Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.1990, Blaðsíða 32
LOKI
Þrjú tonn af pappír á einum fundi
-hvað skyldi Hallormsstaðar-
skógur endast þeim lengi?
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu
þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt-
ist eða er notað í DV, greiðast 2.000 krónur.
Fyrir besta fréttaskötið í hverri viku greiðast 5.000
krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við
fréttaskotum allan sólarhringinn.
Ritstjórn - Auglýsingar - Áskrift - Dreifing: Sími 27022
FIMMTUDAGUR 1. MARS 1990.
Mesta hætt-
an liðin hjá
„Hættan á snjóflóði hefur minnkað
það mikiö að við sjáum ekki lengur
ástæðu til aö hafa hættusvæðið lok-
að. Við höfum ekki alveg aflýst
hættuástandi ennþá þar sem erfitt
er að draga mörkin milli hættu-
ástands og eðlilegs ástands. Mæling-
ar á snjóalögunum benda þó til að
hættan sé að mestu liðin. En við vör-
um fólk við að vera á ferli í fjall-
inu,“ sagði Ásgeir Magnússon, bæj-
arstjóri á Neskaupstað og formaður
almannavarnanefndar, við DV í
morgun.
Stærstu atvinnufyrirtækin á Nes-
kaupstað eru á hættusvæðinu og því
geta hjólin fariö að snúast þar á ný
eftir stöðvun síðustu daga.
Engar samgöngur hafa verið við
Neskaupstað síðustu daga vegna
ófærðar en í gærkvöldi var Odds-
skarð rutt svo hægt væri að flytja
rafstöð til bæjarins. Skóf jafnharðan
í för hefilsins svo enn er ófært þang-
að. Farþegar til Neskaupstaðar hafa
verið fluttir þangað með varðskipi.
-hlh
Amarflug:
Svavar fær
meirihluta
„Mér finnst þaö þess virði að reyna
þetta. Ég er sannfærður um að það
er lag fyrir reksturinn ef það tekst
að semja viö lánardrottna félagsins.
Gamlar skuldir hafa fyrst og fremst
sligað rekstur félagsins," sagði Svav-
ar Egilsson kaupsýslumaöur í morg-
un. Stjóm Amarflugs hf. hefur gert
samkomulag við Svavar Egilsson og
nokkra aðra kaupsýslumenn sem
gengur út á að þeir komi með 200
milljóna króna hlutafé í félagið.
Hlutaíjárframlag þeirra er þó háð
því skilyrði að félaginu takist áður
að semja við alla lánardrottna þess
um ýmist niðurfellingu skulda eða
skuldbreytingar. Náist aö uppfylla
skilyrðin munu Svavar og félagar
eignast meirihlutann, atkvæðalega
séð, og stjórna félaginu.
Skuldir Arnarflugs voru í kringum
1 milljarður króna í lok síðasta árs.
Kristinn Sigtryggsson, forstjóri Arn-
arflugs, segir að þar af sé 150 milljóna
skuld við ríkissjóð, sem ríkið ákvað
fyrir um ári að gefa eftir, og ennfrem-
ur 150 milljóna króna söluhagnaður
af ríkisvélinni svonefndu, sem enn
hefur ekki verið færður inn í bækur
félagsins og lækkar skuldastöðuna
sem þvi nemur.
Hlutafé í Arnarflugi er nú um 360
milljónir króna. Gert er ráð fyrir að
Svavar og félagar með sínar 200 millj-
ónir eignist meirihlutann í félaginu
á þann hátt að gefinn verði út nýr
hlutabréfaflokkur með auknu at-
kvæðavægi til aö tryggja yfirtökuna.
-JGH
Elín Bima Harðardóttir, 34 ára húsmóðir:
D míkm mm AvtSv
mour onir
nýju hjarta
er í London ásamt systur sinni
Gunnar Sveinbjömsson, DV, London:
Elín Bima Harðardóttir, 34 ára
gömul, hefur verið i London frá því
í lok janúar. Hún er hjartasjúkling-
ur og biður þess aö nýtt hjarta fáist
og verði grætt í hana. Elín Birna
er gift og tveggja barna móöir. Fjöl-
skyldan býr í Reykjavík. Systir
hennar, Svava Harðardóttir, sem
er hjúkrunarfræðingur er með
henni í London.
Með öllu er óvist hvenær aögerð-
in verður þar sem beðið er eftir aö
hjarta fáist. Elín Bima gengur með
kalltæki á sér svo að sjúkrahúsið
geti haft samband við hana strax
og þörf er á.
Þær systur em í íbúð_ sem
Bromptonsjúkrahúsið á. Á þvi
sjúkrahúsi verður aðgerðin fram-
kvæmd. Það er sama sjúkrahús og
aðgerðimar voru gerðar á íslensku
hjartaþegunum Halldóri Haildórs-
syni og Helga Harðarsyni. Sami
læknir mun annast aðgerðina og
annaðist Halldór og Helga. Elín
Bima verður þriðji islendingurinn
sem grætt verður í nýtt hjarta.
Veðrið á morgun:
Snjóar
og rigmr
Á morgun verður vaxandi
sunnanátt með snjókomu og síð-
ar rigningu suðvestantil á
landinu og hlýnandi veður. Víða
hvasst vestanlands. Hitinn verð-
ur mismunandi á landinu. Allt
að 10 stiga frost á Austurlandi en
um það bil 5 stiga hiti á suðvest-
urhominu.
Fór 1 hrossaleit:
Veður- $
tepptur í |
nfudaga f
í Loðmund- g
arfirði
Nú árið er liðið... hefðu menn geta verið að syngja á krám borgarinnar í gærkvöldi. I dag er
einmitt eitt ár síðan bjórinn var leyfður á ný eftir 67 ára bann. í viðtölum DV við veitingamenn,
lögreglu og fleiri kom í Ijós að fólk hefði tekið bjórnum með jafnaðargeði og bjórárið liðið án þeirr-
ar upplausnar og æsings sem margir bjuggust við. Sigþór Sigurjónsson, veitingamaður á Kringluk-
ránni, fagnaði „árinu“ ásamt þessum herramönnum í gærkvöldi. - Sjá einnig bls. 2 DV-mynd gva
„Ég fór frá Borgarfirði eystra áí
mánudag í síðustu viku og er því|
búinn að vera hér í niu daga. Hér er
búiö að vera slæmt færi og til dæmis <
hefur verið vitlaust veður síðastliðna |
þrjá daga. Snjórinn er laus í sér ogj
þungfært. Mér hefur gengið erfðilega
á vélsleðanum því snjórinn er mjögj
laus í sér.
Ég er orðinn bensínlítill og á ekki?
mikið eldsneyti eftir á sleðanum.
Heim í Borgarfjörð eru 26 kílómetrar f
og ég held að ég eigi nú bensín fyrirp
þá ferð ef vel gengur og veðrinu slot-"
ar - þá færi ég leiðina sem nefnisfr
yfir háls og heiði,“ sagði Jón Sveins- [
son frá Borgarfirði eysta í samtali|
við DV en hann hefur verið veður-
tepptur í Loðmundaríirði í rösklegaá
eina viku.
Jón fór heiman frá sér í byrjun síð-
ustu viku á vélsleða til að huga að
42 hrossum sem hann á í Loðmund- í
arflrði. Hann er nú veðurtepptur og|
er einn í firðinum. Jón heldur til í»
öðru af tveimur húsum fjarðarins -
nánar til tekið þar sem kvikmyndinl
Eins og skepnan deyr var tekin upp. j
Jón hefur notað mikið að bensín-'
birgðum sem voru fyrir á staðnum
enda hefur sleðinn hans átt erfittj
með að komast áfram í þungu faetíj
og oft hefur hann fest.
„Ef ég hefði mjög mikinn áhuga á,
að fara til byggða kæmist ég núf
kannski. En hér er búin að vera|
helv... ófærð og snjókóf með hvass-
viðri. Það er því leiðinlegt færi tilg
íjallanna,“ sagði Jón. Aðspuröur um i
hvort fólki fyndist hann ekki hafal
verið lengi veðurtepptur og einsam-
all í burtu, sagði Jón: „Ég veit nú:
ekki hvort einhver er farinn að sakna f
mín. Mér leiðist aldrei. Ef maöur er'
skemmtilegur sjálfur þá er allt í lagi.
- Hvenær reiknar þú með að komast j
aftur til byggða?
„Ég ætla að reyna að taka hrossin ’
með mér til Borgarfjarðar. Ég hef,
gefið þeim fóðurblöndu og gras- j
köggla en ég reikna með að fara með j,
þau heim með mér þegar veðriö verð-
ur almennilegt. Þau ættu að rekast <
ágætlega. Mér skilst nú að hann spái \
allavega úrkomulausu á næstu dög-
um og þá sér maður til.
í húsinu þar sem Jón heldur til í |
er nægur matur og húsið er vel heitt. [
Segist hann hafa það ágætt og hlust-
ar á útvarp til að fylgjast með því sem
gerist í umheiminum. -ÓTT f
NYJA
SENDIBÍLASTÖÐIN
4
4
ý
ir
4
4
4
4
4
4
4
4
4
5
4
4
4
68-5000
Úti að aka
í 40 ár
4
4
4
BILALEIGA
v/FIugvallarveg
91-6144-00
i
4
4
\