Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.1990, Blaðsíða 32
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu Fyrir begta fréttaskotið í hverri viku greiðast 5.000
þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt- krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við
ist eða er notað í DV, greiðast 2.000 krónur. fréttaskotum allan sólarhringinn.
Frjálst, óháð dagblað
ÞRIÐJUDAGUR 6. FEBRÚAR 1990.
Óskar um fiskverð:
Óttast að
þetta sé allt
að springa
„Ég óttast að þetta sé allt að fara
úr böndunum. Mig grunar, eins og
staðan var í gær, þegar fundi Verð-
lagsráðs var slitið án þess að annar
væri boðaður, að endirinn verði sá
að fiskverðsákvörðunin lendi hjá
yfirnefnd. Fulltrúar sjómanna taka
ekki þátt í því. Fari málið til yfir-
nefndar má búast við fiskyerðs-
hækkun upp á 3 til 5 prósent. í kjöl-
farið munu svo hefjast sérsamningar
úti um allt land með tilheyrandi deil-
um og látum eins og menn urðu vitni
að á Austfjöröum á dögunum," sagði
Óskar Vigfússon, formaður Sjó-
mannasambandsins, í samtali við DV
í morgun.
í síðustu viku töldu menn að sam-
komulag væri að takast í Verðlags-
ráði. Óskar segir að á síðustu fund-
um ráðsins hafi afstaða fiskkaup-
enda aftur á móti breyst og þeir vilja
ekki lengur tala um að tengja hluta
aflans við fiskmarkaði eða bónus-
greiðslur.
í gær var fundi Verðlagsráðs slitið
án þess að annar fundur væri boðað-
ur.
„Ætli menn vilji ekki reyna að
leysa málin nú með einhverju bak-
tjaldamakki? Ég tek hins vegar ekki
þátt í því,“ sagði Óskar Vigfússon.
-S.dór
Akureyri:
Vinnuslys hjá ÚA
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
Kona sem var aö vinna viö roð-
flettivél hjá Útgerðarfélagi Akur-
eyringa í gær lenti með hönd í vél-
inni og slasaðist nokkuð.
Að sögn lögreglunnar voru þrír
fingur konunnar illa leiknir eftir
slysið og tvísýnt hvort hún muni
halda þeim.
EskiQörður:
Samþykkti
samninginn
Félagar í Verkalýðsfélaginu Ár-
vakri á Eskifirði samþykktu nýgerð-
an kjarasamning á fundi í gær-
kvöldi. 39 voru með en 5 voru á móti.
„Það brutust ekki út nein fagnaðar-
læti. Það voru talsverðar umræður á
fundinum," sagði Hrafnkell A. Jóns-
son, formaður Árvakurs, þegar hann
var spurður um hug fundarmanna
til samningsins.
-sme
LOKI
Urðu þeir hjá Flying Tigers
flug-leiðir?
Flymg Tigers hætt
að lenda i Kef lavik
- óhóflegum afgreiðslugjöldum á Keflavikurflugvelli kennt um
Bandaríska flutningafyrirtækið fram í næstu viku með að fá fram einokunarhagsmuni sína.“ flugvelli. Afgreiðlugjald í Shannon
Flying Tigers er nú nær algerlega lækkun á afgreiðslugjöldum á Þá á það sinn þátt i breyttri stefnu er ura þriðjungur af því sem það
hætt að láta flugvélar sínar hafa Keflavíkurflugvelli," sagði Guð- Flying Tigers að félagið hefur síð- er á Keflavikurflugvelli.
viökomu á Keflavíkurflugvefli. mundur Þór Þormóðsson, umboðs- ustu vikur látið þotur af gerðinni „Þegar félagiö þarf að greiða hátt
Lendingar véla félagsins voru tíðar maður Flying Tigers á íslandi, í DC-10 fljúga á þessari leið í stað í þriðjung af því sem fæst í farm-
alltframímiðjanjanúarensíðustu samtali við DV. „Annað hvort Boeing 747 áður. DC þoturnar eru gjöld fyrir flutning héðan í af-
vikur hafa þær flogið yfir á leið verðaFlugleiðiraðgefaeftireinok- langfleygari og komast frá Japan greiðslu- og lendingargjöld þá er
sinni milli Evrópu og Japans. un sína á afgreiðslunní eða lækka til Evrópu um Alaska í tveimur það augljóslega of hátt hlutfall.
Ástæðan er rakin til þess að af- gjaldið fyrir hana. áfóngum og þurfa því ekki að lenda Þeir hjá Flying Tigers ætla því að
greiöslugjöld á Keflavíkurflugvelli Við höfum átt marga samninga- á íslandi. bíða með millilendingar hér og sjá
séu óbærilega há þannig að ekki fundi með Flugleiðamönnum og í haust, áður en DC þoturnar hvort ekki tekst að lækka af-
borgi sig að koma hér við til að reyntaðfáleiðréttinguenekkitek- voru teknar í notkun, bar þó nokk- greiðslugjöldin,“ sagði Guömund-
taka vörur. Flugleiöir sjá um af- ist. Næsta skref er að leita til ríkis- uð á því að þotur frá Flying Tigers ur Þór Þormóðsson.
greiöslu vélanna hér samkvæmt valdsins. Flugleiðamenn eru hefðu viðkomu í Prestvík í Skot- -GK
samningi við ríkisstjórnina. greinilegta tilbúnir að fórna hags- landi eða Shannon á írlandi í stað
„Viö getum ekki beðið lengur en munum þjóðarinnar til að verja þess að millilenda á Keflavíkur-
Það eru ekki bara bílarnir sem hiaða utan á sig tjöru í vetrarumferðinni. Umferðarskiltin fá líka sinn
skerf þannig að nú er svo korriið við helstu umferðargötur að þau sjást ekki. Starfsmenn borgarinnar
hafa því fengið það verkefni að tjöruþvo skiltin svo að menn sjái hvert þeir eru að fara.
DV-mynd Brynjar Gauti
Ófærir vegir
ruddir á
Vestfjörðum
í dag
Snjóruðningstæki frá Vegagerð-
inni byrjuðu snemma í morgun að
ryöja vegi á Vestfiörðum sem hafa
verið ófærir síðustu 2-3 vjkur. Byij-
að var að ryðja veginn inn ísafiaröar-
djúp um Steingrímsfiarðarheiði,
áleiðis til Hólmavíkur og að Brú.
Snjóruðningstæki lögðu upp frá
ísafirði og Hólmavík í morgun og var
gert ráð fyrir að flokkarnir mættust
síðdegis eða undir kvöld.
Einnig átti að ryðja Breiðadalsheiði
til Flateyrar og Þingeyrar. Á morgun
er gert ráð fyrir að leiðin um Botns-
heiði til Suðureyrar í Súgandafirði
verði rudd ef veður leyfir. í morgun
var veður mjög gott á norðanverðum
Vestfiörðum - stillt og bjart með eins
til tveggja stiga frosti.
Að sögn Kristins Jónssonar,
rekstrarstjóra Vegagerðarinnar á
ísafirði, var gert ráð fyrir að búið
yrði að ryðja leiðina til Hólmavíkur
seinnipartinn í dag. Hann sagði í
samtali við DV í morgun að búast
mætti við nokkurra metra háum
„snjógöngum" þegar búið yrði að
moka vegina, sérstaklega á Breiða-
dalsheiði. Leiðin frá ísafirði til
Hólmavíkur er um tvö hundruð og
fimmtíu kílómetra löng. -ÓTT
Veðrið á morgun:
Slydduél
við suður-
sfröndina
Á morgun verður hæg austlæg
átt og slydduél við suður- og suð-
austurströndina, en annars stað-
ar þurrt. Hitinn verður alls stað-
ar rétt undir frostmarki nema á
Suðurlandi þar sem hitinn fer
rétt yfir frostmark.
NÝJA
SENDIBÍLASTÖÐIN
68-5000
Hjálpið okkur að
styrkja SEM hópinn.
mmmm Þjóðar mmmm
SALIN
býr í Rás 2.
Nýtt númer:
68 60 90
FM 90,1 - útvarp með sál.