Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.1989, Page 27
FÖSTUDAGUR 20. OKTÓBER 1989.
35
„Það er allt í lagi að setja niður
haustlauka út október og reyndar í
lagi meðan ekki er komið frost í
jörð,“ sagði Kristinn Einarsson, sölu-
stjóri í Blómavali, í samtali við DV.
Blómaval hefur sett alla haust-
lauka á útsölu og eru þeir nú boðnir
með 25% afslætti. Meðal þess sem
þar er að flnna eru 50 túlipanalaukar
í poka fyrir 599 krónur eða um 12
krónur stykkið. Hægt er að fá poka
með 10 túlipanalaukum fyrir 113-349
krónur. Verðiö fer eftir stærð lauk-
anna en eftir því sem laukamir eru
stærri því stærri verða blómin.
5 stykki af páskaliljulaukum í poka
kosta hjá Blómavali 111-184 krónur,
12 stykki af krókusalaukum kosta
117 krónur og 20 stykki kosta 368
krónur.
„Ég setti niður túlipana í febrúar í
fyrra og þeir lánuðust mjög vel. Það
má segja að meðan jörð er þíð sé
óhætt að setja út haustlauka þó auð-
Neytendur
vitað sé betra að þeir nái aðeins að
róta sig áður en frystir,“ sagði Guð-
björg Kristjánsdóttir hjá Sölufélagi
garðyrkjumanna í samtali við DV.
Hjá Sölufélaginu fást 10 túlipana-
laukar á 120-320 krónur. 25 krókusar
kosta aðeins 125 krónur og 10 stykki
115 krónur. Hægt er að fá tágakörfur
með laukum og nýtist þá karfan sem
pottahlíf og kosta 20 stykki af túli-
pönum í körfu 435 krónur en 20 stór-
ar liljur eru á sama verði.
Guðbjörg vildi benda fólki á að
hægt er að setja niður krókusa sem
koma upp um jól, eins og vinsælt er
að nota hýasintur. Krókusar fara vel
með hýasintum eða einir sér.
í blómaverslunum Alaska er gefinn
30% afsláttur af verði allra haust-
lauka. Þar kosta 25 túlipanar 665
krónur. 4 hýasintur í pakka kosta 180
krónur, 12 krókusar kosta 160 krón-
ur og 12 krókusar fást á 100 krónur.
Af þessu verði er svo veittur 30%
afsláttur.
-Pá
Sveppir lækka vegna aukins fram-
boðs.
Sveppir
lækka í
verði
Vegna harðnandi samkeppni milli
sveppabænda og aukins framboðs
hefur heildsöluverð á sveppum
lækkað að undanfórnu. Kíló af 1.
flokks sveppum kostar nú í heildsölu
390 krónur en kostaöi 516 fyrir einum
mánuði. Lækkunin nemur um 24%.
Heildsöluverð var hæst um 600 krón-
ur fyrir nokkrum mánuðum.
Algengt verð á kílói af sveppum út
úr búð er nú um 600 krónur, í mesta
lagi 650 krónur. Algengtverðísumar (
var 800-900 krónur kílóið. Neytendur
njóta hér góðs af auknu framboði og
fyrirsjáanlegt er að verðið lækkar
enn frekar vegna harðnandi sam-
keppni.
-Pá
- enn tími til að setja niður
Enn er tími til þess að setja niður haustlaukana. Haustlaukatímanum getur lokið hvenær sem er vegna frosta og því eru blómaverslanir farnar að bjóða
lauka með verulegum afslætti. DV-mynd GVA
Sala á rauðu ginsengi, sem orðið fýrir tjóni vegna fréttaflutn-
Heilsuhúsiö h/f flutti inn frá Sví- ings af þessu máli. í bréfl frá for-
þjóð og seldi, hefur verið stöðvuð. svarsmanni Eðalvara til flölmiöla
Að sögn Guðrúnar Eyjólfsdóttur ertekiðframaöhiðsviknaginseng
hjá Lyfjaeftirliti ríkisins var það sé Eöalvörur alfarið óviðkomandi
gert vegna þess aö hylkin, sem sögð og þeirra ginseng, sem flutt er inn
voru 330 milligrömm, reyndust við frá Kóreu, muni áfram standa
mælingar aðeins vera 186 landsmönnum til boöa.
raillígrömm aö jafnaði. Auk þess Guðrún Eyjólfsdóttir staðfesti í
hafði verslunin ekki formlegt leyfi samtali viö DV að þetta væri rétt.
til sölu á umræddri vöru. Hollustu- Ginseng frá Eðalvörum heföi veriö
vemd ríkisins annaðist raæling- kannað um leið og það sem reynd-
arnar, ist svikið og heföi það staöist allar
Fyrirtækiö Eðalvörur, sem einn- mælingar. -Pá
ig flytur inn ginseng, telur sig hafa
Síldin er komin
-fersk síld á 70 krónur kílóið
Fersk og nýveidd síld af Aust-
flarðamiðum er farin að sjást í fisk-
búðum og kostar kílóið 70 krónur.
„Við höfum ekkert verið að flýta
okkur því reynslan hefur sýnt að það
er sáralítil sala í ferskri síld,“ sagöi
Bárður Steingrímsson, fisksali í
Grímsbæ, í samtali við DV. Bárður
byrjar að selja síld í dag og segir að
hér sé um úrvalshráefni að ræða.
Fréttir af síldveiði og síldarsöltun
fyrir austan land hafa vakið upp síld-
arhungur með þeim sem búa flarri
miðunum. Ný síld er góðgæti og
hægt að matreiða hana á ótal mis-
munandi vegu. Fleiri fisksalar eru
búnir að panta síld frá Homafirði og
verður hún væntanlega komin í flest-
ar helstu fiskbúðir eftir helgina.
-Pá
Afsláttarseðillinn umdeildi er ögn stærri en venjulegur 100 króna seðill.
Pantaðu pizzu
og
taktu liana hám
X
[SLANDS
Vafasamir
afsláttar-
mióar
„Við höfum varað mennina við
og beðið þá að hætta þessu. Hvað
verður gert frekar er ekki ljóst,“
sagði Bjöm Tryggvason, aðstoðar-
bankastjóri Seðlabankans, í sam-
tali við DV. Það sem bankinn er
að gagnrýna er dreifing afsláttar-
miða frá Eldsmiðjunni í Breiðholti
sem líkjast mjög 100 króna seðlum.
Seðlunum hefur verið dreift í hús
í Breiðholti og fæst 100 króna af-
sláttur á pitsum gegn framvísun
þeirra í Eldsmiðjunni.
„Það er eftir að dreifa nokkm
magni af seðlum,“ sagði Pétur
Bergmann, eigandi Eldsmiðjunnar,
í samtah við DV. Pétur taldi ekki
að um ólöglegt athæfi væri að ræða
og engin hætta ætti að vera á að
fólk tæki miðana í misgripum fyrir
100 króna seðla því aðeins væri
prentað öðmm megin á þá.
í 153. grein hegningarlaganna
segir að hver sá sem uppvís verður
að því að dreifa meðal manna hlut-
um sem líkjast peningum eða verð-
bréfum skuli sæta varðhaldi.
-Pá