Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.1989, Síða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.1989, Síða 9
FÖSTUDAGUR 20. OKTÓBER 1989. 9 Utlönd Hinn nýi leiötogi Austur-Þýskalands: Erfitt verk framundan Háttsettur austur-þýskur embætt- ismaður, Otto Rheinhold, kenninga- fræðingur austur-þýska kommúni- staflókksins, hefur gefið í skyn að stefnt verði að því allir Austur-Þjóð- veijar fái að heimsækja Vesturlönd og virðist það tilraun til að lægja óánægjuraddir innan landamæra Austur-Þýsklands um hömlur á ferðafrelsi. Kemur þetta í kjölfar mannabreytinga í forystuliði komm- únistaflokksins fyrr í vikunni þegar Erich Honecker lét af störfum leið- toga austur-þýskra kommúnista og Egon Krenz tók við. Verið er að endurskoða lög er varða ferðalög Austur-Þjóðverja til útlanda og sagði Rheinhold að mark- miðið væri að allir fengju vegabréf. Eina landið sem Austur-Þjóðveijar gátu heimsótt án vegabréfs var Tékkóslóvakía þar til fyrr í mánuðin- um þegar landamærunum var lokað nema ferðamönnum með sér- staka áritun. Mikil óánægja með hömlur á ferðafrelsi átti sinn þátt í þeim mikla fólksflótta sem átt hefur sér stað úr landinu og víðtæku mót- mælum sem leiddu til áfsagnar harðlínumannsins Honeckers. Hinn nýi leiðtogi Austur-Þýska- lands, Egon Krenz, reynir nú sitt til að binda enda á versta óróa sem geng- ið hefur yfir Austur-Þýskaland í 36 ár með því að opna fjölmiðla, hlusta á umkvartanir verkamanna og tala við fulltrúa mótmælendakirkjunnar. Það kom á óvart þegar Krenz settist niður með kirkjunnar mönnum í gær en kirkjan hefur löngum stutt and- ófshópa í A-Þýskalandi. Austur-þýskir flóttamenn í Varsjá biða eftir að komast um borð í flugvél sem flutti þá í gær til Diisseldorf í Vestur-Þýskalandi. Simamynd Reuter Síðan Krenz tók við af Honecker á miðvikudag hefur hann verið mikið í sviðsljósinu. En Krenz, sem var yfirmaður öryggismála austur-þýska ríkisins og studdi við aðgerðir kín- verskra yfirvalda gegn námsmönn- um í júní síðastliðnum, á erfitt verk fyrir höndum. 'Hann þarf að sann- færa landa sína um að breytingar í anda þeirra sem eiga sér stað í Sovét- ríkjunum munu einnig eiga sér stað í Austur-Þýskalandi. Hans Modrow, einn leiðtoga kommúnista í Dresden sem hefur á sér orð umbótasinna í anda stefnu Moskvu-stjórnarinnar, sagði að breytingar væru lífsnauðsynlegar í Austur-Þýskalandi og að austur-þýsk stjórnvöld gætu lært af þeim so- vésku. Allir verða að taka þátt í end- urnýjun þjóðfélagsins, sagði Modrow. Um fimmtán hundruð mótmælend- ur fóru í kröfugöngu í bænum Greifswald í gær til að krefjast um- bóta og er þaö fyrsta mótmælagang- an síðan Krenz tók við völdum. Fyrr í mánuðinum tóku þúsundir Aust- ur-Þjóðverja þátt í slikum göngum. Á meðan heldur fólksflóttinn áfram - í gær komu rúmlega 130 austur-þýskir flóttamenn frá Varsjá í Póllandi til Dusseldorf í Vestur-Þýskalandi. Reuter Misheppnaðar friðarviðræður - segir yfirmaður herafia kristLnna Michel Aoun, yfirmaður herafla um,“ sagði Aoun. kristinna í Líbanon, tilkynnti í gær Viöræðumar hófust 30. septemb- að samningaviðræöur um frið eftir er og eiga þátt í þehn 62 þingmenn, nærri fimmtán ára borgarastyijöld í landinu hefðu runniö út í sandinn. Þingfuiltrúar kristinna og múha- meðstrúarmanna í landinu hafa átt viðræöur í Saudi-Arabíu um frið- artillögur sem Arababandalagið hefur lagt fram. Hefur Aoun nú hvatt þingmennina tii að snúa til Líbanons á nýjan leik þar sem markmiði viöræðna þeirra hafi ekki verið náö. „Sóum ekki timan- helmingur múhameðstrúarmenn og helmingur kristnir. Snurða hljóp á þráðinn í viðræðunum vegna kröfu fulltrúa kristinna að Sýrland tryggði brottílutning her- afia síns frá Iábanon áöur en sam- þykktar yröu kröfur múhameðs- truarmanna um frekari aðild að stjómarstefnu landsins. Kristnir gáfu tuttugu og fiögurra klukkutíma frest, sem rennur út í í Líbanon kvöld, til aö ná einhverjum ár- angri. Farouk Abi al-Lamaa, yfir- maður utanríkismála í stjóm krist- inna i Líbanon, sagði aö best væri að þingmennimir sneru heim tll, Líbanons næðist ekki árangur á þessum tuttugu og fjórum tímum. Aðeins kraftaverk getur komið í veg fyrir aö viðræðumar renni út í sandinn, sagði liann ennfremur. Stjórnarerindrekar segja að mis- takist friöarviöræðurnar í Saudi- Arabíu geti það leitt til enn frekari bardaga í Líbanon. Reuter Sovétríkin: Stokkað upp í Prövdu? Skipt hefur verið um ritsjóra Pröv- du, málgagns sovéska kommúnista- flokksins. Við starfi hins íhaldssama Viktors Afanasyevs tók fyrram pólit- ískur ráðgjafi Gorbatsjovs forseta, Ivan Frolov. í fréttum sovéska sjón- varpsins sagði að samþykkt hefði verið beiðni Afanasyev þess efnis að hann yrði leystur frá störfum svo hann gæti helgaö sig vísindarann- sóknum. Ekki er ljóst hvort hann sagði af sér eða var vikið úr starfi. Upp á síðkastið hafa skoðanir Af- anasyevs virst á skjön við opinbera umbóta-afstöðu Gorbatsjovs forseta og hefur hann mátt sæta gagnrýni. Undir hans stjóm hefur Pravda hald- ið harðlínuafstöðu í andstöðu við mörg önnur dagblöð sem hafa nýtt sér til fullnustu „glasnost-stefnu" Gorbatsjovs, eða opnunarstefnuna. Afanasyev var gerður að ritstjóra Prövdu árið 1976 þegar Bréfsnev hélt Viktor Afanasyev, hlnn íhaldssami fyrrverandi ritstjóri Prövdu. Simamynd Reuter við stjómvölinn í Sovétríkjunum. Sama ár var hann gerður að fullgild- um meðlimi miðstjómar kommúni- staflokksins. sem Eldur kviknaði í hreyfli Sovésk herflutningavél fórst í Kaspíahafi í sovéska lýðveldinu Azerbajdzhan á miðvikudagskvöld eftir að eldur kom upp í einum hreyfli að því er kom fram í fréttum Tass, hinnar opinbera fréttastofu í gær. Allir sem um borð voru, 57 manns, létust. Flugvélin sem var af Djusin-76 gerð, var að flytja fallhlííarher- menn til Azerbajdzhan þar sem miklar róstur milli Armena og Az- era hafa átt sér stað siðan i febrúár síðastliönum. Eldur braust út í öðr- um hreyfiinum þremur mínútum eftir flugtak frá heifiugvelli aö sögn Valentín Pankin hershöfðingja og talsmanns flughersins í Izvestía, dagblaði stjórnvalda. Ekki er ljóst frá hvaða flugvelli vélin lagði af stað. Eftir að hafa ráðið niöurlögum eldsins freistaði flugmaðurinn þess að snúa við. „En þegar fiugvélin átti ófarna um fimm ti! sex kíló- metra missti vélin hæð og fórst i Kaspíahafi," segir í Izvestia. Allir sjö í áhöfii vélarinnar sem og fimm- tíu fallhlífarhermenn létust. Ekki kom fram í blaöinu ná- kvæmlega hvar slysið átti sér stað en vegna þess að vélin fórst í Kasp- íahafi er ljóst að það var í Azerbajdzhan. Skærar milli Azera og Armena síðustu mánuði hafa kostaö eitt hundrað og tuttugu manns, þar á meðal nokkra her- menn, lífiö. Sovésk yfirvöld hafa nýverið sent aukalið til Nagomo-Karabak, hér- aðsins sem deilur íbúa lýðveldanna standa um. Um ellefu þúsund her- menn á vegum innanríkisráðu- neytisins era í héraðinu. Reuter Skoðanakönnun í Grikklandi: Hægri menn í fararbroddi Mitsotaki, leiðtogi grískra hægri manna, vonast til að aðild flokks síns að stjóm hægri manna, sem nýfarin er frá, og bandalags kommúnista og vinstri manna hjálpi honum til að ná betri hljómgranni meðal almenn- ings þegar kosningar fara fram. Áætlað er að kosningar fari fram þann 5. næsta mánaðar. Skoðanakannanir sýna að Nýi demókrataflokkurinn, flokkur Mit- sotakis, með 145 þingsæti, myndi ekki ná meirihluta yrði gengiö til kosninga nú en flokkurinn er þó vin- sælastur meðal kjósenda. Reuter Að Afanasyev skuli hafa haldið rit- sfjórasæti sínu svo lengi telja frétta- skýrendur merki um styrk íhalds- manna í forystu kommúnistaflokks- ins. Síðustu vikur hefur þó verið á kreiki orðrómur um klofning mfili íhaldsmanna og fijálslyndra í rit- stjóm Prövdu. Dagar Afanasyevs við stjórnvölinn á Prövdu virtust taldir í síðasta mánuði þegar blaðið birti opinberlega afsökunarbeiðni tfi handa Boris Jeltsin, umbótasinnaða þingmanninum frá Moskvu, vegna frétta um drykkjuskap og fjáraustur á ferð Jeltsins um Bandaríkin. í síðustu viku kallaði Gorbatsjov á sinn fund alla ritstjóra og segja heim- fidarmenn að hann hafi gagnrýnt Vladislav Starkov, ritstjóra Argu- menty Fakty, þar sem nýverið hafa birst nokkur gagnrýnin lesendabréf. Farið var fram á afsögn Starkov fyrr ívikunnienhannneitaði. Reuter TAKIÐ EFTIR ! Vöru- og vélakynning um helgina að Kaplahrauni 5, Hafnarfiröi. # HoriDEn Rennibekkir 3 stærðir á lager Frábært verð Laugard. kl. 10-16. Sunnud. kl. 13-17. i& BROT HF Bíldshöfða 18 sími 672240 Kaplahrauni 5 sími 653090

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.