Dagblaðið Vísir - DV - 05.01.1990, Side 6
.0001 HAl'JMAI. ,f. HUDAQUT3ÖH
FÖSTUDAGUR 5. JANÚAR 1990.
22
Kvikmyndir - Kvikmyndir - Kvikmyndir
Stjömubíó:
Dularfulli Bandaríkjamaðurinn
Stjömubíó frumsýndi annan í
jólum Dularfulla Bandaríkjamann-
inn (Old Gringo) í minni sal bíós-
ins. Mynd þessi er þegar orðin
nokkuö umdeild þótt hún sé aðeins
nokkurra mánaöa gömul. Er hún
gerð eftir þekktri skáldsögu Carlos-
ar Fuentas og segir frá bandarísk-
um blaðamanni og rithöfundi sem
hvarf í Mexíkó meðan á borgara-
styrjöldinni stóð þar í byrjun aldar-
innar.
Það er Gregory Peck sem leikur
blaðamanninn. Upprunalega var
þetta hlutverk ætlað Burt Lancast-
er en hann slapp ekki í gegnum
læknisskoðun tryggingafélagsins
og var þá hafnað af framleiðendum
myndarinnar. Önnur aðalhlutverk
eru leikin af Jane Fonda og Jimmy
Smits sem er þekktastur hérlendis
fyrir leik sinn í sjónvarpsmynda-
flokknum Lagakrókum (L. A. Law),
Að þessi kvikmynd var gerð er
fyrst og fremst Jane Fonda að
þakka. Hún hreifst strax afsögunni
og þá um leið af kennslukonunni,
sem hún leikur, sem heldur til
Mexíkó og lendir í ástarævintýri
með mexíkönskum herforingja.
Ekki voru framleiðendur ginn-
keyptir fyrir hugmynd hennar í
fyrstu en Columbia lét þó til leiðast
að lokum en forráðamenn kvik-
myndafélagsins voru samt ekki
sáttir viö val Jane Fonda á leik-
stjóra myndarinnar. Sá heitir Luis
Puenzo og er þetta fyrsta kvik-
myndin sem hann gerir utan
heimalands síns, Argentínu.
Vandræðin hlóðust þó ekki upp
meðan á kvikmyndatökum stóð
heldur þegar Puenzo skilaði mynd-
inni til dreifmgar. Framleiðendum
leist ekkert á blikuna og frestuðu
frumsýningu. Þegar frumsýningu í
Hollywood er frestað táknar það
að myndin sé slæm. Illar tungur
komu þeim orðrómi af stað að allt
væri í háalofti hjá Columbia út af
myndinni en það var alls ekki rétt.
Myndin var svo frumsýnd og fékk
ágæta gagnrýni en litla aðsókn.
í heild þykir Old Gringo hin besta
kvikmynd og eru ílestir sem leggja
leið sína í Stjömubíó sáttir við út-
komuna.
Aöalleikararnir þrír, Gregory Peck, Jane Fonda og Jimmy Smits.
Bíóhöllin:
Elskan, ég minnkaði bömin
í Bíóhöllinni er sýnd ævintýra-
myndin Elskan, ég minnkaði böm-
in og fjallar hún um vísindamann
einn sem tekst að búa til vél sem
minnkar fólk. Allt fer þó úr bönd-
unum hjá honum þegar hann
minnkar bömin sín og böm ná-
grannanna niður í örverur sem
lenda í miklum ævintýmm í garð-
inum heima hjá sér.
Mikilh tækni er beitt í þessari
skemmtilegu kvikmynd svo áhorf-
endur fá það aldrei á tilfmninguna
að um plat sé að ræða. Krakkarnir
eiga aö vera svo örlitlir að það
þurfti að búa til tvö svið fyrir hvert
atriði, annað þar sem krakkarnir
væm í eölilegri líkamsstærð og svo
hitt þar sem allir venjulegir hlutir,
eins og skrúfa, ruslafata eða Cheer-
ious, virðast risastórir.
Hér eru ættliðirni þrír tilbúnir í slaginn.
Regnboginn:
Fjölskyldumál
Jólamynd Regnbogans er ný
kvikmynd Fjölskyldumál (Family
Buisness). Það eru tveir eftirsóttir
leikarar, Sean Connery og Dustin
Hoffman, sem leika aðalhlutverkin
í þessari gamanmynd sem fjallar
um þrjá ættliði New York fjöl-
skyldu sem hefur fengist við smá-
glæpi; afann, föðurinn og soninn.
Sean Connery leikur Jessie
McMullen, sjarmerandi en þrjósk-
an eldri mann sem hefur tilhneig-
ingu til að brjóta lögin. Helstu ein-
kenni hans eru drykkja, að segja
sögur og lenda í vandræðum.
Sonur hans Vito, sem er leikinn
af Dustin Hoffman, er fyrrverandi
glæpon sem nú rekur að mestu
heiðarlegt fyrirtæki. Vito elskar
fóður sinn en er hræddur um að
ef hann hleypi honum of nálægt sér
þá fari allt í sama farið og áöur.
Sonur hans er Adam sem Matt-
hew Broderick leikur. Hann er gáf-
að ungmenni sem nýlega hefur lok-
ið háskólanámi. Hingað til hefur
hann farið að ráði foður síns sem
sagði eitt sinn við hann: „Þú getur
gert allt sem þú vilt ef þú aðeins
heldur þig fjarri afa þínum.“
Eftir skondinn aðdraganda sam-
einast þessir þrír ættliðir í heljar-
miklu ráni sem ekki verður farið
nánar út í hér.
Rick Moranis leikur vísindamanninn sem óvænt minnkar börnin
sín. Hér hefur hann tekiö eftir einhverju óvenjulegu í súpuskálinni sinni.
Sýningar
Art-Hún,
Stangarhyl 7,
Reykjavík
Að Stangarhyl 7 eru sýningarsalur og
vinnustofur. Þar eru til sýnis og sölu olíu-
málverk, pastelmyndir, grafík og ýmsir
leirmunir eftir myndlistarmennina Erlu
B. Axelsdóttur, Helgu Ármanns, Elín-
borgu Guðmundsdóttur, Margréti
Salome Gunnarsdóttur og Sigrúnu
Gunnarsdóttur. Opið alla virka daga kl.
13- 18 og laugardaga kl. 12-18.
Árbæjarsafn,
sími 84412
Opið eftir samkomulagi. Upplýsingar í
síma 84412.
Ásgrímssafn,
Bergstaðastræti 74
í safni Ásgríms stendur yflr sýning á
myndum Ásgríms frá Þingvöllum. Á sýn-
ingunni eru 25 verk, aðallega vatnslita-
myndir, en einnig nokkur olíumálverk.
Sýningin stendur fram í febrúar og er
opin um helgar og á þriðjudögum og
fimmtudögum kl. 13.30-16.
Ásmundarsalur,
v/Freyjugötu,
Arkitektafélag íslands hefur opnað sýn-
ingu á lokaverkefnum nýútskrifaöra
arkitekta. Sýningin er opin afla daga kl.
14- 18 og stendur til 14. janúar.
Gallerí Borg,
Pósthússtræti 9
Sýning á verkum „gömlu meistar-
anna“. öll verkin eru til sölu.
í Grafík-gallerí Borg, Austurstræti 10,
er nú blandað upphengi. Graflk-myndir
eftir um það bil 50 höfunda, litlar vatns-
lita- og pastelmyndir og stærri olíumál-
verk eftir marga af kunnustu Ustamönn-
um þjóðarinnar.
Gallerí„einn-einn“,
Skólavörðustíg 4a
Samsýning listamanna af yngri kynslóð-
inni. Opið daglega kl. 14-18.
Gallerí List,
Skipholti 50,
Til sölu verk eftir þekkta íslenska lista-
menn. Opið á afgreiðslutíma verslana.
Hafnarborg,
Strandgötu 34
Þar stendur yfir sýning á fjölmörgum
söfnum í eigu einstaklinga. Hér er um
fjölbreytta og forvitnilega sýningu að
ræða sem sett er upp í samvinnu Hafnar-
borgar og Byggðasafns Hafnarijarðar.
Opið er kl. 14-19 alla daga nema þriðju-
daga. Sýningin stendur til 15. janúar 1990.
J. Hinriksson,
Maritime Museum,
Súðarvogi 4
Sjóminja- og vélsmiðjumunasafniö er
opið frá kl. 13-17 þriöjudaga, miðviku-
daga, flmmtudaga, fóstudaga og laugar-
daga.
Kjarvalsstaðir
v/Miklatún
Á morgun verða opnaöar þrjár sýningar
á Kjarvalsstöðum. í austursal veröur
opnuð sýning á verkum J.S. Kjarval í
eigu Reykjavíkurborgar. Yflrskrift sýn-
ingarinnar er „Kjarval og landið". í vest-
ursal sýnir Margrét Jónsdóttir olíumál-
verk. í vesturforsal sýna Helgi Þorgils
Friðjónsson og Hallgrímur Helgason
portrett. Kjarvalsstaðir eru opnir frá kl.
11-18 daglega og er veitingabúðin opin á
sama tíma.
Listasafn Einars Jónssonar
er opið alla daga kl. 13.30-16 nema mánu-
daga. Höggmyndagarðurinn er opinn
daglega kl. 11-17.
Katel,
Laugavegi 20b
(Klapparstigsmegin)
Til sölu eru verk eftir innlenda og er-
lenda listamenn, málverk, graflk og leir-
munir.
Sýning í Odda,
nýja hugvísindahúsinu,
er opin daglega kl. 13.30-17. Þar eru til
sýnis 90 verk í eigu safnsins, aðallega
eftir yngri listamenn þjóðarinnar. Að-
gangur að safninu er ókeypis.
Listasafn íslands,
Fríkirkjuvegi 7
Mynd mánaðarins heitir „Mynd“ og er
eftir Gunnar Öm Gunnarsson. Leiðsögn
í fylgd sérfræðings er á fimmtudögum
kl. 13.30-13.45. Safnast er saman í and-
dyri safnsins og er leiðsögnin öllum opin
og ókeypis.
Sýning á íslenskri myndhst 1945-1989 í
eigu safnsins stendur nú yfir í öllum sýn-
ingarsölum. Almenn leiðsögn um þá sýn-
ingu er á sunnudögum kl. 15. Listasafnið
er opiö alla daga nema mánudaga kl.
12- 18. Veitingastofa safnsins er opin á
sama tíma.
Listasafn Sigurjóns
Ólafssonar,
Laugarnéstanga 70
Þar stendur yfir sýning á verkum er Sig-
uijón geröi á árunum 1960-62. Þetta eru
aöallega verk úr jámi. Þá eru einnig sýnd
aðfóng og gjaflr sem safninu hafa borist
undanfarin ár, þar á meðal myndir frá
árunum 1936-46 sem hafa veriö í einka-
eign í Danmörku. Sýningin, sem mun
standa uppi í vetur, er opin laugardaga
og sunnudaga kl. 14-17 og öll þriðjudags-
kvöld kl. 20-22.
Norræna húsið
v/Hringbraut
í anddyri hússins stendur yfir’ sýning á
ljósmyndum á þjóðsögum og þjóðsögnum
eftir Ingu-Lisu Middleton.
í bókasafninu sýnir Jóhanna Bogadóttir
grafíkmyndir. Sýning hennar er opin kl.
13- 19 daglega.
Sjóminjasafn íslands,
Vesturgötu 8,
Hafnarfirði, s. 52502
Opið laugardaga og sunnudaga kl. 14-18
eða eftir nánara samkomulagi í sima
52502.
Póst- og símaminjasafnið,
Austurgötu 11
Opið á sunnudögum og þriðjudögum kl.
15-18. Aðgangur ókeypis.
Vinnustofa Ríkeyjar,
Hverfisgötu
Þar eru til sýnis og sölu postulínslág-
myndir, málverk og ýmsir litlir hlutir.
Opið er á verslunartíma þriðjudaga, miö-
vikudaga, fimmtudaga og fóstudaga og á
laugardögum kl. 10-16.
Þjóðminjasafnið
Safnið er opið alla daga nema mánudaga
kl. 11-16.
Myntsafnið á Akureyri,
Aðalstræti 58, s. 24162
Opiö er kl. 13.30-17 alla daga vikunnar.
Listkynning á
Akureyri
Menningarsamtök Norðlendinga og Al-
þýðubankinn hf. kynna að þessu sinni
listakonuna Rut Hansen. Á kynningunni
eru 9 málverk, unnin meö olíu á striga,
og eru 2 verkanna frá 1985 en önnur frá
árinu 1989. Kynningin er í útibúi Al-
þýðubankans hf. á Akureyri, Skipagötu
13, og er opin á afgreiðslutíma. Henni
lýkur 2. febrúar 1990.