Dagblaðið Vísir - DV - 31.07.1989, Page 41
MÁNUDAGUR 31. JÚLÍ 1989.
41
LífsstHI
íslenska grænmetið:
Smátt og
rándýrt
Ef þetta er reiknaö út í prósentu-
tölum kemur í ljós að verðið á ís- ,
lenska blómkáiinu er 103% hærra en
á því erlenda. Verðmunurinn á hvít-
kálinu er síðan enn meiri en verðið
á íslenska hvítkálinu er hvorki meira
né minna en 277% hærra en á því
erlenda.
Að sögn Valdimars Jónassonar hjá
Sölufélagi garðyrkjumanna er eðli-
legt að verðið á íslenska grænmetinu
sé hátt til að byija með á meðan að
framboð er lítið. Það lækkar síðan
þegar framboðið eykst á næstunni.
Sagði Valdimar að grænmetið væri
eitthvað seinna á ferðinni í ár en
venjulega. -gh
ítölsku bökunarkartöflurnar eru í sumum tilfellum mjög stórar. Það gæti tekið nokkra klukkutima að baka þessa
í heilu lagi. DV-mynd Hanna
Erlendar kartöflur:
Takmarkað framboð
Nú er íslenskt grænmeti komið í
flestar verslanir. Hefur nú verið sett
innflutningábann á nokkrar gerðir
grænmetis, meðal annars rófur,
kínakál, blómkál og hvítkál. Brögð
eru aö því að hæði verslunarmenn
og neytendur séu óánægðir. Þykir
þeim íslenska grænmetið vera mjög
smátt og dýrt, auk þess sem framboð
er fremur lítið.
Rófumar
dýrari en kjötið
Sem dæmi um óánægju fólks má
nefna systur sem ætluðu að elda kjöt-
súpu. Þar sem þeim þykja rófur holl
og góð fæða ákváðu þær að kaupa
fjögur stykki. En þegar þær vigtuðu
rófumar kom í ljós að þær kostuðu
yflr 800 krónur. Voru rófurnar í súp-
una orðnar dýrari en kjötið sem í
hana átti að fara. Þær hættu snarlega
við rófukaupin.
í einni verslun, þar sem verð á ís-
lenska grænmetinu var kannað,
kostaði kínakál 298 kr. kg, rófur voru
á 310 kr. kg, blómkálið var á 471 kr.
kg og hvítkálið á 196 kr. kg. Til sam-
anburðar, var enn til erlent blómkál
og hvítkál í þessari verslun og var
kg af blómkáhnu á 242 krónur og kg
af hvítkálinu á 52 krónur.
Töluverður skortur er á kartöflum
í verslunum um þessar mundir. Að
sögn verslunareigenda hefur komið
dagur og dagur þegar engar kartöflur
hefur verið að fá hjá þeim aðilum
sem flytja þær inn.
Hefur þetta vandræðaástand skap-
ast þegar stórir farmar af kartöflum
hafa verið stöðvaðir vegna ýmiss
Neytendur
konar sjúkdóma.
Þær kartöflur, sem nú eru í versl-
unum, eru frá HoUandi og Þýska-
landi, einnig eru mjög stórar ítalskar
bökunarkartöflur í sumum verslun-
um. Kílóverðið á þessum kartöflum
er í kringum 100 krónur í flestum
verslunum.
-gh
Blón i á útsölu
Blómamiöstööin hf., sölusamtök blómaframleiöenda, stendur fýrir verðlækkun á tilbúnum blóm- vöndum um þessar mundir. Er þetta gert í samráöi viö blómakaup- menn um land allt og e kaUaö „Blóm á betra v Nemur lækkunin á allt að 40 til 50 af hund söluverði. Er þetta ger • söluátakið tíma sem framleiðslan er í há- erði“. marki. Gert er ráö fyrir að tilboöið blómunum standi í að minnsta kosti tvo mán- -aði af smá- uði. nú á þeim -gh
íslenska hvítkálið, sem er hvorki meira né minna en 277% dýrara en hið
innflutta, og litlu íslensku blómkálshöfuðin sem rúmast þrjú i lófa.
DV-mynd Hanna
ALTERNATORAR
& STARTARAR
í FLESTA
BÍLA, BÁTA,VINNUVÉLAR,VÖRUBÍLA.
VERÐ Á ALTERNATORUM FRÁ KR.
5.500,-
Hinir vinsælu DELCO alternatorar til í 3 stærðum, 63, 85,
108 amper.
108 amp. eru hentugir fyrir fjallabíla og vinnuvélar og
fólksbíla o.fl. sem þurfa mikið rafmagn við lítinn snúning.
VIÐGERÐA- & VARAHLUTAÞJÓNUSTA.
1964 ^ 1989
BÍLAMF HF.,
BORGARTÚNI 19, SÍMI 24700.
Leðursófasett
hornsófar
og borð í
miklu úrvali.
—fp. -n
Við erum í W
ðllIÚSGÖGN NtJTÍÐ I
Faxafeni 14, s. 680755. I
Kodak fh! hri ip
0RKA SEM ENDIST • 0G ENDIST