Dagblaðið Vísir - DV - 14.02.1990, Page 2

Dagblaðið Vísir - DV - 14.02.1990, Page 2
2 MIÐVIKUDAGUR 14. FEBRÚAR 1990. Fréttir Akureyrarbær keypti 15 íbúðir af fyrirtæki sem nú er gjaldþrota: Bærinn greiddi 37 millj- ónir án veðtrygginga - almenn krafa í búið, segir skiptaráðandi - teljum okkur eiga íbúðimar, segir forseti bæjarstjórnar Bæjarsjóður Akureyrar hefur höfðað mál gegn þrotabúi verktaka- fyrirtækisins Hýbýh. Bærinn keypti fimmtán íbúðir af byggingafyrirtæk- inu í húsi sem það var að byggja í Helgamagrastræti. Hýbýli er nú í gjaldþrotameðferð og eru kröfur í búið á þriðja hundraö milljónir króna. Kröfurnar hafa ekki allar ver- ið samþykktar en eigi að síður blasir við að kröfur í búið eru langt umfram eignir. Eftir að samningur milli Akur- eyrarbæjar og Hýbýlis hafði verið undirritaður hóf bærinn að borga inn til Hýbýlis. Alls hafði bæjarsjóð- ur greitt 37 milljónir króna þegar fyrirtækið varð gjaldþrota. Engu hafði veriö þinglýst á bygginguna eða lóð vegna greiðslna frá bæjarsjóði. Auk samningsins hafði bæjarsjóður ekkert annað en greiöslukvittanir í höndunum. Þegar til gjaldþrotsins kom gerði bærinn kröfu um að fá íbúðirnar af- hentar. Bústjórinn, Brynjólfur Kjart- ansson hæstaréttarlögmaður, hafn- aði því. Hans mat var að Akureyrar- bær væri rétt eins og hver annar íbúöarkaupandi. Hann ákvað að krafa Akureyrarbæjar verði tekin sem almenn krafa í búið. Við það sættu bæjaryfirvöld sig ekki og hafa höföaö mál vegna þessa. „Við erum með verksamning sam- kvæmt íslenskum staðli. Við erum sannfærðir um að við 'fáum þessar íbúðir afhentar," sagði Sigurður J. Sigurðsson, forseti bæjarstjórnar Akureyrar. Sigurður J. sagöi að bæjaryfirvöld væru ekki sátt við ákvörðun bústjór- ans og ekki hafi annað verið hægt en að höfða mál til þess að freista þess að fá íbúðimar fimmtán af- hentar. Sigurður J. sagði að aUt ann- að gilti um verksamning en kaup- samning. Bústjórinn hefur selt Akureyrarbæ þann hluta hússins sem óumdeilan- lega er í eigu þrotabúsins. Fyrir þann hluta greiðir bæjarsjóður tæpar 18 miUjónir. Ef Akureyrarbær tapar málinu hefur verið gert samkomiúag um að bærinn kaupi allt húsið. Þrír eigendur voru að HýbýU. Þeir koma með til með að tapa öUum sín- um eignum vegna gjaldþrotsins. Einn þeirra er Gísli Bragi Hjartar- son, en hann er bæjarfulltrúi Al- þýðuflokksins á Akureyri. -sme Ungur ökumaður slapp ómeiddur ettir að hafa misst vald á bíl sínum þegar hann beygði inn á Breiðholtsbraut við gatnamótin á nýju Reykjanesbrautinni í gær. Billinn endastakkst og endaði á hvolfi. Ökumaðurinn skreið síð- an ómeiddur út um afturgluggann á honum. Billinn er töluvert skemmdur og var fjarlægður með kranabíl. DV-mynd S Stemgrímur Hermannsson um yfírlýsingar ríkisskattstjóra: „Er ekkert annað en sýndarmennska“ „Þetta með helvítis kjaftæðið. Jú, það er rétt,“ sagði Steingrímur Her- mannsson forsætisráðherra þegar hann var spurður hvort rétt væru eftir honum höfð ummæli sem birst hafa í fjölmiðlum, síðast í Morgun- blaðinu í dag, þar sem hann segir að ummæli Garðars Valdimarssonar ríkisskattstjóra, um að ráðherrum beri að greiða skatta af notkun ráð- herrabíla, séu kjaftæði sem sé fyrir neðan allar hellur og fáránleg. „Ég hef vanist því að ef athuga- semdir eru gerðar við skatta ein- stakra manna þá er ekki hlaupið með það í fjölmiðla. Ég hef ekki fengið og ég kannast ekki við einn einasta ráð- herra sem hefur fengið bréf með at- hugasemdum. Hvers vegna er ekki farin þessi venjulega leið? Ég verð að gera athugasemdir við þessa ótrú- legu frétt ykkar í gær og samantekt- ina á henni, að telja til tekna hjá Halldóri Ásgrímssyni 50 eða 60 þús- und á mánuði af því það vill svo illa til að hann hirti bíl sem Albert Guð- mundsson keypti. Svona frétta- mennska er fyrir neðan allar hellur, ég verð aö segja þaö,“ sagði Stein- grímur Hermannsson. - Hefur Garðar Valdimarsson ekki verið að túlka þau lög sem þið hafið sett? „Jú, en hann verður að gera það á þann máta sem ber aö gera. Það er allt í lagi að hann túlki lögin. Hann á þá að skrifa viðkomandi bréf og lýsa því að hann telji ekki rétt talið fram. Hefur þú kynnst því að skatta- mál séu afgreidd í fjölmiðlum milli skattgreiðenda og skattayfirvalda? - En burt séð frá forminu? * „Ég er ekki frá því að ráöherrar eigi að greiöa eitthvað í skatta af þeim afnotum sem þeir hafa af bif- reiö til einkanota. Eg hef aldrei ve- fengt það. En þetta er ekkert annað en sýndarmennska," sagði Stein- grímur Hermannsson. -sme Vaktir í nótt með sírenuvæli Mikið og skerandi sírenuvæl vakti marga Suðurnesjabúa þegar viðvör- unarflautur vamarliðsins á Kefla- víkurflugvelli fóru í gang í nótt. Flautumar fóm tvisvar sinnum í gang á fjórða og fimmta tímanum í nótt. Stóð lúðrablásturinn yfir í fimmtán mínútur í hvort skipti. Varnarliðið var með æfingu. Að sögn lögreglu á Keflavikurflug- velli var ekki búið að láta vita af þessari æfingu. Friðþór Eydal, blaða- fulltrúi varnarliðsins, sagði hins veg- ar að búið hefði verið að tilkynna um æfinguna. -ÓTT Hinir nýju kjarasamningar verkfræðinga: Launaliðnum var sagt upp í gær - 10 prósent kauphækkunin gildir þó í einn mánuð Rikisstjom bra við hart í gær eftir að fulltrúar Alþýðusambandsins, Vinnuveitendasambandsins og opin- berra starfsmanna höfðu átt fund með henni vegna nýgerðra kjara- samninga verkfræöinga sem gerðu ráð fyrir 10 prósent kauphækkun. Steingrímur Hermannsson forsætis- ráðherra kallaði Pétur Stefánsson, formann Félags ráðgjafaverkfræð- inga, á sinn fund og lagði hart að honum að koma í veg fyrir að þessi launahækkun kæmi til fram- kvæmda. Pétur kallaði samninganefndir verkfræðinga þegar í stað til fundar um málið. Ekki náðist samkomulag og nýtti stjórn Félags ráðgjafaverk- fræðinga sér rétt í samningunum til að segja launaliðnum upp þegar í stað. Pétur Stefánsson sagði í samtali við DV að uppsagnarfresturinn væri •einn mánuður og því fá verkfræöing- ar þessa 10 prósent kauphækkun í mánuð. Pétur tók fram að það hefði alls ekki verið meiningin að eyði- leggja hinn merka samning sem aðil- ar vinnumarkaöarins gerðu á dögun- um. Verkfræðingar hefðu hins vegar gengið frá sínum samningum nokkr- um dögum fyrr. Viðbrögð ríkisstjórnarinnar voru einnig þau að óska eftir því við Verð- lagsstofnun að beita ákvæðum í lög- um til að koma í veg fyrir alla hækk- un á töxtum Félags ráðgjaverkfræð- inga. Einnig var ákveðið að banna ráðuneytum og ríkisfyrirtækjum að greiða hækkanir á þjónustu ráð- gjafaverkfræðinga og annarra hlið- stæðra aðila. Það má því segja að Félag ráðgjafa- verkfræðinga hafi verið þvingað til að segja launaliö kjarasamninganna upp. -S.dór Verðlagsstofnun grípur 1 taumana: Hámarksverð sett á þjónustu verkfræðinga Verðlagsráð var kallað til fundar um leið og ríkisstjórnin hafði leitað eftir því í gær hvort ekki væri hægt að beita ákvæðum laga um verðlag, samkeppnishömlur og óréttmæta viðskiptahætti til að koma í veg fyrir hækkanir á útseldri þjónustu ráð- gjafarverkfræðinga og annarra hlið- átæðra aðila. Og ráðiö ákvað þegar í stað að setja hámarksverð á þjónustu gjaldskrár ráðgjafarverkfræðinga. . Þá var jafnframt sett hámarksverð á gjaldskrá sjálfstætt starfandi sér- fræðinga sem byggja á kjarasamn- ingum milli Stéttarfélags verkfræð- inga og Félags ráðgjafarverkfræð- inga eða gjaldskrám Félags ráðgjaf- aiyerkfræðinga. í tilkynningu frá Verðlagsstofnun segir að þessum aðilum sé óheimilt að hækka gjaldskrár sínar fyrir hvers kyns útselda vinnu og þjón- ustu frá þvi sem var 31. desember síöastliðinn. Gilda því gjaldskrár þær sem þá voru í gildi sem há- marksgjaldskrár fyrir þjónustu þess- ara aðila. -S.dór Verðbólgan: Búin með fyrstu launahækkunina Framfærsluvísitalan hækkaði mn 1,6 prósent milli janúar og febrúar. Þessi hækkun jafngildir um 20,7 pró- sent verðbólgu á ársgrundvelli. Þeg- ar þrír síðustu mánuðir eru teknir saman er verðbólguhraðinn eilítið minni eða um 18,2 prósent. Samkvæmt verðbólguspá Alþýðu- sambandsins og vinnuveitenda var gert ráð fyrir að framfærsluvísitalan hækkaði um 1,5 prósent nú. Hækk- unin er því aðeins lítið eitt hærri. Eins og kunnugt er hækkuöu laun um 1,5 prósent 1. febrúar. Sú hækkun hefur næstum náð því að vega upp hækkun á verðlagi frá í fyrra mán- uði. -gse

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.