Dagblaðið Vísir - DV - 08.02.1990, Side 1
Sjónvarp og rás 2:
Handboltaveisla
Dagana 11.-15. febrúar verður
sannkölluð handboltaveisla hér
heima því á þessum dögum leikur
íslenska landshðið fimm landsleiki á
fimm dögum við Rúmeníu og Sviss.
Rúmenar mæta íslendingum í Laug-
ardalshöU sunnudaginn 11., mánu-
daginn 12. og þriðjudaginn 13. febrú-
ar. Við Svisslendinga verður keppt
miðvikudaginn 14. og fimmtudaginn
15. febrúar.
Sjónvarpið mun sýna frá þremur
leikjum í beinni útsendingu og verð-
ur fyrsta útsendingin á sunnudags-
kvöld kl. 20.35. Verður sýndur síðari
hálfleikur. Daginn eftir verður einn-
ig sýndur síðari hálfleikur í öðrum
leik Uðanna og á fimmtudagskvöldið
á sama tíma verður sýndur seinni
hálfleikur í seinni leik íslendinga og
Sviss. Öllum leikjunxun fimm verður
lýst á Rás 2 í heild.
íslendingar hafa oftsinnis leikið
gegn Rúmenum og hefur oftast verið
við ramman reip að draga enda hafa
Rúmenar ávallt staðið framarlega og
oftar en einu sinni orðið heimsmeist-
arar. Svisslendingar eru ekki eins
hátt sknfaðir og oftast höfum við
unnið þá, en þeir eru á uppleið og
tryggðu sér þátttökurétt í heims-
meistarakeppninni í Tékkóslóvakíu
sem hefst síðar í mánuðinum.
Aðrar beinar útsendingar í Sjón-
Mynd þessi er úr leik íslendinga og
Rúmena i heimsmeistarakeppninni
í Sviss 1986.
varpinu um helgina eru frá Flug-
leiðamótinu í borðtennis og frá leik
Norwich og Liverpool í ensku knatt-
spyrnunni.
-HK
Sjónvarp á laugardögum:
Sögur asnans
Nýr franskur teiknimyndaflokkur
fyrir böm í tíu þáttum hefur göngu
sína á laugardaginn í sjónvarpinu.
Nefnist hann Sögur asnans og er
Hér er asninn gáfaði ásamt nokkrum
vinum sínum.
byggður á samnefndri bók eftir
franska rithöfundinn Sophie
Rostopchine de Ségur og fjallar um
asna nokkum sem lítur um öxl og
rifjar upp viðburðaríka ævi. Asni
þessi er enginn venjulegur asni því
hann hefur það fram yfir aðra nafna
sína að skilja og geta lesið manna-
mál.
Þessi hæfúeiki hans gerir það að
verkum að hann getur komið upp
um þjófa, bjargað bömum úr eldi eða
frá drukknun og komistað alls konar
leyndarmálum sem öðram er ekki
ætlaö að heyra.
Þess má geta að bókin hefur komið
út í íslenskri þýðingu. Sögumaður
er Árni Pétur Guðjónsson.
Michael Caine fyrir miðju í hlutverki Kobba kviðristu virðir fyrir sér eitt fórnarlamb Kobba kviðristu.
Stöð tvö á fímmtudagskvöld:
Kobbi kviðrista
Kobbi kviðrista eða Jack the Ripp-
er, eins og hann heitir úti í heimi,
er frægasti fjöldamorðingi sem uppi
hefur verið. Þótt morðin, sem hann
framdi, hafi verið framin á nokkrum
vikum fyrir rúmum eitt hundrað
árum hafa þjóðsögurnar um Jack the
Ripper, morðingjann sem ekki
fannst, aldrei hjaðnað og lifa góðu
lífi enn í dag.
Jack the Ripper hefur orðið uppi-
staða nokkurra kvikmynda og hefur
þar ekki alltaf verið fylgt raunveru-
leikanum. í einni þeirra var hann
meira að segja látinn flýja í tímavél
inn í nútímann og fylgdi H.G Wells
honum eftir.
Nýjasta kvikmyndin um þennan
fræga morðingja er hin þriggja og
hálfs tíma sjónvarpskvikmynd Kobbi
kviðrista sem Stöð 2 mun sýna í
tveimur hlutum. Ekki frekar en í
öðrum kvikmyndum um Kobba upp-
lýsist hver morðinginn var í raun en
eins og áður er hér gengið út frá viss-
um staðreyndum og einni lausn sleg-
ið fram sem engar sannanir eru fyrir.
Það er Michael Caine sem leikur
aðalhlutverkið, lögregluforingjann
Frederick Abberlaine sem hefur
heitið því að ná til fjöldamorðingjans
sem hefur myrt fimm gleðikonur.
Lendir hann upp á kant við yfirmenn
sína og stjómmálamenn sem vilja að
lögreglan sýni einhvem árangur.
Aðrir þekktir leikarar, sem leika í
myndinni, eru: Jane Seymore leikur
teiknara við dagblað, hún reynir að
teikna morðingjann og er fyrrver-
andi ástkona Abberlaine. Armand
Assante leikur bandarískan leikara,
Richard Mansfield, sem hefur getið
sér gott orð í hlutverki Dr. Jekyl og
Mr. Hyde. Ray McAnaly leikur Sir
William Withey Gull, yfirlækni á
sj'úkrahúsi og sérfræðing í heilasjúk-
dómum og Susan George leikur eitt
fórnarlamba Kobba kviðristu.
-HK
Sjónvarp á sunnudag
Rafmagn í
Rafmagn í 75 ár er heimildarkvik-
mynd um Fjarðarselsveitu í Seyðis-
firði. Er rakin saga rafveitunnar og
Fjarðarárvirkjun. Stiklað er á stóru
um bakgmnn þeirra miklu fram-
kvæmda er áttu sér stað þar eystra
fyrir og eftir síðustu aldamót.
Jafnframt er rakin í stórum drátt-
um rafvæðing sem Edison-félagið
stóð fyrir, jafnt austan hafs sem vest-
an, ásamt upphafsatriðum við nýt-
ingu ryðstraumskerfa. Þá er tæpt á
ýmsum sagnfræðilegum merkisat-
burðum í sögu veitunnar.
Tilefni myndarinnar var 75 ára af-
mæh rafveitunnar og Fjarðarsels-
virkjunar í október 1988. Rafljósahá-
tiðin, er þá var haldin á Seyðisfirði,
er eitt meginþema í myndinni.
Fjarðarselsvirkjun og rafveitan á
Seyðisfirði er fyrtsa almenna raf-
veitan á íslandi og jafnframt ein
75 ár
fyrsta ryðstraumsveita á Norður-
löndum.
Klappfilm í Reykjavík gerði mynd-
ina. Kvikmyndatöku annaðist Þor-
björn Ágúst Erlingsson en hann ann-
aðist einnig klippingu og stjóm.
Einnig sá Ólafur Rögnvaldsson um
kvikmyndatöku en Páh Guðmunds-
son og Skúh Jónsson önnuðust hljóð
og ýmsa aðstoð.
Söngvakeppni Sjónvarpsins:
Hvaða lag fer til Júgóslavíu?
A laugardagskvöld ræðst hvaða
lag íslendingar munu að senda til
Júgóslavíu tíl keppni í Söngvakeppni
sjónvarpsstöðva í Evrópu. Sex lög
hafa verið valin af tólf til keppni á
laugardaginn og þótt atkvæði hafi
skipt mismunandi á milh laga segir
það ekkert um vinsældir hvers lags
því aht önnur dómnefnd en hefur
verið undanfarin laugardagskvöld
velur á mhli þessara sex laga og er
ómögulegt að geta sér til um hvaða
lag mun vinna.
Flestir eru á því að ekkert eitt lag
skeri sig úr. Lögin eru fyrst og fremst
jöfn, þótt deila megi um gæði þeirra.
Við birtum hér myndir af lagahöf-
undunum sex sem eiga hver sitt lag-
ið í keppninni. Einn þeirra fer örugg-
lega til Júgóslavíu í maí.
Lagahöfundarnir sex sem eiga lögin sem keppa til úrslita. Þeir eru hér í stafrófsröð eins og þeir hafa verið kynntir í Sjónvarpinu: Björn Björnsson, Friðrik Karlsson, Gunnar Þórðarson, Gísli
Helgason, Hörður G. Ólafsson og Magnús Þór Sigmundsson.