Dagblaðið Vísir - DV - 02.02.1990, Síða 3
FOSTUDAGUR 2. FEBRUAR 1990.
Dans-
staðir
Ártún,
Vagnhöfða 11
Gömlu dansamir föstudagskvöld kl.
21-3 og laugardagskvöld kl. 22-3.
Hljómsveitin Danssporiö leikur fyrir
dansi bæði kvöldin.
Bjórhöllin,
Gerðubergi 1
Opið öll kvöld frá kl. 18-1 og um helg-
ar til kl. 3. Lifandi músík funmtu-
dags-, fóstudags-, laugardags- og
sunnudagskvöld.
Casablanca,
Skúlagötu 30
Diskótek fóstudags- og laugardags-
kvöld. '
Danshöllin,
Brautarholti 22, s. 23333
„Þjóðbjörg og Doddi bregða fyrir sig
betri fætinum", sýnt laugardags-
kvöld. Klakabandið frá Ólafsvík leik-
ur fyrir dansi föstudags- og laugar-
dagskvöld á annarri hæðinni. Lúdó
og Stefán leika fyrir dansi í Mánasal
á fostudagskvöld.
Duus-hús,
Fischersundi, simi 14446
Diskótek fóstudags- og laugardags-
kvöld.
Fjörðurinn,
Strandgötu 30, sími 50249
Hljómsveit leikur fyrir dansi á fostu-
dags- og laugardagskvöld.
Danshúsið Glæsibær,
Álfheimum, sími 6S6220
Danshfjómsveitin leikur fyrir dansi
fóstudags- og laugardagskvöld.
Hollywood,
Ármúla 5, Reykjavik
„Happy hour“ fóstudags- og laugar-
dagskvöld kl. 22-23. Hin góðkunna
hijómsveit Ðe Lónlí Blú Bojs leikur
fyrir dansi föstudags- og laugardags-
kvöld.
Hótel Borg,
Pósthússtræti 10, Reykjavík, sími
11440
Diskótek fostudags- og laugardags-
kvöld. Borgarkráin er opin til kl. 24
báða dagana.
Hótel Esja, Skálafell,
Suðurlandsbraut 2, Reykjavík, sími
82200
Dansleikir fóstudags- og laugardags-
kvöld. Lifandi tónlist. Opið frá kl.
19-1.
\ Hótel ísland,
Ármúla 9, sími 687111
Lokað fóstudagskvöld. Söngskemmt-
unin „Rokkóperur" á laugardags-
kvöld. Hljómsveitin Stjómin leikur
fyrir dansi á laugardagskvöld.
Hótel Saga
Á laugardagskvöldið verður sýnd
skemmtidagskráin „Skemmtisigling
á þrnru landi“ -í Súlnasal. Nokkrir
af fremstu skemmtikröftum landsins
hrífa gesti með sér í bráðhressandi
skemmtun. Hljómsveitin Einsdæmi
leikur fyrir dansi.
Keisarinn
v/Hlemmtorg
Diskótek föstdags- og laugardags-
kvöld.
Sportklúbburinn,
Borgartúni 22
Sjómannaskólinn með þorragleði í
Risinu í kvöld, Pottormarnir í Breið-
holti með þorragleði laugardags-
kvöld. í kjallaranum leikur hljóm-
sveitin Rósin fyrir dansi um helgina.
Staupasteinn,
Smiðjuvegi 14D, s. 670347 1
Hljómsveit leikur fyrir dansi fóstu-
dags- og laugardagskvöld.
Tunglið og Bíókjallarinn,
Lækjargötu 2, sími 627090
Diskótek fóstudags- og laugardags-
kvöld.
Ölver,
Álfheimum 74, s. 686220
Opið fmuntudags-, fóstudags-, laugar-
dags- og sunnudagskvöld. Hljóm-
sveitin Hrím leikur mn helgina.
19
Leikfélag Reykjavíkur:
Mikil aðsókn
á fjögur leikrit
Yfir þrjú þúsund manns lögöu
leið sína í Borgarleikhúsið um síð-
ustu helgi. Nánast var uppsélt á
aUar sýningarnar í húsinu frá
fostudegi til sunnudags.
í gangi eru fjögur leikrit á vegum
Leikfélags Reykjavíkur. Eru það
Kjöt eftir Ólaf Hauk Símonarson,
Höll sumarlandsins og Ljós heims-
ins eftir Kjartan Ragnarsson og
hamaleikritið Töfrasprotinn eftir
Benóný Ægisson. Allt eru þetta ís-
lensk verk enda verða eingöngu
sýnd íslensk leikrit á þessu fyrsta
starfsári Leikfélagsins í hinu nýja
og glæsilega Borgarleikhúsi.
Þessi fjögur leikrit verða öll sýnd
um þessa helgi. Á föstudagskvöld
verður Ljós heimsins í litla salnum
og Kjöt í stóra salnum. Á laugar-
daginn sem og á sunnudag verða
dagsýningar á Töfrasprotanum og
er þegar uppselt á báðar sýning-
arnar. Um kvöldið verður Ljós
heimsins í litla salnum og Höll
sumarlandsins í þeim stærri. Á
sunnudag verður svo sýning á
Kjöti.
Kjöt eftir Óiaf Hauk Símonarson er eitt fjögurra leikrita sem sýnd eru
i Borgarleikhúsinu. Á myndinni sjást Þröstur Leó Gunnarsson og Elva
Ósk Ólafsdóttir í hlutverkum sinum.
Guðbergur Bergsson les úr eigin óbirtum ritverkum
listasafn Sigurjóns Ólafssonar:
„... og höfum við
ekki fundið veginn"
í Listasafni Sigurjóns Ólafssonar
verður á sunnudaginn bókmennta-
dagskrá, eins og venja er til fyrsta
hvers sunnudags í mánuði. Að
þessu sinni verður lesið úr skáld-
verkum Guðbergs Bergssonar í
dagskrá sem nefnist:....oghöfum
við ekki fundið veginn. Leikkon-
urnar Anna Einarsdóttir og Ingrid
Jónsdóttir flytja nokkra kafla úr
skáldsögum Guðbergs, en Þorvald-
ur Kristinsson velur efniö og kynn-
ir. Að lokum les svo Guðbergur
sjálfur úr óbirtum verkum sínum.
Dagskráin hefst klukkan fimmt-
án stundvíslega og stendur-í um
það bil eina klukkustund.
Ráðstefna:
Tölvukerfi
framtíðarinnar
Tölvuháskóli Verslunarskóla ís-
lands heldur í dag ráðstefnu sem
nefnist Tölvukerfi framtíðarinnar.
Á ráðstefnunni verða erindi um
tölvukerfi sem samanstanda af net-
tengdum gagnamiðlara og vinnu-
stöðvum. CUent-Server er eitt vin-
sælasta orðið í ensku tölvumáli.
Það merkir að gögn eru geymd á
einni tölvu, gagnamiðlara, en not-
endur hafa aðgang að þeim frá sín-
um vinnustöðum. Upplýsingar eru
sóttar með því að senda fyrirspurn
frá vinnustöð til gagnamiðlarans
yfir net.
Á ráðstefnunni verða erindi frá
ýmsum aðilum sem hafa unnið á
þessu sviði hér á landi. Einnig
verða kynningar á hugbúnaði sem
vænta má frá framleiðendum. Ráð-
stefnugestir eiga einnig kost á að
skoða lokaverkefni útskrifaðra
nemenda úr Tölvuháskólanum en
nú í haust útskrifuðust sautján
kerfisfræðingar.
Ráðstefnan verður í hátíðasal
Verslunarskóla íslands og hefst kl.
13.00.
Djass í Heita pottinum
Ómar Sverrisson, gítarleikari og
Guðmundur Ingólfsson píanóleik-
ari munu leika í Heita Pottinum í
Duus-húsi á sunnudagskvöldið.
Auk þeirra félaga fylla upp í kvart-
ett þeir Gunnar Hrafnsson, bassa-
leikari og Guðmundur Steingríms-
son, trommuleikari.
Tónleikamir hefjast kl. 21.30.
Akureyri:
Diddú syngur með
Kammersveitinni
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
Sigrún Hjálmtýsdóttir, Diddú,
verður einsöngvari á þriðju tón-
leikum Kammerhljómsveitar Ak-
ureyrar sem haldnir verða í
íþróttaskemmunni á sunnudag kl.
17.
Á tónleikunum verður flutt Vín-
artónlist eftir Franz Lehár, Johann
Strauss yngri og eldri og C.M.
Ziehrer. Meðal verkefna verða Sög-
ur úr Vínarskógi, Kampavínspolki,
Dóná svo blá, aríur úr Leðurblök-
unni, Kátu ekkjunni o.fl.
Aðalhljómsveitarstjóri Kammer-
hljómsveitar Akureyrar er Roar
Kvam en að þessu sinni verður
gestastjómandi Waclaw Lazarz.
Hann er fæddur í Póllandi og
stundaði nám í Krakow, Moskvu
og Munchen. Hann hefur leikið
með Kammerhljómsveit Akur-
eyrar frá stofnun hennar.
Útivist:
Sigrún Hjálmtýsdóttir.
Þjóðháttaferð:
Það er gömul hefð hjá Útivist að
fara verleið í byrjun vertíðar, sem
næst kyndilmessu, en þá áttu menn
að vera mættir til skips. Hér áður
fyrr voru verferðir lúnar mestu
svaðilfarir og fyrir kom að menn
urðu úti á leið í verið. Fóru menn
því gjarnan saman í hópum.
Verferðirnar, sem aUt of lítið hef-
ur verið fjallað um af sagnfræðing-
um, em mjög merkilegt fyrirbæri
og má líkja þeim við þjóðflutninga
þegar menn streymdu úr sveitun-
um til sjávarsíðunnar til þess að
stunda sjóróðra. Verferðirnar voru
nokkurs konar manndómsvígsla
og töldust menn ekki fullgildir
karlmenn nema að þeir hefðu farið
í verið.
Á sunnudaginn 4. febrúar verður
gengin gömul verleið frá Njarðvík-
urfitjum yfir Hafnaheiði í Kirkju-
vogsvör, vör Kotvogsmanna á síð-
ustu öld. Komið verður við í Vötn-
um, þar sem hugað verður að birki-
hríslum, sem Utivist gróðursetti í
strandgöngunni 1988, Hunangs-
hellu og Helhsvík. Fjölfróðir menn,
þeir Margeir Jónsson úr Keflavík
og Vilhjálmur Magnússon úir
Höfnum, fjalla um verferðir á fyrri
tíð við upphaf og endi göngunnar.
Brottfor verður frá Umferðarmið-
stöð, bensínsölu, kl. 13. Hægt verð-
ur að koma í rútuna á Kópavogs-
hálsi og við Sjóminjasafnið í Hafn-
arfirði. Verð er kr. 800 og eru allir
velkomnir.
Ljósbrot:
Ljósmyndasýning
framhaldsskólanema
Ljósmyndasýning Ljósbrots,
Ljósmyndafélags framhaldsskóla-
nema, verður opnuð á morgun,
laugardaginn 3. febrúar, í Lista-
safni ASI kl. 14.
Frá árinu 1987 hefur Ljósbrot
haldiö sýningar á verkum nem-
enda víðs vegar af landinu. EUefu
framhaldsskólar taka þátt í sýning-
unni í ár, einum fieiri en í fyrra.
AUs eru um eitt hundráð og átta-
tiu myndir á sýningunni og eru það
um það bfi fimmtíu fleiri en á síð-
asta ári.
Sýningin verður opin til ellefta
febrúar næstkomandi og er að-
gangur ókeypis.