Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.1990, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.1990, Blaðsíða 28
28 ÞRIÐJUDAGUR 6. FEBRÚAR 1990. Menning______________ dv Kuggur enn á ferð Nú fyrir jólin sendi Sigrún Eldjám frá sér bókina Kuggur, Mosi og mæðgurnar. Kuggur var fyrst á ferð- inni árið 1987 í bókinni Kuggur til sjávar og sveita og aftúr í Kuggur og fleiri fyrirbæri ári seinna. Sigrún Eldjám hefur nú skrifað bækur fyrir börn í sléttan áratug. Hún byrjaði árið 1980 með því að senda frá sér bókina Allt i plati. Nafn hennar var þó ekki alveg ókunnugt í heimi barnabókmennta því áður hafði hún getið sér orð fyrir myndskreytingar á bókum annarra höfunda. í kjölfarið á Allt i plati fylgdi síðan Eins og i sögu, sem kom út árið 1981 og hafði að geyma krókófíla og dreka eins og í fyrri bókinni. Næstar í röðinni vom langafabækumar, Langafi drullumallar (1983) og Langafi prakkari (1984). Árið 1987 hlaut Sigr- ún síðan Barnabókaverðlaun Reykjavíkurborgar fyrir Bétveir, sem kom út árið 1986. Lesendur hafa síðan átt þess kost að fylgjast með ævintýram Kuggs og fé- laga í þeim þremur bókum sem að framan em taldar. Öðruvísi leikfélagar í fyrstu bókinni segir frá Kuggi þar sem hann er nýfluttur í barnsnautt hverfi, en engu að síður finnur hann sér leikfélaga. Þau eru öðmvísi leikfélagar en viö eigum að venjst mæðgurnar Málfríður og mamma Málfríðar og furðuveran Mosi. Þrátt fyrir aldursmun- inn á Kuggi og mæðgunum gömlu bindast þau tryggð- arböndum og leiða lesendur í hvert ævintýrið á fætur öðra. Kuggur, Mosi og mæðgurnar er með sama sniði og hinar tvær fyrri. Skiptist í fióra kafla sem geyma hver sitt ævintýri. Uppátektir þeirra fjórmenninga eiga sér hverdagslegar fyrirmyndir sem era útfærðar í ævin- týralegri atburðarás. Sögumar flylja allar léttan boðskap, sem komið er á framfæri á gamansaman hátt. Tilgangurinn með hinum mikla aldursmun persónanna er þannig að brúa kynslóðabihð á sérstæðan hátt með því að draga fram bamið sem býr í öllum og eyða þannig fordómum gamalla gagnvart æskunni og ungra gagnvart ellinni. Þetta viðfangsefni er ekki nýtt hjá Sigrúnu, enda þarft í samfélagi eins og okkar þar sem flestum er skipað á aðskilda bása. Sigrún bendir með öðrum orðum á að það sé hollt að líta inn í fleiri bása en sinn eigin. Viö eigum að leika okkur meira saman og læra hvert af öðru. í fyrstu sögunni, Skautaferð, er þannig sagt frá því hvemig sú athöfn að skauta getur farið fram og hefur í gegnum aldimar verið framkvæmd með ólíkum hjálpartækjum. Mamma Málfríðar dregur fram sauða- Fréttir Framboðsmál: Reykjavík án kratalista Bókmermtir Anna Hildur Hildibrandsdóttir leggina sína eins og fommennimir renndu sér á forð- um daga. Málfríður finnur gömlu skrítnu skautana sína, Kuggur hefur í fómm sínum skauta eins og tíðk- ast nú á dögum og Mosi sína eigin fætur. Saman þramma þau niður á tjöm og skemmta sér öll vel þrátt fyrir þessu ólíku tæki og ýmsar uppákomur. í sögunni Bakstur segir frá því hvaða útreið hrekkju- svín geta fengið. Mamma Máifríðar sem er í fýlu ætlar að stríða þeim Kuggi, Mosa og Málfríði, þar sem þau em að baka, með því að láta gamla strigaskó detta ofan í deigið. Það vill þó ekki betur til en svo að hún dettur sjálf ofan í og fylgir kökudeiginu inn í baka- rofn. Eftir að kakan er tekin úr ofninum fylgjast svo lesendur með ærslafullum eltingaleik við kökuna hlaupandi. í þriðju sögunni, Aski, koma foreldrar Kuggs fyrst við sögu. Fjölskyldan er á leið á Þjóðminjasafnið þar sem sjá má alla þá hluti „sem fólk notaði í gamla daga“. Mæðgurnar gerast hoðflennur og það verður aldeilis uppi fótur og fit þegar mamma Málfríðar finn- ur ask sem hún tapaði fyrir mörgum áratugum. Hún vill að sjálfsögðu endurheimta þennan forna grip sinn, en safnverðimir em ekki á sama máh. Eftir mikil átök nást þó sættir í málinu. Tónaflóð er síðasta sagan í bókinni. Tónhst á sér engin landamæri og engin aldursmörk. Kuggur er nýbyijaður að læra á fiðlu, sem verður til þess að mamma Málfríðar dregur upp gamla túbu úr fórum sínum og uppfinningamaðurinn Málfríður býr sér til fjöldósaorgelvél. Efniviðurinn em áldósir sem gos- þambarar skilja eftir sig á víð og dreif og menga um- hverfi sitt með. Sigrúnu er lagið að kitla ímyndunarafl lesenda sinna. Þessir hversdagslegu atburðir, sem sögumar sækja efnivið sinn í, taka á sig skondnar myndir í léttri og lifandi frásögn. Margar myndir em notaðar til að auðga textann eins og í öllum bókum Sigrúnar. Þær faha vel að efninu og koma ríkulega til skila þeirri gleði sem ríkir í sögunum. Kuggur, Mosi og mæðgurnar. 29 bls. Sigrún Eldjárn. Forlagið — 1989. Andlát Steinunn Guðmundsdóttir, Grana- skjóh 6, Reykjavík, lést í Landspítal- anum að morgni laugardagsins 3. febrúar. Jónína Einþórsdóttir, Stekkjarkinn 15, Hafnarfirði, lést föstudaginn 2. febrúar. Jaröarfarir Minningarathöfn um Bjarna Gísla- son kennara, Auðarstræti 13, Reykjavík, fer fram frá Fossvogskap- ehu í dag, 6. febrúar, kl. 15. Jarðsung- ið verður frá Siglufjarðarkirkju mið- vikudaginn 7. fehrúar kl. 14. Björn Jónsson frá Hvoh, Öldutúni 6, Hafnarfirði, verður jarðsunginn frá Hafnarfj arðarkirkj u miðvikudaginn 7. febrúar kl. 15. Guðrún Stefánsdóttir, áður búsett á Eskifirði, til heimilis að Miðvangi 41, Hafnarfirði, verður jarðsungin í dag, þriðjudaginn 6. febrúar, kl. 15 frá Hafnarfjarðarkirkju. Jón Stefán Benediktsson, Háaleiti 11, Keflavík, andaðist á heimih sínu 28. janúar. Útforin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Sendiherra Danmerkur á íslandi, Hr. Hans Andreas Djurhuus, 2.2. 1920- 31.1.1990. Útfórin fer fram frá Dóm- kirkjunni í Reykjavík miðvikudag- inn 7. fehrúar kl. 13.30. Aðalsteinn Eiríksson, fyrrverandi skólastjóri Reykjanesskóla við ísa- fjarðardjúp og fjármálaeftirhtsmað- ur skóla, Boðahlein 16, Garðabæ, lést 27. janúar sl. Útfórin hefur farið fram í kyrrþey. Betty Guðmundsdóttir lést 29. jan- úar. Hún fæddist í Reykjavík 30. júh 1914, dóttir hjónanna Guðmundar Grímssonar og Guðmundínu Odds- dóttur. Betty réðst sem vinnukona til Kjartans Thors og Ágústu Bjöms- dóttur árið 1932 og starfaði hjá þeim í yfir 50 ár. Útför hennar verður gerð frá Dómkirkjunni í dag kl. 13.30. Tilkyimingar Félag Snæfellinga og Hnappdæla í Reykjavík Árshátíðin verður laugardaginn 10. fe- brúar í Goðheimum, Sigtúni 3. Húsið opnað kl. 18.30. Heitur veislumatur, vönduð skemmtidagskrá. Miðasala í Sig- túni 3, fimmtudag 8. feb. frá kl. 16-18 og fóstudag 9. feb. frá kl. 16-18. Nánari upp- lýsingar í símum 611421, Ema, og 40308, Emma. Kvenfélag Kópavogs Spilað verður í kvöld, 6. febrúar, í Félags- heimili Kópavogs. Byrjað verður að spila kl. 20.30. Allir velkomnir. Skemmtikvöld í Víði- staðakirkju Kór Víðistaðasóknar stendur fyrir skemmtidagskrá í safnaðarsal Víðistaða- kirkju flmmtudagskvöldið 8. febrúar kl. 20.30. Dagskráin ber yfirskriftina „Hin gömlu kynni“. Þar flytur kórinn létt lög úr ýmsum áttum og auk þess bregður fyrir öðmm gamanmálum, bæði í bundnu og óbundnu máli. Að sjálfsögðu gefst gestum færi á að syngja með. Þetta er kjörið tækifæri til þess að fá sér kaffi- sopa í góðra vina hópi - og njóta þess sem fram er reitt. Ferðalög Ferðafélag íslands Miðvikudagur 7. febr. kl. 20. Viðey að vetri Vetrarkvöldganga - blysför. Brottför frá Viðeyjarbryggju í Sundahöfn. Viðey- jarkirkja skoðuð og Viðeyjarstofa ef að- stæður leyfa. Létt gönguferð og blysfór austur á Sundbakka (minjar um þorp). Verð 500 kr., frítt fyrir böm 12 ára og yngri. Blys kr. 100 (meðan birgðir end- ast). Kynnist Viðey að vetri. Ferðafélags- ferðir em fyrir alla. Helgarferð i Tindfjöll 9.-11. febr. Gist í góðum skála. Tilvalin ferð fyrir gönguskíöi. Nægur snjór. Gengið á Tind- fjallajökul. Farmiðar og uppl. á skrifstof- unni. Pantið tímanlega. Fljótshlið í vetr- arbúningi. Dagsferð á sunnudaginn kl. 10. M.a. farið að Seljalandsfossi og Breiðabólsstaðarkirkju. Fundir Palli, ertu einn í heiminum? Röskva, samtök félagshyggjufólks í Há- skóla íslands, halda fund um mannrétt- indamál stúdenta í hinum stóra heimi í Hlaðvarpanum miðvikudaginn 7. febrúar kl. 20.30. Á fundinn mæta Ragnar Bald- ursson, sem segir frá stúdentahreyfing- unni í Kína, Jóhanna K. Eyjólfsdóttir, formaður Amnesty International á ís- landi, segir frá starfi samtakaima og Ein- ar Þór Gunnlaugsson fjailar um mál stúdenta og ungs fólks í Mið-Ameríku. Kaffiveitingar verða á staðnum. ITC deildin Irpa heldur fund í kvöld; 6. febrúar, kl. 20.30 að Brautarholti 30. Á dagskrá er ræðu- keppni. Upplýsingar gefa Kristín í síma 74884 og Guðrún í síma 675781. Kvenfélag Hallgrímskirkju Fundur verður haldinn í safnaðarheimili kirkjunnar fimmtudaginn 8. febrúar kl. 20.30. Frú Jóhanna Möller syngur ein- söng við undirleik Harðar Áskelssonar. Guðrún Bimir, formaður safnaðarfélags Áskirkju, flytur erindi. Kaffi. Að lokum verður hugvekja sem sr. Sigurður Páls- son flytur. Ljósmyndafélagið Hugmynd ’81 Aðalfundur verður haldinn fimmtudag- inn 8. febrúar kl. 20.30 að Klapparstíg 26. Tapað fundið Læða tapaðist úr Fossvogi Stálgrá 2 ára gömul læða fór að heiman frá sér í Fossvogi á fimmtudaginn sl. og hefur ekki sést síðan. Þeir sem gætu gef- ið upplýsingar um ferðir hennar vinsam- legast hringi í síma 38716 fyrir hádegi eða eftir kl. 18 á daginn. Alþýðuflokkurinn ætlar ekki að bjóða fram eigin framboðslista í komandi borgarstjórnarkosningum. Ákveðið hefur verið að bjóða fram Málefnalistann, sama hvort önnur öfl verða með eða ekki. Borgara- flokkurinn, Alþýðubandalagsfélag Reykjavíkur og Birtingarfélagar eiga eftir að taka ákvörðun um hvort þau verða með á Málefnalistanum. í verkefnaskrá Málefnahstans er margt að finna: „Fyrirtækjum sköp- uð skilyröi til vaxtar... Borgin stuðli að fjölgun starfa fyrir fatlaða. Borgarsjóður byggi fleiri leiguíbúð- ir... Heilsuspillandi húsnæði verði útrýmt. Öll hörn frá tveggja ára aldri eigi rétt á ókeypis leikskóla hluta úr degi. Námsaðstaða bama með sér- þarfir verði bætt. Borgarstjórn leggi áherslu á að aldraðir fái búið á heim- ilum sínum sem lengst. 10% útsvars- tekna verði varið til að leysa hús- næðis- og umönnunarvanda eldri borgara. Unnið verði gegn loftmeng- un bifreiða. Hætt verði við stöðu- mæla. Bifreiðaeigendur fái keypt klukkukort. Reykjavíkurborg taki alfarið við skipulagningu og rekstri Listahátíðar í Reykjavík. Borgin ger- ist aðili að byggingu Tónhstarhúss. Keppnisíþróttum verði sköpuð sem best skilyrði í innlendum sem al- þjóðlegum keppnum. Gerðar verði trimm- og hjólreiðabrautir í borg- inni. Almenningssamgöngur á öllu höfuðborgarsvæðinu verði sam- ræmdar... Auk barna og aldraðra njóti skólafólk í gmnn- og framhalds- skólum sérkjara hjá SVR. Taxti Hita- veitunnar verði lækkaður um allt að 20% þegar Nesjavahaveita er komin í notkun.“ Svo nokkur dæmi séu tek- in. -sme Alternatorar Startarar Ótalgerðirog tilheyrandi varahiutir. Hagstætt verð. 12 mán.ábyrgð. SKEIFUNNI 5A, SIMI: 91-8 47 88 Fjölmiðlar Stjórnmálamenn hafa á undan- fórnum misserum k vartað yfir að fiölmiðlar dragi upp slæma mynd af störfum þeirra og þeim sjálfum. Samkvæmt kenningunni eru flöl miðlar nú að hrökkva til baka í þeirrijákvæðu þróun sem byrjaði þegar blööin vom aö brjótast undan klafastjómmálaflokkanna. Nú hafa fiölmiðlarnir tekið að þjóna mark- aðinumaf engu minni undirlægju- hætti en þeir lögðust undir flokks- hælana áður. Nú er því sem sannara reynist fómað fyrir það sem betur hfjómar í eyrum almennings. Fyrir þann sem fyrir því verður er htih munur á þessu og óhróðri flokks- Þingsjá málgagnanna fyrir fáeinum árum. Stjórnmálamenn vhja kenna breyttum kúrs fiölmiölanna minnk- andi álit almennings á Alþíngi, rík- isstjóm og sljómmálum yfirleitt. Það sem þeir segja í viötölum sé klippt og skorið eftir þörfum fjöl- miðlana og þeír nái ekki að koma skoðunum sfnum fram. Ég get ekki keypt þá kenningu að minnkandi trú almennings á stjórn- málamönnum sé fiölmiðlunum að kenna. Stjórnmálameimkomaoft betur út þegar fréttamenn hafa farið höndum um viötölin og skotið inn eigin texta. Gamaníö kárnar fyrst fyrir alvöru þegar stjórnmálamenn fá að mala næstum óáreittir. Þeir virðast vera fullfærir um að draga úr áliti almennings á sjálfum sér og störfumsínum. Það sannaði þingsjá Sjónvarpsins ígær. Gunnar Smári Egilsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.