Dagblaðið Vísir - DV - 31.07.1989, Side 16

Dagblaðið Vísir - DV - 31.07.1989, Side 16
MÁNUDAGUR 31. JÚLÍ 1989. Lesendur Fiskvinnslan og „gefnu loforðin(f Steinþór hringdi: Mér finnst nú vera komiö nóg af þessu sem kallaö er „þrýstingur“ á hinn sameiginlega sjóð okkar, rík- issjóð. Verð ég þó að segja að mér sýnist að fiskvinnslan, þessi fyrr á tímum aðalatvinnugrein, sé að verða eins og þjóðarómagi. Og þrýstingur forsvarsmanna hennar á stjórnvöld er að verða einhver sá hvimleiðasti sem hér er tíðkaður - og er hann þó ekki minni annars staðar frá. Af fréttum að dæma og úttekt, sem gerð hefur verið, segja fisk- vinnslumenn að útlit sé fyrir hátt í tveggja milljarða króna tap á fisk- vinnslu þessa árs og bæta alltaf viö: „verði ekkert að gert“! - Tapið á sl. ári var sagt vera tæpir 3 millj- arðar króna. Og nú halda þessir menn áfram og kyrja slagorðin: Ætla stjómvöld ekki að standa við gefin loforð? - Við krefjumst viðunandi rekstrar- skilyrða. - Óhjákvæmilegt aö fella gengið. - Allt eru þetta þekkt slag- orð úr herferðinni á ríkissjóð. Ég get ekki séð að ríkisstjóm þessa lands geti yfirleitt gefið ein eða önnur loforð um „viðunandi rekstrarskilyrði" eða gengistil- færslur, einfaldlega vegna þess að ef slík loforð eru gefin þá verða landsmenn í heild fyrir hlutfalls- lega jafnmiklum skakkafollum og nemur þeirri upphæð sem fisk- vinnslan fær til sín frá hinu opin- bera - eða fyrir tilstuölan þess í „Fiskvinnslan sjái sjálf fyrir sér,“ segir hér m.a. formi ýmissa „ráðstafana". og leyfa henni að rúlla ef svo ber að fiskvinnslan sé rekin með hagn- Ég sé því ekki annað ráð fyrir undir. Við getum ekki gert út á hin aði verður það að koma af sjálfu forráðamenn þessa þjóðfélags en „gefnu loforð" eða ábyrgst ein- sér en ekki fyrir tilstuðlan opin- láta fiskvinnsluna sjálfa sjá fyrir hvern „viðunandi rekstrargrund- berra aðgerða. sér, rétt eins og aðrar atvinnu- völl“ fyrir einn eða annan í þessu greinar eða heimili landsmanna, þjóðfélagi. Ogefþaöerlífsnauðsyn Hugleiðing um hvalveiðar Fáir vilja af flöskum vita - nema þær séu fullar. - Frá átöppun í ÁTVR. Tekur enginn tómar vínflöskur? 16 Spumingin Lestu erlend tímarit? Einar Arason: Ég geri nú fremur lítið að því, aðallega þá Times og Life. Haraldur Grétarsson: Nei, ég hef aldrei tíma til þess. Hafþór Róbertsson: Nei, mjög lítið. Þó les ég veiðitímarit en veiði er áhugamál mitt. Signý Sigurðardóttir: Nei, ákaflega lítið. Pétur Böðvarsson: Já, ég les Zikane sem er tímarit um þróunarhjálp. Brynjar Hilmarsson: Nei, ég er svo lélegur í ensku. Guðrún Hagalínsdóttir hringdi: Ég hef imdrast það að Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins tekur ekki lengur við tómum flöskum eins og tíðkaöist hér áður fyrr þegar hægt var að koma með tíl fyrirtækisins allar tómar flöskur - og a.m.k. allar flöskur sem voru frá fyrirtækinu. Nú er þetta liðin tíð, að því er virð- ist, og ég veit ekki um neinn aðila í þjóðfélaginu sem tekur á mótí eða nýtir tómar vínflöskur. En kannski erum við orðin svona rík þjóð að ekki þyki taka því að hirða svona lít- ilræði. Ég býst þó við að tómar vín- flöskur, sem falla til árlega, skiptí mörgum þúsundum, ef ekki tugum þúsunda. Ég spyr því: Hvað skyldi hver gler- flaska kosta hingað komin - og er virkilega enginn aðili sem telur sig geta nýtt tómar vínflöskur? Lesendasíða DV haföi samband við ÁTVR vegna hugleiðinga Guörúnar og fékk þær upplýsingar að ÁTVR hefði annast móttöku á flöskum, merktum fyrirtækinu, fyrr á árum. Þetta væri liðin tíð. Margt kæmi til, þ.á m. það að lítið magn þessara flaskna hefði skilað sér inn aftur. Einnig að talsverður kostnaður hefði fylgt því að hreinsa flöskurnar, sem hefðu komið inn í misjöfnu ástandi, og gera þær klárar til endumotkun- ar. Frá þessu hefði því verið horfið. Lesendasíða reyndi að afla sér upp- lýsinga um verðmætí á tómum vín- flöskum. Um það atriði voru svör mjög á reiki. Samkvæmt lauslegri könnun á því máli má hins vegar ætla að verðmætí hverrar heilflösku af innkaupsverði fari varla niður fyr- ir 10 krónur og geti verið allt aö 15, 20 kr. eftir tegundum. Sanna hringdi: Ég hef verið að hugleiða hvalveiði- málin. Ég verð að segja fyrir mitt leyti að ég er hlynnt því að hvalveið- ar verði stundaðar áfram, a.m.k. að einhveiju leyti. Þeir sem eru á mótí hvalveiðum einungis vegna þess að þeir telja þessar skepnur svo skyn- samar að þær megi ekki veiða fara villir vegar. Ég veit ekki betur en við drepum margar skepnur jarðar okkur til matar og framfærslu þótt þær séu taldar vitibomar og menn hafi fyrir því meiri sannanir en frá hvölunum. Ég undrast það aö við skulum þurfa að taka tillit til eða fara eftir öðmm aðilum en okkur sjálfum um hve mikið við veiðum af hvölum. Þessir erlendu aðilar koma hér inn fyrir okkar landhelgi, jafnvel upp í land- steina, til að krefjast þess að við hættum hvalveiðum! - Þetta tel ég ekki ásættanlegt. Við erum ekki að drepa hvalina okkur til skemmtunar. Við erum fiski- og veiðimannaþjóð og veiðum okkur til framfæris. Hvalkjöt er á- gætt til matar, enda eftírsótt af mjög mörgum. Hvalirnir éta svo og svo mikið af fiski eöa fæðu fiskistofnanna. Við verðum því að láta skynsemina ráða og stjórna veiðunum, taka af hveij- um stofni það umframmagn sem vís- indin telja óhætt. - Ég vona að við vinnum þetta stríð okkar með jafn- mikilli reisn og við unnum þorska- stríðið á sínum tíma. Hringið í síma 27022 rnilli kl. 14 og 16, eöa skrifið. Hefur lög að mæla Arnór hringdi: maður og hann fylgir 'sínum mál- Eftír að hafa hlustað á þátt í ein- um eftir af hörku og einbeitni en hveiju „kastljósinu" eða frétta- það gerir formaður VSÍ líka. Það þættiSjónvarpsumdaginnþarsem er því nokkuð glögg mynd sem formaður Vinnuveitendasambands máöur fær út úr svona viötalsþætti íslands sat fyrir svörum ásamt for- sem túlka gagnstæð sjónarmið. manni BSRB verð ég að taka undir Það fer heldur ekki milli mála aö að hann hefur lög að mæla þegar hvað sem maður hefur mikla sam- hann sagði að ef ekkí tækist að úð með því fólki sem er í hinum stöðva eyðsluna í þjóðfélaginu væri svokölluðu lægri launaflokkum er óhugsandi aö frnna einhvern það afstaða atvinnuveitenda sem rekstrargrundvöll fyrir ffamleiðsl- aö mínu mati túlkar sanngirnis- una í landinu. - Þjóðin yrði að ná sjónarmiöiö eins og málin horfa viö saman og laga sig að þeim veru- í dag. - Það er ekkert nema sam- leika sem hún býr við. dráttur, sparnaöur, aðhald og ná- Það var annars fróðlegt aö hlusta kvæm yfirsýn yfir eyðslu sem get- á þau tvö andstæðu sjónarmiö sem ur komiö landsmönnum til bjálpar. komu fram í þessum þætti, hjá for- - Viö veröum að byija einhvern manni BSRB annars vegar og for- tíma og það er ekki alltof erfitt aö manni VSÍ hins vegar. Ég veit aö byrja einmitt núna. formaður BSRB er mjög greindur

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.