Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.1989, Page 4

Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.1989, Page 4
4 FÖSTUDAGUR 20. OKTÓBER 1989. Fréttir Vamir gegn Suöurlandsskjálfta: Heffur aldrei orðið verulegt skjálftatjón í Reykjavík segir Július Solnes „Ef farið er yfir jarðskjálftasöguna finnst engin heimild um verulegt tjón í Reykjavík. Sigurður heitinn Þórar- insson, gerði úttekt sem nær aftur til tíundu aldar, og hvergi er getið um verulegt tjón í Reykjavík. Árið 1929 fannst jarðskjálfti í Reykjavík með þeim afleiðingum að reykháfar hrundu af nokkrum húsum. Það varð mikfil jarðskjálfti, skömmu fyr- ir aldamótin, sem átti upptök sín við Vigdísarvelli á Reykjanesi. Sagt er í ummælum að áhrifin í Reykjavík hafi verið það mikfi að gestir í Dóm- kirkjunni hafi flúið út - svo á ein- hverju hefur gengið. Það hafa vakn- aö upp spurningar hvort áhrifin ber- ist illa tfi Reykjavíkur - en þetta er mjög umdeilt, sagði Júlíus Sólnes, ráðherra og verkfræðingur, þegar hann var inntur eftir hvort í Reykja- vík gæti komið til svipaðra áfalla af völdum jarðskjálfta og gerðist í San Francisco. - Hefur eitthvað verið gert á Suður- landi, þar sem hættan er mest, tfi aö mæta afleiöingum jarðskjálfta? „Þaö hefur verið gerð úttekt á öll- um mannvirkjum Landsvirkjunar og öllum samgöngumannvirkjum á þessu svæði. Þaö er búið aö reikna út líklega hegðun allra brúa og reyna að sjá hvað er liklegt að myndi ger- ast. Brýr hafa verið styrktar vegna þeirra úttekta,“ sagði Júlíus Sólnes. Við úttekt á mannvirkjum Lands- virkjunar kom fram að þar mátti margt betur fara. Meðal annars hafði láðst að huga að tæknibúnaði. Mikl- um fjármunum og tíma var eýtt til að tryggja að mannvirkin og tækin geti staðist talsverða jarðskjálfta. Eins var farið yfir allt línukerfið og er það tahð vera mjög vel undirbúið til að mæta áhrifum jarðskjálfta. „Það er erfitt að segja tfi um áhrif- in eftir því hvar upptök skjálftanna verða. Við þessa útreikninga vorum við með tvö módel. Annars vegar minni skjálfta sem ætti upptök sín mjög nálægt mannvirkjunum. Þá er verið að tala um skjálfta á bfiinu 5 tfi 6 á Richter og hins vegar skjálfta á milli 7 og 7,5 á Richter í 30 tfi 40 kílómetra fjarlægð. Mannvirkin standast jarðskjálfta af þessum stærðargráðum án þess að til veru- legra vandræða komi. Það var byrjað að gera úttekt á háspennulínunum. Menn voru forvitnir um að vita hvemig þær myndu standast jarö- skjálfta. Línunum sjálfum er ekki mikfi hætta búin þar sem þær eru gerðar fyrir mikið vindálag sem get- ur orðið meira en álag vegna jarð- skjálfta. Það gætu myndast djúpar jarðsprungur þannig að nokkur möstur gætu dottið út. Línumar ættu ekki að detta út þrátt fyrir það,“ sagði Júlíus Sólnes. Að sögn Júliusar hefur verið gerð mjög vönduð úttekt á öllum brúar- mannvirkjum á Suðurlandi. Verk- fræðistofnun Háskólans hefur unnið að því í samstarfi við Vegagerðina. Nauðsynlegar endurbætur hafa ver- ið gerðar á öllum helstu brúm. Spuming um styrkleika húsa Ekki er vitað með neinni vissu hversu vel hús á Suðurlandi em byggð tfi að standast mikinn jarð- skjálfta. „Hættan er mest á Selfossi sem er við það að vera á miðju þessa jarð- skjálftasvæðis. Það hefur verið kannað, lauslega þó, hvað yrði um helstu opinberar byggingar á Sel- fossi. Það hefur ekki veriö gert neitt mat á íbúða- og atvinnuhúsnæði þrátt fyrir að rætt hafi verið um að gera slíkt. Ég kom þarna 1968 eftir jarðskjálfta sem var um 5 á Richter. Á bænum Brúnastöðum varð tals- vert tjón. Upptökin urðu skammt frá bænum. Um kringum 1955 varð jarð- skjálfti og það fara sögur af tjóni á bæjpm upp með Soginu." Ekki hræddur um mannslíf „Þó svo hús hér á landi séu flest vel byggð er hætta á að þau geti skemmst mikið ef til jarðkjálfta kem- ur. Það sem ég er hræddastur við er að það geti orðið mikið efnahagslegt tjón en ég er ekki eins hræddur við að mannslíf verði í hættu. Öll þessi steinhús sem við höfum byggt á síð- ustu áratugum eru traustlega byggð. Þau gætu sprungið fila. Jafnvel svo illa að þau verði ónýt. Það kom ber- lega í ljós á Kópaskeri, 1976, þar sem nokkur hús skemmdust mikið án þess þau hryndusagði Júlíus Sól- nes. -sme Trausta kippt út af launaskrá: Vinn þangað til mér er sagt að hætta - segir Trausti Þorláksson, aöstoðarmaöur Stefáns „Mín ráðning var bara lausráðn- einkahagi en svo að þú spyrjist ing. Ég er í leyfi frá Brunamála- ekki fyrir um hvort þú sért á laun- stofhun en ég hef í sjálfu sér ekki um eða sért enn í starfi? hugmynd um hvort ég fer þangað „Ég hef náttúrulega mitt gamla aftur. Þetta er ekkert sem að mér starf. En ég er ekkert að hiaupa 1 snýr. Ég hef ekki hugmynd um burtu fyrr en mér er sagt að gera hvaða stefhu þetta tekur. Ég bara slikt,“ sagði Trausti. vinn hér þanngaö til mér er sagt Steingrímur Hermannsson for- að hætta,“ sagði Trausti Þorláks- sætisráðherra hefur lýst því yfir son, aöstoðarmaður Stefáns Val- að hann muni beita sér fyrir því geirssonar. að Stefán Valgeirsson fai framlag Trausti féll út af launaskrá for- vegna sérfræöiaðstoðar eins og sætisráðuneytísins um síðustu hann væri þingflokkur. Með þeirri mánaðamót eftir að hafa þegið laun breytíngu fengi Stefán um 1,2 mifij- íeittár.Eftírsemáðurstarfarhann ónir á næsta ári í stað 230 þús- enn á skrifstofu Stefáns í Þórs- unda.Mismunurinnerum940þús- hamri. und krónur. Þaö er mun lægri upp- - Erekkihægtaötúlkaþaðþannig hæð en sem nemur árslaunum að þér hafi verið sagt upp þegar þér deildarstjóra í forsætisráðuneytínu var kippt út af launaskrá? en Traustí þáði þau laun þaö ár sem „Ég veit ekkert um þaö og í raun hann var án heimildar á launaskrá ekkert meira en þú.“ forsætísráöuneytísins. - Ertu ekki forvitnari um þína -gse Rikissjóður gagnvart gjaldheimtum: Inneign snýst í stóra skuld Dagdeildin að Kleppi sjö ára: Óviðunandi búsetuskilyrði trufla endurhæfinguna Hluti startsfólks á dagdeild geðdeildar Landspítalans að Kleppi. Frá vinstri eru Margrát Bárðardóttir sálfræóingur, Elísabet Kristjánsdóttir starfsmað- ur, Valgerður Baldvinsdóttir geðlæknir, Kurigey Alexandra listþjálfi og Anna Guörún Arnardóttir iðjuþjálfi. Gjaldheimtumar skulduöu ríkis- sjóði 74,5 milljónir króna í árslok 1988. Þar af nam skuld Gjaldheimt- unnar í Reykjavlk 52,5 mifijónum. Árið áður áttu þær inni 48,5 mfiljón- ir hjá ríkissjóði. Ástæðan fyrir þessum skuldum er sú að allur rekstrarkostnaður Gjald- heimtunnar á árinu 1988, tæpar 107 mifijónir króna, var tekinn af hlut ríkissjóðs í innheimtum tekjum. Þetta mun hafa verið gert samkvæmt samkomulagi og var ríkissjóði end- urgreidd þessi skuld í janúar og febrúar 1989. Það kemur fram í skýrslu Ríkis- endurskoðunar og yfirskoðunar- manna ríkisreiknings að: „Ríkisend- urskoðun telur óeðlfiegt að ríkissjóð- ur flármagni allan kostnað af rekstri Gjaldheimtunnar 1 Reykjavík innan ársins og hefur óskað skýringa hjá flármálaráðuneytinu á áðumefndu samkomulagi." -SMJ „Dagdefid er mjög mikilvæg þar sem fólk getur komið hingað á hveij- um degi og verið hér allan daginn eða hluta úr degi. Þannig þarf það ekki að vera innlagt heldur getur verið áfram í heimahúsi eða þar sem þaö býr. Dagdeild er hugsuð sem úrræði til að stytta legu á sólar- hringsdeildum og koma í veg fyrir innlögn á þær deildir,“ sögöu þær Margrét Bárðardóttir sálfræðingur og Valgerður Baldursdóttir, geð- læknir á dagdefid geðdeildar Land- spítalans að Kleppi, í samtah við DV. Dagdefid geðdeilar Landspítalans að Kleppi er sjö ára um þessar mund- ir. Þar á sér stað meðferð sem felur 1 sér hópmeðferð ýmiss konar, ein- staklingsvinnu og flölskylduvinnu. Þá er þar þjálfun sem felur í sér greiningu á félags- og starfsgetu og þjálfun á þeim þáttum. Loks er sam- vera eða afþreying sem sjúklingar sækja jafnvel áram saman. Það sem síðan tekur við getur verið vemduð vinna innan stofnunar, eins og í Bergiðjunni að Kleppi, vemduð vinna utan stofnunar og loks vinna á almennum vinnumarkaði sem allt- af er stefnt að. Meginhluti einstakl- inga á dagdeild kemur eftir að hafa verið inni á geðdeild og er áherslan lögð á endurhæfingu. Er fólk á deild- inni í allt að eitt ár. „Möguleikarnir eftir útskfift em ekki alltof margir. Hugmyndir um búsetu koma því mjög inn í okkar veruleika á dagdeildinni. Óviðun- andi skfiyrði varðandi búsetu geð- sjúkra úti í bæ em streituvaldur sem truflar endurhæfinguna. Það er best ef fólk er afslappað gagnvart því sem tekur viö úti í þjóðfélaginu. Það er erfitt fyrir fólk, sem hefur verið lagt inn á spítala, að fara aftur út í þjóðfélagið. Það vantar tilfinnan- lega sambýli fyrir þetta fólk, sambýh Emil Thoraiensen, DV, Eakifirði: Skuttogarinn Hólmatindur SU frá Eskifirði seldi í gær, 19. október, 157,5 tonn af ísðum fiski í Bremerhaven í Þýskalandi og fékk mjög gott verð. DV-mynd Brynjar Gauti með misjafnlega miklum stuðningi. Það verða svo margir einangraðir eftir útskrift af sjúkrahúsi.“ -hlh Brúttóverð reyndist 15,2 milijónir króna. Meðalverð á kíló var 96,61 króna. Uppistaða aflans var karfi og um 30 tonn ufsi. Skipsflóri á Hólma- tindi er Árbjöm Magnússon. Hörkusala í Bremerhaven

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.