Dagblaðið Vísir - DV - 31.07.1989, Qupperneq 48
4»
AS K
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu
þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt-
ist eða er notað í DV, greiðast 2.000 krónur.
Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 5.000
krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við
fréttaskotum allan sólarhringinn.
Ritstjórn - AugSýsingar -
Frjálst,óháð dagbíað
MANUDAGUR 31. JULI 1989.
Mundaði hníf
framan í
dyravörð
Maður nokkur, er meinuð var inn-
ganga í veitingahúsið Fimmuna við
Hafnarstræti á laugardagskvöld,
gerði sér lítið fyrir og dró upp hníf.
Mundaði hann hnífinn frammi fyrir
dyravörðunum. Þeir reyndu að
handsama manninn en þá lagði hann
á flótta.
Dyraverðirnir eltu hann þá og gátu
loks yfirbugað hann í Pósthússtræt-
inu, fyrir framan Hótel Borg. Þar tók
lögreglan manninn í sína vörslu.
-gh
Nauðgunar*
tilraun kærð
Kona kærði nauðgunartilraun til
Rannsóknarlögreglunnar á laugar-
dagsmorgun. Maður var settur í
gæsluvarðhald vegna málsins.
Samkvæmt upplýsingum frá Rann-
sóknarlögreglunni mun hann hafa
játað atburðinn og er máhð að mestu
upplýst. Maðurinn verður hafður í
gæsluvarðhaldiáfram. -gh
Sjúkraflug að
Hveravöllum
Vél frá Amarflugi sótti veika konu
til Hveravalla í fyrrinótt. Barst
beiöni um þyrlu frá lækni á Blöndu-
ósi um fjögurleytið um nóttina. En
þar sem önnur þyrla Landhelgis-
gæslunnar er biluð og hin er notuð
við steypuframkvæmdir í Kolbeins-
ey um þessar mundir var leitað til
Amarflugs því að flugvöllur er á
Hveravöllum.
Var komið með veiku konuna, sem
er íslensk, til Reykjavikur rúmlega
hálfátta í gærmorgun og er hðan
®?júklingsins góð. -gh
íslenski dansflokkurinn:
í Kaup-
mannahöfn
íslenski dansflokkurinn mun
sýna í Konunglega leikhúsinu í
Kaupmannahöfn dagana 15. og 16.
ágúst. Er þetta í fyrsta skipti sem
flokkurinn sýnir þar.
Mun flokkurinn flytja þrjú verk
eftir Hlíf Svavarsdóttur bahett-
meistara, Rauðan þráð, við tónhst
. Jgjálmars Ragnarssonar, Af fólki,
* við tónhst Þorkels Sigurbjörnsson-
ar og Innsýn, við tónhst Eric Satie.
-GHK
LOKI
Ég sel sólgleraugun!
Ungur maður ferst með Htilli eins hreyfils vél 1 Biskupstungum:
sem vélin brotlenti
Lítil eins hreyfils fiugvél fórst við
bæinn Torfastaöi í Biskupstungum
um kl. háiífjögur í gær. Flugmað-
urinn var einn um borð og fórst
hann með véhnni. Hann var 23 ára
og var að læra að fljúga. Flugvélin
var af gerðinni Cessna 150 M, fram-
leidd 1975.
Flupélin hafði lagt af staö úr
Reykjavík og mun samkvæmt
flugáætlun hafa staðið til að fljúga
austur í Múlakot í Fljótslilíð. Veður
var mjög gott til flugs og ílaug pilt-
urinn yfir Biskupsttmgur en á
Torfastöðum átti hann ætfingja
sem unnu að heyskap úti á túni
þegar hann flaug yfir. Sömtúeiöis
var unnið að heyskap á bæjum í
kring. Flaug pilturinn þar yfir
nokkrum sinnum.
Samkvæmt lýsingu síónarvotts
mun eitthvað hafa faiiö úrskeiöis
í fluginu því að allt í einu steyptist
flugvéhn til jarðar. Mun flugmað-
urinn ekki liafa náð að gera neina
lendingartilraun og kom vélin mjög
harkalega niður. Grófst hreyflll og
nefhjól í túnsvorðinn og vængir
brotnuöu. Er tahð að flugmaðurinn
hafi látist samsttmdis. Kom véhn
niður á tún við Torfastaði og var
heimilsfólk við heyvinnu á hinum
enda túnsins.
Samkvæmt upplýsingum frá
Loftferðaeftirlitinu, sem fer nú meö
rannsókn málsins, hggur ekkert
fyrir um orsakir slyssins ennþá.
Flugvéhn, sem er ónýt, verður flutt
til Reykjavíkur í dag til nánari
skoöunar.
-SMJ
Kolbeinsey:
Steypu-
framkvæmd'
um lokið
í gær varð sprenging í litlum skemmtibáti, Gusti frá ísafirði, við Öndverðarnes á Snæfellsnesi og kviknaði í bátn-
um. Hann hafði nokkru áður siglt frá Ólafsvík. Tveir menn voru um borð og yfirgáfu þeir bátinn. Annar brenndist
lítillega. Þeim tókst ekki að ná í tilkynningarskylduna eða strandstöð og fréttu menn ekki af ferðum þeirra fyrr
en talsvert síðar þegar þeir komu á lögreglustöðina í Ólafsvík. Báturinn sást hins vegar mannlaus við Svörtuloft,
rak á land og er mikið brotinn. Björgunarsveitir frá Ólafsvík og Hellissandi fóru á strandstað en þar voru aðstæð-
ur mjög erfiðar. Tókst þó að koma bátnum á flot og draga til Rifshafnar. Veður var mjög gott. Á myndinni sést Gustur
á strandstað í Beruvik. DV-mynd Árni
Guðfriður fer á
millisvæðamót
Nýtt sólarleysismet sett í dag
Nýtt sólarleysismet í júlímánuöi
verður slegið í dag. Að sögn Einars
Sveinbjömssonar veðurfræðings var
gamla metið sett árið 1955. Þá reynd-
ust sólarstundir í júhmánuði vera 81
talsins. Ef sá fjöldi hefði átt að nást
í þessum mánuði hefði sólin orðið
að skína í 18 stundir í dag, eða frá
sólarupprás til sólarlags. „En það dró
þegar fyrir sólu í morgun svo að lík-
lega getum við sagt aö nýtt met hafi
verið sett,“ sagði Einar. -JSS
Veðrið á morgun:
Aftur
rigmng
Á morgun er gert ráð fyrir suð-
austangolu eða kalda og dálítilh
rigningu á Suður- og Vesturlandi.
Á Norður- og Austurlandi verður
aftur á móti þurrt og sums staðar
bjart. Hiti verður 10-16 stig.
Tvísýnt var um úrsht á Norður-
landamótinu í skák í morgun en því
lýkur í dag. Agdestein var í efsta
sæti með 9 vinninga, Margeir og Yrj-
ölá höfðu 8 vinninga en Helgi og
Hansen höfðu 7,5 vinninga. Margeir
tefldi við Hansen í morgun en Helgi
við Agdestein. Þegar blaðið fór í
prentun vom skákmennirnir enn að.
Guðfríður Grétarsdóttir stóð sig
með miklum sóma í kvennaflokki,
lenti í öðru sæti og tryggði sé þátt-
tökurétt á millisvæðamóti - fyrst ís-
lenskrakvenna. -ÓTT
SKtoASKAonn
TISSOT
GÆÐI -
GLÆSILEIKI
i
Steypuframkvæmdum við Kol-
beinsey lauk í gærkvöldi þegar síð-
asti steypufarmurinn var fluttur með
þyrlu yfir í eyna úr varðskipinu
Óðni. Þá var búið að flytja um 280
tonn af efni út í eyjuna. Á hádegi í
dag var gert ráð fyrir að vinnu við
að slá mótunum utan af steypunni
lyki.
Frá þriðjudagskvöldi og fram á
föstudag var leiðindaveður við eyna
og braut mikið á henni. Vom menn
óvissir um afdrif steypumótanna.
Þegar að var gáð á laugardaginn
reyndist allt í góðu lagi. í morgun
var hægviðri, þoka og 500 metra
skyggni. Hafísinn, sem hafði verið i
nágrenninu, var þá horfinn. _óTT
i
i
í
t
4