Dagblaðið Vísir - DV - 09.09.1989, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 09.09.1989, Blaðsíða 6
32 LAUGARDAGUR 9. SEPTEMBER 1989 TEGUND ÁRG. EKINN VERÐ Toyota Tercel 4x4 st. 1988 19.000 850.000 Buick Skylark 6 cyl., LTD 1986 35.000 950.000 Fiat Polonez 1986 40.000 115.000 Ch. Caprice Classic 1985 63.000 1.200.000 Isuzu, styttri, bens. 1988 14.000 1.450.000 Ch. Monza SLE 2,0, ssk. 1988 14.000 770.000 Toyota Corolla DX, 3d. 1986 50.000 470.000 Toyota Tercel 4x4 1984 92.000 450.000 Mazda 323, 4d. 1982 81.000 185.000 Subaru 4x4, st. 1987 53.000 870.000 Isuzu Gemini, 3d. 1989 3.000 700.000 MMC Galant GLS 1989 4.000 1.150.000 GMC Jimmy S15, m/öllu 1988 10.000 1.950.000 Ch. Monza, 3d., ssk. 1987 30.000 590.000 Honda Accord Ex, bsk. 1984 45.000 490.000 Scout Traveler V8, ssk. 1979 73.000 495.000 Toyota Corolla liftback 1987 26.000 590.000 Opel Corsa LS 1987 45.000 350.000 Daihatsu Charade 1986 33.000 360.000 Saab 90 1985 67.000 525.000 Opið laugardaga frá 13 til 17 Bein lína, sími 674300 BiLVANGUR SF HÖFÐABAKKA 9 5ÍMI 687300 BILASALAN HF. HYRJARHÖFÐA 4 - SÍMI 673000 Vantar alla gerðir bíla á staðinn og á skrá Nissan Cedric órg. '87, i sér- flokki, m/öllu. Ford Sierra 1600 Lacer '87, 5 gíra, sóllúga, rafm. i rúð- um, cenfrall. Toyota Corolla GTi árg. '88 m/öilu. Toyota Corolla árg. '88, sjálfsk. Toyota Carina II árg. '87. Nissan Sunny árg. '87. s. 673000 Brosiö breikkar í betri bil Bílar____________________dv Forskot á Frankfurt: 605 - nýr lúxusbíll frá Peugeot frumsýndur í næstu viku Það er einkum í innri búnaði sem áherslan er lögó á að gera þennan nýja bíl sem best úr garði, skapa sannkallaðan lúxusbil. Hægt er að stilla hæð og fjarlægð stýrishjólsins með einu handtaki. í útliti er nýjasti lúxusbillinn frá Peugeot, 605, mjög líkur 405. Nýjungarn- ar er helst að finna i innri búnaði og undir vélarhlífinni. Ein merkasta nýjungin í bíla- heiminum, sem birtast mun á al- þjóðlegu bflasýningunni í Frank- furt sem byijar í lok næstu viku, er frumsýning nýja lúxusbflsins frá Peugeot sem fékk númerið 605 eins og við vorum búnir að spá hér í DV Bflum áður. Þrátt fyrir að opinber frumsýning sé á fimmtudaginn kemur fengu evrópskir bílablaðamenn að sjá bíl- inn á forsýningu í Sochaux í Frakldandi í hðinni viku. Við hér uppi á íslandi vorum íjarri góðu gamni og verðum því að láta okkur nægja að sópa upp molana úr erlendum skrifum um hinn nýja 605. Val verður á fjórum mismunandi vélum í fimm útgáfum bílsins, allt frá tveggja htra vél með venjuleg- um blöndungi upp í þriggja lítra lúxusútgáfu, sex strokka og með 24 ventlum. Hvernig hinn nýi lúxusbíll frá Peugeot myndi verða hefur verið meðal best varðveittu leyndarmála bflaiðnaðarins. Fram að þessu hef- ur nýi bíllinn gengið undir nafninu Z-6. Jafnvel umboðsmenn Peugeot fengu ekki til skamms tíma að vita hvað bíllinn kæmi til með að heita. Undir það síðasta var þó almennt veöjaö á 605 eöa 705. Það kom því fáum á óvart á forkynningunni í Frakklandi á dögunum að það stóð 605 á skottlokinu þegar hulunni var svipt af bflnum. Svipaðútlit og 405 en tækniiegar breytingar Útht hins nýja 605 kom fáum á óvart. í úthti minnir hann mjög á Peugeot 405 en er vissulega stærri. Þetta úthtsform hefur komið vel út hjá Peugeot, allavega hefur 405 notið mikflla vinsælda frá því að hann kom á markað. Það er í tæknflegu tilliti sem hinn nýi 605 ber með sér nýjungar. Hvað vélamar áhrærir eru tveir minnstu mótoramir þegar þekktir. Minnsta véhn gefur 115 hestöfl en númer tvö í röðinni gefur frá sér 130 hestöfl og kemur bílnum, sem ber ein- kennið SRI líkt og 405 með sam- svarandi vél gerir, upp í 200 kfló- metra hraða á klukkustund sem er harla gott þegar miöað er við aö 605 er nokkru þyngri en 405. Þriggja litra vélamar eru sex strokka og gefa 170 hestöfl. Hvað vélamar áhrærir eru gerðimar tvær, sem fengiö hafa einkennið SR og SV fyrir framan númerið 605, með sama vélbúnaði en mikih munur er á öðrum búnaði. SV- gerðin er nú komin með nýjung hjá Peugeot en það er rafeindastýring höggdeyfanna. Toppgerðin, sem er með 24 ventla vél sem er alveg ný af nálinni, býð- ur upp á mikið af alls kyns auka- búnaði og þægindum. Lúxus í fyrirrúmi PSA-samsteypan var búin að gefa tóninn með kynningu á hinum nýja XM frá Citroen fyrr á þessu ári. Þar var mikið lagt upp úr innri búnaði bflsins ásamt vélbúnaöi og fjöðrun. Með þessum nýja 605 er greini- lega lögð á það áhersla af hálfu Peugeot að bíllinn er lúxusbíll og búinn þægindum og búnaði sam- kvæmt þvi. Sérstaklega hefur verið lögð á það áhersla að gera vinnu- stað ökumannsins sem best úr garði. Eitt atriðið, hæðar- og fjar- lægðarstilhng stýrishjólsins með einu handtaki, er nokkuð sem flest- ir kunna eflaust vel að meta, að sögn þeirra sem sáu bíhnn á kynn- ingunni í Frakklandi á dögunum. Þá er hægt að stilla ökumannssætið á aha hugsanlega vegu með rafstýr- ingu, nokkuð sem mörgum finnst sjálfsagður hlutur í slíkum lúxus- bfl. Meðal nýjunga er endurbót á hita- og loftræstikerfi en í 605 eru loftstokkar í framhurðunum sem leiða hita til aftursætisfarþeganna. Þetta á að vera mikil framför en ekki gafst blaðamönnunum tæki- færi til að reyna þetta á dögunum í Sochaux því bfllinn stóð þá graf- kyrr á stalli. Það er greinilegt á fyrstu við- brögðum erlendra bílablaðamanna við hinum nýja 605 að það kemur þeim á óvart hve líkur hann er 405 í úthti. Á hinn bóginn eru þeir á- nægðir með hvernig bíllinn er bú- inn og ekki síst í tæknilegu tilliti. Hafa ber í huga að 405 var á sínum tíma vahnn bfll ársins og þá ekki síst fyrir útht og búnað, nokkuð sem 605 virðist ekki vera eftirbátur hans í. -JR CL.CC HUGSUM FRAM A VEGINN yUMFB^

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.