Dagblaðið Vísir - DV - 09.09.1989, Síða 4
26
LAUGARDAGUR 9. SEPTEMBER 1989,
Bílar
Nýr Renault 5
á næsta ári
Á næsta vori kemur arftaki Re-
nault 5 fram á sjónarsviðið. Þessi nýi
bíll hefur verið í reynsluakstri und-
anfarið og hefur gengið undir nafn-
inu X57.
Með þessu heldur Renault áfram
þeirri endurnýjun framleiðslu
sinnar sem þegar hefur birst okkur
í hinum nýja R19.
X57 veröur fáanlegur í bæði þriggja
og fimm dyra útgáfum og heildaryfir-
bragðið verður svipað því sem þegar
er í núverandi R5, auk þess sem X57
Nýtt á Islandi
Pústkerfi úr
ryöfríu gæöastáU
í flest ókutæki
Framleiösla er nú hafin á pústkerfum úr ryöfríu
gæöastáli í flestar geröir ökutækja og bifreiöa.
Komiö eöa hringiö og kynniö ykkur pústkerfin sem
endast og endast. Geriö góöan bíl enn betrí setjiö
undir hann vandaö pústkerfi úr ryðfríu gæöastáli
5 ára ábyrgö á efni og vinnu.
Hljððdeyfikerfi hf.
STAPAHRAUNI 3 HAFNARFIRÐI
SIMI 652 777
VIFTUREIMAR
TÍMAREIMAR
verður með sömu vél að mestu og
R5 notar nú.
Ein mesta breytingin er sú að
sportútgáfan mun væntanlega verða
með sömu 16 ventla véhna og R19
notar nú í stað túrbóvélarinnar sem
fimman notar.
í fyrstunni er reiknað með dýrari
og sportlegri gerðunum á markað,
en að ódýrari geröir R5 verði áfram
í framleiðslu fram eftir árinu 1990,
en síðan muni X57 taka alveg við af
núverandi R5.
Samkvæmt því sem fram kemur í
erlendum bílablöðum verða ódýrari
gerðir X57 betur búnar en grunn-
gerðir fimmunar eru í dag, og jafnvel
er búist við stationgerð af X57.
í 16 ventla útgáfunni er gert ráð
Greinilegt er að sú lína, sem lögð var með Fiat Tipo, hefur haft áhrif á
hönnun X57, arftaka Renault 5, sem koma mun á markað á næsta ári.
fyrir því aö X57 verðir dýrari en topp-
bíh fimmunar er í dag.
Með þessum nýja bíl er ætlun Re-
nault að koma fram með bíl sem
keppt getur af fullum þunga við
Peugeot 205, sem notið hefur fádæma
hylli, einkum á Frakklandsmarkaði.
Jafnframt er ætlunin að tryggja
stöðu Renault á smábílamarkaði í
Evrópu.
Arftaki Fiat Regata - væntanlegur á næsta ári - mun glæsilegri bíll en fyrir-
rennarinn. Þessi nýja gerð byggir á sama grunni og Tipo en sækir að
nokkru útlit til nýrri bila samsteypunnar, bíla eins og Lancia Dedra sem
kynntur var fyrr á þessu ári.
Val verður á fjölmörgum gerðum af þessum nýja X57 og toppbíllinn verður
með aflmikilli 16 ventla véi, þeirri sömu og notuð er í dag í Renault 19.
Arftaki Fiat Regata kemur á næsta ári
Þegar arftaki Fiat Regata kemur á
markað á næsta ári fáum við að sjá
virkilega vel heppnaða útfærslu á
fjögurra dyra fólksbíl sem byggir á
sama grunni og hinn afturstutti Fiat
Tipo.
Framleiðslu á Fiat Regata í núver-
andi mynd hefur nú verið hætt, enda
þótti bíllinn sumpart ekki svara þeim
kröfum sem til hans voru gerðar.
Þegar er byrjaö að breyta fram-
leiðslulínunni í verksmiðjum Fiat í
Cassino og eftir breytinguna verða
framleiddir um 1800 Tipo og Regata
bílar þar á dag í stað 1100 nú.
Þessi nýi fólksbíh mun nota sama
grunnplan og fjöðrun og Fiat Tipo
og einnig sömu vél. í mörgu öðru til-
liti verður samt verulegur munur á
þessum tveimur gerðum.
Burtséð frá mismunandi afturenda
verður framendi Regata nokkuð
breyttur frá Tipo auk þess sem
mælaborðið í nýja bílnum verður
aht annað en í Tipo.
Seinna á árinu kemur einnig stati-
ongerð, Regata Weekend, sem líkt og
fólksbíllinn verður með hin stóru
afturljós sem einkennt hafa Tipo.
Með þessum nýju gerðum, byggð-
um á grunni Tipo, hyggst Fiat tryggja
stöðu sína á E vrópumarkaði og halda
áfram fyrsta sætinu þótt VW-sam-
steypan sæki hættulega mikið á.
Staða Fiat er erfiðari vegna þess að
þeir byggja aðallega á tveimur gerð-
um, Uno og Tipo, en þessari nýju
gerð Regata og eins þeirri andhtslyft-
ingu á Uno, sem kynnt verður í
næstu viku í Frankfurt, er ætlað að
hjálpa upp á sakirnar.
Mun meira er lagt upp úr innréttingu og mæiaborði í hinni nýju gerð Re- Seinna á næsta ári kemur stationgerð af Tipo/Regata sem miðað við þessa
gata en nú er í Tipo.
mynd Hans Lehmann virðist rúmgóð. Athygli vekur að í stationgerðinni er
haldið fast í stóru afturljósin sem nú eru eitt helsta einkenni Tipo.
JÖFUR HF
Nýbýlavegi 2 • Sími 42600
- Jöfur þegar þú kaupir bíl -
Nýjan eða notaðan
Sýnishorn Úr söluskrá! Allt að 18 mán- óverðtryggð greiðslukjör. Opið laugard. 13-17.
Betri bíiar
betra verð
betri kjör
Dodge Aries st., árg. ’87, sjálfsk.,
vökvast., sumar- og vetrardekk,
gullfailegur og góður bíll. Verö
850.000.
Opel Ascona, árg. '84, drappl., gott
eintak, ekinn 80.000. Verð 380.000.
Volvo 244 GL, árg. ’82, Ijósbr.,
þokkalegur bíll, ekinn 100.000. Verð
360.000.
BMW 518Í, árg. ’87, beinsk., vökva-
st., útv./kassetta, dökkbl., toppbíll,
ekinn 27.000. Verð 850.000.
Daihatsu Charmant, árg. '82, rafm.
i rúðum, plussáklæði, góður bíll.
Verð kr. 240.000.
Ford Escort XR3i, árg. ’86, rauð-
ur, topplúga, ekinn 40.000, verð
630.000.
Peugeot 205 GTi 1,9, árg. '89, rauð-
ur, ekinn 5.000 km. Verð 1.100.000.
Citroen BX TRS, árg. ’85, vökva-
st., beinsk., toppl., centrall., akst-
urstölva, ekinn 50.000. Verð
630.000.
Pegeot 309 GR 1,6, árg. ’87, brúns.,
fallegur bíll, ekinn 35.000. Verð
630.000
Peugeot 405 GL 1,6, arg. ’88, silf-
urgr., ekinn 25.000, verð 790.000.