Dagblaðið Vísir - DV - 11.08.1989, Qupperneq 8
24
(■561 \ Ji l'j-JM'-rjJfH
FÖSTUDAGUR 11. ÁGÚST 1989.
Þær eru greinilega vinsælar, stöll-
umar Bette Midler og Lály Tomlin
en þær birtast í hlutverkum tví-
bura í gamanmyndinni Big Busi-
ness sem skýst á toppinn eftir að
hafa verið aðeins eina viku á lista.
Nokkrar aðrar breytingar eru á
listanum. Bright Light, Big City fer
aftur inn á listann eftir að hafa
dottið út í síðustu viku. Þá koma
tvær ólíkar sakamálamyndir inn á
listann. Önnur er breska gæða-
myndin Mona Lisa þar sem Bob
Hoskins fer á kostum í hlutverki
smákrimma. Hin er FBI Murders
sem hefur undirtitilinn In The Line
of Duty. Segir þar frá sönnum at-
burðum er þykja þeir blóðugustu í
sögu FBI.
DV-LISTINN
1. (3) Big Business
2. (5) D.O.A.
3. (2) Moving
4. (6) Midnight Run
5. (4) Big
6. (-) Bright Lights, Big City
7. (4) Licence To Drive
8. (7) The Beast Of War
9. (•) Mona Lisa
10. (-) FBI Murders
★★
Ævintýraheimur
LEGEND
Útgefandi: Skifan
Leikstjóri: Rldley ScotL Handrit: William
Hjortsberg. Framleiðandi: Arnon Milc-
han. Aðalhlutverk: Tom Cruise, Mia
Sara, Tlm Curry og David BennenL
Bandarisk 1985. 90 min. Bönnuð yngri
en 16 ðra.
Ridley Scott hefur vakið athygh
sem sérstæður kvikmyndamaður
með skemmtilegt auga fyrir
myndatöku og sviðsmynd. Haxm
hóf hryllingsmyndir inn í nýjar
víddir með Alien sem er sérlega
dæmigerð fyrir stíl Scotts. Hér nýt-
ur hann aðstoðar rithöfundarins
Hjortsberg sem samið hefúr fjölda
hryllingssagna, m.a. söguna sem lá
að baki Angel Heart.
Hér reynir Scott fyrir sér í ævin-
týraheimi þar sem hann lætur gott
og Qlt (ljós/myrkur) takast á. Ævin-
týrið er algert og myndin nánast
gerist í draumaheimi. Segir hún frá
ungri prinsessu sem heillar skóg-
arbúa til aö sýna sér einhyraing
með ófyrirsjáanlegum afleiðingum.
Atburðarásin er hröð og fljótlega
verður prinsessan umsetin af þeim
vonda sjálfum.
Því miður er ævintýrið heldur
klént og lítt áhugavekjandi og súr-
realisk myndataka bætir þar ekk-
Slte ts of. the purmt immeme.
Htt is pur<> tvii, iie i$ Darknefis.
ert úr. Er t.d. fróðlegt að bera sam-
an þessa mynd og hina velheppn-
uðu Princess Bride.
Þrátt fyrir ágætt gervi og mjög
sérstæða takta Curry í hlutverki
hins vonda verða höfuðpersónum-
ar tvær fremur óspennandi. Þá er
Craise fremur væminn í hlutverki
skógarálfs.
-SMJ
MOVING
Útgefandi: Steinar hf.
Leikstjóri: Alan Metter.
Aöalhlutverk: Richard Pryor, Beverly
Todd og Randy Quald.
Bandarfsk, 1987 - sýningartimi 86 mín.
Leyfó öllum aldurshópum.
Richard Pryor, sem staöið hefur
í skugganum af Eddie Murphy á
undanfómum árum, sýnir í Mo-
ving að hann er engu síðri gaman-
leikari en Murphy. Pryor hefur
hingaö til vægast sagt verið mis-
tækur í hlutverkavali.
Það verður nú samt að segjast að
ef ekki væri fyrir leikhæfileika
Pryors væri Moving lítið fyrir aug-
að. Söguþráðurinn er í rauninni á
mörkum þess að vera frambærileg-
ur.
Pryor leikm- verkfræðing nokk-
um sem sagt er fyrirvaralaust upp
störfúm. Fyrir utan að vera at-
vinnulaus á hann í miklum ná-
grannaeijum við fyrrverandi Viet-
nam-hermann sem hefur unun af
að hrella nágranna sinn.
Vandræði Pryors byrja þó ekki
fyrir alvöru fyrr en hann fær vinnu
IttooV USyears
hts htxnc
fectand
movíng
menoncciay
todestrey U
2.000 kílómetra frá heimili sínu.
Eftir mikið þref samþykkir loks
fiölskyldan að flytja með honum.
Oheppni Pryors er samt með ólík-
indum. Þeir sem sjá um flutning-
ana fyrir hann stela öllum hús-
gögnunum. Þegar fiölskyldan ætlar
að flylja í draumahúsið sitt er fyrri
eigandi búinn að hirða allt sem fast
var, meira að segja sundlaugina,
og þegar hann mætir í nýju vinn-
una kemur í ljós að ekki er aUt
gull sem glóir.
Eins og í öllum myndum Ric-
hards Pryor er söguþráðurinn far-
sakenndur og liggur við að hann
sé fáránlegur en Pryor er einstak-
lega laginn við að láta enda ná sam-
an. Það er helst er hann bregður
sér í Rambo-gervið aö hann fer yfir
markið.
Fyrir utan Pryor sýnir Randy
Quaid góðan gamanleik í hlutverki
nágrannans sem helst vill vera í
stríösleik við Pryor.
Moving er gamanmynd þar sem
fáránleikinn ræður ferðinni og því
ekki fyrir aUa en þeir hafa gaman
af sem hafa séö Richard Pryor áður
og líkað hann.
-HK
★★
Hver myrti söngkonuna?
THE MAN IN THE BROWN SUIT
Útgefandi: Steinar hf.
Leikstjóri: Alan Grint.
Aöalhlutverk: Stephanie Zimbalist, Ed-
ward Woodward, Tony Randall og Rue
McClanahan.
Bandarfsk, 1988 - sýningartimi 96 mfn.
Leyfð öllum aldurshópum.
Skáldsögur Agöthu Christie hafa
ávaUt verið verðugt verkefni fyrir
kvikmyndagerðarmenn. Sögumar
búa yfir—dnstökum sjarma sem
þegar vel er farið með skilar sér í
kvikmyndaforminu.
Þær eru orðnar nokkrar kvik-
myndimar sem byggðar eru á æv-
intýrum persóna á borð við Herc-
ule Poiroit og ungfrú Marple en
þær tvær skáldsögupersónur Agöt-
hu Christie hafa orðið hvað þekkt-
astar. The Man In Brown Suit hef-
ur ekki tvær fyrmefndu persónur
tU að státa af heldur er aðalpersón-
an ung stúlka, Anna Beddingfield,
sem þráir ekkert meira en að lenda
í ævintýrum og hún fær svo sann-
arlega ósk sína uppfyUta og vel það
um leið og hún lendir á flugveliin-
um í Kaíró.
AUar bestu kvikmyndir, er gerð-
ffli® DQISStflD ■ STIMffi ZiffijsyST
ar hafa verið eftir sögum Agöthu
Christie, hafa verið gerðar af Bret-
um. The Man in Brown Suit er aft-
ur á móti gerð af Bandaríkjamönn-
um fyrir sjónvarp og er greiiúlegt
að þeir vestan hafs ná ekki að koma
tíl skila hinni bresku frásagnarUst
Christie jafnvel og landar hennar.
í heUd er kvikmyndin frekar
slöpp útfærsla á einni af þekktari
bókum Agöthu Christie. Þó bregð-
ur fyrir ágætum köflum sem því
miður eru aUtof fáir.
Aðalhlutverkið leikur Stephanie
ZimbaUst sem er þekkt sjónvarps-
stjama vestanhafs. Ekki tekst
henni að blása Ufi í persónuna og
fljótlega er áhorfandanum nokkuð
sama um örlög hennar. Sá ágæti
leikari Edward Woodward, sem
þekktastur er hérlendis fyrir leik
sinn sem Bjargvætturinn í sam-
nefndum sjónvarpsþætti, leikur
einnig stórt hlutverk. Hefur hann
sem aðrir leikara oft gert betur.
The Man in Brown Suit er ein af
þeim myndum sem hefði getað ver-
ið miklu betri heföi vandaðri
vinnubrögð ráðið ferðinni. Eins og
hún kemur fyrir sjónar áhorfand-
ans er hún í besta falU sæmUeg
afþreying. _HK
★ ‘/2
r ^
É.
Flagð undir fögru skinni
TOO GOOD TO BE TRUE
Útgefandi: Steinar hf.
Leikstjóri: Christian Nyby.
Aðalhlutverk: Patrlck Duffy, Loni Ander-
son og Julie Harrls.
Bandarisk, 1988 - sýningartimi 95 mín.
Patrick Duffy, sem er þekktari
hérlendis sem Bobby Ewing í DaU-
as, leikur í Too Good to Be True
þekktan rithöfund, Richard Har-
land, sem nýlega hefur misst eigin-
konu sína í bUslysi. í sama slysi
lamaðist sonur hans.
í byijun myndarinnar kemur
hann á sveitasetur sitt ásamt syni
sínum. Þar er nágranni hans hin
stórglæsUega EUen sem í fyrstu
virðist vera fúllkomnunin holdi
klædd. Harland kolfeUur fyrir
henni og ekki Uður á löngu þar til
brúðkaup hefur farið fram.
Eftir nokkurra vikna sambúð
fara að koma í ljós skapgerðargaU-
U takc.s morc than mufdcr
to hokl onto lovc.
ar sem Harland hafði ekki reUmað
með og verður hjónaband hans
brátt að vítiskvölum er ná hámarki
þegar sonur hans deyr á dularfuU-
ar hátt...
Too Good to Be True er sykursæt
sakamálamynd. Söguþráöurinn er
ágætur þótt oft hafl hann birst í
mörgum útgáfum. Leikstjórinn
hefur aftur á móti ákveðið að fara
skufi mjúkum höndmn um aUt og
því verður myndin yfirborðs-
kennd.
Patrick Duffy fer átakalaust í
gegnum hlutverk sitt, of átaka-
laust. Myndin stendur og feUur aft-
ur á móti með Loni Anderson er
leikur EUen. Anderson, sem einnig
er þekkt sem frú Burt Reynolds,
er stórglæsUeg og hefur maður á
tUfinningunni að Barbie-dúkkan sé
hönnuð eftir henni. Hún er aftur á
móti ekki mikU leikkona og vantar
tilfinnanlega dýpt í leik hennar
sem er nauðsynlegt í svo erfiðu
hlutverki.
-HK
Fokið í flest skjól
TRACY 1 & 2
Útgefandi: Arnarborg
Leikstjóri: Don Crombie og Kathy Muell-
er. Handrit: Michael Fisher, Ted Ro-
berts og Leon Saunders. Aóalhlutverk:
Tracy Mann, Chris Haywood, Nicholas
Hammond og Linda Cropper.
Áströlsk 1986. 2x120 min. Bönnuð yngri
en 16 ára.
Hér er um miniseríu að ræða sem
gerð er af áströlskum aðUum.
Myndin lýsir því sem gerist þegar
feUibylur dynur á Darwin, af-
skekktri borg í ÁstraUu.
Að sjálfsögðu umsnýst aUt mann-
líf. Kallaðar eru tíl sögunnar marg-
ar ólíkar persónur, enda háttur
þátta af þessu tagi. Þar innan um
grillir í forvitnUegar persónur og
víða verður sagan mjög átakanleg.
AUt þetta fóUc gengur í gegnum
átökin og fæstir koma samir úr
þeim.
Fáir þættir af þessu tagi hafa
komið út hér að undanfomu sem
er næsta einkennUegt því að yfir-
leitt hafa þeir notiö ágætra vin-
sælda. Þessi sería er hvorki betri
né verri en obbinn af því sem áður
hefur verið gert á þessu sviði. Fátt
er um frumlega drætti en sögunni
lýst nokkuð skUmerkUega og á
köflum töluverð spenna.
Tæknivinna er ágæt þó að storm-
urinn sé á stundum fremur rislág-
ur. AUt sleppur þó fyrir hom og
fyrir þá sem hafa nógan tíma til að
drepa er ekki annað hægt en að
mæla með þessum þætti. _smj