Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.1989, Side 25
FÖSTUDAGUR 20. OKTÓBER 1989.
33
Afmæli
Kristín Halldórsdóttir
Kristín Halldórsdóttir húsmóöir,
starfskona Kvennalistans og fyrrv.
alþingiskona, Fomuströnd 2, Sel-
tjamamesi, er fimmtug í dag.
Kristín fæddist í Varmahlíð í
Reykjadal. Hún lauk stúdentsprófi
frá MA1960 og kennaraprófi 1961.
Kristín hefur auk húsmóðurstarfa
stundað kennslu, blaðamennsku,
þýðingar og prófarkalestur. Hún
var ritstjóri Vikunnar 1974-79 og
alþingiskona 1983-89. Þá var hún
fprmaður þingflokks Samtaka um
kvennalista 1984-85. Kristín er nú
formaður Ferðamálaráðs.
Kristín annaðist að mestu ljós-
myndatöku í eftirtaldar bækur í
bókaflokknum Leiðsögurit Fjölva
eftir Jónas Kristjánsson: Kóngsins
Kaupinhöfn, útg. 1981; Heimsborgin
London, útg. 1983; Ævintýralega
Amsterdam, útg. 1984; París, heims-
ins höfðuprýði, útg. 1985, og New
York, nafli alheimsins, útg. 1988.
Kristín giftist 24.12.1963 Jónasi
Kristjánssyni, f. 5.2.1940, ritstjóra
DV, syni Kristjáns Jónassonar,
læknis í Reykjavík, og konu hans,
Önnu Pétursdóttur bókara.
Börn Kristínar og Jónasar eru
Kristján, f. 27.3.1964, jarðfræðinemi
við Kaupmannahafnarháskóla,
kvæntur Katrínu Harðardóttur
dýralækni og eiga þau eina dóttur,
Kötlu, f. 29.5.1987; Pálmi, f 15.5.
1968, sagnfræöinemi við HÍ, og er
sambýliskona hans Sigrún Thorla-
cius, líffræðinemi við HÍ, en þau
eiga eina dóttur, Hem, f. 14.3.1989;
Pétur, f. 24.12.1970, nemi í MH, og
Halldóra, f. 7.1.1974, nemi í MH.
Alsystkini Kristínar eru Halldór,
f. 23.7.1934, yfirlæknir á Kristnesi
og búsettur á Akureyri, kvæntur
Birnu Björnsdóttur og eiga þaufjög-
ur börn, og Svanhildur, f. 1.6.1938,
félagsmálafulltrúi BSRB og á hún
fjögur böm.
Hálfsystkini Kristínar samfeðra:
Salvar, f. 17.2.1944, d. 1974, búfræð-
ingur; Hákon Öm, f. 30.9.1945, vél-
stjóri og tæknimaður hjá Skeljungi,
kvæntur Pálfríði Benjamínsdóttur
og eiga þau tvö böm; Ragnar Jó-
hann, f. 2.1.1954, tæknimaður hjá
Alpan og á hann þrjú börn, og Bjöm,
f. 22.9.1955, rannsóknarlögreglu-
maður, kvæntur Amínu Sumarhða-
dóttur og eiga þau tvö böm.
Foreldrar Kristínar: Halldór Víg-
lundsson, f. 11.6.1911, d. 1977, smið-
ur og síðar vitavörður, og Halldóra
Sigurjónsdóttir, f. 26.6.1905, fyrrv.
skólastjóri Húsmæðraskólans aö
Laugum.
Faðir Halldórs var Víglundur, b. á
Hauksstöðum, Helgason, b. þar,
Guðlaugssonar, b. í Steinkirkju í
Fnjóskadal, Eiríkssonar. Móðir
Helga var Rósa Jónsdóttir, b. í Garði
í Mývatnssveit, Marteinssonar.
Móðir Víglundar var Arnfríður,
systir Árna, b. í Garði, föður Þum
í Garði. Ami var föðurafi Þorgríms
Starra, b. og hagyrðings í Garði, og
langafi Ólafs Jóhanns Ólafssonar
rithöfundar. Amfríður var dóttir
Jóns, b. i Garði, bróður Rósu.
Móðir Amfríðar var Guðrún, syst-
ir Jóns, langafa Kristjáns Eldjárns
forseta. Annar bróðir Guðrúnar var
Halldór á Bjamastöðum, afi Val-
gerðar, móður Tryggva forsætisráö-
herra, föður Klemensar, fyrrv. hag-
stofustjóra. Valgerður var einnig
móðir Dóru forsetafrúar, móður
Völu Thoroddsen. Þá var HaUdór
afi Helgu, húsfreyju í Grímstungu,
ömmu prófessoranna Þorbjörns
Sigurgeirssonar og Bjöms Þor-
steinssonar. Helga var einnig móð-
uramma Bjöms á Löngumýri og
langamma Páls á Höllustöðum.
Guðrún var dóttir Þorgríms Mar-
teinssonar, b. í Hraunkoti, og konu
hans, Vigdísar Hallgrímsdóttur, b. í
Hraunkoti, ættföður Hraunkotsætt-
arinnar, Helgasonar.
Móðir Halldórs var Svanborg Stef-
anía Bjömsdóttir, smiðs á Vindfelli,
Eiríkssonar, b. á Torfastöðum í
Vopnafirði, Eyjólfssonar. Móðir
Bjöms var Svanborg, systir Guð-
mundar, hreppstjóra á Torfastöð-
um, langafa Agnars skipstjóra, föð-
ur Guörúnar alþingiskonu. Svan-
borg var dóttir Stefáns Ólafssonar,
b. á Torfastöðum, og Sólveigar
Björnsdóttur, stúdents í Böðvars-
dal, Bjömssonar. Móðb Sólveigar
var Guðrún, systir Árna, langafa
Magdalenu Schram, ömmu Ellerts
ritstjóra. Móðir Svanborgar var Sig-
ríður Jónsdóttir, b. á Hraunfelli,
Jónssonar og Margrétar Bjöms-
dóttur.
Meðal móöursystkina Kristínar
má nefna Amór, skólastjóra og rit-
höfund; Braga, fyrrv. alþingis-
manns, ráöherra og ritsjóra, Dag,
skólastjóra og Unni, móður Inga
Tryggvasonar, fyrrv. formanns
Stéttarsambands bænda.
Halldóra var dóttir Sigurjóns,
skálds, alþingismanns og oddvita að
Litlu-Laugum í Reykjadal, bróður
Guðmundar, skálds og b. á Sandi í
Aðaldal, föður Bjartmars alþingis-
manns og Heiðreks skálds. Annar
bróðir Sigurjóns var Erhngur,
kaupfélagsstjóri og alþingismaður.
Systir Sigurjóns var Áslaug, móðir
Karls ísfelds rithöfundar. Sigurjón
var sonur Friöjóns, b. á Sílalæk og
Sandi, Jónssonar, b. að Hafralæk í
Aðaldal, Jónssonar, b. á Hólmavaði,
Magnússonar, b. á Hólmavaði, Jóns-
sonar, ættföður Hólmavaðsættar-
innar.
Móðir Sigurjóns var Sigurbjörg
Guðmundsdóttir, b. á Sílalæk, Stef-
ánssonar, b. á Sílalæk, Indriðason-
ar, b. á Sílalæk, Árnasonar, ætt-
föður Sílalækjarættarinnar.
Móðir Halldóru var Kristín, systir
Bjöms, ritstjóra Fróða á Akureyri.
Kristín var dóttir Jóns, b. á Rifkels-
stöðum í Eyjafirði, Ólafssonar og
konu hans, Halldóru, systur Einars,
alþingismanns í Nesi, langafa
Gunnars J. Friðrikssonar, fv. for-
manns VSÍ. Hálfbróðir Halldóru var
Gísh, faðir Garðars stórkaupmanns,
afa Garðars Halldórssonar, húsa-
meistara ríkisins, og Garðars Gísla-
sonar borgardómara. Þá var Gísh
Kristín Halldórsdóttir.
langafi Þórs VUhjálmssonar, próf-
essors og hæstaréttardómara. Ann-
ar hálfbróðir Halldóru var Ásmund-
ur prófastur, faðir Einars Morgun-
blaösritstjóra. Hahdóra var dóttir
Ásmundar hins ættfróða, hrepp-
stjóra á Þverá, Gíslasonar, b. í Nesi,
föðurbróður Þórðar Pálssonar, ætt-
fööur Kjarnaættarinnar, langafa
Hahdórs, föður Ragnars forstjóra.
Móðir HaUdóru var Guðrún Bjöms-
dóttir, umboðsmanns í Lundi, bróð-
ur Kristjáns ríka á IUugastöðum,
föður Sigurðar á Hálsi, langafa
Bjarna Benediktssonar forsætisráð-
herra.
Kristín verður að heiman á af-
mæhsdaginn.
Til hamingju með afmælið 20. október
95 ára 60 ára
Guðbjörg Jónsdóttir, Skjólvangi, Hrafhistu, Hafharfirði. Andrés Eggertsson, Heiðarbraut 13, Keflavík.
80 ára 50ára
Elís Eiríksson, Hallfreöarstöðum 2, Tunguhreppi. Hlín Ingólfsdóttir, Hhðartúni 10, Mosfellsbæ. Andrés Svanbjörnsson, Ljárskógum 2, Reykjavík. Regin Sjúrður Fríbjörn Poulsen, Stórholti 1, Akureyri.
Markús Thoroddsen, Mýrum 11, Patreksfirði
40 ára
75ára Guðlaug Guðsteinsdóttir, Jörfa, Kjalameshreppi. Guðný Benediktsdóttir, Hlíðarhjalla 34, Kópavogi. Gunnar Sigurðsson, Hehubraut 6, Grindavík. Helga Jóakimsdóttir, Sundstræti 24, ísafirði. Jón Brynjólfsson, Amargötu 8, Reykjavík. Páh Marinó Beck, Valhöh, Reyðarfirði.
Skarphéðinn Eiríksson, Djúpadal, Akrahreppi.
70 ára
Ólafía Jónsdóttir, Vatnskoti 2, Biskupstungnahreppi. Tómas Halldórsson, Heiðargerði 65, Reykjavík.
Jón S. Pétursson
Jón S. Pétursson, Teigagerði 1,
Reykjavík, er sjötugur í dag.
Jón er fæddur á Oddsstöðum á
Melrakkasléttu en kom tvítugur til
Reykjavíkur og hefur átt þar heima
síðan. í æsku vann hann ÖU venju-
leg sveitastörf, og eins og gengur á
hlunnindajörðum, við sjósókn, sU-
ungsveiði, hrognkelsaveiði og fugla-
og seladráp, einnig við að hirða
æðarvarp og vinna rekavið til heim-
Uisnota, aðaUega í eldinn. Þá vann
hann við sUdarsöltun og í SUdar-
verksmiðju ríkisins á Raufarhöfn
og viö shdveiðar með herpinót eftir
að hann lauk vélstjóranámi. Hann
var rúm 17 ár til sjós og var einn
þeirra sem sigldu á England á stríðs-
tímunum, eftir það hjá SheU, Land-
helgisgæslunni og Ríkisskipum.
Fyrst eftir að hann fór í land vann
hann um árabU hjá Landssíma ís-
lands en hefur nú síðasthðin nim
20 ár starfað hjá Vatnsveitu Reykja-
víkur. Jón var sem unglingur tvo
vetur við nám í Alþýðuskólanum
að Laugum í Suður-Þingeyjarsýslu.
Hann lauk vélvirkjanámi í Lands-
smiðjunni og við Iðnskólann í
Reykjavík, síðar vélstjóranámi. Jón
hefur starfað mikið að félagsmálum;
formaöur Félags jámsmíðamanna,
í stjórn Mótorvélstjórafélags íslands
og Vélstjórafélags íslands; sat um
árabU í stjórn Farmanna- og fiski-
mannasambands íslands. Hann er
einn af stofnendum og ábyrgðar-
mönnum Sparisjóðs vélstjóra og Líf-
eyrissjóðsins Hlífar og í stjóm hans
fyrstu árin. Þegar Gylfi Þ. Gíslason
var menntamálaráðherra var hann
skipaður prófdómari við Vélskóla
íslands og hefur verið skipaöur það
nær óshtið síöan til þessa dags. Þá
hefur hann átt sæti í ýmsum nefnd-
um á vegum félagasamtaka eða ver-
iö skipaður af stjómvöldum. Hann
hefur átt sæti í stjóm Framsóknar-
félags Reykjavíkur, í stríðsnefnd
, hernámsandstæðinga fyrstu árin,
þá vann hann mikið á vegum AA-
samtakanna á bernskuárum þeirra
á íslandi.
Kona Jóns er Herdís Sigurjóns-
dóttir, f. 6.3.1925, hárgreiðslukona
og húsmóðir, frá Neskaupstað. Hún
er dóttir Sigurjóns Magnússonar,
kennara í Neskaupstað, og Magneu
Guðmundsdóttur, húsmóður og
verkakonu.
Herdís og Jón eiga sex börn. Þau
eru:
Magni, sérfræðingur i lyflækning-
um og lungnasjúkdómum á Borgar-
spítalanum. Eiginkona hans er
Kristín Björnsdóttir, skurðstofu-
hjúkrununarfræöingur á Landsp-
ítalanum, og eiga þau þijú börn.
Þorbjörg, verslunarmaður og hús-
móðir í Lúxemborg, gift Jóhannesi
Kristinssyni, flugstjóra hjá Cargo-
lux.
Borghildur Anna, fyrrv. blaða-
maður, nú við nám í London. Hún
á tvö börn og er sambýhsmaður
hennar Ragnar Ragnars Egilsson.
Pétur, trésmiður á Seyðisfirði,
kvæntur Sigrúnu Ólafsdóttur
heilsugæsluhjúkrunarfræðingi og
eiga þau fjögur börn.
Helga Björk húsmóöir, gift Karvel
Gíslasyni, verslunarmanni hjá Þór
hfv og eiga þau þrjú böm.
Áki Ármanns, nemi við Háskóla
íslands.
Systkini Jóns em: Oddgeir, fyrrv.
bóndi á Vatnsenda, kvæntur Önnu
Ámadóttur frá Bakka á Kópaskeri
og eiga þau sex börn; Borghildur,
ekkja Sigurðar Finnbogasonar frá
Harðbak, fyrrv; bónda að Oddsstöð-
um, síðar starfsmanns kaupfélags-
ins í Hrísey, og eignuðust þau fimm
bömj-Friðný Guðrún, húsmóðir og
ættfræðingur, gift Guðjóni Guðna-
syni kvensjúkdómalækni og eiga
þau fimm böm; Árni Guðmundur,
fyrrv. ráðunautur, kvæntur
Guðnýju Ágústsdóttur frá Raufar-
höfn, húsmóður og skrifstofustjóra
hjá Almennu verkfræðistofunni;
Guðný Aðalbjörg, íþróttakennari,
húsmóðir og starfstúlka hjá Jökh á
Raufarhöfn, ekkja Jóns Einarssonar
Jón S. Pétursson.
síldarsaltanda og útgerðarmanns á
Raufarhöfn, og áttu þau einn fóstur-
son.
Foreldrar Jóns vom Pétur Sig-
geirsson, bóndi og oddviti á Odds-
stöðum, síöar skrifstofustjóri Síld-
arverksmiöju ríkisins á Raufarhöfn,
og kona hans, Þorbjörg Jónsdóttir
frá Ásmundarstöðum á Sléttu.
Pétur var sonur Siggeirs, b. á
Oddsstöðum, Péturssonar, Jakobs-
sonar, umboðsmanns ogalþingis-
manns á Breiöumýri í Reykjadal,
Péturssonar.
Móðir Siggeirs var Margrét Hálf-
dánardóttir frá Sauöanesi og b. á
Oddsstöðum, Einarssonar. Móðir
Péturs Siggeirssonar var Borghhd-
ur Pálsdóttir frá Brúnagerði í
Fnjóskadal, Guðmundssonar.
Margrét Siggeirsdóttir, húsmóðir á
Harðbak, var systir Péturs.
Þorbjörg, móðir Jóns, var dóttir
Jóns Ámasonar, húsasmiðs, skipa-
smiðs og bónda á Ásmundarstöðum.
Hann var bróðir Þorbjargar Lund á
Raufarhöfn. Móðir Þorbjargar var
Hildur Jónsdóttir frá Steinalóni.
Jón verður á heimih dóttur sinnar
íLúxemborgáafmæhsdaginn. i
Brúðkaups- og
starfsafmæli
Ákveðið hefur verið að birta á afmælis- og ættfræðisíðu
DV greinar um einstaklinga sem eiga merkis brúðkaups-
eða starfsafmæli. /
Greinarnar verða með áþekku sniði og byggja á sambæri-
legum upplýsingum og fram koma í afmælisgreinum blaðs-
ins en eyðublöð fyrir upplýsingar afmælisbarna liggja
frammi á afgreiðslu DV.
Upplýsingar varðandi brúðkaups- eða starfsafmæli verða
að berast ættfræðideild DV með minnst þriggja daga fyrir-
vara.
Það er einkar mikilvægt að skýrar, nýlegar andlitsmyndir
fylgi upplýsingunum.