Dagblaðið Vísir - DV - 11.08.1989, Side 3
FÖSTUDAjGUR 11. ÁGtJST 1989.
19
Ártún,
Vagnhöfða 11
Gömlu dansamir föstudagskvöld kl.
21-3 og laugardagskvöld kl. 22-3.
mjómsveitin Danssporið leikur fyrir
dansi bæði kvöldin.
Broadway,
Álfabakka 8, Reykjavik, simi 77500
Unglingadansleikur fóstudags- og
laugardagskvöld. Aldurstakmark
fæddir 1973 og eldri.
Casablanca,
Skúlagötu 30
Diskótek föstudags- og laugardags-
kvöld.
Duus-hús,
Fischersundi, sími 14446
Diskótek föstudags- og laugardags-
kvöld.
Fjörðurinn,
Strandgötu 30, simi 50249
Diskótek föstudagskvöld. Hljóm-
sveitin Blómarósin spilar laugar-
dagskvöld. Magnús Þór spilar á
kránni báða dagana.
Danshúsið Glæsibær,
Álfheimum, sími 686220.
Danshljómsveit Hilmars Sverrisson-
ar ásamt Önnu Vilhjálmsdóttur og
gestasöngvara, Einari Júlíussyni,
leika fyrir dansi föstudags- og laugar-
dagskvöld.
Hollywood,
Ármúla 5, Reykjavík
Diskótek föstudags- og laugardags-
kvöld.
Hótel Borg,
Pósthússtræti 10, Reykjavík, simi
11440
Diskótek föstudags- og laugardags-
kvöld. Borgarkráin er opin til kl. 24
báða dagana. Gömlu dansamir
sunnudagskvöld.
Hótel Esja, Skálafell,
Suðurlandsbraut 2, Reykjavík, simi
82200
Dansleikir föstudags- og laugardags-
kvöld. Lifandi tónlist. Opið frá kl.
19-1.
Hótel ísland,
Ármúla 9, simi 617011
Sumarkamival föstudags- og laugar-
dagskvöld. Hljómsveitin Pónik leikur
fyrir dansi.
Keisarinn
v/Hlemmtorg
Diskótek föstdags- og laugardags-
kvöld.
Staupasteinn,
Smiðjuvegi 14D, s. 670347
Hljómsveit leikur fyrir dansi föstu-
dags- og laugardagskvöld.
Tunglið og Bíókjallarinn,
Lækjargötu 2, simi 621625
Diskótek föstudags- og laugardags-
kvöld.
Vetrarbrautin,
Brautarholti 20, simi 29098
Tríó Óskars Guðmundssonar, ásamt
söngkonunni Kolbrúnu, leikur fyrir
dansi föstudags- og laugardagskvöld.
Þórscafé,
Brautarholti, simi 23333
Hafrót, hljómsveit hússins, leikur
fyrir dansi föstudags- og laugardags-
kvöld. Diskótek á neðri hæðinni.
ölver,
Álfheimum 74, s. 686220
Opið fimmtudags-, föstudags-, laugar-
dags- og sunnudagskvöld.
j^^^AKSTOR
Ríó-tríóið mun skemmta gestum Óperukjallarans fyrst um sinn.
Óperukjallarinn:
Nýrveitinga- og
skemmtistaður
fyrir hresst fólk
sem komið er af bamsaldri
I kvöld veröur opnaður nýr veit-
inga- og skemmtistaður, Óperu-
kjallarinn, í hjarta borgarinnar, á
neðri hæð veitingastaðarins Am-
arhóls.
Óperukjallarinn verður opinn öll
kvöld vikunnar til klukkan eitt eft-
ir miðnætti en til klukkan þrjú á
fþstudögum og' laugardögum. í
Óperukjallaranum verður píanó-
bar með rólegu yfirbragði, einnig
danssalur, gangar og skot fyrir
óformleg fundahöld og um helgar
eða eftir leiksýningar og óperu-
kvöld bjóða kokkar Arnarhóls upp
á miðnætursnarl að þörfum nátt-
hrafna, gjaman að dönskum hætti:
Arnarhóll veröur áfram opinn
sem einn helsti matstaður borgar-
innar á fyrstu hæð með aðahnn-
gangi frá Ingólfsstræti. Inngangur
í Óperukjallarann verður hins veg-
ar frá Hverfisgötu. Arnarhólsgestir
geta að sjálfsögðu htið niður í kjaU-
arann hvenær sem þeir óska.
Ákveðið hefur verið að aldurs-
takmark í Óperukjallarann verði
25 ár. í fréttatilkynningu frá staðn-
um segir að þaö séu ekki neinir
fordómar gegn ungum aldri heldur
sé þama verið að fara að óskum
þeirra gesta sem sttmda Amarhól
og tiilögum um það hvers konar
stað þeir vilji stunda.
Það verður lífleg tónlist í lifandi
flutningi flest kvöld í Óperukjallar-
anum og það verður hið lands-
þekkta Ríó-trió sem mun skemmta
gestum í fyrstu.
Trió Óskars Guðmundssonar ásamt söngkonunni Kolbrúnu Sveinbjörnsdóttur.
Vetrarbrautin, Brautarholti 20,
er nú komin á fullt eftir sumarfrí
og byijar snúninginn með hinu
landsþekkta Tríói Óskars Guð-
mundssonar frá Selfossi ásamt
söngkonunni Kolbrúnu Svein-
bjömsdóttur. Munu þau skemmta
gestum næstu tvær helgar.
Óskar hefur lengi verið ein aðal-
drifíjöðrin í skemmtanalífinu fyrir
austan fjall. Hann dvaldi einnig
nokkur ár í Svíþjóð, þar sem hann
spiiaði með ýmsum kunnum
hijómsveitum. Nú kemur Tríó
Óskars Guðmundssonar saman á
ný og endurtekur gömlu rokk-
sveifluna, rómantíkina og fjörið.
Gaukur á Stöng:
Mál-
fundur
um
frjálsar
hug-
________j
myndir
Málfundur um fijálsar hug-
myndir veröur haldinn á veit-
ingahúsinu Gaukur á Stöng
Tryggvagötu laugardaginn 12.
ágúst Á fundinum verður fiall-
að um stjómmálaástandið og
stefnu núverandi ríkisstjómar.
Lögð verður áhersla á nýjar
hugmyndir og leiðir í stjóm-
málabaráttunni.
Framaögumenn verða meðal
annarra Vilhjálmur Egilsson
hagfræðingur og Guðmundur
Magnússon sagnfræðingur.
Vilhjálmur Egilsson mun fialla
um 9puminguna: „Hvað er
byggðastefna?'1 en erindi Guð-
mundar Magnússonar heitin
„Emstjómmálin komin að niö-
urlotum?". Eftir framsögur
verða almennar umræður.
Aðstandendur fundarins eru
áhugamenn um ftjálshyggju og
em allir áhugamenn um frjáls-
lyndar hugmyndir velkomnir.
Fundurinn hefst kl. 14 og er
gert ráð fyrir aö honum ljúki
um kl. 17.
Vetrarbrautin opn-
ar eftir sumarfrí
Casablanca:
Vandals millilendir
Bandaríska hljómsveitin Van-
dals mun millilenda á íslandi á leið
sinni til Evrópu og halda tónleika
í Casablanca í kvöld. Hún er á leið
til Evrópu til að fylgja eftir vin-
sældum síöustu breiðskífu sinnar,
Shppery When 111.
Aður hefur hún gefið út tvær
hljómplötur sem náð hafa þó
nokkmm vinsældum á heimaslóð-
um sveitarinnar í Suður-Kalifom-
íu.
Vandals er á margan hátt sérstæð
hljómsveit og má geta þess að einn
af þeim þremur, er skipa hljóm-
sveitina,. stundaði um nokkurt
skeið háskólanám við Háskóla ís-
lands. Tónhst þeirra er yfirleitt
kennd við oow-rokk í svipuðum
stíl og tónhst Mojo Nixon og Skid
Roper.
Eins og áður sagði verða tónleik-
ar Vandals í Casablanca og mun
íslenska hljómsveitin Brak sjá til
þess að tónleikagestir verði orðnir
móttækilegir fyrir góðu rokki er
Vandals stígur á sviðið. BMk er ný
sveit og em hðsmenn hijómsveitar-
innar öllum hnútum kunnugir
hvað rokkið varðar enda hafa þeir
komið víða við á tónhstarferli sín-
um.