa, forseti Sri Lanka, er
undir æ meiri þrýstingi frá blóðugri
uppreisn meirihluta sinhalesa undir
stjórn hinnar marxísku Frelsishreyf-
ingar alþýðunnar. Um 150 manns
létu lífið í mótmælum gegn Indlandi
síðastliðna tvo daga þrátt fyrir út-
göngubann um allt land.
Indverjar vilja einnig veikja
skæruhða tamíltígranna, sem hafa
drepið eitt þúsund friðargæslumenn,
og vernda hófsamari hópa tamíla.
Reuter
Viðrædur um Hong Kong
Bretland og Kína hafa komist að
samkomulagi um að taka að nýju upp
viðræður um yfirráð Kína yfir Hong
Kong árið 1997 að því er John Major,
utanríkisráðherra Bretlands, skýröi
frá í gær. Major og Qian Qichen, kín-
verskur starfsbróðir hans, hittust í
París þar sem þeir sitja friðarráð-
stefnu um Kambódíu.
Heimildir í Bretlandi herma að
þetta hafi verið fyrsti fundur hátt-
settra embættismanna stjórnanna
tveggja eftir að kínversk stjómvöld
kváðu niður lýðræðiskröfur náms-
manna í júní. Aðfór kínverskra
stjórnvalda gegn lýðræðissinnum
vakti mikinn óhug í Hong Kong.
Heimildir segja að fyrsti fundurinn
verði haldinn í London en síðan verði
annar fundur í Peking, líklega í des-
ember.
James Baker, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, sem einnig er á friö-
arráðstefnunni um Kambódíu, var-
aði bresk stjórnvöld við því að senda
víetnamska flóttamenn heim frá
Hong Kong en bandarískir embætt-
ismenn neituöu að skýra frá því
hvort þeir hefðu veriö fullvissaðir
um að hætt yrði við áætlunina.
Mál flóttamannanna kom upp á
fundi Bakers og Majors í gær. Banda-
rískur embættismaður sagði að Ba-
ker hefði skýrt Major frá harðri and-
stöðu Bandaríkjanna gegn því að
flóttamenn yrðu sendir heim gegn
vilja sínum. Annar embættismaður
skýrði frá því að búast mætti við til-
kynninguummáliðídag. Reuter
Róttækir umbótasinnar
taka sig saman á þingi
Róttækir þingmenn á sovéska
þinginu settu á laggirnar eigin þing-
hóp um helgina. Fimm þingmenn,
þar á meðal umbótasinninn Boris
Jeltsin og Andre Shakarov, voru
kosnir til að vera í forsæti hópsins.
Leiðtogar hópsins segja hann pjóta
stuðnings um fimm hundruð þing-
manna. Stofnun slíks þinghóps er
einsdæmi í nær sjötíu ára hefð í so-
véskum stjómmálum.
Jeltsin, sem rekinn var úr stjórn-
málaráöi kommúnistaflokksins á
síðasta ári, sagði í samtali við blaða-
menn að þetta sýndi hversu langt
lýðræðisleg hugsun hefði náð í Sov-
étríkjunum. Nokkrir þingmenn
hvöttu til þess aö aðeins einn leiðtogi
yrði fyrir hópnum, Jeltsin, en hann
kvaðst ánægður með aö margir
menn hefðu verið kosnir. Hann sagði
að hópurinn myndi vinna að róttæk-
um umbótum í þjóðfélaginu, bæöi á
þingi sem og utan þess.
Einn leiötoga hópsins, sagnfræð-
ingurinn Jury Afanasyev, sagði að
margir meðlimir hins nýja stjóm-
málaafls væru hlynntir fjölflokka-
kerfi í Sovétríkjunum. Jeltsin hefur
ítrekað hvatt til umræðu um það.
Hópurinn var stofnaður á tveggja
daga fundi um helgina. Sagði einn
heimildarmaður að rúmlega þrjú
hundruð þingmenn hefðu sótt fund-
inn en auk þess hefðu um 120 til við-
bótar gefið til kynna stuðning sinn.
Þá sagði hann einnig að um 130 þing-
menn frá Eystrasaltsríkjunum
styddu hópinn. Reuter
Boris Jeltsin er einn forystumanna nýstofnaðs þinghóps í Sovétríkjunum.
Teikning Lurie