Dagblaðið Vísir - DV - 31.07.1989, Side 15

Dagblaðið Vísir - DV - 31.07.1989, Side 15
MÁNUDAGUR 31. J.ÚLÍ 1989. 15 Burke og franska byltingin Þótt franska byltingin mistækist, leiddi af sér ógnarstjóm Robe- spierres og landvinningastefnu Napóleons, mátti að minnsta kosti segja eitt gott um hana. Hún rak breska stjómmálamanninn Ed- mund Burke til að gera grein fyrir stjómmálaskoðunum sínum. Hann lýsti því af mikilli mælsku í Hug- leiðingum um frönsku byltinguna (Reflections on the Revolution in France) 1790, hversu hættulegt það er að ijúfa allar gamlar venjur, skilja ekkert eftir á milli valdhafa og almennings, brenna allar brýr að baki sóe. Við hin hatrömmu átök hinum megin Ermarsunds tók Burke til varnar fyrir þróun í stað byltingar, samhæíingu í stað ein- hæfingar. Ég las á dögunum Hug- leiðingar Burkes aftur í tilefni tvö hundruð ára afmæhs frönsku bylt- ingarinnar og langar til að deila með lesendum nokkrum athyglis- verðustu athugasemdum hans. /Etlun og árangur Alkunna er, að margt fer öðmvísi en ætlað er. Á það ekki síst við um ríkisafskipti, þar sem niðurstaðan er oft ekki í neinu samræmi við tilganginn. Meginástæðan er vita- skuld þekkingarskortur okkar. Við sjáum ekki allt fyrir. Hér hafði Burke lög að mæla: „Þau vísindi, sem fást við að reisa ríki, endur- reisa það eða endurbæta, eru ekki fremur en önnur reynsluvísindi sótt í heila heimspekinganna. Sú reynsla, sem kennt getur okkur svo hagnýt fræði, er ekki heldur skammæ. Raunverulegar afleið- ingar siðferðilegra orsaka koma ekki alltaf strax fram. Það, sem virðist í fyrstu illt, getur eftir nokk- um tíma reynst hið besta, ef til vill KjaUarinn Dr. Hannes HóEmsteinn Gissurarson lektor einmitt vegna hinna illu skamm- tímaafleiðinga sinna. Hið öfuga gerist stundum líka. Áætlanir, sem virðast raunhæfar og hefjast vel, hafa oft hinar verstu og skammar- legustu afleiðingar." Viskan - reynsla kynslóðanna Sumir heimspekingar reyna að skilja mannlega tilveru, aðrir að breyta henni eftir eigin hugmynd- um um, hvernig hún eigi að vera. Burke var í fyrri hópnum, eins og þessi orð sýna: „í stað þess að ráð- ast á gamlar forskriftir nota margir spekingar vorir gáfur sínar til að leita reynsluvits, sem í forskriftun- um felst. Ef þeim tekst að finna það, og það gerist ósjaldan, þá telja þeir hyggilegra að halda áfram að fara eftir þeim með skynsemina innan borðs en að kasta þeim út- byrðis og eiga ekkert efúr nema blábera skynsemina. Forskriftir, sem studdar eru skynseminni, geta vakið menn til skynsamlegrar breytni og laðað þá til að halda henni áfram. Forskriftir koma sér best, þegar mest á ríður. Þær hafa þá þegar beint huganum inn á brautir visku og dygðar og skilja menn ekki eftir hikandi, efagjama, ringlaða og óákveðna á úrslita- stundum. Forskriftir breyta dygð í fastan vana, ekki röð ótengdra at- hafna. Með aðstoð forskrifta verða dygðimar eiginlegar mönnum.“ Ábyrgir einstaklingar - ábyrgðarlaus múgur Við vitum, að flestir menn haga sér öðmvísi í augsýn annarra en þar, sem enginn sér til. Nafnleys- inginn er jafnan ábyrgðarlaus. Hiö sama er að segja um múginn. Hann getur veriö miklu verri en menn- irnir, sem í honum em, vegna þess að þeir hverfa inn í hann og þurfa þess vegna ekki að standa öðrum reikningsskil gerða sinna. Ein- staklingar eru ábyrgir, múgurinn ábyrgðarlaus. Um þetta sagði Burke: „Sá álitshnekkir, sem hver einstakur þátttakandi er líklegur til að bíða við opinberar athafnir, er hverfandi. Máttur almenningsá- litsins er í öfugu hlutfalli við fjölda þeirra manna, sem misnota völd sín. Með eigin samþykki við eigin athöfnum ímyndar lýðurinn sér, að felldur hafi verið opinber dómur honum í vil. Óheft lýðræði er þess vegna öllu öðru blygðunarlausara. Og þaö kann ekki að hræðast frem- ur en að skammast sín.“ Skammsýni og víðsýni Eitt megineinkenni okkar daga er, hversu skammsýnir menn eru. Þeir hafa asklok fyrir himin, mannúð þeirra nemur staðar við landamæri, þeir bera ekki virðingu fyrir forfeðrum sínum og búa ekki í haginn fyrir afkomendur sína. Kjörorð þeirra eru: hér og nú - og ekkert annað. Ein frægustu um- mæli Burkes hniga í allt aðra átt. „Mannlegt samlíf er vissulega sátt- máli. Segja má upp samningum, sem menn gera um tíma sín á milli í ávinnings von. En ekki má líta á ríkið eins og fyrirtæki, er versli með pipar, kaffi, tóbak eða annað slíkt smælki, stofnað af litlu tilefni og lagt niður, þegar mönnum sýn- ist. Fyrir ríkinu hljótum vér að bera meiri virðingu, því að það er ekki samtök um þá hluti, sem vér þörfnumst til hins hverfula, tíma- bundna lífs dýrsins. Það er samtök um öll vísindi, samtök um allar hst- ir, samtök um allar dygðir og alla fullkomnum. Þar eð tilgangi slíkra samtaka verður ekki náð á nokkr- um mannsöldrum, er það ekki samtök þeirra, sem nú lifa, heldur lifandi kynslóðar og allra látinna og óborinna.“ Samhæfing eða einhæfing? Til eru tvær skoðanir á hlutverki laga og ríkisvalds. Önnur er, að lög séu til þess að auðvelda ólíkum ein- staklingum að lifa saman í friði. Þau séu til þess að gera þeim kleift að laga sig nauðungarlaust hveij- um að öðrum, stilla saman strengi sína. Hin skoðunin er, að lög séu tilskipanir. Þau séu til að tryggja, að alhr vinni saman að einu mark- miði, hvort sem það er hámörkun framleiðslu, sigur í stríði, óspjahað umhverfi eða hreinn kynstofn. Burke kom svofelldum orðum að hinni fyrmefndu skoðun: „Vér bætum, vér sættum, vér stihum saman. í krafti þess getum vér sam- einað í eina heild hinar gömlu venj- ur og ólíku markmið, sem til em í hugum og athöfnum manna. Þau gæði, sem vér öðlumst við þetta, em ekki gæði einfóldunar, heldur annað og miklu meira: gæði sam- setningar." Nokkrar niðurstöður Burke sá miklu lengra en samtíð- armenn hans. Eðhsávísun hans var næstum því óbrigðul. Og hveijar em niðurstöðumar? Ein er, að þró- un er að jafnaöi heppilegri en bylt- ing. Við getum ekki gert lyf við sjúkdómum að daglegri fæðu. Önn- ur er að við megum ekki loka aug- unum fyrir þeirri sögulegu skyn- semi, sem felst í gömlum venjum, vinnubrögðum og reglum. Hin þriðja er, að frelsið er aðeins fram- kvæmanlegt innan marka laga og almenns velsæmis. Hannes Hólmsteinn Gissurarson „Þróun er að jafnaði heppilegri en bylt- ing. Við getum ekki gert lyf við sjúk- dómum að daglegri fæðu.“ Fækkum þing- mönnum í 39 Lesandi góður. Útþenslu ríkis- báknsins verður að stöðva, það virðast allflestir íslendingar vera sammála um. Það verður ekki gert með neinum bitastæðum árangri nema byrjað verði efst og þing- mönnum fækkað svo um munar. Þá fyrst þegar Alþingi hefur tekið myndarlega á eigin málum er það orðið góð fyrirmynd annarra ríkis- stofnana. Við búum við kjördæma- skipan með 8 misfjölmennum kjör- dæmum og 8 til 10 virka stjórn- málaflokka í landinu. Undir þeim kringumstæðum er mjög erfitt að fækka þingmönnum án þess að veruleg hagsmunaröskun eigi sér stað, annaðhvort einstakra stjórn- málaflokka eða landshluta. Raunhæfur og sanngjarn kostur Ekki verður stjórnmálaflokkum fækkað, það er víst, og að ætla sér aö gera fækkun kjördæma að for- sendu fyrir fækkun þingmanna er ekki áhtlegt til árangurs. Talan 39 virðist við múverandi aðstæður hafa lágmarks röskun á hagsmun- um í för með sér og bjóða upp á mesta „sanngimi" og ætti því að vera raunhæfasti kosturinn. Þá yrði þingmönnum fækkað úr: Reykjavíkur...............18 í 12 Reykjaness................11 í 7 Vesturlands................6 í 3 Vestfjarða.............'..5 í 3 Norðurlands vestra.........5 í 3 Noröurlands eystra.........6 í 4 Austurlands................5 í 3 Suðurlands.................6 í 4 KjaUarinn Þannig myndi alþingismönnum fækka um 24, eða úr 63 í 39, en það er fækkun um 38%; og munar um minna. Kjördæmakjörnir þing- menn yrðu þá væntanlega 9 í Reykjavík, 5 á Reykjanesi og 3 í hvéiju hinna kjördæmanna. Þann- ig yrðu 32 kjördæmakjömir þing- menn. Þingsætum væri úthlutað með núverandi fyrirkomulagi. Síð- an yrðu 7 þingsæti, 3 í Reykjavík, 2 á Reykjanesi og 1 í Norðurlands- kjördæmi eystra og 1 í Suðurlands- kjördæmi notuð sem jöfnunar- þingsæti. Miðað við það og úrslif síðustu alþingiskosninga í apríl 1987 myndi þingstyrkur stjóm- málaflokkanna breytast þannig: Alþýðuflokkur............10 í 6 Framsóknarflokkur........13 í 8 Sjálfstæðisflokkur.......18 í 11 Alþýðubandalag............8 í 6 Samtökumjafnr.ogfél.......1 í 0 Borgaraflokkur............7 í 4 Kvennahsti................6 í 4 eins og áður sagði. Allir sem væru þingmenn sam- kvæmt þessari tillögu unnu sér rétt til setu á alþingi í síðustu kosn- ingum. í raun em það þeir 39 þing- menn, sem hafa mest fylgi á bak við sig í hverjum flokki, sem eftir veröa, hinir víkja. En hvaða 24 alþingismenn skyldu það nú vera sem ekki heföu þá komist á þing í síðustu kosningum, nema þá sem varamenn, en fóm inn vorið 1987? í Reykjavík: Eyjólfur Konráð Jónsson, Guð- mundur H. Garðarsson, Jón Bald- vin Hannibalsson, Aðalheiður Bjarnfreðsdóttir, Geir H. Haarde og Þórlúldur Þorleifsdóttir. Á Reykjanesi: Salóme Þorkelsdóttir, Jóhann Ein- varðsson, Karl Steinar Guðnason og Hreggviður Jónsson. I Vesturlandskjördæmi: Skúli Alexandersson, Ingi Bjöm Albertsson og Danfríður Skarphéð- insdóttir. Á Vestfjörðum: Þorvaldur Garðar Kristjánsson og Sighvatur Björgvinsson. Á Norðurlandi vestra: Stefán Guðmundsson og Jón Sæ- mundur Siguijónsson. Á Norðurlandi eystra: Steingrímur J. Sigfússon, Valgerð- ur Sverrisdóttir og Stefán Valgeirs- spn. í Austurlandskjördæmi: Jón Kristjánsson og Egih Jónsson. í Suðurlandskjördæmi: Eggert Haukdal og Guðni Ágústs- son. Jæja, lesandi góður. Hvemig hst þér nú á þessa upptalningu? Þarna er í raun verið að tína út þá 24 þing- menn sem að öllum líkindum heföu ekki tekiö sæti á Alþingi ef þing- mönnum væri þegar búið að fækka í 39, nema þá sem varamenn. Að sjálfsögðu heföu margir fram- boðshstar verið öðruvísi ef kosið heföi verið um 39 þingsæti í stað Brynjólfur Jónsson hagfræðingur og formaður efnahagsnefndar Borgaraflokksins Og Borgaraflokkinn heföi vantað um 55 atkvæði til að vinna 1 þing- mann af Alþýðubandalaginu. Rík- isstjóm Steingríms Hermannsson- ar heföi 1 þingsætis meirihluta sem í raun heföi oltið á 55 atkvæðum „Þannig myndi alþingismönnum fækka um 24, eða úr 63 í 39, en það er fækkun um 38% og munar um minna.‘ Þingstyrkur stjórnmálaflokkanna mundi líta þannig út. 63. Hitt er þó víst að störf Alþingis væru skilvirkari, virðing fyrir þinginu meiri óg aht umstang í kringum þinghaldið minna og ódýrara. Svo má ekki gleyma því að fundir yrðu styttri þegar færri þurfa að taka th máls. Kostir og gallar Húsnæðismál Alþingis væru leyst, bhastæðisvandi alþingis- manna væri meira að segja umtals- vert minni. Þingið væri þá ein málstofa og það sem mestu máh skiptir að hver og einn alþingis- maður myndi vafalaust finna til verulega meiri ábyrgðartilfinning- ar gagnvart landi og þjóð við af- greiðslu mála. Nefndum myndi fækka umtalsvert við það að gera þingið að einni málstofu. Kostimir við að fækka þing- mönnum eru miklu fleiri en gall- arnir sem eru óverulegir. En stærsti ávintúngurinn yrði sá að í framhaldi af fækkun þingmanna væri hægt að ná verulega betri ár- angri við niðurskurð hjá hinu opin- bera en eha. En vhji er aht sem þarf; ekki vhji almennings, því miður, heldur vilji þeirra 63 þingmanna sem á alþingi sitja. Brynjólfur Jónsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.