Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.1989, Side 13

Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.1989, Side 13
FÖSTUDAGUR 20. OKTÓBER 1989. Lesendur 13 Umferðargeðvonska: Svipurinn á þeim... Ásta hringdi: . Ég var einu sinni sem oftar að koma akandi af bílaplaninu við Bún- aðarbankann við Hlemm. Ég beið eftir færi á að komast út á akbrautina og ætlaði niður Laugaveg. Þegar eng- inn bíll var örugglega í augsýn á Rauðarárstíg lét ég til skarar skríða og ók af stað yflr götuna. Ég vissi þá ekki fyrr til en litill hvítur bíll kemur með eins miklum hraða og frekast er unnt að komast þarna frá götuljósunum við Hverfis- göfu og ekur áfram eftir Rauðarár- stígnum í suðurátt, fyrir framan mig. - Nú er ég ekki að segja að ég hafi átt réttinn, síður en svo, hinn bíllinn átti „réttinn" og hann vissi líka held- ur betur af því. Ég dró mig í hlé og hleypti honum fram hjá eins og lög gera ráð fyrir. En ökumaðurinn, sem var karl- maður, lét mig heldur betur vita af sér með augnaráði og höfuðsnún- ingi. Ég hef aldrei séð annað eins augnaráð, nema ef vera skyldi í rauð- um bola sem ég var samtíða á býh nokkru í gamla daga. - Maðurinn sneri líka höfðinu í átt til mín svo það var ekki um aö villast, hann var vondur og hélt ég að hann myndi ekki ná að snúa höfði sínu í rétta átt aftur, svo mjög einblíndi hann á mig með sínu illa augnaráði. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem ég sé ökumenn verða illa undir stýri af htlu tilefni. Það er nú kannski engin furða að slysatíðni sé mikh þegar menn aht að því breytast í skrímsli í framan af minnsta tilefni. Þama var engin hætta á árekstri nema þá ef ökumaöur þessi hefði keyrt á mig sem ég gat alveg ímyndað mér af svip hans að dæma. Menn undir stýri ættu aö temja sér rólega og yfirvegaða framkomu og vera tilbúnir að mæta hvers kyns áföllum. En það er eins og sumir umturnist algjörlega af minnsta th- efni og þá er það sem maður sér sitt af hverju. Já, svipurinn á þeim, hann segir tii manni margt. Gullgæsin Ari skrifar: Fimm vina minna hafa ákveðið að flytja úr landi og eru tveir þegar farn- ir. Þetta eru menn á aldrinum 20 til 30 ára, einhleypir og hluti af helsta tekjustofni ríkisins. - Ef sú þróun, sem greinhega er komin á alvarlegt stig, heldur áfram má reikna með að eftir nokkur ár verði einungis eftir í landinu þurfahngar, einstæðar mæð- ur og aðrir sem lifa á þeim sem skapa verðmætin í landinu. Ég vh hins vegar taka það fram th að forðast allt fjaðrafok að mér er fullljóst að margar einstæðar mæður skapa verðmæti fyrir þjóðfélagið, andleg og veraldleg. Þar sem ólíklegt er að verksvit auk- ist eða kosningaloforð Steingríms og Jóns Baldvins rifjist upp fyrir fólki, vil ég benda þeim á að til að stöðva megi þessa þróun á næstunni fá ráð- gjöf og ýmislegt nýthegt frá germ- önskum frændum vorum í Prúss- landi fyrir lítið. Fyrst ég er farinn aö tala um germ- ani, kom mér í hug einn flokkur þeirra, Frankar, sem að vísu hefur glatað flestum einkennum Karla- magnúsar, en er mörgum íslending- um mjög kær. Raunar svo kær að við framleiöslu á svoköhuðum „for- setapeningi“ var ákveðið að fela germönum smíði gripsins. Ég hugsa að það verði mikið sjokk fyrir fyrstu kynslóðina, sem aldrei hefur dýft hendi í kalt vatn og hefur verið að skríða út úr skólum undan- farin ár, svo og Seðalbankastjóra, að uppgötva það að guhgæsin átti ekki heima í Seðlabankanum - og er þar að auki flutt úr landi. Síðastur verður eflaust forsætis- ráðherra th að frétta þetta því hann veit ekki einu sinni, hvað þeir eru að gera í „svarta húsinu". Ingimar Ingimarsson fréttamaður (fyrir miðju) og við hlið hans útvarpsráðsmennirnir Magnús Erlendsson (t.v.) og Rúnar Birgisson (t.h.). - Þeir síðasttöldu telja óviðunandi að Ingimar sé „einn“ að störfum sem þingfréttamaður. Hver er vanhæfur? Kristinn Einarsson hringdi: Nú hefur útvarpsráð tekið til um- ræðu störf þingfréttaritara Sjón- varpsins, Ingimars Ingimarssonar. Telja sjónvarpsmenn Ingimar full- færan að gegna því starfi og styðja hann í hvívetna. - Vh ég taká undir þann stuðning sem áhorfandi sjón- varps. Mér fmnst Ingimar hafa staöið sig mjög vel og sýna háttvísi og um leið einarða framkomu í sjónvarpi. Þeir sem hvað mest hafa gagnrýnt störf þingfréttamannsins eru tveir útvarpsráðsmenn, Magnús Erlends- son, sem er fuhtrúi Sjálfstæðis- flokksins í ráðinu, og Rúnar Birgis- son, sem er sagður vera 1. varamaður fyrir Kvennahsta og Alþýðubanda- lag - er sjálfur framarlega í röðum Borgaraflokksins. Mér finnst gagnrýni þeirra út- varpsráðsmanna ekki eiga við rök að styðjast og tala ég þá sem sjón- varpsáhorfandi að sjálfsögðu. En þar sem útvarpsráð er nú einu sinni póli- tískt samansett, hef ég ekki mikla trú á gagnrýni þess og hef aldrei haft. - Æth hggi þarna ekki einhver önnur ástæða að baki en sú að þeir vhji Ingimar svo vel að fá honum aðstoð við vinnu sína? Mér fmnst algjörlega óviðunandi, þegar útvarpsráð sem er nú kannski ekki með ahra vinsælustu „ráðum“ í landinu, ætlar að taka völdin af þeim yfirmönnum Sjónvarpsins sem ráðnir eru m.a. til að velja frétta- menn til þessa eða hins verkefnis þess fjölmiðils. - En það er eins og margir stjórnmálamenn hafi haft „innantökur“ upp á síðkastið eftir að umfjöllun fjölmiðla um vanhöld á siðferði sumra þeirra var gerð lýðum ljós. Vonandi er hér ekki um slíkar innantökur að ræöa hjá þingkjörnu útvarpsráði! ð Hvað verður um Fræðsluvarpið? Sími 685111. Karl Jeppesen, deildarstjóri fræðslu- myndadeildar Námsgagnastofnunar, skrifar: Það var heldur hastarlegt fyrir okkur, sem vinnum að námsefnis- gerð á myndböndum fyrir nemendur í skólum landsins, aö heyra það í fréttum Sjónvarps mánud. 16. okt. sl. að forstöðumaður Fræðsluvarpsins, Sigrún Stefánsdóttir, hefði sagt upp störfum. - Ástæðan sem hún gaf upp var skhningsleysi fjárveitingavalds- ins fyrir nauðsyn Fræðsluvarpsins. Á örskömmum tima hefur Sigrúnu tekist að koma á fót fræðslusjónvarpi og -útvarpi þar sem framleitt hefur verið kennsluefni sem nýtist á ýms- um stigum í skólakerfmu og til al- menningsfræðslu. Við í fræðslumyndadehd Náms- gagnastofnunar höfum fylgst náið með framvindu mála í Fræðsluvarp- inu frá upphafi þess í mars 1988. Fræðsluvarpið hefur því aðeins starfað í eitt heht skólaár. Viðbrögð kennara við Fræðsluvarpinu voru fremur líth í fyrstu en nú á seinustu vikum er eins og kennarar hafi áttað sig mjög vel á því hvað Fræðsluvarp- ið hefur upp á að bjóða. Fræðslumyndadeild Námsgagna- stofnunar dreifir til skóla flestum myndum sem Fræðsluvarpið hefur framleitt og nú á síðustu vikum hefur verið mikil eftirspum eftir þessum myndum alls staðar að af landinu, og verið er að dreifa myndunum út th allra fræðsluskrifstofa í tugatali. - Þá hafa margir skólar ákveðið að eignast eintök af sumum myndanna. Nú þegar starf Fræðsluvarpsins er aö byrja að sýna árangur neyðist for- stöðumaðurinn th að segja upp störf- um vegna þess að með þeirri fjárveit- ingu sem áætluð er samkvæmt fjár- lagafrumvarpinu fyrir næsta ár, er einungis unnt að greiða skuldir sem safnast hafa fyrir og th að borga kaup eins starfsmanns en hann mætti ekk- ert gera sem kostar peninga. Sigrún Stefánsdóttir er ekki sú manngerð sem sættir sig við það hlutskipti. Þetta má ahs ekki gerast. Nú er notkun skólanna á efni Fræðsluvarpsins að aukast en stórir og mikhvægir hópar eru enn útund- an og þeim þarf að sinna. Upphaflega var ætlun Fræðsluvarps að sinna almenningi í landinu, fihlorðna fólk- inu, sem þarf að fylgjast með mjög örum breytingum á ýmsum sviðum atvinnulífsins. Það er sífeht krafist meiri menntunar af fólki í ýmsum störfum, menntunar sem ekki stóð til boða þegar þetta fólk stundaði sitt undirbúningsnám. Mikhvægi Fræðsluvarpsins er e.t.v. mest fyrir þessa hópa. Þetta form fjarkennslu verður að komast á, það getur haft ómetanleg áhrif á almenna menntun í landinu. Ef við viljum vera í hópi tæknivæddra þjóð- félaga verður menntunin að vera al- menn. - Með vel skipulagðri fiar- kennslu í Fræðsluvarpi og öðrum menntastofnunum er unnt að ná þessu markmiði. Reynsla ýmissa þjóða, svo sem Norðurlandaþjóð- anna og Breta af fiarkennslu í sjón- varpi og útvarpi, er mjög góö. það er von mín að fiárveitingavaldið taki þá ákvörðun að standa sómasamlega að þessu mikhvæga starfi. - Það er enn timi th að lagfæra þessi mistök. Upplýsingasímsvari 681511. ) Lukkulínan: 99 1002. AUKABLAÐ Bílar 1990 Miðuikudaginn 1. nóvember nk. mun aukablað um bíla fylgja DV. í þessu aukablaði uerður fjallað um nýja bíla af árgerð 1990 sem bílaumboðin koma til með að bjóða upp á, auk þess sem ýmsu öðru efni varð- andi bíla uerða gerð skil í blaðinu. Þeir auglýsendur, sem hafa áhuga á að auglýsa í þessu aukablaði, vinsamlega hafi samband uið auglýsingadeild DV hið fýrsta í síma 27022. Vinsamlegast athugið að skilafrestur auglýsinga er fyrir fimmtudaginn 26. október. ATH.! Póstfaxnúmer okkar er 27079. Auglýsingadeild Þverholti 11, sími 27022

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.