Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.1989, Page 32
Kgntucky
Fried
Chicken
Hjallahrauni //, Hafnarfiröi
Kjúklingarsembragöerað.
Opið alla daga frá 11—22.
Veðrið á morgun:
Hvasst
og slydda
Á morgun veröur nokkuö hvöss
noröaustanátt norövestan til á
landinu en hægari á Suður- og
Austurlandi. Rigning verður á
Norður- og Austurlandi, slydda á
Vestfiörðum. Skúrir verða á Suð-
austurlandi en líklega þurrt suð-
vestanlands. Hitinn verður 3-8
stig.
NÝJA
SENDIBÍLASTÖÐIN
68-5000
GÓÐIR BÍLAR
ÁGÆTIR BÍLSTJÓRAR
3°
1. *
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu
þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt-
ist eða er notað í DV, greiðast 2.000 krónur.
Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 5.000
krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við
fréttaskotum allan sólarhringinn.
Ritstjórn - Auglysingar - Áskrift - Dreiting: Ssmi 27022
FÖSTUDAGUR 20. OKTÓBER 1989.
Akureyri:
Húsráðendur
slðkktu eldinn
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
„Húsráðendur brugðust hárrétt við
og voru svo til búnir að slökkva eld-
inn þegar við komum á vettvang,“
sagði Gísli Kr. Lórenzson, vara-
slökkvistjóri á Akureyri, um eld sem
kom upp í húsi við Byggðaveg í gær.
Eldurinn kom upp í eldhúsi en
húsmóðirin hafði brugðið sér aðeins
frá. Þegar hún varð eldsins vör réð-
ust hún og maður með henni að eld-
inum með asbestteppi og vatni og
gekk vel að ráða niðurlögum hans.
Skemmdir urðu því ekki miklar af
eldi en hins vegar talsverðar af sóti
um allt húsið. Eldsupptök eru ókunn.
Hrakfarir í Álaborg:
Tap fyrir
Dönum
Það ætlar ekki af íslensku skák-
sveitinni að ganga á átta landa
keppninni í Álaborg í Danmörku. í
gær tapaði sveitin fyrir Dönum, fékk
2 vinninga gegn 4. Jóhann tapaöi fyr-
ir Erhng Mortensen. Margeir, Helgi
og Jón L. gerðu jafntefli. Guðfríður
Lilja tapaöi en Hannes Hlífar gerði
jafntefli.
íslendingar eru í 5. sæti með 13,5
vinninga og biðskák. V-Þjóðverjar
eru efstir með 21,5 vinninga. Það er
ljóst að gengi íslensku sveitarinnar
er langt undir styrkleika en sveitin
var sú stigahæsta og sigurstrangleg-
astafyrirmótið. -SMJ
Loðnan gerir
ekki vart við
sig ennþá
Þrátt fyrir allmikla leit nokkurra
skipa hefur enn engin loðna fundist
á hinum hefðbundnu loðnumiðum.
Sjómenn segja að sjórinn á svæðinu
sé allt að 2 gráðum hlýrri en var í
fyrra á sama tíma. Margir vilja
kenna því um að loönan er enn jafn
dreifð og raun ber vitni.
„Ég þori ekki að leiða neinum lík-
um að því að hegðunarmunstur loðn-
unnar sé að breytast. Ætli ástandið
í sjónum sé orðið nógu vetrarlegt til
þess að hún þjappi sér, það mætti
segja mér það,“ sagði Jakob Jakobs-
son, forstjóri Hafrannsóknastofnun-
ar.
Jakob sagði að bæði rannsóknar-
skip stofnunarinnar, Ámi Friðriks-
son og Bjami Sæmundsson, myndu
fara í loðnurannsóknarleiðangur 1.
nóvember næstkomandi.
Meðal þeirra loðnuveiðiskipa, sem
verið hafa að leita undanfarið, er
Börkiu- NK. Sú leit er enn árangurs-
laus. -S.dór
íslendingar brjóta gegn félagsmálasáttmála Ewópu:
legar athu
Vinnuveitendasamband íslands
skýrir frá þvi í fréttabréfi sínu að
íslensk stjómvöld hafl fengið al-
varlegar athugasemdir frá sér-
fræðingum félagsmálasáttmála
Evrópu, sem ísland er aðili aö,
vegna brota á 5. grein félagsmála-
sáttmálans.
Þessi grein fjallar um að ekki
megi skerða frelsi verkafólks og
atvinnurekenda til að stofna íélog
eöa sambönd til að gæta hagsrauna
þess né heldur frelsi einstaklinga
til að neita að vera í verkalýðs-
félögum. Aðildarlönd félagsmála-
fyrir að þvinga fólk til
sáttmálans skuldbinda sig til þess
að landslög skerði ekki þetta frelsi.
Sérfræðingum félagsmálasátt-
málans er send skýrsla frá aðildar-
löndunum annað hvert ár og í sum-
ar fóm þeir yfir íslensku skýrsl-
una. Hér á landi á einstaklingur
ekki rétt á atvinnuleysisbótum
nema hann sé f verkalýðsfélagi.
Þetta er brot á 5. grein sáttmálans.
Segir í athugasemdum sérfræðing-
anna að með þessu sé einstakling-
urinn þvingaður til að vera í stétt-
arfélagi.
Þá era ákvæði f kjarasamningum
að vera í stéttarfélögum
hér á landi að félagar í sléttarfélög-
um skuli ganga fyrir með atvinnu.
Það er einnig brot á 5. greininni.
Og í kjarasamningum fólks, sem
starfar í iðnaði, verslun og þjón-
ustu, eru ákvæöi um að fyrirtækj-
um sé óheimilt að ráða fólk til
vinnu nema það sé í stéttarfélagi
sem fyrirtækið hefur samið við.
Enn er um brot að ræöa á 5. grein
félagsmálasáttmálans.
Loks er þess getið að ísland hafi
gerst brotlegt við 4. málsgrein 6.
greinar sáttmálans með því ákvæði
vinnulöggjafarinnar að einungis
fólki í stéttarfélögum sé heimilt aö
fara í verkfali.
Af framansögðu er ljóst að laga-
breytinga er þörf ef Island ætlar
að virða mannréttindaákvæði sátt-
málans. íslenska vmnulöggjöfm er
orðin meira en hálfrar aldar gömul
Og engin nefnd hefur veriö skipuö
enn til að endurskoöa hana. Jó-
hanna Sigurðardóttir félagsmála-
ráðherra sagði á þingi Verka-
mannasambandsins í síðustu viku
að ýmislegt þyrfti að athuga i
vinnulöggjöfmni en kvað þó ekki
fastaraðorði. -S.dór
Sumarhús eyðilagðist i eldsvoða við Vatnsendablett 173 i nótt. Húsið var alelda og hrunið að hluta til þegar
slökkviliðið í Reykjavík kom á staðinn á fimmta tímanum í morgun. Slökkvistarf tók um þrjá tíma.
Húsið heitir Brattholt og var mannlaust er eldur kviknaði. Byggingin var úr steinsteypu og timbri og samanstóð
af hæð og risi. Að undanförnu hefur verið unnið við endurbætur á Brattholti. -ÓTT/DV-mynd Brynjar Gauti
Búnaðarbanki:
Stefán að hætta
Stefán Hilmarsson, einn þriggja
aðalbankastjóra Búnaðarbanka, hef-
ur sagt starfi sínu lausu frá og með
áramótum eftir 28 ára setu sem
bankastjóri bankans. Stefán er 65 ára
og kominn á eftirlaun. Líklegt er tal-
ið að hann verði áfram í sérverkefn-
um fyrir bankann. Stefán var erlend-
is í morgun.
Bréf frá Stefáni var tekið fyrir á
bankaráðsfundi Búnaðarbankans í
morgun og uppsögn hans kynnt.
Samkvæmt heimildum DV í morgun
var talið útilokað að gengið yrði frá
ráðningu nýs bankastjóra í stað Stef-
áns í dag.
Fjórir aðstoðarbankastjórar eru í
Búnaðarbanka. Þeir eru Sólon Sig-
urðsson, Sveinn Jónsson, Kristinn
SiemsenogHannesPálsson. -JGH
Fálkaorðan:
100% hækkun
Kostnaður við fálkaorðuna, sem
tilheyrir embætti forseta íslands, fór
440.000 krónur fram úr fjárlögum á
árinu 1988 eins og kemur fram í
skýrslu yfirskoðunarmanna og Rík-
isendurskoðunar.
í fjárlögum ársins 1988 var ætlunin
að veita þessa sömu upphæð til orð-
unnar en heildarkostnaður hefur því
orðið nálægt 900.000 krónum. Kostn-
aður vegna orðunar hefur því farið
100% fram úr fjárlögum. Embætti
forsetans fór á heildina litið 21%
fram úr fjárlögum en heildarútgjöld
til þess árið 1988 vora 53,9 milljónir.
-SMJ
LOKI
Það mætti þá kannski orða
einn fugl fyrir mig?