Dagblaðið Vísir - DV - 09.03.1990, Page 7

Dagblaðið Vísir - DV - 09.03.1990, Page 7
FÖSTUDAGUR 9. MARS 1990. 23 Axel Nikulásson og félagar hans í KR skreppa til Sauðárkróks á sunnudag og leika gegn Tindastóli í úrvals- deildinni í körfuknattleik. Hér er Axel með knöttinn í leik gegn Þór sem leikur gegn Njarðvík. íþróttir helgarinnar: Fjórir leikir í úrvalsdeildinni á sunnudag - úrslitin á HM í SjÖnvarpinu - AC Mílan og Juventus á Stöð 2 Það verður ýmislegt um að vera í íþróttalífi landsmanna um helg- ina. Hér á eftir getur að líta það helsta sem er á dagskrá. Handbolti Það ekki mikið um að vera í meistaraflokkunum í handknatt- leik vegna keppni yngri flokka á hinum ýmsu stöðum. Tveir leikir eru í 3. deild karla, á fóstudag leika' í Digranesi UBK-B og Ögri og á laugardaginn leika á Húsavík Völs- ungur og ÍH. Heimsmeistarakeppn- inni í handknattleik lýkur á morg- un með úrslitaleik sem hefst kl. 15.30 og verður sýndur í beinni út- sendingu í Sjónvarpinu. Leikur ís- lands um sæti verður einnig sýnd- ur í Sjónvarpinu. Körfubolti Fjórir leikir eru í úrvalsdeildinni í körfuknattleik og fara þeir allir fram á sunnudaginn. Kl. 16 eru þrír leikir, UMFN og Þór leika í Njarðvík, Tindastóll og KR leika á Sauöárkróki og ÍR og ÍBK leika í Seljaskóla. Kl. 20 leika á Hlíðar- enda Valur og Reynir. í 1. deild kvenna eru þrír leikir um helgina. Á laugardag kl. 14 leika í Grindavík UMFG og ÍS og á sama tíma leika í Hafnarflrði Haukar og Njarðvík. Kl. 20 á sunnudag leika í Keflavík ÍBK og KR. í 1. deild karla eru þrír leikir á dagskrá. í kvöld leika í Digranesi UBK og ÍA og kl 14 á laugardag eru tveir leikir í Grundarfirði tekur Snæfell sem nýlega tryggði sér sæti í úrvalsdeildinni á móti ÍA og í Hagaskóla leika Léttir og UÍA. Blak Úrslitakeppninni í blaki verður fram haldið um helgina. Á laugar- dag fara fram tveir leikir í íþrótta- húsinu í Digranesi. Kl. 14 leika í karlaflokki HK og KA og strax á eftir, eða um kl. 15.15, leika UBK og KA í kvennaflokki. Á laugardag eru tveir leikir á dagskrá í 4-liða úrslitum bikar- keppninnar og fara þeir báðir fram á Neskaupstað. Kl. 14 leika í karla- flokki Þróttur Nes og Þróttur Reykjavík og strax á eftir eigast við kvennalið Þróttar Nes og Víkingur. Á sunnudag er síðan einn leikur á dagskrá í 4-liða úrslitum í bikar- keppni karla í blaki. Þá leika í Hagaskóla ÍS og KA og hefst leikur- inn kl. 14. Badminton Meistaramót Reykjavíkur í bad- minton fer fram á laugardag og sunnudag og verður spilað í TBR- húsinu. íþróttir í sjónvarpi Á Stöð 2 eru tveir íþróttaþættir um helgina. Á laugardag kl. 17 verður haldið áfram að kynna liðin sem leika um heimsmeistaratitil- inn í knattspyrnu á Ítalíu í sumar og í þættinum á laugardag verður lið Argentínu kynnt. íþróttaþáttur- inn á sunnudag hefst kl. 13.30. Það verður stórleikur á dagskrá þegar leikur Juventus og AC Mflan verð- ur sýndur í beinni útsendingu. Þá veröur leikur vikunnar í NBA- deildinni og að þessu sinni verður leikur LA Lakers og SA Spurs sýndur. Þá verða sýndar myndir frá deildarkeppninni í snóker, öld- ungamóti í frjálsum íþróttum og íslandsmótinu í rokkdönsum. í Ríkissjónvarpinu hefst íþrótta- þátturinn kl. 11.30 og stendur allt til kl. 18. heimsmeistarakeppninni í handknattleik verða gerð góð skil og sýndur veröur í beinni útsend- ingu leikurinn um 3. sætið kl. 12 og úrslitaleikurinn kl 15.30. Þá verður leikur íslands um sæti í keppninni á dagskrá. Einngig verða sýndar myndir frá íslands- mótinu í kraftlyftingum, meistara- golfi, og úrslit dagsins kynnt. -GH AUGLÝSING FRÁ MENNTAMÁLARÁÐUNEYTINU Starfsemi Iðnfræðsluráðs, sem var á Suðurlandsbraut 6, hefur verið færð í framhaldsskóladeild menntamálaráðuneytisins í Sölvhóli, Sölvhólsgötu 4, Reykjavík. Sími 609500. Reykjavík 6. mars 1990 Menntamálaráðuneytið Lögtaksúrskurður Lögtök fyrir gjaldföllnum en ógreiddum fasteigna- gjöldum, útsvörum, fjallskilum og byggingarleyfis- gjöldum til Lundarreykjadalshrepps fyrir árið 1989 auk eldri gjalda ásamt kostnaði, áföllnum og áfall- andi svo og dráttarvöxtum mega fara fram á kostnað gjaldanda að liðnum átta dögum frá birtingu auglýs- ingar um úrskurð þennan. Oddviti Lundarreykjadalshrepps Smáauglýsing í Helgarblað þarf að berast fyrir kl. 17 föstudag!!! 27022 SAMVINNUHASKOLINN REKSTRARFRÆÐI Samvinnuháskólapróf í rekstrarfræðum miðar að því að rekstrarfræðingar séu undirbúnir til forystu-, ábyrgðar- og stjórnunarstarfa í atvinnulífinu. Inntökuskiiyrði: Stúdentspróf af hagfræði- eða við- skiptabrautum eða lokapróf í frumgreinum við Sam- vinnuháskólann eða annað sambærilegt nám. Viðfangsefni: Öll helstu svið rekstrar, viðskipta og stjórnunar, s.s. markaðarfræði, fjármálastjórn, starfs- mannastjórn, stefnumótun, lögfræði, félagsmála- fræði, samvinnumál o.fl. Námstími: Tveir vetur, frá september til maí. Frumgreinadeild til undirbúnings rekstrarfræðanámi. Inntökuskilyrði: Þriggja ára nám á framhaldsskólastigi án tillits til námsbrautar. Viðfangsefni: Bókfærsla, hagfræði, tölvugreinar, enska, íslenska, stærðfræði, lögfræði, félagsmála- fræði og samvinnumál. Einn vetur. Aðstaða: Heimavist og fjölskylubústaðir á Bifröst í Borgarfirði ásamt vinnustofum, bókasafni, tölvubún- aði o.fl. Barnaheimili og grunnskóli nærri. Kostnaður: Fæði, húsnæði og fræðsla áætluð um 35.000 kr. á mánuði fyrir einstakling næsta vetur. Umsóknir: Með bréfi til rektors Samvinnuháskólans á Bifröst. Umsókn á að sýna persónupplýsingar, upplýsingar um fyrri skólagöngu með afriti skírteina og um fyrri störf. Tvenn skrifleg meðmæli fylgi. Veitt er innganga umsækjendum af öllu landinu. Þeir umsækjendur ganga fyrir sem orðnir eru eldri en 20 ára og hafa öðlast starfsreynslu í atvinnulífnu. Nám- ið hentar jafnt konum sem körlum. Umsóknir verða afgreiddar 25. apríl og síðan eftir því sem skólarými leyfir. Samvinnuháskólanám er lánshæft. SamvinnuháskóHnn á Bifröst, 311 Borgarnes - sími 93-50000.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.