Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.1989, Blaðsíða 1
Sjónvarp á annan dag jóla:
Enginn venjulegur drengur
Villi (Ari Klængur Jónsson) með
fótboltaskóna sem hann fær 'í af-
mælisgjöf.
Sjónvarpsmynd Ara Kristins-
sonar, Enginn venjulegur drengur,
er gerð eftir handriti Iðunnar
Steinsdóttur um lítinn dreng sem á
afmæli. Kvikmynd þessi er framlag
íslands til norræns verkefnis.
Aöalpersónan, Villi, á afmæli.
Hann flýtir sér heim úr skólanuin
til að skoða gjafimar. Mamma
hans, sem kallar hann dúkkustrák-
inn sinn, gefur honum bleika peysu
en pabbi, sem er með fótboltadellu,
vill að Villi verði bestur í fótbolta
eins og hann var þegar hann var
lítill og gefur honum fótboltaskó.
Villi vill bara fá að lesa í friði og
er alls ekki ánægður með afmælis-
gjafimar. Pabbi leggur hart að
Villa að spila fótbolta. Að lokum
tekur Villi til sinna ráða og skiptir
um hlutverk við gínustrák í
íþróttabúð....
Það er átta ára drengur, Ari
Klængur Jónsson, sem leikur aðal-
hlutverkið, Villa. Föður hans leik-
ur Valdimar Öm Flygenring og
móðir hans er leikin af Eddu Heiðr-
únu Backman.
Sjónvarp annan dag jola:
Umhverfis jörð-
ina 80 ára
Umhverfis jörðina 80 ára er heim- áheyrendum.
ildarmynd um kaþólska prestinn,
mannvininn og barnabókahöfund-
inn, Jón Sveinsson, Nonna, er uppi
var frá 1857 til 1944.
Ferill sveitadrengsins að norðan,
er hófst til vegs í fjarlægum löndum,
var ævintýri líkastur.
Leið Pater Jóns Sveinssonar lá viða
um heim. Hann var víðlesinn og vel
menntaður, gæddur einstakri tungu-
málagáfu og einkum þó frásagnar-
gáfu. Honum var það lagið að hrífa
áheyrendur sína með sér, sama til
hverrar þjóðar þeir töldust, og veita
þeim innsýn í þann furðuheim er
kjör sveitafólks uppi við norður:
heimskautsbaug vom evrópskum
Stöð 2 annan í jólum:
Oliver
Flestum er í fersku minni söngleik-
urinn Oliver sem sýndur var í Þjóð-
leikhúsinu í haust við mikla aðsókn.
Söngleikurinn var kvikmyndaður
1968 og var það hinn virti breski leik-
stjóri, Carol Reed, sem leikstýrði
myndinni.
Kvikmyndun söngleiksins þótti
takast geysivel og fékk myndin sex
óskarsverðlaun. Þar á meðal verð-
laun sem besta kvikmyndin og Carol
Reed fékk óskarinn sem besti leik-
stjórinn.
Oliver var leikin af ungum dreng,
Mark Lester, sem hélt áfram leik-
ferli í nokkrum myndum en hefur
nú horfið af sjónarsviðinu. Aðrir
leikarar eru Ron Moody, sem leikur
Fagin, Oliver Reed, Shani Wallis,
Jack Wild og Hugh Griffith.
Óhætt er að mæla með Oliver fyrir
Jón Sveinsson er enn í dag meðal
þeirra höfunda íslenskra sem hvað
þekktastir eru á erlendri grund og
bækur hans hafa komiö út á fjölda
tungumála.
í myndinni Umhverfis jörðina 80
ára eru rakin hin ýmsu æviskeið rit-
höfundarins og klerksins, myndum
brugðið upp af umhverfi hans og
tíma og rætt við nokkra menn er
þekktu Jón og umgengust hann.
Meðal annars er rætt við kaþólsku
klerkana Michel Kobik og Pater Josh
Samuelsson, spjallað við Halldór
Laxness og Victor Diesh er var fylgd-
armaður Jóns Sveinssonar á ferða-
lagi hans til íslands alþingisárið 1930.
Mark Lester heitir drengurinn er
leikur Oliver. Hann er hér fyrir fram-
an Olicer Reed er leikur Bill Sykes.
Til hliðar við þá er Ron Moody sem
leikur Fagin.
alla fjölskylduna, söguþráðinn
þekkja allir, enda er myndin gerö
eftir einni þekktustu skáldsögu
heimsbókmenntanna, Oliver Twist
eftir Charles Dickens, og lögin, sem
eru eftir Lionel Bart, eru sérlega vel
heppnuð. Ohver er á dagskrá kl.
14.10.
Stoð 2 a jóladag:
Gandhi
A joladagskvöld sýnir Stöð 2 hina
margverðlaunuðu kvikmynd Ric-
hards Attenborough, Gandhi, sem
vann til átta óskarsverölauna 1983.
Þar á meðal voru öll helstu verðlaun-
in, svo sem besta kvikmynd, besti
leikari í aðalhlutverki, besti leik-
stjóri og besta handrit.
Gandhi' segir frá ævi merkis-
mannsins Mahatma Gandhi allt frá
því hann var ungur lögfræðingur í
Suður-Afríku og til þess er hann var
myrtur, háaldraður dýrlingur í
heimalandi sínu, Indlandi.
Aðalhlutverkið leikur Ben Kings-
ley og gerir hann það með slíkum
ágætum að leikur hans líður áhorf-
endum sjálfsagt seint úr minni.
Margir aðrir stórleikarar koma við
sögu og má nefna Candice Bergen,
Edward Fox, John Gielgud, Trevor
Howard, John Mills, Martin Sheen,
Ian Charlesson og Geraldine James.
Gandhi er rúmlega þriggja tíma löng
kvikmynd og hefst sýning hennar kl.
21.40.
Geymið dagskrárkálfinn
í laugardagsblaöinu, sem er síö-
asta blað fyrir jól, verða aðeins
birtar dagskrár útvarps og sjón-
varps fyrir laugardag og sunnudag
(aöfangadag jóla). Dagskrámar
fyrir jóladag og annan dag jóla
verða því ekki endurbirtar. Les-
endur DV ættu að hafa það hugfast
og taka dagskrárkálfinn út úr blað-
inu og geyma hann.
Það er Kertasnikir sem kemur í heimsókn í Jólastundina.
Sjónvarp á jóladag:
Jólastundin okkar
Mikið verður um dýrðir í Jóla-
stundinni okkar sem er á dagskrá á
jóladag kl. 18.00. Gesti og gangandi
drífur víða að og „fastagestir" leggja
sig alla fram um að skapa jóla-
stemmningu.
í póstkassanum veröur jólapóstur-
inn lesinn en síðan verður sýndur
lítill söngleikur eftir Helgu Steffens-
en og Óskar Ingimarsson er nefnist
Jólahreingerningin. Þá fáum við að
sjá Jólaguðspjallið fagurlega mynd-
skreytt, flutt af Bjama Karlssyni
guðfræðinema og tíu krökkum sem
einnig syngja fyrir okkur.
Ljónið, Kúsur og Lilli halda mál-
ræktarmerkinu á lofti í þættinum
Málið okkar en síðan kemur Kerta-
sníkir og tekur lagið eins og honum
einum er lagið. Þá syngur Bjöllu-
hljómsveitin frá Hellissandi. Jól í
fjósinu er jólaleikrit sem sýnt verð-
ur, ungir dansarar sýna dans og tveir
furðufuglar hittast. Að lokum verður
svo dansað kringum jóltréð með þátt-
töku bama og jólasveinsins auk
umsjónarmanna og „heimilisfólks"
Stundarinnar.
Tónlist á rás 1 á jólum:
íslenskum tónlistannönnmn
gert hátt undir höfði
íslenskum tónlistarmönnum verð-
ur gert hátt undir höfði í tónlistar-
dagskrá rásar 1 um jólin. Ríkisút-
varpið ætlar sér að notfæra sér sér-
stöðu sína meðal útvarpsstöðva og
sækja efnivið 1 hljóðbanda- og hljóm-
plötusafn sitt sem er gullvæg náma
margs þess besta sem íslenskir tón-
listarmenn hafa gert.
Á aðfangadag klukkan 17.00 syngur
Hamrahlíðarkórinn jólalög frá ýms-
um löndum undir stjóm Þorgerðar
Ingólfsdóttur. Klukkan 19 verða
heföbundnir jólatónleikar útvarps-
ins. Þar koma fram Elísabet F. Ef
ríksdóttir, sópran, Jón Stefánsson
organisti og kvintett með Sigurð I.
Snorrason í fararbroddi. Leikur
kvintettinn klarinettukvintett Moz-
arts í A-dúr. Klukkan 22.20 verður
fluttur jólaþátturinn úr óratoríunni
Messíasi eftir Hándel með Pólýfón-
kómum, einsöngvurum og Sinfóniu-
hljómsveit íslands undir stjóm Ing-
ólfs Guðbrandssonar. Á jólanótt um
kl. hálfeitt leikur Musica Antiqua
hópurinn barokktónlist.
Á .jóladagsmorgun kl. 8.30 syngja
Hljómeyki, Dómkórinn, Skólakór
Garðabæjar og Pólyfónkórinn hátíð-
lega jólatónlist og Ragnar Björnsson
leikur íslensk orgelverk á orgel
Kristskirkju. Sinfóniuhljómsveit ís-
lands leikur kl. 15.20 atriði úr Hnotu-
brjótnum eftir Tjækovskí og er Bene-
dikt Árnason sögumaður. Haukur
Guðlaugsson leikur kl. 16.20 á orgel
Kristskirkju tilbrigði eftir Sigurð
Þórðarson um íslenska sálmalagið
Greinir Jesú um græna tréð.
kl. 17.30 leikur Einar Jóhannesson
einleik með Sinfóníuhljómsveit ís-
lands í klarinettukonsert Mozarts,
og Gísli Magnússon leikur píanósón-
ötu eftir Beethoven. Sinfóníuhljóm-
sveitin er aftur á dagskrá kl. 20 og
leikur þá hljómsveitin barokkkon-
serta með einleikurum úr röðum
hljómsveitarmanna. Kl. 22 leika svo
íslenska hljómsveitin og Kammer-
sveit Reykjavíkur verk eftir Vaug-
han Williams og Jón Nordal. Tónlist-
ardagskrá á jóladag með íslenskum
flytjendum lýkur með því að leikin
Á þessari mynd má sjá starfsmenn
tónlistardeildar Rikisútvarpsins.
verður hljóðritun frá tónleikum Kórs
Langholtskirkju, einsöngvara og
Sinfóníuhljómsveitar íslands nú á
aðventu þar sem flutt var Sköpunin
eftir Haydn. Þessi dagskrárliður
hefst kl 22.50 og stendur til kl. eitt
eftir miðnætti.