Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.1990, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.1990, Blaðsíða 9
ÞRIÐJUDAGUR 6. FEBRÚAR 1990. 9 tíl íbúóarbyggjenda Hvað er endurgrestt? ■Wia manna á byggingarstað var undanþegin söluskatti en er nú virðisaukaskatts- skyld. Ákveðið hefur verið að endurgreiða virðis- aukaskatt af vinnu manna sem unnin er á bygging- arstað íbúðarhúsnæðis, sbr. reglugerðnr. 641/1989. Endurgreiðslan nær í fyrsta lagi til vinnu manna við nýbyggingu íbúðarhúsnæðis. í öðru lagi er vsk. af vinnu við endurbætur á íbúðarhúsnæði endurgreiddur ef heildarkostnaður (þ.e. bæði efni og vinna) er a.m.k. 7% af fasteignamati íbúðarhúsnæð- is eins og það er í upphafi þess árs þegar endurbætur eiga sér stað. Ef endurbætur ná yfir fleiri en eitt almanaksár er miðað við 7% af meðalfasteignamats- verði viðkomandi ára. Endurgreiðslan nær ekki til virðisaukaskatts af t.d. vinnu stjórnenda vinnuvéla eða af hvers konar sérfræðiþjónustu. Endurgreiðslan nær ekki heldur til t.d. byggingarorlofshúsa. Ef vélar eru settar upp á byggingarstað til aðvinnslu á vöru eða efni sem að jafnaði er unnið á verkstæði eða í verksmiðju er virðisaukaskattur af þeirri vinnu ekki endurgreiddur. Hverjir fó endurgreiðslu? Hvert á að sækja um endurgreiðslu? ^^idurgreiðslubeiðni er send skattstjóra í því umdæmi þar sem umsækjandi á lögheimili. Endurgreiðsla fæst því aðeins að umsækjandi geti lagt fram umbeðin gögn t.d. reikninga vegna keyptrar vinnu. Hvenær er hægt að sækja um endurgreiðslu? m Fppgjörstímabil vegna nýbyggingar er tveir mánuðir, jan. og feb., mars og apríl, o.s.frv. Skýrsla skal berast skattstjóra fyrir 15. dag næsta mánaðar eftir lok uppgjörstímabils og fer endur- greiðsla þá fram innan 20 daga. Uppgjörstímabil vegna endurbóta er aldrei styttra en almanaksár. Skýrsla skal berast skattstjóra 15. janúar árið eftir að endurbætur voru gerðar. Upplýsingásími RSK vegna virðisaukaskatts er 91-624422 "■ ;í.i > ' ' þ feu eir sem byggja á eigin kostnað íbúðar- húsnæði til sölu eða til eigin nota á eigin lóð eða leigu- lóð fáendurgreiðslu. RSK RÍKISSKATTSTJÓRI V|S/I

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.