Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.1989, Blaðsíða 5
FIMMTUDAGUR 21. DESEMBER 1989.
25
Mánudagiir 25. desember
SJÓNVARPIÐ
9.30 Friöartónleikarfrá Berlín. Bein
útsending. Tónleikarnir verða i
Schauspielhaus í Austur-Berlín
og sjónvarpað beint um viða
veröld. Leonard Bernstein stjórn-
ar hljómsveit og kór sem verður
skipuð tónlistarmönnum frá báð-
um þýsku ríkjunum og þeim
þjóðum er hernámu Berlin í
stríðslok. Á dagskrá verður
níunda sinfónía Beethovens.
Sinfóniuhljómsveit útvarpsins í
Bæjaralandi leikur, en við hana
bætast hljóðfæraleikarar úr Fíl-
harmóníu New York- borgar,
Sinfóníuhljómsveit Lundúna,
Parísarhljómsveitinni, Borgar-
hljómsveitin í Dresden og Sinfó-
níuhljómsveit Leníngradborgar.
Söngfólk er úr kór útvarpsins I
Bæjaralandi og kórum í Dresden,
alls 125 manns. Einsöngvarar:
June Anderson, sópran, Wal-
traud Maier, alt, Klaus König,
tenór, og Jan Hendrik Rootering,
bassi. (Þessi dagskrárliður er
með fyrirvara um að tenging við
gervihnött verði möguleg.)
10.50 Hlé.
13.30 Hamlet. Uppfærsla breska sjón-
varpsins (BBC) á leikriti Shake-
speares, einu frægasta verki
heimsbókmenntanna. Leikstjóri
Rodney Bennett. Aðalhlutverk:.
Hamlet - Derek Jacobi. Geir-
þrúður - Claire Bloom. Póloníus
- Eric Porter. Kládius - Patrick
Stewart. Vofa föður Hamlets -
Patrick Allen. Ófelia - Lalla Ward.
Hóras- Roþert Swann. Þýðandi
Dóra Hafsteinsdóttir.
17.05 Blóð og blek. Heimildarmynd
Sjónvarpsins um Gunnar Gunn-
arsson skáld, gerð í tilefni af þvi
að á þessu ári eru 100 ár liðin
frá fæðingu skáldsins. Handrit
og umsjón Matthias Viðar Sæ-
mundsson. Dagskrárgerð Jón
Egill Bergþórsson. Áðursýnd 17.
júni 1989.
18.00 Jólastundin okkar. Þar kennir
margra grasa. Krakkarnir dansa í
kringum jólatréð og það verður
einnig dansað í kringum hann
Laufa. Sérstakur jólabragur verð-
ur yfir brúðunum hennar Helgu.
Umsjón Helga Steffensen. Fram-
hald.
18.55 Hnotubrjóturinn. Einn hinn vin-
sælasti allra sigildra balletta,
gerður eftir ævintýri E.T.A. Hoff-
mann. Tónlist eftir Tsjajkovski.
Stjórnandi Heinz Liesendahl.
Tónlistarstjórn Franz Allers.
Kóreógrafia Kurt Jacob. Dansar-
ar m.a.: Melissa Hayden, Patricia
McBride, Helga Heinrich, Mar-
got Werner, Edward Villella og
Nils Kehlet. Þýðandi Óskar Ingi-
marsson.
19.55 Táknmálsfréttir.
20.00 Fréttir og veöur.
20.20 Anna. 1. þáttur af sex. Þýskur
myndaflokkur gerður af þýska,
austurriska, svissneska og
spænska sjónvarpinu. Leikstjóri
Frank Strecker. Höfundur Justus
Pfaue. Aðalhlutverk Silvia Seid-
el, Patrick Bach, Joao Ramos,
Eberhard Feik og llse Neubauer.
Saga af ungu stúlkunni Önnu
sem dreymir um að verða ballett-
dansmær en slasast alvarlega í
bílslysi og verður að berjast við
nær óyfirstiganlega innri og ytri
erfiðleika á leið sinni til heilbrígð-
is og frama. Þýðandi Kristrún
Þórðardóttir.
21.15 Þorlákur helgl. Þorlákur biskup
Þórhallsson er eini Islendingur-
inn sem opinberlega hefur verið
gerður að dýrlingi. í þessum
heimildarþætti er sagt frá lífi hans
og áhrifum. Umsjón Ólafur H.
Torfason.
22.10 Siöasti keisarinn (The Last
Emperor). Hin margverðlaunaða
stórmynd frá árinu 1987, gerð
af itölskum, breskum og kin-
verskum kvikmyndagerðar-
mönnum. Höfundur og leikstjóri
Bernardo Bertolucci. Aðalhlut-
verk John Lane, Joan Chew,
Victor Wong, Peter O'Toole,
Jing Ruocheng og Dennis Dun.
Rakin er saga siðasta keisara
Kina, Pú.Ji, Hann var tekinn frá
heimili sinu aðeins þriggja ára
og gerður að keisara. Fylgst er
með sérstasðri ævi hans eins og
hún kom breskum kennara hans
fyrir sjónir. Myndin hlaut 9
óskarsverðlaun, auk fjölda ann-
arra viðurkenninga. Þýðandi Páll
Heiðar Jónsson.
0.50 Dagskrárlok.
12.30 1001 kaninunótt. Kalli kanína og
vinur hans taka þátt i keppni sem
felur það i sér að keppast um
hver geti selt sem flestar bækur
fyrir ákveðið útgáfufyrirtæki.
13.40 Opera mánaóarins: Don Gio-
vanni. Don Giovanni segir frá
samnefndu kvennagulli sem leik-
ur ástkonur sinar grátt. Flytjend-
ur: Ruggero Raimondi, John
Macurdy, Edda Moser, Kiri Te
Kanawa, Kenneth Riegel, Jose
van Dam, Teresa Berganza og
Malcolm King ásamt hljómsveit
og kór óperunnar I París. Stjórn-
andi: Lorin Maazel.
16.45 Kraftaverklö i 34. strætl. Miracle
on 34th Street. Sannkölluð jóla-
mynd i gamansömum dúr. Aðal-
hlutverk: Maureen O'Hara, John
Payne, Edmund Gwenn, Gene
Lockhart og Natalie Wood.
18.20 Mahabharata I árdaga. Hinmikla
saga mannkyns eða Mahab-
harata eins og það heitir á sans-
krít er stærsta bókmenntaverk
sem til er í heiminum. Fyrsti þátt-
ur af sex. Leikstjóri: Peter Brook.
19.19 19:19. Hátiðarfréttir.
19.45 Jólalandsleikur - Bæirnir bitast.
Þessi þáttur er sérstaklega helg-
aður jólunum. Margt verður til
gamans gert. Umsjón: Ómar
Ragnarsson.
20.45 Áfangar. Skálholt Skálholt er án
efa einn merkasti sögustaður
landsins næst á eftir Þingvöllum
og saga Skálholts er samofin ís-
lenskri kirkjusögu. Umsjón:
Björn G. Björnsson.
21.00 Aldarminning. Þórbergur Þórö-
arson. Hann var án efa einn sér-
kennilegasti og áhrifamesti rit-
höfundur þessarar aldar. I þess-
um þætti verður fjallað um fram-
lag baráttuskáldsins með barns-
hjartað fil islenskra bókmennta
fyrr og nú. Umsjón: Jón Óttar
Ragnarsson.
21.40 Gandhi. Myndin greinir frá við-
burðariku lifi og starfi Mahatmas
K. Gandhi sem hóf sig upp úr
óbreyttu lögfræðingsstarfi og
varð þjóðarleiðtogi og boðberi
friðar og sátta um heim allan.
Aðalhlutverk: Ben Kingsley,
Candice Bergen, Edward Fox,
John Mills, John Gielgud, Tre-
vor Howard og Martin Sheen.
Leikstjóri: Richard Attenboro-
ugh.
0.40 Fjör á framabraut The Secret of
My Success. Michael J. Fox leik-
ur hér ungan framagosa sem
kemur til New York til að slá í
gegn í viðskiptaheiminum. Aðal-
hlutverk: Michael J. Fox, Helen
Slater, Richard Jordan, Margaret
Whitton og Christopher Murney.
2.30 Dagskrárlok.
8.00 Klukknahringlng. Litla lúðra-
sveitin leikur jólalög.
8.15 Veöurfregnir.
8.20 Morgunstjarnan. Islensk tónlist.
10.00 Fréttir.
10.10 Veðurfregnir.
10.25 Jólin mín. Sigrún Björnsdóttir
ræðir við Guðmundu Eliasdóttur
söngkonu. (Einnig útvarpað á
miðvikudagskvöld kl. 21.00.)
11.00 Messa í Arbæjarkirkju. Prest-
ur: séra Guðmundur Þorsteins-
son.
12.10 Litið yfir dagskrá jóladags.
12.20 Hádegisfréttir.
12.45 Veöurfregnir.
12.48 Helg eru jól. Jólalög i útsetn-
ingu Arna Björnssonar. Sinfón-
iuhljómsveit Islands leikur; Páll
P. Pálsson stjórnar.
13.00 Jólafundur fjölskyldunnar.
Jólasamkoma i Útvarpshúsinu
sem allar deildir þess standa að.
Meðal efnis: • Guðrún Steph-
ensen les kafla úr Fjallkirkjunni
eftir Gunnar Gunnarsson. • Ár-
mann Kr. Einarsson rifjar upp
jólaminningar. • Þegar húsál-
farnir fóru í frí, leikrit eftir Karl
Erik Johansen Þýðandi: Hulda
Valtýsdóttir. Leikstjóri: Helgi
Skúlason. (Frumflutt útvarpi i
desember 1962.) • Skólakór
Garðabæjar syngur jólalög undir
stjórn Guðfinnu Dóru Ólafsdótt-
ur og básúnukvartett, skipaður
Oddi Björnssyni, Edvard Frede-
riksen, Sigurði Þorbergssyni og
Össuri Geirssyni leikur,- Kynnir:
Sigurlaug M. Jónasdóttir.
14.30 Eitt sinn liföi ég guöanna sæld.
Dagskrá um þýska skáldið Fried-
rich Hölderlin. Kristján Árnason
tók saman. Lesari: Hákon Leifs-
son. Helgi Hálfdanarson flytur
óprentaðar Ijóðaþýðingar sínar.
15.20 Þættir úr Hnotubrjótnum eftir
Pjotr Tsjækovski. Sinfóníu-
hljómsveit Islands leikur; Petri
Sakari stjórnar. Sögumaður
Benedikt Árnason.
16.15 Veöurfregnir.
16.20 Tilbrigði fyrir orgel eftir Sigurö
Þórðarson um íslenska
sálmalagið Greinir Jesú um
græna tréð. Haukur Guðlaugs-
son leikur á orgel Kristskirkju í
Landakoti.
16.30 Dagskrárstjóri I klukkustund.
Biskup íslands, herra Ólafur
Skúlason.
17.30 Klarinettukonsert i A-dúr K622
eftir Wolfgang Amadeus Moz-
art. Einar Jóhannesson leikur
með Sinfóniuhljómsveit islands;
Jean-Pierre Jacquillat stjórnar.
18.00 Fifukveikur, smásaga eftir Guð-
mund Friðjónsson. Þorsteinn Ö.
Stephensen les. (Úrsegulbanda-
safni Útvarpsins.)
18.25 Sónata nr. 31. i As-dúr op. 110
eftir Ludwig van Beethoven.
Gisii Magnússon leikur á pianó.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvölds-
ins.
19.00 Kvöldfréttir.
19.20 Nóttin helga, jólaóratoria eftir
Hilding Rosenberg við Ijóð
Hjalmars Gullbergs. Sigurbjörn
Einarsson les þýðingu sina á
Ijóðaflokknum á undan.
20.00 Islenskir einleikarar.
21.00 Á jólunum er gleði og gaman.
Umsjón: Arndis Þorvaldsdóttir.
(Frá Egilsstöðum) (Einnig út-
varpað kl. 15.03 miðvikudag.)
22.00 Fréttir. Orð kvöldsins. Dagskrá
morgundagsins.
22.15 Veðurfregnir.
22.20 Kammersveit Reykjavíkur og
íslenska hljómsveitin.
23.00 Jólaguóspjöllin. Illugi Jökuls-
son sér um þáttinn.
24.00 Fréttir.
0.10 Jólastund i dúr og moll með
Knúti R. Magnússyni.
1.00 Veðurfregnir.
1.10 Næturútvarp á báöum rásum
til morguns.
9.00 Guljól.Jóladagsmorgunníaug-
um barns. Umsjón: Þorgeir Ól-
afsson.
11.00 Með sænskum lúsium. Jakob
S. Jónsson segir frá sænskum
jólum og leikur sænsk jólalög.
12.20 Hádegisfréttir.
12.45 Jólablanda Sverris Páls Erlends-
sonar. (Frá Akureyri)
14.00 Jólabókin. Starfsmenn Dægur-
málaútvarps blaða i jólabókun-
um og ræða við höfunda þeirra.
17.00 í jólaboðinu með Áslaugu Dóru
Eyjólfsdóttursem leikur jólalög.
19.00 Kvöldfréttir.
19.20 Sjómannajól. Gyða Dröfn
Tryggvadóttir ræðir við unga og
aldna sjómenn um jólin heima
og heiman. Fyrri þáttur.
20.20 Útvarp unga fólksins. Sagt
verður frá framandi jólahaldi,
leikin jólalög og lesin jólasaga.
Umsjón: Sigriður Arnardóttir.
22.07 Hvitar nótur. Jóladjass i umsjón
Péturs Grétarssonar. (Úrvali út-
varpað aðfaranótt laugardags að
loknum fréttum kl. 5.00.)
0.10 í háttinn.
1.00 Næturútvarp á báðum rásum
til morguns. Fréttir kl. 10.00,
12.20, 16.00, 19.00, 22.00 og
24.00.
NÆTURÚTVARP
1.00 Heims um ból. Rikharður Örn
Pálsson leikur jólalög frá ýmsum
tímum og ýmsum stöðum. (End-
urtekinn þáttur frá aðfangadags-
kvöldi.)
2.00 Fréttir.
2.05 Jólatónlist.
3.00 Sjómannajól. Gyða Dröfn
Tryggvadóttir ræðir við unga og
aldna sjómenn um jólin heima
og heiman. Fyrri þáttur. (Endur-
tekinn frá liðnu köldi.)
4.00 Fréttir.
4.05 Jólatónlist.
4.30 Veðurfregnir.
4.40 Jólatónlist.
5.00 Fréttir af veðri, færð og flug-
samgöngum.
5.01 Jólatónlist.
6.00 Fréttir af veðri, færð og flug-
samgöngum.
6.01 Áfram íslensk jól. Islenskir tón-
listarmenn flytja jólalög.
10.00 Jólalög og hátiðarblær yfir borg
og bý. Freymóður T. Sigurðsson.
14.00 Harry og Heimir. Leikritið Með
öðrum morðum endurflutt á
Bylgjunni. Sakamálaleikrit í létt-
ari kantinum. Vegna fjölda áskor-
ana hefur verið ákveðið að leyfa
hlustendum að vera með og
leysa spennandi gátur.
14.30 Jóla- og hátiðardagskrá.
15.00 Ómar Valdimarsson og 68 kyn-
slóðin. Tekið á móti gestum í
hljóðstofu í anda jólanna. Góðir
gestir og áhugavert spjall.
18.00 Jólahátiðardagskrá Bylgjunnar.
Tónlist i fallegri kantinum. Gleði-
leg jól.
8.00 Gleðileg jól. Ókynnt hátiðartón-
list á Stjörnunni. Jólakveðjur
þekktra íslendinga.
20.00 Darri Ólason. Allt i rólegheitum
á Stjörnunni. Darri leikur óska-
lögin þín og athugar hvað fólk
fékk i jólagjöf.
1.00 Gleðileg jól. Ókynnt hátíðartón-
list á Stjörnunni. Jólakveðjur
þekktra islendinga.
7.00 Arnar Bjamason. Morgunhaninn
á F.M. býður fyrirtækjum upp á
brauð og kökur með kaffinu.
10.00 ívar Guðmundsson. Nýtt og
gamalt efni í bland við fróðleiks-
mola.
13.00 Jóhann Jóhannsson. Gæðapopp
og óskalög ráða rikjum.
16.00 Sigurður Ragnarsson. Hress,
kátur og birtir upp skammdegið.
19.00 Gunný Mekkinoson. Frumleg-
heitin ráðandi.
22.00 Ragnar Már. „Eru menn ófúsir
til að taka undir?"
1.00 Lifandi næturvakt.
FM^909
AÐALSTÖÐIN
7.00 Jóladagsmorgunn. Róleg og
• þægileg tónlist.
12.00 Hátiðardagskrá Aðalstöðvarinn-
ar. Endurtekinn þáttur frá að-
fangadagskvöldi. Hátíðartónlist,
fróðleikur um jólahaldið og rætt
við fólk um jólahald við óvenju-
legar aðstæður. Umsjónarmaður;
Asgeir Tómasson,
18.00 Töfrar á jólakvöldi. Létt klassisk
tónlist sem heldur okkur i jóla-
skapi.
24.00 Næturdagskrá Aðalstöðvarinnar.
5.30 Viðskiptaþáttur.
6.00 The DJ Kat Show. Barnaþáttur.
8.30 Panel Pot Pourri.Spurninga-
þáttur.
10.00 The Sullívans. Framhaldsþáttur.
10.30 Sky by Day. Fréttaþáttur.
11.30 A Problem Shared. Fræðslu-
þáttur.
12.00 Another World. Framhalds-
flokkur.
12.55 General Hospital. Framhalds-
flokkur.
13.50 As the Worlds Turns. Sápuóp-
era.
14.45 Loving.
15.15 Young Doctors. Framhalds-
flokkur.
16.00 Poppþáttur.
17.00 Sky Star Search. Hæfileika-
keppni.
18.00 The New Price is Right-Spurn-
ingaleikur.
18.30 Sale of the Century. Spurn-
ingaleikur.
19.00 Alf. Gamanmyndaflokkur.
20.00 HamboneandHillie.Kvikmynd.
22.00 Hollywood’s Private Home
Movie.
23.00 Fréttir.
23.30 Popptónlist.
6.00 Transformers -The Movie.
8.00 Spacecamp.
10.00 It’s a Wonderful Life.
12.25 Labyrinth.
14.00 Star Wars.
16.00 The Boy who Could Fly.
18.00 Three Men and a Baby.
20.00 The Color of Money.
22.00 Predator.
23.45 Aliens.
02.00 Angel Heart.
04.00 The Cotton Club.
EUROSPORT
★ • ,★
9.00 Fimleikar. Helstu atriði heims-
meistarakeppninnar í Stuttgart.
10.00 Siglingar. Heimsmeistara-
keppnin.
11.00 Körfubolti. Harlem Globetrott-
ers.
12.00 Frjálsar iþróttir. Bestu frjáls-
• iþróttakonur ársins.
13.00 Listhlaup á skautum.
15.00 Krikket. Vestur-lndíur-Pakistan.
15.00 16 Days of Glory. Fyrri hluti
kvikmyndar um vetrarólympiu-
leikana i Calgary.
17.00 Goal. Heimsmeistarakeppnin I
fótbolta 1966.
19.00 Íshokkí. Leikuri NHL-deildinni.
21.00 International Motor Sports.
Fréttatengdur þáttur um kappakstur.
22.00 Conquer the Arctic.
23.00 Surfing Special.
scRCcmspofír
7.00 Ameríski fótboltinn. Leikur há-
skólaliða.
9.00 Wide World of Sport.
1000 Trukkakeppni.
11.00 Powersport International.
12.00 Körfubolti. Leikur háskólaliða.
13.30 ishokki Leikur i NHL-deildinni.
15.30 Dagur i lífi ishokkileikmanns.
16.30 Körfubolti. Leikur háskólaliða.
18.00 íþróttir I Frakklandi.
18.30 Karate.
19.30 Listhlaup á skautum. Heims-
meistarakeppnin i Washington.
21.15 Hnefaleikar.
22.36 WnriiÉÉiHr'ilboltinn. Highlights.
24.00 Motorsport. Formula 3 í Þýska-
landi.
Sjónvarp kl. 17.05:
Sjónvarpið sýnir heimildar-
mynd um Gunnar Gunnars-
son rithöfund.
A þessu ári eru liðin eitt
hundrað ár frá fæðingu rit-
höfundarins Gunnars
Gunnarssonar, eins af stór-
brotnustu bókmenntafröm-
uöum er ísland hefur alið á
síðari timum. Af þessu til-
efni lét Sjónvarpið gera
mynd um Gunnar, æviferil
og störf, og verður hún nú
endursýnd.
Umsjón og handrit mynd-
arinnar er verk Matthíasar
Viðars Sæmundssonar bók-
menntafræöings. í mynd-
inni fylgir Matthías í spor
Gunnars er lágu frá torf-
bæjum á Austurlandi 19.
aldar til Danmerkur og
Þýskalands. Aftur til átthaganna í Fljótsdal og loks til höfuð-
staðarins þar sem Gunnar sat á friðarstóli iram í háa elli.
Fjallað er um verk Gunnars og rætt við Thor Vilhjálmsson,
Einar Má Guðmundsson, Guðberg Bergsson og sonardóttur
Gunnars, Franáscu Gunnarsdóttur.
Bylgjan kl. 15.00:
Elskið friðinn...
Ómar Valdimarsson verö-
ur gestgjafl á Bylgjunni í
þrjár klukkustundir á jóla-
dag. Gestir hans verða
Björgvin Halldórsson, Bald-
vin Jónsson, Birna Þórðar-
dóttir, Sveinn Rúnar
Hauksson, Jónas R. Jóns-
son, Leifur Hauksson,
Guðni Guðmundsson og Eg-
ill Ólafsson. Ómar ætlar aö
ræða dægurmál, eilífðar-
mál, stjórnmál og tónlist.
Fortíðin verður metin og
spáð í framtíðina. - „ . „
Gestir Ómars upplifðu Omar Valdimarsson tekur á
umrót 7. áratugarins og ber moti gestum á Bylgjunni á
það örugglega á góma. joladag.
Tónlist þess tíma verður áberandi í þessari dagskrá Óm-
arsValdimarssonar. -JJ
Stöð 2 kl. 13.40:
Don Giovanni
Ópera mánaðarins veröur að þessu sinni Ðon Giovanni
eftír Mozart. Söguþráöurinn er í stuttu máli sá að Don Gio-
vanni hefur reynt að táldraga Donna Önnu. Dulbúinn kem-
ur hann á heimili hennar og Anna reynir að fella grímuna
af honum en tekst ekki. Faðir hennar kemur þar aö ög
særir Don Giovanni hann banasári. Anna og heitmaður
hennar sverja aö hefna sín á morðingjanum.
Um síðir bera þau kennsl á föðurmorðingjann og ásaka
hann fyrir morðið en hann sleppur. Hann er nú að gera
hosur sínar grænar fyrir þernu fyrrum ástkonu sinnar.
Að lokum eru örlög hans ráðin þegar hann býöur styttu
af höfuðsmanninum til kvöldverðar og hún þekkist boðið.
-1.1
Rás 1 kl. 13.00:
Fjölskyldujól
í dag heíjast fjölskyldujól
á rás 1. Að þættinum standa
allar deildir útvarpsins Út-
varpsins og meðal íjöl-
breytilegs efnis er lestur
Guðrúnar Þ. Stephensen úr
Fjallkirkjunni eftir Gunnar
Gunnarsson. Ármann Kr.
Einarsson rithöfundur mun
síðan rifja upp sínar jóla-
minningar.
í leikritinu Þegar húsálf-
amir fóru í frí segir frá að-
fangadegi jóla þegar góðu
húsálfarnir bíða eftir því að
amman setji jólagrautinn
upp á loftið til þeirra. Þegar
þeir komast að því að hús-
móðirin hefur tekið graut-
inn burtu ákveða þeir að fara í frí og skipta sér ekki af því
þótt vondu húsálfarnir setji allt á annan endann.
í þættinum skipar tónlistin sinn sess. Skólakór Garðabæj-
ar syngur nokkur jólalög, meðal annarra Jól í borg og bæ,
Frá ljósanna hásal, Ó, Jesúbam blítt og Jólanótt. Þá mun
básúnukvartett leika tríó frá renessanstímanum og jólalög
í léttri útsendingu.
Kynnir í þættinum er Sigurlaug M. Jónasdóttir. -JJ
Sigurlaug M. Jónasdóttir
kynnir Fjölskyldujól á jóla-
dag.