Dagblaðið Vísir - DV - 31.07.1989, Side 30
30
mXnUDAGUR’ 3Í? jtfUÍ' 1989.
íþróttir
Japis-rallið um helgina:
Steingrímur
og Bogdanski
sigurvegarar
Þriðja umferð íslandsmeistara-
keppninnar í rallakstri 1989, Japis-
rallið, var háð á laugardag og
sunnudag. Keppnin hófst við Japis
í Kringlunni kl. 20.00 á laugardags-
kvöld og lauk við Japis í Brautar-
holti 19 tímum síðar. Þetta var
hörkuslagur eins og við var að bú-
ast en hugur margra keppenda var
blendinn áður en hún hófst því
Japis-ralliö er eina næturkeppni
ársins.
Steingrímur kominn
á beinu brautina
Steingrímur Ingason og Witek Bog-
danski á heimasmíðuðum Nissan
bíl gáfu strax tóninn og unnu fyrstu
sérleið sem var upp og niður Úlf-
arsfell. Þessi sérleið hefur ekki ver-
ið ekin áður en var nú vígð við
mikinn fögnuð fjölmargra áhorf-
enda er skemmtu sér vel í góða
veðrinu.
Nissan bíll Steingríms og Witeks
sveik þá hvergi og þeir gáfu for-
ustuna aldrei eftir og sigruðu ör-
ugglega með rúmlega tveggja mín-
útna mun eftir um 200 kilómetra
sérleiðaakstur.
Á tímabili höíðu þeir ákveðið að
hætta keppni en voru reknir áfram.
Aðspurðir sögðu þeir bræður að
þetta mundi ekki koma fyrir aftur
í sumar: „Við ætlum að vinna rest-
ina.“
Suzuki í þriðja sæti
í þriðja sæti, og engum að óvörum
lengur, lentu þeir Ævar Hjartarson
og Ari Arnórsson á mjólkurbúðar-
bOnum Suzuki Swift GTI. í enda-
marki voru þeir hæverskir að
vanda og gerðu lítið úr erfiðleikum
en viðurkenndu þó aö hafa sprengt
eitt dekk og ekið á því sprungnu
hefia sérleið, alls 33 kílómetra, eftir
Kjalvegi, grýttum og holóttum.
Trúi hver sem vill en þetta er satt.
Það er með ólíkindum hvað þeir
félagar ná góðum árangri á þessu
htla kríli. Þessi htli bfil er hannað-
ur fyrir innkaupaferðir sparsamra
húsmæðra en ekki til að aka um
fjallaslóðir íslands í kappi við
klukkuna. Þetta er í þriðja sinn í
jafnmörgum viðureignum sem
Súkkan skilar sér í mark í verð-
launasæti og það sér ekki á bOnum
rispu.
• Steingrímur Ingason og Witek Bogdanski á fleygiferð á einni sérleiö-
inni í Japis-rallinu um helgina. DV-mynd ÁS
Heimasmíðaður farkostur
Steingrímur hefur með aðstoðar-
hði sínu lagt mikla vinnu í smíði
bOsins og hannað flest sjálfur og
það virðist vera að skOa sér. Með
þessum verðskuldaða sigri eru þeir
nú í öðru sæti í íslandsmeistara-
keppninni með 43 stig. Aðspurður
sagðist Steingrímur þakka sigur-
inn góðum undirbúningi, harð-
snúnu aðstoðarhði og síðast en
ekki síst náðum við að hvfla okkur
fyrir keppnina sem er mjög mikfl-
vægt.
Bílbótarbræður í basli
í öðru sæti eftir mikinn baming
og brölt vegna gangtruflana urðu
þeir Bflbótarbræður frá Keflavík,
Ólafur og Hahdór Sigurjónssynir.
Þeir eru nú með forustuna í keppn-
inni um íslandsmeistaratitihnn
með 55 stig þegar þrjú röh eru búin
af sex. Þar af unnu þeir tvö fyrri
skiptin. En þeir lentu í vandræðum
í þetta sinn og náðu aldrei að sýna
getu sína.
260 hestafla véhn í Talbot Lotus
bfl þeirra bræðra var nýendur-
byggð og átti að vera í óaðfinnan-
legu ástandi en samt gekk hún ekki
sem skyldi og fúskaði, eins og sagt
er á bflamáh. Þrátt fyrir þriggja
sólarhringa þrotlausa vinnu fannst
ekki bflunin og urðu þeir að aka
aha keppnina með mótorinn afllít-
inn.
Titilvonir úr sögunni?
Fjórða sætið vermdu að þessu sinni
feðgarnir Rúnar Jónsson og Jón
Ragnarsson en fyrirfram var þeim
spáð betra gengi. Ford Escort
keppnisbíhinn, sem hefur þjónað
þeim vel og dyggilega í áranna rás,
bilaði á síðustu stundu og var aht
úthtfyrir að þeir mundu ekki taka
þátt í rahinu. En á síðustu stundu
fengu þeir lánaðan annan ekki síöri
keppnisbfl af Nissan 240 RS gerð
er staðið hefur ónotaður það sem
af er sumri. Rúnar virtist strax ná
tökum á bflnum og var í baráttunni
um eitt af þremur efstu sætunum
þegar rafmagnstruflanir töföu þá
venflega á Kjalvegi. Eftir brösótt
gengi í sumar virðast möguieikar
þeirra á íslandsmeistaratith nánast
vera úr sögunni þetta árið.
10 af 17 komust í mark
Af sautján bflum, er hófu keppn-
ina, tókst 10 að komast í endamark.
Tveir ultu, einn brann og hinir fjór-
ir einfaldiega bfluðu.
• Ein kona tók þátt í ralhnu að
þessu sinni - Guðný Úlfarsdóttir,
17 ára, og stóð hún sig með mestu
prýði. Það verður gaman að sjá til
hennar í framtíðinni ef hún heldur
áfram á sömu braut því hún gaf
strákunum ekkert eftir í keppnis-
hörkunni.
-BG/ÁS
Einar Vilhjálmsson gefur hér allt i lokakast sitt á meistaramótinu á laugardag. Krafturinn leynir sér ekki í svip
kappans enda kastaði hann yfir 82 metra á mótinu og tryggði sér sigur. DV-mynd GS
Islandsmótiö í frjálsum íþróttum:
Gott hjá Einari
Vilhjálmssyni
Einar Vilhjálmsson tryggði sér á laugardag íslandsmeistaratit-
ilinn í spjótkasti. Einar og Sigurður Einarsson háðu einvígi
um meistaratitihnn og þegar upp var staðið hafði Einar betur
og náði lengsta kasti sínu á þessu ári. Einar kastaði 82,22
metra en Sigurður varð að gera sér 77,84 metra að góðu. Spjótkastið var
það sem flestir biðu eftir að sjá en því miður varð spennan ekki eins
mikii og margir héldu. Einar sýndi það að hann er enn sá besti í spjót-
kastinu hér á landi og Sigurður verður að bíöa betri tíma.
• Finnbogi Gylfason, FH, setti
meistaramótsmet á laugardag þegar
hann hljóp 800 metrana á 1:53,03 mín.
Finnbogi virtist ekki líklegur til stór-
ræða því hann var aftarlega í hlaup-
inu allt þar til á síðustu 10 metrunum
aö hann tók ótrúlegan kipp og skaust
fram úr fremstu mönnum og sigraði
glæsflega.
• Þá vannst einnig mjög gott afrek
í 1500 metra hlaupi kvenna. Martha
Emstdóttir hljóp á besta tíma sem
náðst hefur á meistaramóti í þeirri
grein.
• Af öðrum stórafrekum á laugar-
dag ber aö nefna að Pétur Andrés-
son, HSK, sigraði í kúluvarpi, kastaði
19,26 metra.
Vésteinn vann Eggert
Vésteinn Hafsteinsson vann sigur í
kringlukastinu í gær og náði að kasta
60,58 metra og það dugði honum til
sigurs. Eggert Bogason varð í öðra
sæti en hann kastaði 54,84 metra.
• Unnar Vilhjálmsson vann sigur
í hástökki en Unnar, sem keppir fyr-
ir HSÞ, stökk 2,05 metra en hann fékk
mjög harða keppni frá þremenning-
unum Gunnlaugi Grettissyni, Þor-
steini Þórssyni og Einari Kristjáns-
syni en þeir stukku allir 2 metra
slétta.
Kast Guðmundar ólöglegt
• Guðmundur Karlsson, FH, kastaði
62,90 metra í sleggjukasti sem er betri
árangur en núgfldandi íslandsmet.
Sleggja Guðmundar reyndist hins
vegar 7 mm of htil að ummáli og
kastið var því ólöglegt.
• Oddur Sigurðsson, FH, sigraði í
100 m hlaupi karla á 11,03 sek. en
Einar Þ. Einarsson varð annar á 11,04
sek.
• Súsanna Helgadóttir, FH, náöi
frábæram árangri og sigraði tvöfalt.
Hún vann sigur í langstökki og einn-
ig í 100 metra hlaupi.
• Sveit FH sigraði þrefalt í 1500
metra hlaupi karla. Steinn Jóhanns-
son kom fyrstur í mark, Guðmundur
Skúlason varð í öðru sæti og Finn-
bogi Gylfason í því þriðja.
• Friðrik Óskarsson, gamla kemp-
an úr ÍR, sigraði í þrístökki. Hann
stökk 14,01 metra.
-RR/SK