Dagblaðið Vísir - DV - 11.08.1989, Qupperneq 1
)í*A ,tt
Stjömubíó:
Magnús
Það telst ávallt til stórviðburða
þegar ný íslensk kvikmynd er
frumsýnd. í dag verður frumsýnd
í Stjömubíói ný kvikmynd eftir
Þráin Bertelsson sem er afkasta-
mesti kvikmyndagerðarmaður
okkar íslendinga. Þráinn á að baki
fimm kvikmyndir í fullri lengd, Jón
Odd og Jón Bjama, Nýtt líf, Dala-
líf, Skammdegi og Löggulíf. Magn-
ús er því sjötta kvikmyndin sem
hann leikstýrir og telst það afrek
út af fyrir sig því eins og vitað er
fylgir því mikil fjárhagsleg áhætta
að gera kvikmynd hér á landi.
Fjórar kvikmynda Þráins em
gamanmyndir og er það aðeins
Skammdegi sem sker sig úr en þar
er um sakamálmynd að ræða. Jón
Oddur og Jón Bjami er létt mynd
fyrir böm á öllum aldri en Nýtt líf,
Dalalíf og Löggulífjaðra við að vera
farsar.
Magnús er gamanmynd en það
er trú Þráins að fólki þyki gamanið.
að þessu sinni með nokkuð öðrum
hætti en í fyrri gamanmyndunum.
Vonandi er hún ekki síður fyndin
en gamninu fylgir nú meiri alvara
en áður. „í fyrri gamanmyndum
finnst mér ég hafa verið að þreifa
mig áfram með ýmsar tegundir
húmors og mér finnst sjáifum að
húmorinn í myndinni rnn Magnús
standi mér næst.“
í kynningu á myndinni er Magn-
úsi lýst sem óvenjulegri mynd um
venjulegt fólk. Hún fjallar um
Magnús Bertelsson og fjölskyldu
hans. Magnús er lögfræðingur hjá
Lögfræði- og stjórnsýsludeild
Reykjavikurborgar. Dag einn þeg-
ar Magnús fer í sína árlegu læknis-
skoðun fær hann að vita að hann
sé að líkindum haldinn alvarlegmn
sjúkdómi. Þessi yfirvofandi lífs-
háski ýtir óþyrmilega við Magnúsi
og fær hann til að líta yfir líf sitt
og sjá það í nýju samhengi.
Þegar hann ætlar að ræða þetta
alvarlega ástand við fjölskyldu sína
fær mál hans lítinn hljómgrunn hjá
fjölskyldumeðlimum sem hver um
sig er upptekinn af eigin vandamál-
um.
Vandi hans eykst þegar hann
óviljandi sker upp herör gegn
tengdafoður sínum, Ólafi, sem býr
í útjaðri Reykjavíkur og ræktar
hross. Búskaparhættir hans fara í
taugarnar á yfirvöldum og er Lög-
fræði- og stjómsýsludeild borgar-
innar falið að kaupa jörðina og fel-
ur Magnús undirmönnum sínum
að sjá um málið. Þá kemur einnig
til sögunnar Theódór leigubílstjóri,
mágur Magnúsar og vinur. Sá er
giftur en á í ástarsambandi við
Egill Ólafsson leikur Magnús lög-
fræðing, deildarstjóra á Lögfræði-
og stjómsýsludeild Reykjavikur-
borgar.
PP'
I
unga stúlku sem heldur að hann
sé atvinnuflugmaður hjá stóra er-
lendu flugfélagi...
Þekktir leikarar fara með aðal-
hlutverkin í Magnúsi. Fyrstan ber
að telja Egil Ólafsson er leikur
Magnús. Guörún Gísladóttir leikur
eiginkonu hans, Jón Sigurbjöms-
son tengdaföður og Þórhallur Sig-
urðsson (Laddi) leikur Theódór.
Af öðrum leikurum má nefna
Margréti Ákadóttur, Maríu Ell-
ingsen, Erling Gíslason, Randver
Þorláksson, Öm Ámason og Lilju
Þórisdóttur.
Fyrir utan að leikstýra samdi
Þráinn handritið og er framleið-
andi kvikmyndarinnar. Kvik-
myndatökumaður er Ari Kristins- Skafti Guðmundsson og tónlist
son en hann og Þráinn hafa lengi samdi Sigurður Rúnar Jónsson.
starfað saman. Klippingu annaðist -HK
Eiginkonu Magnúsar, listakonuna Helenu, leikur Guðrún Gísladóttir.
Laddi, eða Þórhallur Sigurðsson, leikur Theódór leigubílstjóra, mág
Magnúsar, og eins og sjá má á myndinni hefur hann brugðið sér I
læknisleik.
Veitíngahús vikunnar:
Hótel
Óöin-
své
- sjá bls. 18
Danskur
gesta-
leikur .
- sjá bls. 20
Nýr skemmtistaður:
Óperu-
kjall-
arinn
- sjá bls. 19
Leikir í
1. deild-
inni
- sjá bls. 22
Casablanca:
Bandarísk
rokk-
hljómsveit
- sjá bls. 18