Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.1990, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.1990, Blaðsíða 2
2 FIMMTUDAGUR 1. MARS 1990. Fréttir Stórtjón þegar 380 volta rafspennu var hleypt á 13 hús við Álftanesveg; „Hélt að það væri að kvikna í húsinu“ - öll raftæki í gangi skemmdust eða eyðilögðust „Ég hélt satt aö segja aö þaö væri aö kvikna í húsinu. Það rauk úr ís- skápnum og frystinum og allar ljósa- perur píptu. Þetta var agalegt. Á end- anum höföu tvö sjónvarpstæki eyði- lagst, einn afruglari, myndbands- tæki, stór frystikista, ísskápur, elda- vél, ljós og útvarpsvekjari. Ég er meö sjö manna fjölskyldu svo ástandið er allt annað en gott. Ég sætti mig alls ekki viö aö elda á prímus,“ sagöi húsmóðir í byggöinni viö Álftanes- veg í Garðabæ í samtali við DV í gærdag. Það sem hún lýsir þannig varö þeg- ar 380 volta spennu var hleypt á hús- ið hennar í fyrradag. Var veriö að skipta um spenni fyrir þrettán hús við Álftanesveg í Garöabæ og vegna „mannlegra mistaka" eins og Jónas Guðlaugsson, rafveitustjóri í Hafnar- firöi, tjáöi DV var spennirinn þannig tengdur aö í staö 220 volta spennu fór 380 volta spenna inn í húsin. Afleiö- ingin varö sú aö öll rafmagnstæki, sem voru tengd og í gangi, skemmd- ust eöa eyöilögðust. Eftir viðtölum við íbúa að dæma er ekki fjarri lagi að áætla að heildartjónið vegna þess- ara mistaka nemi þremur til fjórum milljónum króna. Verulegt tjón „Ég var nýbúinn aö slökkva á tölv- Sveinn Torfi Sveinsson verkfræöingur við tölvuna sina. Hann brá sér óvænt frá og slökkti á tölvunni. Þaö bjarg- aði honum frá enn meira tjóni en varð þegar 380 volta spennu var hleypt á rafkerfi húss hans við Álftanesveg. DV-mynd GVA Spennirinn sem unnið var við í fyrradag. Vegna „mannlegra mistaka" skemmdust og eyðilögðust raftæki fyrir milljónir í þrettán húsum. DV-mynd GVA unni sem ég vinn daglega með þegar þetta geröist. Ég þurfti að bregða mér frá smástund og það hefur bjargað mér frá óhemju tjóni. Engu að síður er tjónið verulegt þar sem sjónvarpið skemmdist verulega, afruglarinn og gervihnattamóttakar- inn gereyðilögðust, símsvarinn og telefaxtækið biluðu, bílskúrshurða- opnararnir eru ónýtir og dyrasíminn og innanhússsíminn fóru alveg í rusl. Þá fór heill kassi af flúrperum. Þetta er verulegt tjón og ekki séð fyrir endann á því enn þar sem þau tæki, sem ekki gáfu sig, eins og ísskápur- inn, frystikistan og blásarinn í hús- hitunarkerfmu hjá mér, urðu fyrir miklu álagi. Tjón vegna álagsins getur verið lengi að koma fram og álagið styttir endingartíma tækjanna nokkuð,“ sagði Sveinn Torfi Sveinsson verk- fræðingur. Mannleg mistök Sveinn var nokkuð rólegur yfir þessu atviki. Hann haföi tryggt öll tækin og fengið heimsókn af trygg- ingamanni, starfsmanni raftækja- búðarinnar sem hann verslar við og fulltrúa rafveitunnar. Voru viöger- anleg tæki farin til viðgerðar. Þó hafði allt verið í hers höndum í fyrra- dag og fyrri hluta dagsins í gær. Var farið yfir allt rafkerfi hússins og lýk- ur því verki ekki fyrr en í dag. „Þetta voru mannleg mistök og við bætum allt það tjón sem varð vegna þeirra," sagði Jónas Guðlaugsson, rafveitustjóri í Hafnarfirði. Ekki eru allir íbúar í þessum þrett- án húsum meö viðeigandi tryggingu en rafveitan er tryggð gegn tjóni sem þessu. -hlh Bjór á íslandi 1 eitt ár: Ekki eins mikill hasar og margir bjuggust við - segir Úlfar Þóröarson á Gauki á Stöng í dag er eitt ár síðan 76 ára bjór- banni var aflétt á íslandi. Fyrir ári var mikil spenna og miklar umræður fyrir þennan dag. Fögnuðu menn ýmist eða máluðu skrattann á vegg- inn í áhyggjum yfir komu bjórsins. En hvernig hefur gengið á þessu ári sem er liðið með bjór á íslandi? „Við erum ánægðir með þetta ár. Fólk hefur tekiö bjómum eðlilega og ekki verið eins mikiil hasar og marg- ir bjuggust við í fyrra. Ef eitthvað er er minna vesen vegna drykkju hjá okkur eftir að bjórinn kom til sög- unnar,“ sagði Úlfar Þóröarson á Gauki á Stöng. Úlfar sagði að neysluhlutfailið í miðri viku væri 60/40 bjórnum í vil en um helgar gæfi bjórinn eftir. „Bjórinn þykir dýr og fólk vill fá sem mest alkóhól fyrir peningana. Kannski er aö komast jafnvægi á drykkjuna aftur.“ „Ef ég hefði ekki vitað að bjórinn væri kominn hefði ég ekki tekið eftir honum. Við höfum ekki merkt nein sérstök vandræði vegna bjórkom- unnar og finnst að það sé hvorki drukkið meira né minna en áður svona almennt talaö,“ sagði Árni Vigfússon, varðstjóri hjá lögreglunni í Reykjavík. í samtölum við Eirík Hannesson hjá Ölgerð Egils Skallagrímssonar og Sigurð Halldórsson hjá Sanitas kom fram ánægja meö bjórárið sem var aö líða og bjartsýni varðandi framtíðina. „Þetta dæmi hefur gengið vel hjá okkur og bjómum verið vel tekið. Það er ekki síst því að þakka að við lögðum ekki í neinar meiriháttar fjárfestingar. Það verður þó enginn ríkur af bjórframleiðslu. Hvað 'teg- undir varðar relknum við meö að landinn hallist æ meira að íslenskum bjór,“ sagði Eiríkur. í samtali við þá Eirík og Sigurð kom fram að alíslensku bjórtegund- irnar eru alls með rúmlega 20 pró- sent markaðshlutdeild. Á íslandi er talinn vera markaður fyrir 7-8 millj- ón bjórlítra árlega. -hlh 13 V Hæstiréttur: Grímuklædd- ir ræningjar dæmdir í 4 ára fangelsi Þrír menn hafa verið dæmdir í fjögurra ára fangelsi fyrir að hafa brotist inn á heimili aldraðra hjóna, ráðist að þeim og haft verðmæti á brott meö sér. Þaö var aðfaranótt sunnudags- ins 25. september 1988 að Gústaf Reinholt Gústafsson, Hallgrímur Pétur Gústafsson og Magnús Gunnar Baldvinsson réðust grímuklæddir inn í einbýlishús á Seltjamamesi, en þar búa öldruð lljón, og beittu heimilisfólkinu, líkamlegu ofbeldi. Húsbóndinn marðist á vinstra eyra og á stóm svæði á höfði ofan eyrans og vinstri vísifingur brotnaði og fór úr iiöi. Konan mjaömagrindar- brotnaöi við árás mannanna. Þremenningarnir höfðu á brott með sér um 15 þúsund krónur í peningum, gullhálsmen, 6 gull- hringi, 6 bjórdósir og 9 eða 10 áfengisflöskur. Verömætinfundu mennirnir eftir aö þeir hötðu neytt gamla fólkið með ógnunum til aö benda sér á hvar verömæti var að fmna. Eftir að þremenningamir yfir- gáfu húsið gat húsbóndinn við illan leik komist í næsta hús og látið vita af árásinni. Ræningj- arnir skám símasnúra í sundur áöur en þeir yfirgáfu heimili hjónanna. Auk fangeisisvistarinnar var mönnunum gert aö greiöa allan sakarkostnaö. Hæstiréttur staðfesti dóm Saka- dóms Reykjavíkur, Málið dæmdu hæstaréttardómararnir Guð- mundur Jónsson, Benedikt Biön- dal, Bjarni K. Bjarnason og Har- aldur Henrysson og Gunnar M. Guðmundsson settur hæstarétt- ardómari. -sme Akureyri: „Flótti“ úr rannsóknar- lögreglunni GyJfi Kristjánsson, DV, Akureyri: Órói innan rannsóknarlögregl- unnar á Akureyri hefur leitt til uppsagnar eins þriggja fastráö- inna starfsmanna rannsóknar- deildarinnar. Annar er farinn í ársleyfi og tekinn viö starfi bíl- stjóra við sendiráö íslands í London og sá þriðji, sem hefur stjórnað rannsóknarliðinu und- anfarin ár, hefur óskað eftir árs- leyfi. Þessir þrír eru þeir menn sem hafa skipað „lið“ rannsóknarlög- reglunnar á Akureyri undanfarin ár en síöan sl. sumar hefur Qórði maðurinn einnig starfað í rann- sóknarlögreglu bæjarins. „Þaö er fyrst og fremst vinnu- álag sem veldur þessu og einnig skilningsleysi, m.a. hjá ráðuneyt- inu. Inn í þetta blandast líka fleiri mál sem ég vil ekki ræöa í fjöl- miölum," segir Daníel Snorrason, yfirmaður rannsóknarlögregl- unnar og reyndasti maður henn- ar, en Daníel hefur sótt um árs- leyfi frá störfum. Fái Daníel ekki leyfið, sem hann hefur sótt um, segist hann íhuga að segja upp störfura. „Þaö getur komið upp slæmt ástand en það þarf ekki aö fara svo, þaö er enginn ómissandi,“ segir Erlingur Oskarsson yfirlög- regluþjónn. „Við erum bjartsýnir menn þótt úti sé hríð og látum hverjura degi nægja sina þján- ingu í þessu máli sem öörum," bætti Eriingur við.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.