Dagblaðið Vísir - DV - 31.07.1989, Side 20

Dagblaðið Vísir - DV - 31.07.1989, Side 20
20 MÁNUDAGUR 31. JÚLl 1989. Iþróttir Sportstúfar Luzern gerði jafntefli Luzem, lið Sigurðar Grétarssonar, gerði 1-1 jafhtefli við Lausanne á útivelli í svissnesku 1. deildinni um helgina. Sigurður Grétarsson lagði upp mark Luzem sem var skorað á 30. minútu. Það var jöfnunarmark leiksins þar sem Lausanne haföi skorað strax á 1. mínútu. Sigurður komst vel frá sínu og átti ágætan leik. Luzern á heimaleik gegn St. Galien á laugardag en liðið er með 2 stig eftir þrjá leiki. Ne- chatel Xamax er efst í 1. deild með 6 stig en um helgina vann Iiðið Lugano, 4-2. Grasshop- pers frá Zúrich urðu aö sætta sig við l-l jafntefli á heimavelli gegn Servette en með sigri hefðu ,,Engispretturnar‘' kom- ist í efsta sætið. Arsenalvann Liverpool aftur Arsenal vann 1-0 sig- ur á Liverpool í æf- ingamóti sem lauk á Wembley-leikvang- inum í Lundúnum í gær. Með sigrinum varð Arsenal sigur- vegari í mótinu en auk ensku liðanna tveggja tóku Dinamo Kiev og Porto þátt 1 mótinu. Það var varnarmaðurinn Steve Bo- uld sem gerði sigurmark Arse- nal gegn Liverpool með góöum skalla í fyrri hálfleik. Stuttu áður hafði mark verið tekiö af Nigel Winterburn. Arsenal vann Porto, 1-0, í fyrsta leik mótsins á fóstudag og á sama tíma sigraði Liverpool sovésku landsliðsmennina í Dinamo Kiev, 2-0. John Bames og John Aldridge gerðu þá mörk Lá- verpool. í gær vann sovéska liðið Porto, 1-0, og höfnuðu Rússamir þar með í 3. sætinu. Keppir Johnson fyrir Jamaica? n Svo gæti farið að Ben jgy Johnson, sem dæmd- ' ur var i tveggja ára bann á síðustu ólympíuleikum, keppi fyrir hönd Jamaica þegar hann verður aftur löglegur. Johnson er Jamaíkabúi en hefur keppt fyrir Kanada allt frá því að hann hóf keppni. „Ég er mjög spenntur fyrir því að keppa fyr- ir hönd Jamaica þegar og ef ég fæ að keppa aftur á alþjóðleg- um mótum,“ sagði Johnson þegar hann var á ferðalagi í heimalandi sínu í síðustu viku. Johnson var sem kunnugt er dæmdur í bann í Seoul í sept- ember síðasthðnum fyrir notk- un á ólöglegum lyíjum. Málið vakti gífúrlega athygh á sínum tíma og gerir reyndar enn. Keilir hélt Browníng-mótið “*■ Browning-mótið í golfi var haldiö á Hvaleyrarvelhnum um helgina. Úrsht uröu þau að Amar Ástþórsson, GS, sigraði án forgjafar með 73 högg. Amar vann Vignir Traustason, GK, eftir bráða- bana en Vignir hafði einnig leikiö á 73 höggum. Þriðji varð Ragnar Gunnlaugsson, GK, á 74 höggum. í keppni með for- gjöf sigraði Hjalti Þórisson, GR, á 60 höggum, Vignir Trausta- son varð annar á 61 höggi og Ragnar Gunnlaugsson hafhaöi í 3. sæti. Valur og FH í kwöld í kvöld mætast Valur og FH í Hörpu-deild- inni í knattspymu og verður leikur hð- anna á Hlíðarenda. Valsmenn em í efsta sæti dehdarinnar með 21 stig en FH-ingar em aðeins tvelmur á eftir. Það má því búast við toppslag í kvöld klukkan 20. • Fjórir leikmenn Bayern Miinchen fagna sigurmarkinu gegn Niirnberg um helgina. í búningi númer ellefu er Skotinn Alan Mclnally sem skoraði tvö mörk fyrir Bayern, þá kemur sovéski leikmaðurinn Mihailovic, sem skoraði sigurmarkið, og til hægri á myndinni eru þeir Stefan Reuter og Ludwig Kögl. Simamynd/Reuter Knattspymuvertíðin hafín í Vestur-Þýskalandi: - áhorfendur Qölmargir. Stuttgart og Bayem byrja vel Meistarar Bayem Múnchen fóru vel af stað þegar vestur-þýska Bundeslígan hófst um helgina. Bæjarar tóku á móti ná- grönnum sínum, Númberg, og sigruðu, 3-2. Skotinn Alan Mc- Inally, sem nýlega var keyptur th Bayem, fór vel af stað og skoraði tvö mörk í leiknum. Hinn nýhðinn, Radmilo Mihailovic, gerði síðan þriðja markið. Cristian Hausmann og Frank Tuerr gerðu mörkin fyr- ir gestina en það dugöi ekki til. Bæjarar fógnuðu sigri fyrir fram- an fjölmarga áhorfendur á ólymp- íuleikvanginum. • Ásgeir Sigurvinsson og félag- ar í Stuttgart byrjuðu einnig vel og unnu Karlsruhe, 2-0, í enn ein- um nágrannaslagnum. Jurgen Hartinann og Manfred Kastl skor- uðu mörk Stuttgart. Ásgeir átti góðan leik með liði sínu og stjóm- aöi spilinu vel á miðsvæði vallar- ins. • Köln, sem varð í öðm sæti í Bundeslígunni á síðasta keppnis- tímabih, gerði góða ferð til Boch- um og fór þaðan með 1-0 sigur. Uwe Rahn gerði eina mark leiksins og tryggði Kölnarbðinu öh þijú stigin í leiknum. • Kaiserslautem sigraði Bor- ussia Mönchengladbach, 2-1, og gerði Stefan Kuntz bæði mörk „Keisarahallarinnar“. Svíinn Stef- an Effenberg minnkaði muninn fyrir Gladbach. • Hamborgarar gerðu 1-1 jafn- tefli gegn Dússeldorf á útivelh. Hollendingurinn Jan Furtok kom Hamborgurum yfir en landi hans, Dirk Krumpelmann, jafnaði fyrir heimamenn. • Bayer Uerdingen sigraði htla höið Homburg, 3-0. Wolfgang Funkel, Macel Witeczek og Rein- hold Mathy skoruðu fyrir Uerd- ingen. • Bayer Leverkusen sigraði Borussia Dortmund, 1-0, með marki Marek Lesniak sem fæddur er í Tékkóslóvakíu. • Eintracht Frankfurt lagði ná- granna sína, Waldhof Mannheim, 3-1, í Frankfurt. Peter Hobday, Dieter Eckstein og Joern Ander- sen gerðu mörk Eintracht en Uwe Freiler skoraði fyrir Mannheim. • Loks gerðu St. Pauli og Werd- er Bremen markalaust jafntefli í gleðihverfinu fræga í Hamborg. • Þess má geta að óvenjumargt var á knattspyrnuvöllunum í Vestur-Þýskalandi um helgina og er þetta nýtt met á opnunardegi Bundeslígunnar. Ástæða þessa mikla áhorfendafjölda er senni- lega að óvenjumargir nágranna- leikir voru um helgina. -RR

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.