Dagblaðið Vísir - DV - 27.10.1989, Side 1
Kjarvalsstaðir:
Þrjár sýningar
Arvid Pettersen er norskur myndlistarmaður sem sýnir á Kjarvalsstöðum.
Þrjár myndlistarsýningar verða
opnaðar á Kjarvalsstöðum um helg-
ina. Það eru sýningar norska mynd-
listarmannsins ^Vrvids Pettersen og
íslensku listamannanna Sveins
Bjömssonar og Kristínar Ingólfs-
dóttur.
Sýning Arvids Pettersen er í boði
Listasafns Reykjavíkur. Þessi sýning
er liður í samstarfi norrænna lista-
safna. Hún var fyrst sýnd í Gallerí
F15 í Noregi og síðan í Listasafninu
í Aarhus en á eftir Kjarvalsstöðum
verður hún sett upp í Listasafninu í
Malmö og Amos Andersonin lista-
safninu í Helsinki.
í tilefni sýningarinnar hefur veriö
gefin út vegleg bók um Pettersen með
30 litmyndum og ítarlegum texta um
listamanninn eftir Bos Nilsen og
nefnist hún Arvid Pettersen, lífs-
spekingur í postmodernískri mynd.
Arvid Pettersen hefur vakið sér-
staka athygli sem síexpressionískur
málari en sú stefna hefur verið ríkj-
andi i norrænu listalífi undanfarin
ár. Þótt málverk hans einkennist við
fyrstu sýn af tjáningu og huglægum
Kristín ísleifsdóttir sýnir vasa, skál-
ar og ílát sem unnin hafa verið í leir.
gildum eru þau uppfull af menning-
ar- og listsögulegum tilvísunum.
Hann málar sig í gegnum listasöguna
samtímis því sem hann ljær henni
Sveinn Björnsson fyrir framan eitt
myndverka sinna.
með verkum sínum nýja og persónu-
lega sýn.
Flestir gagnrýnendur, sem hafa
fjallað um list Arvids Pettersen, eru
sammála um að hann hafi kunnað
að samtvinna alþjóðlegt myndmál
nýja málverksins og norska mynd-
listarhefð. Sýning Arvids Petterson
er opin daglega frá kl. 11-18 fram til
3. desember.
Sveinn Bjömsson, sem sýnir vatns-
litamyndir, keramik og fleiri gerðir
myndverka á sýningu sinni, er kunn-
ur málari sem hefur sýnt margoft
heima og erlendis. Sýning hans er
opin til 12. nóvember. Þriðji aðilinn,
sem sýnir á Kjarvalsstöðum, er
Kristín ísleifsdóttir. Á sýningu Krist-
ínar eru um það bil áttatíu skálar,
vasar og ílát sem unnin hafa verið í
leir á síðastliðnum tveimur ámm.
Form verkanna em í flestum tilfell-
um tilvísun til hluta sem ekki hafa
verið notaöir í daglegu lífi. Sýningin
er opin alla daga frá kl. 11-18 og
stendur til 12. nóvember.
-HK
Korpúlfsstaðir,
Sýning Myndhöggvarafélagsins
Um nokkurra ára skeið hefur
Myndhöggvarafélagið haft starfsað-
stöðu á Korpúlfsstöðum og hafa fé-
lagsmenn smám saman skapað sér
aðstöðu sem tvímælalaust hefur ver-
ið höggmyndalistinni lyftistöng. Á
laugardaginn verður opnuð sýning á
verkum félagsmanna og verður sýn-
ingin opin þrjár næstu helgar á laug-
ardögum og sunnudögum kl. 13-18.
Myndhöggvarafélagið hélt síöast
sýningu að Korpúlfsstööum 1985 og
þar áður 1980 í sambandi við Listahá-
tíð. Félagsmenn, sem nú eru fimmtíu
og tveir, hafa í tilefni þessarar sýn-
ingar hreinsað stóra salinn af öllum
tækjum og vélum og málað hann upp
á nýtt.
list Gallerí:
Grafíkmyndir
Tryggvi Árnason myndlistarmað-
ur opnar grafíksýningu laugardag-
inn 28. október í sýningarsal sínum,
List Gcillerí, að Einarsnesi 34.
Á sýningunni verða 25 nýjar graf-
íkmyndir, bæði silkiþrykk og collo-
graphmyndir en þær eru gerðar með
nýrri tækni sem gerir listamenn
óháða sýrum sem hafa verið notaðar
við hefðbundnar ætingarmyndir.
Þær myndir eru oftast handmálaðar
og verða því eintökin alltaf ólik hvert
öðru.
Tryggvi hefur haldið nokkrar sýn-
ingar á -verkum sínum undanfarin
ár, meðal annars að Kjarvalsstöðum
1983 og 1985, Laxdalshúsi á Akur-
eyri, Kaupmannahöfn og Holstebro
1986, List gallerí 1987 og tekið þátt í
samsýningum.
Hann lauk námi frá Myndlista- og
handíðaskóla íslands 1983. Sýningin
er opin frá kl. 14-20 daglega til 12.
nóvember og er öllum heimill aö-
gangur.
Verkin á sýningu Myndhöggvarafélagsins að Korpúlfsstöðum eru bæði inn-
andyra og utan.
Bandalag ísienskra listamanna
efnir tíl þings fyrir listamenn í Við-
eyjarstofu laugardaginn 28. októb-
er. Þingið hefur yfirskriftína Lista-
maöurinn sem lærimeistari - Lista-
háskóli. Þingið hefst kl. 13.30 í kjöl-
far aðalfundar sem verður um
morguninn.
Dagskrá listamannaþingsins er
eftirfarandi: Forseti BÍL, Brynja
Benediktsdóttir, setur þíngið. Guð-
rún Agústsdóttir, aðstoðaimaöur
menntamálaráðherra, flytur
ávarp. Stutt erindi flytja: Ragnar
Amalds, Rithöfundasambandi ís-
lands, Edda Óskarsdóttir, Sam-
bandi íslenskra myndlistarmanna,
Halldór Haraldsson, Félagi ís-
lenskra tónlistarmanna, Erlingur
Gislason, Félagi íslenskra leikara,
Messíana Tómasdóttir, FÍL (leik-
myndateiknaradeild), Baldur
Hrafnkell Jónsson, Félagi kvik-
myndagerðarmanna, María Kristj-
ánsdóttir, Félagi leikstjóri á ís-
landí, Hjálmar H. Ragnarsson,
Tónskáldafélagi íslands, Nanna
Ólafsdóttir, Félagi íslenskra list-
dansara, Njörður P. Njarðvík, RSÍ,
Stefán Benediktsson, Arkitektafé-
lagi Islands.
Að erindunum loknum verða
ftjálsar umræður og sitja fram-
sögumenn fyrir svörum. Umræð-
um stjórna Einar Kárason og Sigr-
ún Valbergsdóttir. í lok þingsins
mun Þorsteinn Gunnarsson, leik-
ari og arkitekt, sýna þinggestura
husakynnin. Ferja fyrir þinggesti
verður frá Sundahöfn kl. 13.
Santa Borðeyri og
Lonlí blú bojs
Danshöllin, þar sem áður var
Þórscafé, heldur uppi mikilli
skemmtun um helgar. Fjórar
Mjómsveitir leika í sölum Dans-
hallarinnar. Ber þar fyrst að nefha
De Lónlí blú bojs sem allir lands-
menn kannast við og eru koranir
fram á sjónarsviðið aftur. í þeirri
hfjómsveit eru sem fyrr Björgvin
Halldórsson, Gunnar Þórðarson,
Engilbert Jensen og Rúnar Júlíus-
son, tónhstarmenn sem hafa staðið
i fremstu línu poppara um tveggja
áratuga skeið og vel það.
Aðrar hljómsveitir eru Rokksveit
Rúnars Júliussonar, Sveitín milli
sanda og Rokkbandið. Meðal
skemmtiatriða er sýning á nýjasta
tískudansinum, Lambada, Happa-
hjólið, sem inniheldur glæsilega
vinninga, og svo rúsínan í pylsu-
endanum, sápuóperan Santa Borð-
eyri sem Sameinaöi grínfiokkurinn
sýnir. í þeim flokki eru hinir
kunnu leikarar Julíus Brjánsson,
Bessi Bjamason, Saga Jónsdóttir
og Kjartan Bjargmundsson.
Næstu sýningar á Santa Borðeyri
eru í kvöld og laugardagskvöld. Er
húsið opnaö kl. 19 fyrir matargesti
og aðra.
Nýr skemmtistaóur:
Kjallari keisarans
I kvöld verður formlega opnaður
hinn nýi Kjallari keisarans við
Laugaveg 116 en staöurinn hefur
tekið gagngerum breytingum eftir
að nýir eigendur tóku við honum
en hann hét áður Abracadabra.
Ætlunin er að á næstunni verði
boðiö upp á fjölbreytta dagskrá,
auk þess sem það besta í lifandi
tónlist hverju sinni verður kynnt.
Þá mun úrval framsækinna
plötusnúða sjá um að tónlistin á
fóninum verði til fyrirmyndar og
er fyrirhugað að á föstudagskvöld-
um verði þaö nýjasta í breskri og
bandarískri danstónlsit leikið en á
laugardögum verði höfðaö til breið-
ari smekks og suður-amerískri
salsatónlist, soul og djassfunki
blandað danstónhst hinna ýmsu
þjóða.
í kvöld er opnunarboð til mið-
nættis sém eingöngu er ætlað boðs-
gestum en á miðnættí verður staö-
urinn opnaður alraenningi og verð-
ur mikið um dýrðir. Strax fiytur
nýtt efni ásamt Prinsessunni á
bauninm og Þorsteinn Högni kynn-
ir beattónlist frá austantjaldslönd-
unum, auk annarra atriða.
Á næstunni munu ýmsar hljóm-
sveitir koma fram í Kjallara keisar-
ans. Meðal annars verða nýjar út-
gáfur Smekkleysu kynntar, auk
þess sem lifandi djass og blústóniist
verður virka daga og á sunnudags-
kvöldum.
JC-Akureyri: -
„Búum bömum
betri framtíð/y
er umræðuefhið á JC-degi á Akureyri
Gylfi KiwjárBsœi, DV, Akureyri;
JC-dagurinn á Islandi verður hald-
inn 28. október og mun JC-Akur-
eyri þá efna til borgarafundar í
Borgarbíói kl. 14 þar sem umræðu-
efnið verður „Búum börnum betri
framtíö“.
Traustí Þorsteinsson, fræðslu-
stjóri á Noröurlandí eystra, gerir
grein fyrir stööu skólamála í um-
dæminu, Ólafúr Oddsson héraðs-
læknir ræðir um ungt fólk, áfengi
og ábyrgð foreldra. Stefntær að því
að fá unghng úr framhaldsskóla til
að ræða það hvernig er að alast upp
á Akureyri. Sólrún Jensdóttir,
skrifstofustjóri menntamálaráðu-
neytisins, gerir grein fyrir stefnu
ráðuneytisins í málum bama og
unghnga og Jón Bjömsson félags-
málastjóri flytur ávarp.
Akureyrarbæ hefur verið boðið
að senda fulltrúa á fundinnog ræða
stefnu bæjarins í málefnum bama
og unglinga, reiknað er með þátt-
töku þingmanna í fundinum, en
honum mun ljúka með pallborðs-
umræðum.