Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.1990, Page 17

Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.1990, Page 17
16 FIMMTUDAGUR 1. MARS 1990. Iþróttir Sportstúfar Nokkrir leikir fóru fram í fyrrinótt í NBA-deild- inni í körfuknattleik. Meistaramir í Detroit léku á heimavelli gegn Houston og náðu að knýja fram sigur eftir fram- lengdan leik. Úrslit í leikjunum urðu þessi: New York-Dallas..........110-87 Orlando-Charlotte.......115-109 Detroit-Houston.........106-102 Indiana-New Jersey......118-113 Minnesota-Washington.....104-88 Chicago-Milwaukee........106-96 Phoenix-Denver..........120-101 Portland-Cleveland......118-105 LA Clippers-Seattle......103-99 Úrslit á mánudagskvöidið: Sacramento-SA Spurs.......96-105 Atlanta-Miami...........123-114 76ers-Orlando............129-110 Reykjarvíkurmótið í knattspyrnu Reykjarvíkurmótið í meistaraflokki karla í knattspymu hefst þriðjudag- inn 13. mars meö leik ÍR og KR. Leik- ið er í tveimur riðlum. í A-riðli leika ÍR, KR, Fylkir, Leiknir og Víkingur. í B-riðli Fram, Þróttur, Valur og Ármann. Allir leikirnir fara fram á gervigrasvellinum í Laugardal og lýkur mótinu meö úrslitaleik sunnu- daginn 13. maí. Heimsmet í 1500 m hlaupi hjá Bretanum Elliot Brétinn Peter Elliot setti í fyrrakvöld heimsmet í 1500 m hlaupi innanhúss á alþjóðlegu móti í Sevilla á Spáni. Elliot hljóp 1500 metrana á tímanum 3:24,21 mín. og bætti þar meö heimsmet Marcus O’Sullivan frá írlandi sem sett var fyrir rúmu ári. Ármann vígir fimleikagryfju Glímufélagið Ármann mun taka formlega í notkun glæsilega fim- leikagryfju í félgsheimili sínu við Sigtún á laugardaginn. í því tilefni verður sérstök opnunarhátíð þar sem fimleikafólk úr Ármanni sýnir hvemig nýta megi gryfjuna til aö auka hæfni sina. Hátíðin hefst kl. 11 og stendur til 11.40. Eftir það verður húsið opið fram eftir degi þar sem öllum er boðið að koma og prófa nýju gryfjuna. Frestað án vitundar Keflvíkinga Eins og fram kom í DV á mánudaginn var leikur Keflavíkur og Selfoss í 2. deild kvenna í hand- knattleik, sem fram átti að fara á laugardaginn, flautaður af þegar Selfossstúlkurnar voru ekki mættar til leiks. Selfyssingar höfðu samband við blaðið og sögðu að þeir hefðu fengið leiknum frestað en HSÍ hefði hins vegar láðst að tilkynna Keflvík- ingum það! Leikurinn fer því vænt- anlega fram síðar en Selfoss hefur þegar tryggt sér sæti í 1. deild kvenna næsta vetur eins og áður hefur verið sagt frá. Ævar til Keflavíkur Ægir Már Kárason, DV, Suðumesjum: Keflvíkingum hefur bor- ist góður liðsstyrkur fyrir 2. deildar keppnina í knattspymu í sumar. Ævar Finnsson, einn besti leikmað- ur Reynis í Sandgerði mörg undan- farin ár, hefur ákveðið að leika með þeim en Ævar er öflugur vamar- maður sem gæti komið Keflavíkur- liöinu að góöum notum. Haukarhefndu * ófaranna Haukar sigruðu á mánudagskvöldið b-Iið FH í bikarkeppni karia í hand- knattleik með 19 mörkum gegn 17 og tryggðu sér þátttökurétt í 16 liða úrslitum keppninnar. Keflavík er einnig komið þangað eftir sigur á b-liöi KR, 26-31, og Ármann, sem vann Ármann-b, 37-22, í gærkvöldi. í 3. deild karla tapaði Reynir fyrir b-liöi Gróttu, 26-29, Ögri tapaði fyrir ÍH, 27-34, og ÍS vann b-lið Hauka, 28-25. í 2. deild kvenna vann Aftur- elding sigur á ÍR, 22-24. Golfnámskeið á vegum Keilis Golfklúbburinn Keilir í Hafnarfirði hefur ákveö- ið að bjóða golfáhuga- mönnum upp á golfnám- skeið öll kvöld og helgar í áhalda- húsi klúbbsins en þar er verið að koma upp góðri aðstöðu til inniaef- inga. Leiðbeinandi verður Amar Már Ólafsson. Tíma þarf aö panta með góðum fyrirvara í síma 652895 eða 53360. Aðkoma að áhaldahúsinu er inn afleggjarann að Sædýrasafn- inu. Lyftingalandsliðið farið til Möltu Landslið íslands í lyfting- um hélt í morgun til Möltu þar sem þaö keppir á Evröpumóti smáþjóða um helgina. Liðið skipa fimm öflugir kappar, KR-ingamir Guðmundur Helgason, Ingvar Ingvarsson og Baldur Borgþórsson, Tryggvi Heim- isson frá Akureyri og Guömundur Sigurðsson úr ÍR. Georgíuliðin hætt í sovésku 1. deildinni Tvö sovésk 1. deildar lið í knatt- spyrnu, Dinamo Tiblisi og Guria Lanchkhuti, eru hætt í deildinni og ætla í staðinn að taka þátt i meist- arakeppni sovéska lýðveldisins Ge- orgiu. Tiblisi er eitt þekktasta félag Sovétríkjanna og varö til dæmis Evrópumeistari bikarhafa áriö 1981. Sigurður brást á örlagastundu Þórarmn Sigurðsson, DV, V-Þýskalandi: Vítakast, sem Sigurður Sveinsson brenndi af á lokasekúndunum, kost- aði Dortmund stig gegn Hameln í 2. deildinni í handknattleik á sunnu- daginn. Hameln vann, 17-16, í frá- bærum leik en Siguröur var í aðal- hlutverki hjá Dortmund og skoraði 8 mörk. Hann er markahæstur í norðurriðli deildarinnar með 124 mörk í 20 leikjum. Bjarni Guð- mundsson skoraði 2 mörk fyrir Wanne Eickel sem tapaði, 27-24, fyr- ir Kiel í úrvalsdeildinni. Körfuboltahátíð í Keflavík Ægir Mar Kárason, DV, Suðumesjum: Fjölbrautaskóli Suðumesja gengst fyrir körfuboltahátíð í íþróttahúsinu í Keflavík á morgun, fostudag, og hefst hún kl. 14. Erlendu leikmenn- irnir á Suðurnesjum, með Tommy Lee úr ÍR og Axel Nikulásson úr KR sér við hlið, leika við lið Fjölbrauta- skólans sem er aö mestu skipað úr- valsdeildarleikmönnum. í hálfleik verður troöslukeppni, súmóglíma og knattspymuleikur milli Stjörnuliðs Ómars Ragnarssonar og bandarísku körfuboltamannanna. Frakkar lögðu Vestur-Þjóðverja Frakkar sigruðu Vestur-Þjóðverja, 2-1, í vináttulandsleik í knattspymu sem háður var í Montpellier í gær- kvöldi. Andreas Möller skoraði fyrst fyrir Þjóðverja en Jean-Pierre Papin og Eric Cantona tryggðu Frökkum sætan sigur. Jafnt á Ítalíu Juventus og AC Milan gerðu marka- laust jafntefli í fyrri úrslitaleik lið- anna í ítölsku bikarkeppninni í knattspymu í gærkvöldi. Frank Rij- kaard, hollenski landsliðsmaðurinn hjá AC Milan, var rekinn af velli. Leikið var á heimaveUi Juventus í Torino en seinni leikurinn fer fram í Milano þann 25. apríl. Árshátíð KR Árshátíð KR-inga verður haldin í Átthagasal Hótel Sögu á laugardags- kvöldið. Húsið opnar kl. 19 en borð- hald hefst klukkustund síðar. Stórsigur Newcastle Newcastle styrkti stöðu sína í topp- baráttu ensku 2. deildarinnar í knattspymu í gærkvöldi með 3-0 sigri á Boumemouth. Brighton sigr- aöi Middlesboro, 1-0. Jafnt hjá St. Mirren Guðmundur Torfason og félagar í St. Mirren gerðu jafntefli, 1-1, við Clydebank i skosku bikarkeppninni í gærkvöldi. St. Mirren skoraði mín- útu fyrir leikslok en Clydebank jafn- aði 30 sekúndum síðar! Guðmundur var atkvæöamikill í sókn St. Mirren en náði ekki að skora. Liðin leika að nýju í Clydebank á mánudag. „Stórkostlegt í síðari hálfleik“ - þegar Spánverjar skelltu Júgóslövum Jón Kristján Sigurðsson, DV, Zlín: „Við lékum ekki vel í fyrri hálfleik og þá voru Júgóslavar mun betri. í síðari hálfleik tókst mínum mönnum vel upp og sýndu þeir þá stórkostleg- an leik,“ sagði Javier Cuesta, þjálfari spánska landsliðsins, eftir leik Spán- ar og Júgóslavíu hér í Zlín í gær- kvöldi en Spánverjar sigruðu þá heimsmeistara Júgóslava með 18 mörkum gegn 17. „Við erum farnir að byggja upp nýtt lið fyrir ólympíuleikana í Barc- elona árið 1992 og stefnum á stóra hluti þá. Ekki veit ég hvort við náum upp svona góðum leik aftur gegn ís- lendingum. Sá leikur verður örugg- lega jafn og spennandi," sagði Javier Cuesta í samtali við DV. „Mjög niðurdreginn“ „Ég er mjög niðurdreginn eftir þessi úrslit og þau eru mikið áfall fyrir mig. Mér fannst rauða spjaldið sem Isaakovic fékk vera mjög harður dómur. Ég reyndi nýja leikmenn í undirbúningi fyrir þessa keppni en þeir stóöu sig ekki vel. Að auki er mjög slæmt fyrir okkur að margir leikmenn landsliðsins leika utan Júgóslavíu. Af þeim sökum vantar liðið meiri samæfingu," sagði Jez- demir Stankovic, þjálfari júgóslav- neska liðsins, eftir tapið gegn Spáni. Besti árangur Spánar er 5. sætið í Sviss Spánverjar, andstæðingar íslend- inga í Zlín í kvöld, eru tiltölulega nýbyrjaðir að gera sig breiða á al- þjóðavettvangi í handknattleik. Þeir náðu verulegum árangri í fyrsta skipti þegar þeir höfnuðu í 5. sæti á ólympíuleikunum í Moskvu 1980, og í Sviss 1986 náðu þeir sínum besta árangri í heimsmeistarakeppni, tryggðu sér 5. sætið eftir sigur á ís- lendingum, 24-22. Spánveijar voru fyrst með í heims- meistarakeppninni í Austur-Þýska- landi árið 1958. Þeir töpuðu með gíf- urlegum mun fyrir Svíum og Pólverj- um en náðu að sigra Finna og höfn- uðu í 12. sæti. Eftir það komust þeir ekki í loka- keppnina fyrr en 1974. Þeir urðu þá neðstir í sínum riðh og höfnuðu í 13. sæti. Árið 1978 náðu þeir 10. sætinu, 1982 urðu þeir áttundu og loks í 5. sætinu í Sviss 1986. Á ólympíuleikum urðu þeir 15. árið 1972, fimmtu árið 1980, og 1984 höfn- uðu þeir í 8. sætinu. -VS HM-stúfar frá Tékkó Jón Kristján Sigurðsson, DV, Zlín: OPEL, vestur-þýsku bíla- verksmiðjurnar, eru aðal- styrktaraðilar heims- meistarakeppninnar í Tékkóslóvakíu. Á fundi með forráöa- mönnum liðanna í gærmorgun var ákveðið að hvert lið í keppninni yrði með auglýsingu fyrirtækisins á baki búninganna. Þegar Kúbumenn heyrðu þessa ákvörðun kom ekki til greina af þeira hálfu að bera merki OPEL á bakinu. Skýringin sem þeir gáfu var að þetta samræmdist ekki reglum í landi þeirra. Eftir málþóf var gengið að kröfu Kúbumanna, en þeir höíðu uppi hugmyndir að mæta ekki í leikinn gegn íslendingum ef þeir hefðu þurft að vera með auglýs- inguna á bakinu. Átta manna sendinefnd ermætttilZlín Átta manna sendinefnd frá borginni Granollers á Spáni er hér í Zlín. Til- gangur ferðarinnar er að kynna sér framkvæmd keppninnar hér í Tékkóslóvakíu en á ólympíuleikun- um í Barcelona 1992 fer handknatt- leikskeppnin fram í Granollers sem er skammt fyrir utan Barcelona. Verið er að byggja stóra íþróttahöll sem á að rúma 7000 áhorfendur í sæti. Mikilláhugi forsetans á íslendingum Forseti Granollers er yfir sig ánægð- ur með íslendingana, Geir Sveinsson og Atla Hilmarsson, sem leika með Granollers. Forseti félagsins sagði að það væri stefna félagsins í framtíð- inni að hafa tvo íslenska leikmenn hjá félaginu. íslendingar væru góðir í handknattleik og enn fremur í öll- um samskiptum. Bjarki bestur gegn Kúbumönnum Bjarki Sigurðsson var útnefndur besti leikmaður íslenska liðsins eftir leikinn gegn Kúbu af sérstakri dóm- nefnd. Duranona var valinn besti leikmaður kúbanska liðsins. Þeir spænsku trylltust Spænskir blaðamenn hlupu inn á völlinn þegar flautað var til leiksloka í leik Spánveria og Júgóslava í gær- kvöldi. gleði þeirra var slík að þeir kysstu og fóðmuðu leikmenn spánska liðsins en 26 spánskir blaða- menn fylgjast með keppninni hér í Zlín. A-riðill: Ungverjaland-Frakkland.....(9-7) 19-18 U: Marosi 7/2, lvancsik 4/1, Lehel 3. F: Debureau 6, Mabe 4/4. Svíþjóð-Alsír............(11-8) 20-19 S: Carlén 7, B. Jilsen 4/4, Wislander 3. A: Belhocine 9/5, Bendjemil 3, Bouanik 3. í dag mætast Alsír-Ungverjaland og Frakkland-Svíþjóö. B-riðill: Rúmenia-Suður-Kórea......(12-12) 26-24 Sviss-Tékkóslóvakía.......(6-4) 13-12 í dag ieika Svíss-Suður-Kórea og Rúmen- ía-Tékkóslóvakía. C-riðill: Spánn-Júgóslavía..........(6-9) 18-17 S: Cabanas 5, Altones 4, Melo 3. J: Smalagic 6, Vujovic 3, Portner 3. Ísland-Kúba..............(17-8) 27-23 í: Bjarki 6, Kristján 6, Guðmundur 4. / _ K: Duranona 7/3, Suarez 6. í dag leika Kúba-Júgóslavía og ísland- Spánn. D-riðill: Sovétríkin-Pólland.......(13-9) 26-21 Austur-Þýskaland-Japan....(18-7) 26-22 í dag leika Japan-Sovétríkin og Pólland- Austur-Þýskaland. HM-stúfar frá Tékkó Jón Kristján Sigurðsson, DV, Zlín: Spánverjar, sem mæta íslendingum kvöld, eru með blöndu af ungum og reyndum leikmönnum í sínum hópi. Sex koma úr 21 árs landsliðinu sem lék í heimsmeistarakeppninni í þeim aldursflokki á Spáni 1989. Fimm þeirra leika með Granollers, sama félagi og Geir Sveinsson, línumaður í ís- lenska liðinu, leikur með. Svipað lið Júgóslava Júgóslavar, sem eru núverandi heimsmeistarar, tefla nánast fram óbreyttu liði frá því í heims- meistarakeppninni í Sviss fyrir fjórum árum. Aðeins tveir sem þá voru með eru ekki í hópnum hér í Tékkóslóvakíu. Það eru þeir Holmertz og Mrkonja. Mile Isaakovic er leikjahæstur, hefur spilað 190 landsleiki. Jovica Cvetkovic á reyndar við meiðsli að stríða en er samt á leikmannalist- anum. Kovacs fékk leyfi Ungverski landshðsmaðurinn Peter Kovacs átti í hinu mesta basli með að fá sig lausan til að leika með ungverska hðinu hér í Tékkóslóvakíu en hann leikur með vestur-þýska liðinu Grosswald- stadt. Að endingu gaf hð hans sig þó og hann lék með Ungverjum í gærkvöldi er Ungverjar unnu eins marks sigur á Frökkum, 19-18. Mikil meiðsli hrjá bestu Júgóslavana Þjálfari júgóslavneska hðsins var ekki bjartsýnn á að Slavko Portner og Veselin Vujovic myndu leika gegn Kúbu í kvöld. Þeir eiga báðir við meiðsli að stríða eftir leikinn gegn Spánverjum. Þetta eru tveir af sterkustu leikmönnum liðsins. Portner er með sködduð krossbönd og Vujovic er slæmur í hné. Leikið við Lúxemborg knattspymulandsleikur í Lúxemborg 28. mars Nú hefur veriö ákveðiö að íslenska landshðið í knattspyrnu leiki landsleik gegn Lúxemborg 28. mars og verður leikurinn háður ytra. „Þaö er njjög mikilvægt fyrir okkur að spila sem flesta leiki og því er þessi leikur gegn Lúxemborg mjög kærkom- inn,“ sagði Eggert Magnússon, for- maður Knattspyrnusambands íslands, i samtali við DV. „Það er ljóst aö við höfum aðgang að öhum okkar bestu knattspyrnu- mönnum sem leika erlendis því þenn- an sama dag eru margir landsleikir á dagskrá hjá þeim þjóðum sem eru aö undirbúa lið sín fyrir heimsmeistara- keppnina í sumar. Bo Johansson landsliðsþjálfari mun koma til lands- ins 10. mars og fljótlega eftir það ætti að skýrast hvemig landshðshópurinn mun hta út. Hvað varðar ferðina til Bandarikjanna þá er Ijóst aö við mun- um leika einn leik gegn Bandaríkja- mönnum 8. apríl en viö erum að vinna í því að útvega annan leik og þá gegn landsliði Bermúda,” sagöi Eggert -GH FIMMTUDAGUR 1. MARS 1990. 25 pv íþróttii • Alfreð Gíslason reynir að brjóta sér leið i gegnum kúbönsku vörnina i gærkvöldi en stórskytturnar Julian Duran- ona (13) og Daniel Robert Suarez eru til varnar. Símamynd Ceteka/Reuter Sigurinn var í höfn f lefkMéi , . N - þegar ísland vann Kúbu, 27-23,1 fyrsta leik A-keppninnar Sagt eftir leikinn við Kúbu: Feginn að þessi er afstaðinn - sagði Bogdan Kowalczyk Jón Kristján Sigurösson, DV, Zlín: íslenska landsliðið í handknattleik steig mikilvægt skref hér á HM í gær er það sigraði landslið Kúbu. Loka- tölur urðu 27-23, eftir að íslenska lið- ið hafði haft yfirburðaforystu í leik- hléi, 17-8. íslendingar sýndu hreint frábæran leik í fyrri hálfleik, allt gekk upp og á köflum var hrein unun að horfa á leik hðsins. Dagskipun Bogdans landsliðsþjálf- ara var að keyra á fullum krafti á upphafsmínútunum. Eftir henni fóru leikmenn íslenska hðsins og voru leikmenn Kúbu í hlutverki músar- innar allan fyrri hálfleikinn. Leikur íslenska hðsins byggðist mikið á hornamönnunum og skiluðu þeir sínum hlutverkum frábærlega vel. Bjarki Sigurösson og Guðmund- ur Guðmundsson skoruðu nokkur skemmtileg mörk eftir fahegar leik- fléttur íslenska liðsins og eftir aðeins tíu mínútna leik var staðan orðin 5-1. íslendingar breikkuðu bihð jafnt og þétt og náðu mest 9 marka for- ystu. Þegar flautað var th leikhlés var ljóst að sigurinn var í höfn. Héldu ekki einbeitingu Nú var aðeins spurningin um að halda einbeitingunni í síðari hálfleik en því miður tókst það ekki. Hver sóknin af annarri fór í súginn, send- ingar misheppnuðust, stangarskot litu dagsins ljós og dauðafæri voru misnotuð. Á sama tíma gengu Kúbu- menn á lagið og söxuðu jafnt og þétt á forskot íslendinga. Kúbumenn skoruðu fimm mörk í röð, staðan orðin 18-14, og íslenska hðið skoraöi ekki mark í heilar tólf mínútur. Ekki bætti úr skák að Kristján Arason meiddist, fékk högg í andhtið, og varð að yfirgefa leikvölhnn um tíma. En sigur vannst og það var fyrir öllu í leik sem alhr voru lafhræddir við. Óhætt er að fullyrða að miklu fargi er létt af íslenska hðinu því meö þessum sigri má telja nokkuð öruggt að það hafi tryggt sér þátttökurétt í milliriðlunum en keppni þar hefst í Bratislava á mánudaginn. Þó má alls ekki vanmeta Kúbu- menn því þeir sýndu í leiknum í gærkvöldi að þeir geta bitið hressi- lega frá sér og staðið í hvaða höi sem er. Aldrei er að vita hvernig leikur- inn hefði þróast ef íslenska hðið hefði ekki náð yfirburðaforystu í byrjun. Þrátt fyrir þennan sigur skal varað við ahri bjartsýni því ekki má mik- ið út af bera svo allt fari í hund og kött. Bjarki leikfær í kvöld Guömundur Hrafnkelsson og Bjarki Sigurðsson voru bestu menn ís- lenska liðsins í gærkvöldi. Guð- mundur varði 15. skot og Bjarki var drjúgur í horninu. Bjarki meiddist undir lok leiksins en ekki alvarlega, og verður hann í leikhæfu ástandi gegn Spánveijum í kvöld. Kristján Arason átti einnig góðan leik og skoraði nokkur mikhvæg mörk með gegnumbrotum. Alfreð Gíslason skoraði ekki mark en bætti það upp með góðum varnarleik. Reyndar á allt liðið skilið hrós fyrir fyrri hálfleikinn. Erfiður leikur bíð- ur íslenska Uðsins gegn Spánverjum en ef það nær upp góðri vörn getur allt gerst. Dómarar í gærkvöldi voru Frakk- amir Cean Lelong og Gerhard Tanc- rez og er óhætt að segja að dómgæsla þeirra var til fyrirmyndar. • Mörk íslands: Bjarki Sigurðsson 6, Kristján Arason 6, Guðmundur Guðmundsson 4, Sigurður Gunnars- son 3, Geir Sveinsson 2, Sigurður Sveinsson 2/2, Þorgils Óttar Mathies- en 2, Héðinn Gilsson 1 og Valdimar Grímsson 1. • Duranona var markahæstur hjá Kúbu með 7 mörk en Robert Suarez kom næstur með 6 mörk. Jón Krislján Sigurðsson, DV, Zlin: „Það er stefnan hjá okkur, eins og oft hefur komið fram áður, að halda sætinu á meðal a-þjóða í handknatt- leik. Það kom upp kæruleysi hjá lið- inu strax í síðari hálíleik eftir að strákarnir höfðu náð yfirburðafor- ystu í leikhléi. Ég veit ekki ástæðuna fyrir þessu en þetta vill oft henda hjá liðinu,“ sagði Bogdan Kowalczyk við DV eftir leikinn gegn Kúbu. Hann bætti við: „Kúbumenn voru harðir í hom að taka í síðari hálfleik og í ofanálag var slæmt að missa Kristján og Bjarka út af vegna meiðsla en sem betur fer eru þau ekki alvarleg. Við vorum smeykir fyrir þennan leik. Kúbumenn eru sterkir og ég er feginn að þessi leikur er afstaðinn. Við förum til Bratislava enda hefur stefnan alla tíð verið tek- in þangað. í kvöld kemur ekkert ann- að til greina en sigur gegn Spán- verjum. Ég sá til Spánverja gegn Júgóslövum og þeir verða erfiðir við að eiga,“ sagði Bogdan. Kaffærðum þá í fyrri hálfleik „Við kaffærðum Kúbumenn í fyrri hálfleik en því miður náðum við ekki að sýna svipaðan leik í síðari hálf- leik. Markvörður Kúbu fór að verja frá okkur í dauðafærum og við það misstum við einbeitinguna,“ sagði Kristján Arason. „Það er samt fyrir öllu að vinna sigur og um leið var þungu fargi létt af okkur. Það kom fram taugaveikl- un í leik okkar í síðari hálfleik er lít- ið gekk. Við spiluðum vel upp á hornamennina og þeir stóðu sig vel. Kúbumenn gætu alveg tekið upp á því að sigra Júgóslavíu á góðum degi og við getum ekki afskrifað þá alveg strax. Það stefnir í hörkuleik gegn Spán- verjum. Spánverjar leika frábæran vamarleik en þjálfari liðsins hefur lagt mjög mikla áherslu á varnarleik- inn í undirbúningi liðsins fyrir HM. Markvarslan er sömuleiðis góð hjá hðinu og í hæsta gæðaflokki. Við veröum að ná toppleik til að sigra Spánverja. Viö sem leikum á Spáni þekkjum vel til leikmanna spánska hðsins og af þeim sökum verður bar- ist upp á líf og dauða,“ sagði Kristján Arason. Liðsstjóri Kúbu átti ekki von á meiru „Við gerðum fuUt af mistökum í þessum leik og það kom glögglega fram í leiknum gegn íslandi að okkur vantar meiri reynslu. Þegar á heild- ina er litið er ég ánægður með leik okkar manna og satt best að segja átti ég ekki von á rneiru," sagði Ro- berto Marino hðsstjóri Kúbu. Og hann bætti við: „íslendingar leika skemmtilegan og árangursrík- an handknattleik og liðið hefur yfii mikilli reynslu að ráða. Leikmenr íslenska liðsins þekkjast vel og er þaf ekki lítið atriði í heimsmeistara- keppni. Vonandi skánar leikur okkai með hverjum leik hér í Tékkóslóvak- íu,“ sagði Roberto Marino. Sóknarleikurinn í fyrri hálfleik gallalaus „Við náðum að sýna mjög góöan fyrr: hálfleik og þá gerðum viö út um leik- inn. Síðari hálfleikurinn var hins vegar mjög lélegur og þá hvarf ein- beitingin. Sóknarleikurinn í fyrri hálfleik var gallalaus,“ sagði Guðjór Guðmundsson, liðsstjóri íslenska liðsins. „Kúbumenn voru með sterkara lið en ég átti von á. Þeir eru með hávax- ið lið, snögga leikmenn og gáfust aldrei upp. Það er langur vegur fram- undan og leikirnir verða okkur mjög erfiöir. Það ætti samt að vera nokkuð ljóst að við erum komnir áfram i milliriðil. Ég vona að heilladísirnar verði með okkur allt til loka,“ sagði Guðjón. Farnir að hugsa um Spánverjana „Ég held að við höfum verið famir að hugsa um leikinn gegn Spánveij- um í síðari hálfleik. Þaö var aldrei liræðsla í liðinu fyrir leikinn gegn Kúbumönnum. Við keyrðum upp hraðann strax í upphafi leiksins en því miður misstum við taktinn í síð- ari hálfleik,“ sagði Guðmundur Guð- mundson í samtali við DV og bætti því við að hann vildi ekki spá neinu um framhaldið. Hef enga skýringu á kæruleysinu „Fyrri hálfleikurinn var góður en ég hef enga skýringu á kæruleysinu sem upp kom í fyrri hálfleik. Það er gífurlega erfitt að klára svona leik en ég var aldrei hræddur um að við myndum missa forskotið niður. Leikurinn gegn Spánverjum í kvöld verður mjög erfiður en ég er sæmi- lega bjartsýnn. Hafa ber þó í huga að okkur hefur oft gengið illa gegn Spánverjum,“ sagði Guðmundur Hrafnkelsson, markvörður íslenska liðsins. Skora aldrei mikið í fyrsta leik „Hvernig sem á því stendur hef ég aldrei skorað mikið í mínum fyrsta leik á stórmóti. Samt sem áður er ég nokkuð sáttur við minn hlut í leikn- um. Það er alltaf gott að vinna sigur. Það er ekki gott að halda svona stóru forskoti eins og við náðum í fyrri hálfleik og það kom mér á óvart hvað við lékum þá vel. Það Verður allt lagt undir í leiknum gegn Spánverjum,” sagöi Alfreð Gíslason.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.