Dagblaðið Vísir - DV - 27.09.1989, Qupperneq 32
F»—fc
■“i. cz
T A S K O
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu
þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt-
ist eða er notað í DV, greiðast 2.000 krónur.
Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 5.000
krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við
fréttaskotum allan sólarhringinn.
Ritstjóirn - Auglýsingar - Askrift - Dreifing: Sími 27022 |
MIÐVIKUDAGUR 27. SEPTEMBER 1989.
Sýn úthlutað
sjónvarpsrás
í bígerð er að veita Sýn hf. síðustu
_ j»rásina, rás 6, af VHF-kerfinu fyrir
sjónvarpssendingar.
VHF-kerfið er sama kerfið og Ríkis-
sjónvarpið og Stöð 2 sjónvarpa á og
því þurfa notendur rásinnar ekki ný
loftnet. Heimildir DV segja að samn-
ingar um rásina verði undirritaðir í
dag en það fékkst ekki staðfest,
hvorki í samgönguráðuneytinu né
af forráðamönnum Sýnar hf.
Sýn hf. er kvikmyndafyrirtæki sem
er sérhæft í auglýsingagerð og þátta-
gerð. Aðaleigendur eru um þrettán
og er Auglýsingastofan GBB einn
þeirra. -JJ
Dollarinn á
61,06 krónur
- fellur áfram ytra
Dollarinn hélt áfram að falla á er-
lendum gjaldeyrismörkuðum í morg-
un. Það kom hins vegar á óvart að
sterlingspundið veiktist lika gagn-
vart öðrum gjaldmiðlum. Dollarinn
var í morgun seldur hérlendis á 61,06
krónur og pundiö á 98,948 krónur.
Hvort tveggja lægra en í gær.
Dollarinn var í morgun seldur á
^1,88 þýsk mörk erlendis og 1,41 yeni.
Á föstudag, fyrir fund iðnríkjanna
sjö sem samþykktu að lækka dollar-
ann í verði með þvi að auka sölu
hans, var dollarinn seldur á 1,95 þýsk
mörk og 1,45 japönsk yen. Hann hef-
ur því lækkað mikið síðustu tvo dag-
• ana. -JGH
Sakadómur Reykjavíkur:
Morðingi
dæmdur til
hælisvistar
Bjarni Bernharður Bjarnason, sem
er 39 ára gamall, hefur verið dæmdur
til að sæta öryggisgæslu ótímabund-
iö á viðeigandi hæh. Bjarni Bern-
harður var sekur fundinn um að
hafa myrt Karl Jóhann Júlíusson, 67
ára, aðfaranótt 15. nóvember 1988.
Bjarni Bernharður var úrskurðaður
ósakhæfur.
Bjarni Bemharður, sem haföi
nokkru fyrir atburðinn leigt íbúðar-
húsnæði af Karli Jóhanni, kom á
heimili Karls Jóhanns og réðst aö
honum með eggvopni þannig að
hann hlaut bana af. Lík Karls Jó-
hanns var illa leikið.
Ármann Kristinsson sakadómari
kvað upp dóminn.
* Ekkert hæli, sem er sérstaklega
ætlað geðveikum afbrotamönnum,
er til hér á landi. -sme
LOKI
Kratarnir eru ekki aðeins
á jötunni heldur
áfengisspenanum líka!
Hugmyndir um breytingar á kvótalögunum:
Aflamark
við
af sóknarmarkinu
- þau skip, sem nú eru á sóknarmarki, fái 80 prósent af meðalkvóta skipa i landinu
Stóm nefndinni, sem vinnur að
endurskoðun aflakvótalaganna,
var skipt uppífjórar vinnunefitdir.
Nú hefur sjávarútvegsráðherra
sent formönnum þessara nefnda
skjai með hugmynd að breytingum
að kvótalögunum þegar þau renna
út að ári. I skjalinu, sem merkt er
trúnaðarmál, er gert ráð fyrir því
að hreint afiamark verði tekið upp
í kvótakerfinu en sóknarmarkið
verði aflagt. Þá er gert ráö fýrir aö
þau skip, sem em á sóknarmarki
samkvæmt núverandi kvótakerfi,
fái til sín 80 prósent af meðalkvóta
skipa í landinu þegar þau skipta
yfir á aflamark samkvæmt nýjum
kvótalögum. Meðalkvóti skipa er
nú í kringum 1500 lestir.
Ef þessar hugmyndir ganga fram
og verða að lögum myndi þaö stað-
festa endanlega þá skerðingu sem
menn teija ýmsa landshluta hafa
orðiö fyrir vegna kvótakerfisins. í
því sambandi má nefiia Vestfirð-
inga sem hafa látiö vinna sérstaka
skýrslu og haldið ráðstefnu um þá
skerðingu sem þeir teija sig hafa
orðið fytir.
Lögin um stjómun fiskveiða
ganga úr gildi í nóvember á næsta
ári. Vegna þess hve viðkvæm og
umdeild þau em ætlar sjávarút-
vegsráöherra að leggja fram frum-
varp að nýjum lögum strax eftir
áramót. Þar með gefst nægur timi
til að ræða frumvarpið 1 vetur.
Halldór Ásgrimsson vildi ekki
ræða innihald þessa skjals sem
hann kallaöi vinnuplagg. Hann
sagðist ekki hafa það fyrir siö að
ræða um innihald vinnuplagga og
sagðist ekki sjá tilgang í þvi. Það
væri verið að vinna að þvi í þessum
fjórum nefndum að samræma þau
sjónarmiö sem komið hafa fram.
Þegar vinnu í undimefndunum er
lokið verður niðurstaðan lögð fyrir
stóm kvótanefndina.
-S.dór
Þetta stóra tré, sem er i garði við Álfheima, brotnaði í veðrinu i gær.
DV-mynd S
Fréttir af vindum:
Tré hafa brotnað
ogskúturlosnað
Leifar felhbylsins Hugo hafa gert
mörgum landsmanninum gramt í
geði. Ekki er vitað um veruleg tjón
vegna veðursins. Vitað er að tré hafa
brotnað - bæði í Fossvogshverfi og
eins við Álfheima.
Skúta, sem lá við festar í Nauthóls-
vík, losnaði og rak upp í fjöru neðan
við Kirkjugarðinn í Fossvogi. Vonast
er til að skútan sé ekki mikið
skemmd. Skúta, sem var í Reykjavík-
urhöfn, losnaði og tókst áhöfn drátt-
arbátsins Goðans að bjarga skútunni
áður en illa fór.
Vinda á að fara að lægja og af Hugo
er það að frétta að hann er farinn
framhjá landinu og gerir því ekki
meiri usla hér á landi.
Hugo blessaður, eða leifar hans, er
nú kominn langleiðina norður aji
Svalbarða. Vindur er ekki mikih a
landinu - eða 5 til 6 vindstig þar sem
hvassaster. -sme
Aðeins fimm
árekstrar
Aðeins fimm árekstrar urðu í
Reykjavík á síðasta sólarhring. Eng-
in slys urðu á fólki. Enginn ökumað-
ur var tekinn grunaður um ölvun
við akstur. Síðasti sólarhringur var
sá alrólegast í umferðinni í Reykja-
víkílangantíma. -sme
Veðrið á morgun:
Súld og
rigning
Það ætlar að verða bið á góðu
haustveðri vestanlands því spáð
er vaxandi suðvestanátt með súld
á Suðvesturlandi og síöar rign-
ingu á morgun og fylgir því nokk-
urt hvassviðri. Bjart verður aftur
á móti á Austur- og Norðaustur-
landi. Hitinn verður 5-10 stig.
^o'ÐlL ASro0
ÞRÚSTUR
68-50-60
VANIR MENN
BÍLASPRAUTUN
ÍLARÉTTINGAR
f_.nETTINGAR oo hver*
konar boddivi&garóir.
Vanni
Sími 44250