Dagblaðið Vísir - DV - 07.10.1989, Blaðsíða 4
4
LAUGARDAGUR 7. OKTÓBER 1989.
Fréttir
Arnarflug sækir um allt
flug til Patreksfjarðar
- vilia skipta flugi til Haínar, Vestmannaeyja og Húsavíkur meö Flugleiðum
Samgönguráðuneytiö hefur aug-
lýst sérleyfi til áætlunarflugs innan-
lands laus til umsóknar. Flugleiðir
hafa sótt um sérleyfi á flugi til þeirra
sömu tíu staða á landinu og þeir hafa
haft síðastliðin ár.
Amarflug innanlands hf. hefur nú
áætlunarflug til átta staða en sækir
nú um áætlunarflug til fjögurra
staða sem Flugleiðir hafa sérleyfi á
núna. Þar er um að ræða tvær ferðir
á dag til Vestmannaeyja, sem nemur
um þriðjungi af flugi þangað, þrjá
daga í viku til Húsavíkur, sem nemur
helmingi af flugi þangað, allt flug til
Patreksfjarðar og þrjá daga í viku til
Hafnar sem er helmingur af flugi
þangað.
Samgönguráðuneytið mun leita
umsagnar til flugráðs og heima-
manna á hveijum þéttbýlisstað
vegna úthlutunar sérleyfa.
Jörundur Guðmundsson, mark-
aðsstjóri Arnarflugs innanlands hf.,
sagði í samtali við DV í gær að kakan
á umræddum stöðum, sem félagið
sækir um ásamt Flugleiðum, væri
vel til skiptanna.
„Ég tel að samkeppni væri mjög
af hinu góða fyrir farþega, varðandi
verðlagningu og þjónustu. Stein-
grímur J. Sigfússon samgönguráð-
herra hefur sagt viö okkur að ráðu-
neytið muni fyrst og fremst leita
umsagnar hjá heimamönnum og er-
um við bjartsýnir með niðurstöðu
þeirra mála,“ sagði Jörundur.
„Við teljum okkur vel í stakk búna
til að mæta auknum farþegaflutning-
um því við munum hafa tvær traust-
ar Dornier-vélar auk Twin Otter-véla
sem verða til vara.“
Andri Hrólfsson, framkvæmda-
sfjóri innanlandsdeildar Flugleiða,
sagði við DV að nýlega hefði farið
fram hagræðing hjá félaginu varð-
andi flug til þriggja af þessum stöð-
um.
„Besta útkoman hjá okkur er á
stærstu staðina. Vestmannaeyjar eru
sá næststærsti og reiknum við með
að farþegar í því flugi verði um 42
þúsund á þessu ári. Við höfum sam-
ræmt flug til Patreksfjarðar og Þing-
eyrar, Sauðárkróks og Húsavíkur og
Egilsstaða og Hornafjarðar. Þær að-
gerðir hafa hagkvæmni í för með sér
og í raun skilað okkur fleiri far-
þegrnn á þessum stöðum,“ sagði
Andri.
„Innanlandsdeildin er rekin með
tapi en við höfum ekki reiknað það
út með tilliti til einstakra staða.
Reksturinn er meira hugsaður út frá
heildamýtingu á mannskap og
tækjakosti,“ sagði Andri.
-ÓTT
Ný þjónustumiðstöð
ffyrir aldraða af hent
Hin nýja þjónustumiðstöð við Vesturgötu sem afhent var á þriðjudag.
DV-mynd KAE
Hafinn hefur verið rekstur nýrrar
þjónustumiðstöðvar fyrir aldraða að
Vesturgötu 7. Verktakinn, ístak hf„
skilaði verki sínu formlega til Bygg-
ingamefndar aldraðra og Félags-
málastofnunar við athöfn á í mið-
stöðinni á þriðjudag.
Þjónustumiðstöðin er á horni Vest-
urgötu og Garðastrætis, fjórar hæðir
með tvílyftri bílageymslu. Á fyrstu
hæð er um eitt þúsund fermetra
þjónustumiðstöð fyrir aldraða og um
500 fermetra heilsugæslustöð. í þjón-
ustumiðstöðinni er matsalur, eldhús,
setustofa og hreyfisalur auk aðstööu
fyrir ýmiss konar þjónustu.
Á annarri og þriðju hæð em 26
íbúðir fyrir aldraða, alls rúmlega 2
þúsund fermetrar. Þær vom afhent-
ar 3. ágúst síðastliöinn. Á efstu hæð
em geymslur, ein fyrir hverja íbúð.
Um 3700 fermetra bílageymsla er í
kjallara með plássi fyrir um 109 bíla.
Heilarkostnaður við byggingu
diússins á núverandi verðlagi er áætl-
aður rúnðega 553 milljónir króna en
eftir er að kaupa búnað í heilsu-
gæslustöðina fyrir um 26 milljónir
króna.
Hjörleifur Stefánsson og Stefán
Öm Stefánsson arkitektar teiknuðu
húsið.
Þessi nýja félags- og þjónustumið-
stöð er áttunda húsið sem Reykja-
víkurborg rekur á vegum öldrunar-
deildar Félagsmálastofnunar. Sú
breyting hefur orðiö að ellimáladeild
heitir nú öldmnarþjónustudeild. Fer
öll heimaþjónusta hér eftir undir
öldrunarþjónustudeild og ráðgert er
að hefja samstarf við heimahjúkrun
heilsugæslustöðvanna í borginni.
Verður borginni skipt í sérstök
heimaþjónustusvæði en hin nýja
þjónustumiðstöð mun sinna hluta
vesturbæjar og miðbæjar.
-hlh
Þrjár þrettán ára:
Tilkynntu
um veika
konu
- reyndist vera gabb
Þijár þrettán ára stúlkur
hringdu til slökkvistöðvarinnar í
Reykjavík í gærdag og tilkynntu
að mikið veik kona væri í íbúö
við Álftamýri. Sagt var að konan
ætti mjög erfitt með andardrátt.
Sjúkrabíll og lögregla fór þegar
að íbúðinni. íbúðin reyndist vera
læst og var gripið til þess ráðs aö
bijóta leið inn í íbúðina. Þegar
inn var komið reyndist íbúðin
vera mannlaus.
Símtalið var rakið og reyndust
þijár þrettán ára stúlkur hafa
hringt á slökkviliðsstöðina.
Stúlkumar vom í íbúð í nágrenni
íbúðarinnar sem þær sögðu veiku
konuna vera í.
-sme
Rjúpur sjóst öðru hverju og voru þessar rjúpur á vappi við lögreglustöð-
ina i Árbœ i gærdag. Vegna umferðarinnar, sem er mikll við stöölna á
daglnn, eru þær heldur styggar en þegar um hægist á kvðldin koma
þær Inn á planlö við lögreglustöðina og vlrðast una sár þor hlð besta.
Freistingin var mikll fyrir Ijósmyndarann en hann varð að gera cér að
góðu að sltja á sér um sinn þar sem veiðHlmlmt hefet ekki fyrr en 15.
október, Þangað Hi verður hann aö láta aér nægja að skjóta á þœr með
myndavél, sem hann og gerði. DV-myndS
Flughræðsla hrjáir marga ísiendinga. Sumir þjást svo af flughræðslu að
þeir þurfa að leita sérfræðiaðstoðar. Flugleiðir reyna nú að koma til móts
við þetta fólk og bjóða upp á sérstakt námskeið undir stjóm sálfræðings
og reynds fiugstjóra. DV-mynd GVA
Flugleiöir til móts við flughrædda:
Námskeið til að yf ir-
vinna flughræðslu
Flugleiðir hafa ákveðið að efna til
námskeiðs fyrir farþega sem þjást
af flughræðslu og vilja vinna bug á
henni. Námskeiðið er undirbúið af
Eiríki Emi Amarsyni sálfræðingi.
Eiríkur er sérfræðingur í meðferð á
hvers kyns fælni, þar á meðal flug-
hræðslu. Hefur hann gert kannanir
á flughræðslu meðal Islendinga og
kynnt sér meðferð flughræðslu er-
lendis. Auk hans mun Gunnar H.
Guðjónsson leiðbeina á námskeiðun-
um. Gunnar er einn af reyndari flug-
stjórum Flugleiða.
Kannanir hérlendis benda til þess
að um 18 prósent landsmanna þjáist
af flughræðslu. Hjá hluta þess hóps
kveður svo rammt að flughræðsl-
unni að fólk hefur þurft að leita sér-
fræðiaöstoöar. Flugfélög víða um
heim hafa brugöist við þessum vanda
með því að halda námskeið og hefur
það gefið góða raun. Því hafa Flug-
leiðir ákveðið að taka af skarið og
skipuleggja námskeið.
Námskeiðiö hefst 10. oktöber og
verður samtals 20 klukkustundir.
Innifalið í námskeiðsgjaldinu er flug-
ferð á einn af áfcmgastöðum Flug-
leiða erlendis.
Þegar DV aflaði sér upplýsinga um
námskeiðið hafði um tugur skráð sig
til þátttöku en takmarka verður
flölda þátttakenda. Ef eftirspum
verður mikil er ráðgert að halda
fleirinámskeið. -hlh