Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 31.07.1989, Qupperneq 26

Dagblaðið Vísir - DV - 31.07.1989, Qupperneq 26
26 MÁNUDAGUR 31. JÚLÍ 1989. íþróttir____________________________dv Geysir og Sleipnir skiptu með sér verðlaunum á stórmótinu Níu hestamannafélög á Suður- landi, milli Heliisheiðar og Lóma- gnúps, héldu stórmót á Hellu um helgina. Hvert félag sendi tvo full- trúa í A- og B-flokka gæðingakeppn- innar, svo og bama- og unglinga- flokk. Auk þess voru kappreiðar og kynbótahrossasýningar. Þátttaka var töluverð en áhorfendur fáir. Fyrsti þurrkur sumarsins sá fyrir því. Dimma nálægt þrennunni í A-flokki gaeðingakeppninnar fengu 6 hestar af 14 hærri einkunn en 8,00 og í B-flokki 'fengu 8 hestar af 15 dæmdum einkunnina 8,00 eða meir. Hross frá hestamannafélögun- um Geysi og Sleipni skiptu með sér verölaunum í gæðingakeppninni. Reyndar stóðu Geysismenn best að vígi eftir dóma því þeir voru með efsta hest í þremur flokkum. Í B-flokki voru glæsileg hross og miklar verðskuldaðar einkunnir. Hryssa Sveins Runólfssonar, Dimma frá Gunnarsholti (Geysi), sem Rúna Einarsdóttir sýndi, fékk hæstu ein- kunn, 8,62, en hafnaði þrátt fyrir það í öðru sæti því Ögra (Sleipni), sem Þorvaldur Sveinsson á og sat, gekk betur í röðuninni og stóð efstur að lokum. Dimma vann B-flokkinn hjá Geysi fyrr í sumar og einnig varð Rúna íslandsmeistari í tölti á Dimmu þannig að þær Dimma voru nálægt því að tryggja sér þrennuna í sumar. I þriðja sæti varð Spegiil (Smári), Sigfúsar Guðmundssonar, sem Guð- mundur Á. Sigfússon sat, með 8,42 í einkunn. Siggu-Brúnka, frá hestamannafé- laginu Geysi vann A-flokkinn með 8,34 í einkunn. Siggu-Brúnka er í eigu Sigríðar Sveinsdóttur en knapi var Sigurður Sæmundsson, liðsstjóri ís- lenska landsliðsins í hestaíþróttum. Glaumur (Sindra) þeirra Jóns Bjömssonar og Guðlaugs Antons- sonar, sem Guðlaugur sýndi, var annar með 8,30 og Fjalar (Sleipni), Freyju og Alberts í Votmúla, sem Freyja sýndi, varð þriðji með 8,24. Knapar kvörtuðu yfir því aö úrshta- keppnin hefði ekki verið nógu mark- viss. Knöpum var uppálagt að ríða í belg og biðu eins og þeim sýndist, ýmist hratt eða hægt. Erfitt var fyrir dómara að finna út röðun á hrossin í þessari ringulreið. Ekki var mikill munur á einkunn- um þeirra fimm knapa sem komust í úrslit í unglingaflokki. Sá hæst dæmdi fékk 8,37 en fimmta sætið gaf 8,31 í einkunn. Bima Káradóttir Glaumur, lengst til vinstri, sigraði I 250 metra skeiðinu. Knapi var Guðlaugur Antonsson. Sigurbjörn Bárðarson og Snarfari eru til hægri og Jóhann Valdimarsson á Freyju fyrir miðju. Það rétt grillir í Magnús Einarsson og Gamm. DV-mynd EJ (Smára) á Gjóstu fékk hæstu ein- kunn, 8,37, en hafnaði þrátt fyrir það í fjórða sæti. í efsta sæti varð Iris Sveinbjörnsdóttir (Sleipni) á Þokka. Næstur varð Birgir Gunnarsson (Sleipni) á Gusti og Líney S. Kristins- dóttir (Loga) þriðja á Eldingu. Sigríður Th. Kristinsdóttir (Geysi) sigraði í bamaflokki á Stjama með 8,48 í einkunn. Guðmundur V. Gunn- arsson (Sleipni) varð annar á Flaumi og Hulda Stefánsdóttir (Smára) þriðja á Svarta svan. Kappreiðar Háfeti Lámsar Þórhallssonar sigr- aði í 350 metra stökki á 25,9 sek. Lót- us Kristins Guðnasonar sigraði í 800 metra stökki á 1.04,9 mín. Knapi var Magnús Benediktsson. Subaru Guðna Kristinssonar sigraði í 250 metra stökki á 18,5 sek. Knapi var Magnús Benediktsson. Penni Magn- úsar Halldórssonar sigraði í 150 metra skeiði á 15,0 sek. Knapi var Albert Jónsson. Glaumur Jóns Björnssonar og Guðlaugs Antons- sonar, sem Guðlaugur sat, sigraði í 250 metra skeiði á 22,6 sek. Krummi Guðmundar Viðarssonar, sem Vign- ir Siggeirsson sat, sigraði í 300 metra brokki á 1.05,9 mín. -EJ Efstu hestar í B-flokki gæöinga. Efstu sex vetra hryssumar. DV-myndEJ Hrossarækt í miklum bióma á Suðurlandi Kynbótarækt er í mikilli upp- sveiflu á Suöurlandi, Tvær kyn- bótasýningar hafa veriö haldnar á Hellu meö skömmu millibili. Dæmd vom 138 kynbótahross á fyrri sýníngunni í júní en nú var dærat 81 hross. Þrátt fyrir mikinn flölda kynbótahrossa náöi ekkert hross 1. verðlaunum en tveir stóð- hestar og firaratíu og þrjár hryssur komust í ættbók. Stóðhestar viröast vera í ræktun víða ef marka má §ölda sýndra stóöhesta í sumar. A Hellu vora dæradir firam stóðhestar að þessu sínni. Eixm þeirra fékk einungis byggingardóm. Vonaraeisti írá Skoliagróf, und- an Hrafiii frá Holtsmúla og Von frá Skollagróf, fékk 7,96 í aðaleinkunn, 7,81 fjrir sköpulag og 8,11 fyrir hæfileika. Hann er fajddur áriö 1981. Hraihfinnur frá Kvíarhóli, imdan Hrafiii frá Holtsraúla og Kolfinnu frá Kröggólfsstööum, fékk 7,82 í aöaleinkunn, 7,79 fyrir sköpulag og 7,86 fyrir hæfileika. Hann er fæddur árið 1984. Laugarvatnshryssurnar stóðu efstar Áttatíu og fjórar hryssur skiluðu sér í dóm. Þorkell Bjamason hrossaræktarráðunautur var sæmilega ánægöur með útkomuna. „Þaö var ekki margt af betra taginu en drjúgt fór í ættbók. Það er gagn að því að flokka hryssunar,'1 sagði hann. Flest allar hryssuraar vom sex vetra og eldri, 24 voru fimm vetra, en engin fjögurra vetra hryssa mætti í dóm. Efsta hryssa í flokki sex vetra hryssnanna var Björk frá Laugar- vatni, undan Feng frá Laugarvatni og Stelpu frá Laugarvatni Björk fékk 7,95 í aðaleinkunn. Sköpulags- einkunn var 7,95 en hæfileikaein- kunn 7,94. Önnur Laugarvatnshryssa, Hlökk, stóö efst í flokki fimm vetra hryssna. Hún er undan Hrafni frá Holtsmúla og Sif frá Laugarvatni. Hlökk fékk 7,86 í aðaleinkunn, 8,00 fyrir sköpulag en 7,71 fyrir hæfi- leika. Aðrar hryssur fengu verri dóraa. -EJ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.