Dagblaðið Vísir - DV - 31.07.1989, Page 14

Dagblaðið Vísir - DV - 31.07.1989, Page 14
14 MÁNUDAGUR 31. JÚLÍ 1989. Frjálst.óháÖ dagblaö Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON Ritstjórar: JÓNAS KRISTJANSSON og ELLERT B. SCHRAM Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELlAS SNÆLAND JÓNSSON Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON Auglýsingastjórar: PÁLL STEFÁNSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift, ÞVERHOLTI 11,105 RVlK, SiMI (1 )27022 - FAX: (1 )27079 Setning, umbrot, mynda- og plötugerð: PRENTSMIÐJA FRJALSRAR FJÖLMIÐLUNAR HF„ ÞVERHOLTI 11 Prentun: ÁRVAKUR HF. - Áskriftarverð á mánuði 900 kr. Verö í lausasölu virka daga 85 kr. - Helgarblað 100 kr. Stjórnmálakreppa Varla fer það á milli mála að núverandi ríkisstjórn er afar lágt skrifuð meðal kjósenda. Skoðanakannanir benda til þess, almenningsálitið ber þess merki og jafn- vel fylgismenn stjómarflokkanna sjálfra era vondaufir og vonsviknir. Guðmundur Einarsson, framkvæmda- stjóri Alþýðuflokksins, segir í grein í Alþýðubalaðinu: „Islensk pólitík er í kreppu. Ríkisstjórn Steingríms Her- mannssonar hefur ekki tekist að ala von og trú. Hún er á góðri leið með að vekja upp „vinstristjórnardraug- inn“.“ En um leið og þessi staðreynd blasir við, má sömuleið- is spyrja: hver man eftir vinsælh og velheppnaðri ríkis- stjórn síðustu tvo áratugina? Samtals hafa átta ríkis- stjórnir verið myndaðar á síðustu tuttugu árum og þær hafa verið hver annarri misheppnaðri. Vinstri stjómirn- ar hafa allar hrökklast frá með skömm og fyrri sam- stjórn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks á þessu tímabih leiddi til mikils fylgishruns hjá þeim flokkum. Einhver kann að benda á samstjórn Framsóknar og Sjálfstæðisflokks á árunum 1983 til 1987, en sú stjórn naut mikillar uppsveiflu í afla og verðlagi. Það var hins- vegar sú stjórn sem hélt fastgengisstefnunni til streitu og gaf vextina frjálsa, en alla tíð síðan höfum við verið að súpa seyðið af þeirri póhtík. Fast gengi og frjálsir vextir hefðu verið réttlætanlegar efnahagsaðgerðir ef verðbólgunni hefði á sama tíma verið haldið í skefjum. Það mistókst og fyrir vikið gekk efnahagur þjóðarinnar og fyrirtækjanna ahur á skjön. Þegar htið er til efnahagserfiðleikanna, sem núver- andi ríkisstjórn er að ghma við, verður að viðurkenna, að þau vandamál eru í svipuðum dúr og aðrar ríkis- stjórnir hafa þurft að glíma við. Ghman við verðbólguna og efnahagsvandann virðist eilíf hér á landi. Sömu við- fangsefnin ár eftir ár: tap á fiskvinnslu, iðnaður í ösku- stó, landbúnaður á opinberri ffamfærslu, halh á ríkis- Úármálum, ofsköttun og barátta launafólks til að halda í kaupmáttinn. Nú eru það okurvextirnir og atvinnu- leysið sem bæst hafa við syndaregistrið. Að öðru leyti er þetta eins. Islendingar hafa ekki mikla trú á að núverandi ríkis- stjóm ráði við vandann frekar en aðrir. Það má vel vera að ráðhemmum líki samstarfið og þeir séu bræður í andanum. En það traust hefur ekki smitað út frá sér, ríkisstjóminni hefur „ekki tekist að ala von og trú“. Þar ræður mestu að hún er upptekin við skottulækning- ar ffá degi th dags og sér aldrei skóginn fyrir trjánum. Það skortir yfirsýn og leiðsögn. Steingrímur Hermanns- son hefur notið óvanalegra vinsælda og velvhja í skoð- anakönnunum og hann er sá stjómmálamaður íslensk- ur sem hefur á síðustu árum haft bestan byrinn th að ala á von og trú. En Steingrímur hefur hikað og hikstað og er að missa tækifærið úr höndum sér. Vandi íslensku þjóðarinnar er stjórnmálalegur. Við búum við efnahagskreppu sem er stjórnmálakreppa. Kjósendur em að glata trúnni á flokkapóhtík, sem ekki hefur reynst vandanum vaxin. Islendingar leysa ekki efnahagsmál sín nema með sterkri ríkisstjórn, sem veit hvað hún vhl og hefur fólk- ið með sér. íslendingar em þreyttir á heimathbúnum efnahagsvanda, þeir em þreyttir á stjórnmálamönnum sem kunna ekkert annað en smáskammtalækningar. Núverandi ríkisstjórn, næsta ríkisstjórn, hvaða ríkis- stjóm sem er, getur sýnt sig og sannað í þessum efnum. En hún þarf að vita hvað hún vhl. Og fólkið þarf að vita hvað hún vhl. Ehert B. Schram Árátta Alexanders Áráttu Alexanders Stefánssonar í að rakka niður allar gjörðir fé- lagsmálaráðherra, Jóhönnu Sig- urðardóttur, virðast engin tak- mörk sett. Alexander stekkur venjulega upp á nef sér og verður ofsalega reiður við hverja fram- kvæmd félagsmálaráðherra, sér- staklega í húsnæðismálum. Hann þvælist fyrir í hverju málinu á fæt- ur öðru, órökstuddar dylgjur eru settar fram og kappkostað að kasta rýrð á núverandi félagsmálaráð- herra og gjörðir hennar, oft með broslegum tilburðum sem hitta mest fyrir Alexander sjálfan. Hann sést ekki fyrir og opinberar þekk- ingarleysi sitt á viðfangsefninu og menn brosa og spyrja: Hvers vegna er Alexander svona reiður? í kjallaragrein í DV mánudaginn 24. júlí sl. gerist þetta enn. Nú er félagsmálaráðherra fundið allt til foráttu vegna félagslegra íbúða í tíð hennar sem húsnæðisráðherra og sérstaklega á hún að hafa kapp- kostað að draga niður hlut lands- byggðarinnar í félagslegum íbúð- um. Hér er á ferðinni svo rakalaus staðhæfmg að ekki verður hjá því komist að hið sanna komi í ljós, þó yflrleitt séu skrif og ummæh Alex- anders í garð félagsmálaráðherra ekki svaraverð og dæmi sig sjálf. Fjárveitingar til félagslegra íbúöa Alexander gefur sjálfur í grein sinni tilefni til að bera saman hlut félagslegra íbúða í tíð hans sem félagsmálaráðherra og hvemig þar hefur verið staðið að málum af hálfu núverandi félagsmálaráð- herra. Á flórum árum, 1984-1987, í tíð Alexanders, voru veitt lán til 1165 félagslegra íbúða. Á tveimur árum, 1988-1989, í tíö núverandi félagsmálaráðherra, hafa verið heimiluð lán til 1237 fé- lagslegra íbúða eða fleiri en á öllu kjörtímabili Alexanders. Sú staðreynd hefur komið fram í fréttabréfi Húsnæðisstofnunar rík- isins að hluti lánveitinga úr Bygg- ingasjóði verkamanna til félags- legra íbúöabygginga hafi aukist um 50% milh áranna 1987 og 1988 eða á fyrsta ári Jóhönnu Siguröardótt- ur sem félagsmálaráðherra. Varla þarf að tíunda að það hefur ekki gengið þrautalaust fyrir sig hjá Jóhönnu Sigurðardóttur að ná fram þessari gífurlegu aukningu fiármagns til félagslegra íbúða á þessum tveimur árum þegar sótt er að byggingarsjóðnum vegna nauðsynlegs niðurskuröar í ríkis- flármálum. Hlutur landsbyggðarinnar Alexander skammar núverandi félagsmálaráðherra fyrir að draga niður hlut landsbyggðarinnar í fé- lagslegum íbúðabyggingmn og tek- ur þar sérstaklega fyrir kaupleigu- íbúðir. Það er hreinlega aumkunarvert að sjá hversu Alexander leggst lágt í að hagræða sannleikanum, ekki síst í ljósi þess hve hann barðist gegn kaupleiguíbúðum, og man ég ekki betur en að hann teldi nægjan- legt 1987 að byggja samtals 100 kaupleiguíbúðir til reynslu næstu 3 árin. Nú skammast hann yfir hve landsbyggðin fái „htinn“ hlut í kaupleiguíbúðum enda hefur runniö upp fyrir Alexander að þær henta landsbyggðinni vel aö mati flestra sveitarstjómarmanna. Hver hefur þá hlutur landsbyggð- arinnar verið í kaupleiguíbúðun- um? Jú, af 495 kaupleiguíbúöum, sem framkvæmdaheimildir hafa verið veittar til með 10 mánaða mihibih, hafa 187 íbúðir farið til Reykjavíkur og Reykjaness en 308 ibúðir á aðra staði á landsbyggð- inni. Kjallaiiim Rannveig Guðmundsdóttir aðstoðarmaður félagsmálaráðherra Þessi staðreynd sýnir ljóslega að hvert orð núverandi félagsmála- ráðherra stenst þegar hún í baráttu sinni fyrir kaupleiguíbúðum hélt því fram að með kaupleiguíbúðum yrði gert átak í félagslegum íbúðum á landsbyggðinni. í ljósi þeirrar gagnrýni, sem fram hefur komið á hlut landsbyggöar- innar í hehd í félagslegum íbúðum (kaupleigu, verkamannabústöð- um, leiguíbúðum), er ástæða til að draga fram hlut landsbyggðarinn- ar í félagslegum íbúðum á 4 ára tíma Alexanders Stefánssonar sem félagsmálaráðherra og bera hann saman við hlut landsbyggðarinnar sl. tvö á eftir að Jóhanna Sigurðar- dóttir varð félagsmálaráðherra. 1984 til 1987 samtals 1165 íbúðir: Landsbyggðin: 329 íbúðir eða 28,2% af heildinni. Reykjavík/Reykjanes: 836 íbúðir eða 71,9% af heildinni. 1988 og 1989 samtals 1241 ibúð: Landsbyggðin: 566 íbúðir eða 45,6% af heildinni. Reykjavík/Reykjanes: 675 íbúðir eða 54,4% af heildinni. Þessar tölur sýna að nærfellt helm- ingi fleiri lánveitingar hafa runnið til landsbyggðarinnar á tveimur árum i tíð Jóhönnu Sigurðardóttur sem ráðherra samanborið við 4 ár Alexanders í stól félagsmálaráð- herra. Með öðrum orðum: U.þ.b. flórða hver íbúð kom í hlut lands- byggðarinnar þegar Alexander Stefánsson var ráðherra. Njóta fulltrúar Framsóknarflokksins ekki trausts fyrrverandi félagsmálaráðherra? Gagnrýni á Jóhönnu Sigurðar- dóttur fyrir að hafa ekki verið með pólitíska íhlutun í gjörðir hús- næðismálastjómar, sem kjörin er af Alþingi, segir sína sögu. Þessi stjóm, sem skipuð er fulltrúum flestra stjómmálaflokka og aðilum vinnumarkaðarins, hefur sam- kvæmt lögum óskipt vald án nokk- urra afskipta ráðherra til að ákveða skiptingu lánveitinga til fé- lagslegra íbúða, enda er henni ætl- að að afla allra upplýsinga og gágna og þeirrar þekkingar sem nauðsyn- leg er til aö skiptingin veröi réttlát og hagkvæm þjóðarheildinni. Og segir það ekki sína sögu þegar 10 manna stjóm er einhuga um slíka afgreiðslu? Alexander gagnrýnir ráðherra fyrir að hafa ekki kallað sflómina á sinn fund til að gefa henni tilskip- anir um skiptingu lánveitinga og vera gagnstætt lögum með póh- tíska íhlutun í gjörðir sflómar sem Alþingi hefur kjörið til m.a. að ann- ast þetta verkefni. Það hlýtur að vera dapurlegt fyrir þennan fyrr- verandi félagsmálaráðherra þegar litið er til samstöðu húsnæðismála- sflórnar í þessu máh að gagnrýni Alexanders snýst i höndum hans og helst að sjá að hún beinist að tveimur fulltrúum Framsóknar- flokksins sem kjömir hafa verið af hálfu flokksins til að framfylgja stefnu hans í húsnæðismálum. Meðan ég sem skipaður formaður sflómar Húsnæðisstofnunar ríkis- ins hef notiö óskoraðs trausts fé- lagsmálaráðherra til að standa fag- lega að þessari vinnu hlýtur það að vera fúlltrúum Framsóknar- flokksins íhugunarefni hvort þeir njóta ekki trausts fyrrverandi fé- lagsmálaráðherra síns. Glerhús Alexanders virðist því harla brot- hætt í þessu máli eins og svo oft áður þegar hann hefur farið offari gegn Jóhönnu Sigurðardóttur. Veit fyrrverandi félagsmálaráðherra ekki betur? Honum viröist mikið niðri fyrir þegar hann staðhæfir að nýaf- staðnar lánveitingar séu þær síð- ustu fyrir sveitarsflómarkosning- ar í júní á næsta ári og segir þær gilda fyrir árin 1989 og 1990. Mað- ur, sem var félagsmálaráðherra í flögur ár, virðist ekki vita að slíkar lánveitíngar eða úthlutanir fara fram árlega og þá yfirleitt í febrú- ar-mars. Það var sérstök staða sem olli því að þær vom svo seint á ferð í ár. Sjálf vonast ég til að lánveit- ingar vegna ársins 1990 verði sam- þykktar á veiflulegum tíma eftir næstu áramót. Ef Alexander veit betur en hann lætur í ljós er það hlálegt ef hann álítur að forgangur ríkissflómarinnar við flárlagagerð næsta árs liggi ekki á sviði félags- legra íbúða. Þar sem Jóhanna Sigurðardóttir hefur eignast svo dyggan stuðn- ingsmann í Alexander hvað varðar kaupleiguíbúðir get ég vart trúað öðm en hann leggi henni hð við næstu Qárlagagerð til að auka hlut kaupleiguíbúöanna á næsta ári. Lokaorð Þeir skilmálar gilda m.a. um af- greiöslu framkvæmdalána nú að framkvæmdaaðilum er gert að at- huga um kaup á eldra húsnæði til umræddra nota áður en ákvörðun er tekin um nýbyggingar og er þetta ásamt fleiri þáttum viðleitni húsnæðismálasflómar til að stýra meö opinberu flármagni eðlilegri dreifingu nýbygginga í landinu. í greinargerð, sem húsnæðis- málastjóm hefur sent frá sér, kem- ur fram að húsnæðismálasflóm sjálf hefur þegar samþykkt að láta gera sérstaka úttekt á þörf fyrir félagslegt húsnæði á landinu til næstu 4 ára sem höfð verður til hliðsjónar viö næstu úthlutanir. Tillaga Alexanders um þaö efni í greininni er því óþörf. Rannveig Guðmundsdóttir „Ef Alexander veit betur en hann lætur í ljós er það hlálegt ef hann álítur að forgangur ríkisstjórnarinnar við fjár- lagagerð næsta árs liggi ekki á sviði félagslegra íbúða.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.