Dagblaðið Vísir - DV - 30.03.1990, Blaðsíða 3
FÖSTUDAGUR 30. Mfi§'Í990.
19
Dans-
staðir
Ártún
Vagnhöfða 11
Gömlu dansarnir fóstudagskvöld kl.
21-3 og laugardagskvöld kl. 22-3.
Hljómsveitin Danssporiö leikur fyrir
dansi bæöi kvöldin.
Bjórhöllin
Gerðubergi 1
Opið öll kvöld frá kl. 18-1 og um helg-
ar til kl. 3. Lifandi músík fimmtu-
dags-, fóstudags-, laugardags- og
sunnudagskvöld.
Casablanca
Skúlagötu 30
Diskótek fóstudags- og laugardags-
kvöld.
Duus-hús
Fischersundi, sími 14446
Diskótek fóstudags- og laugardags-
kvöld. Á sunnudagskvöld verður
hljómsveitin Súld meö tónleika sem
hefjast kl. 21.30.
Fjörðurinn
Strandgötu 30, simi 50249
Hljómsveit leikur fyrir dansi föstu-
dags- og laugardagskvöld.
Danshúsið Glæsibær
Álfheimum, sími 686220
Danshljómsveitin leikur fyrir dansi
fóstudags- og laugardagskvöld.
Danshöllin
Ingimar Eydal leikur á þriðju hæö,
Klakabandiö á annarri hæö og diskó-
tek er á fyrstu hæð.
Gikkurinn
Ármúla 7, simi 681661
Lifandi tónlist um helgar. Blúskvöld
á sunnudagskvöld. Blue Movies leik-
ur. Gestur kvöldsins Ellen Kristjáns-
dóttir.
Hollywood
Ármúla 5, Reykjavik
Diskótek fóstudags- og laugardags-
kvöld.
Hótel Borg
Pósthússtræti 10, Reykjavík, sími
11440
Diskótek fóstudags- og laugardags-
kvöld.
Skálafell, Hótel Esja,
Suðurlandsbraut 2, Reykjavík, sími
82200
Dansleikir fimmtudagskvöld til laug-
ardagskvölda. Tískusýningar öll
fimmtudagskvöld. Hallbjöm Hjartar-
son skemmtir á laugardagskvöldum.
Opið öll kvöld vikunnar kl. 19-1.
Hótel ísland
Ármúla 9, sími 687111
Hljómsveitin Stjórnin leikur fyrir
dansi um helgina.
Hótel Saga
Á laugardagskvöldiö verður sýnd
skemmtidagskráin „Skemmtisigling
á þurrn landi" í Súlnasal. Nokkrir
af fremstu skemmtikröftum landsins
hrífa gesti með sér í bráðhressandi
skemmtun. Hljómsveitin Einsdæmi
leikur fyrir dansi.
Keisarinn
v/Hlemmtorg
Diskótek fóstudags- og laugardags-
kvöld.
Risið og Ölkráin,
Borgartúni 22,
Eins árs afmæhstónleikar stórhljóm-
sveitarinnar Júpíters í kvöld. Einka-
samkvæmi laugardagskvöld.
Hljómsveitin „Rödd að handan" leik-
ur á Ölkránni fóstudags- og laugar-
dagskvöld. Ölkráln opin öll kvöld
vikunnar.
Staupasteinn
Smiðjuvegi 14D, s. 670347
Diskótek föstudags- og laugardags-
kvöld.
Tunglið og Biókjallarinn
Lækjargötu 2, simi 627090
Diskótek fóstudags- og laugardags-
kvöld.
Ölver
Álfheimum 74, s. 686220
Opið fimmtudags-, fóstudags-, laugar-
dags- og sunnudagskvöld. Hljóm-
sveitin Hrím leikur um helgina.
Þessi útgáfa af Júpiters var við lýði í fyrrasumar.
> Risið:
Arsafmæli Júpiters
Stórhljómsveitin Júpiters er árs-
gömul um þessar mundir. Af því
tilefni efnir hljómsveitin til af-
mælistónleika í Risinu, Borgartúni
32 (í gamla Klúbbnum), í kvöld kl.
23.00. Boðið verður upp á smárétti
á vægu verði.
Óhætt er að segja að fáar hljóm-
sveitir hafi vakið jafnmikla eftir-
tekt hér á landi eins og Júpiters.
Allt frá því hún kom fyrst fram
fyrir ári hefur hún heillað marga
með skemmtilegri tónlist sem sæk-
ir mikið í suður-amerískan og af-
rískan uppruna. Sveitin er fjöl-
menn, aldrei undir tíu manns og
þó nokkrar mannabreytingar hafi
verið þá hefur hún haldið sínu
striki og hafa hlustendur skemmt
sér vel sem og meðlimirnir sjálfir
því greinilegt er þegar hlustað er á
hljómsveitina að meðlimirnir hafa
gaman af því sem þeir eru að gera.
listaklúbbur Fjölbrautaskóla Vesturlands:
ímyndunarveikin
Listaklúbbur Nemendafélags
Fjölbrautaskóla Vesturlands á
Akranesi frumsýnir á laugardags-
kvöld kl. 20.30 gamanleikinn
ímyndunarveikina eftir franska
leikritaskáldið Mohére. Verkinu er
leikstýrt af Helgu Brögu Jónsdótt-
ur og um húninga og leikmynd sér
Helena Guðmundsdóttir.
Uppsetning leikritsins er frá-
brugðin öðrum uppsetningum að
því leyti að aðstandendur sýning-
arinnar hafa kosið að halda sig
ekki við neinn ákveðinn tíma í sög-
unni.
Þetta er ellefta uppsetning hsta-
klúbbsins og er áhugi fyrir leikhst
mikhl í skólanum. Alls standa
fjörutíu manns að uppsetningunni.
Eins og áður segir er frumsýning á
Hluti hópsins sem stendur að ímyndunarveikinni.
laugardag, önnur sýning er á þriðjudag. Allar byrja sýningarnar
mánudaginn og þriðja sýning á kl. 20.30.
Björgun '90
Björgun ’90 er yfirskrift viðamik-
illar ráðstefnu og sýningar sem
Landssamband hjálparsveitar
skáta gengst fyrir á Hótel Loftleið-
pm í Reykjavík frá og með fóstu-
degi th sunnudags. Þar flytja helstu
sérfræðingar landsins og fleiri
landa erindi um björgunar-, örygg-
is-, og almannavarnamál og yfir
þrjátíu fyrirtæki sýna alls konar
vörur fyrir björgunarþjónustuna.
Stofnanir sem starfa á þessu sviði
verða með opið hús fyrir þátttak-
endur og almenning þessa daga,
má þar nefna Almannavarnir rík-
isins, Slysavarnafélag íslands,
Landhelgisgæslan og björgunar-
stöövar Flugbjörgunarsveitarinn-
ar og Hjálparsveitar skáta í Reykja-
vík.
Ráðstefnan hófst kl. 10 í morgun
með setningarávarpi Davíðs Odds-
sonar borgarstjóra sem er verndari
Björgunar 90 og lýkur með opnu
húsi og pallborðsumræðum um
björgunarmál síðdegis á sunnu-
dag.
Casablanca:
Danssýning
Á skemmtistaðnum Casblanca
verður frumflutt ný danssýning í
kvöld. Það eru sex manns sem taka
þátt í sýningunni sem kahast
Whats Your Favorite Color? eða
Hver er uppáhaldsliturinn þinn?
Stjórnandi hópsins og danshöfund-
ur er Cornell Ivey sem starfar um
þessar mundir hjá Dansstúdíói Sól-
eyjar og eru dansararnir allir það-
an og skiptist hópurinn jafnt á kyn-
in. Sýningin tekur um það bil tólf
mínútur.
Langholtskirkja:
Lúðrasveit
verkalýðsins
Lúðrasveit verkalýðsins heldur
tónleika í Langholtskirkju laugar-
daginn 31. mars 1990 kl. 17.00.
Stjórnandi er Jóhann Ingólfsson. Á
efnisskrá eru lög eftir Jónatan Ól-
afsson, Jón Múla Árnason, Sigfús
Einarsson, Árna Björnsson, Gunn-
ar Þórðarson, Magnús Eiríksson,
Sveinbjörn Sveinbjörnsson, Karl
O. Runólfsson, Sousa, W. Rimmer,
Rimsky-Korsakoff og A. Matt. Tón-
leikarnir eru öllum opnir og er
aðgangur ókeypis.
Djass í Heita pottinum
Dorgveiði-
keppni á
Ljósavatni
„Það er feiknalega mikil
stemning fyrir þessari dorg-
veiðikeppni héma hjá okkur og
hafa margir spurt um hana,“
sagði Bjöm Sigurðsson á Akur-
eyri í vikunni en dorgveiöi-
keppnin verður haldin á Ljósa-
vatni í Suður-Þingeyjarsýslu á
laugardaginn. „Vetraríþrótta-
hátiðin sem stendur yflr hérna
núna, fellur vel inn í þessa
keppni. Það eru margir að-
komumenn hérna og sumir
þeirra Iiafa eflaust áhuga á
veiði. Kannski náum við 100
manns á Ljósavatn, það yrði
góður árangur,“ sagði Björn
ennfremur.
Bærinn Ijósavatn heitir eftir
samnefndu vatni sem í Ljósa-
vatnsskarði og er vatnið það
annað stærsta í héraðinu. Ýms-
ir merkismenn hafa fæðst og
búið að Ljósavatni, en hvort það
muni eitthvað duga í dorgveið-
inni er ekki vitaö með vissu
ennþá.
Það er ferðaskrifstofan Nonni
á Akureyri sem býöur upp á
pakkaferðir á dorgveiöikeppn-
ina fyrir þá sem vilja koma.
-G.Bender
Kvartett Kristjáns Magnússonar
mun leika fyrir djassþyrsta gesti í
Heita pottinum í Duushúsi á
sunnudagskvöldið. Hljómsveitina
skipa auk Kristjáns, sem leikur á
píanó, Þorleifur Gíslason, sem leik-
ur á saxófónn, Guðmundur R. Ein-
arsson á trommur og Tómas Ein-
arsson á kontrabassa.
Álafosskórinn heldur sína árlegu
tónleika í Safnaðarheimilinu í Mos-
fellsbæ, Þverholti 3, þriðju hæð,
laugardaginn 31. mars kl. 17.00 og
í Selfosskirkju sunnudaginn 1.
apríl kl. 16.00. Á efnisskránni eru
lög úr ýmsum áttum, bæði innlend
Þeir félagar hafa leikið saman um
nokkurra ára bil og starfað reglu-
legar en flestar íslenskar sveitir af
þessum toga. Á endurnýjaðri efnis-
skrá sveitarinnar er að finna lög
eftir Horace Silver, Frank Foster,
Dexter Gordon og fleiri. Tónleik-
arnir hefjast kl. 21.30.
og erlend. Þrír kórfélagar fara með
einsöngshlutverk.
í Álafosskórnum syngja nú 27
félagar. Söngstjóri er Helgi R. Ein-
arsson og undirleikari Hrönn
Helgadóttir.
Keppendur verða um tuttugu á
íslandsmeistaramótinu í vaxtar-
rækt.
Hótel ísland: ,
íslandsmeist-
aramótið í
vaxtarrækt
íslandsmeistaramótið í vaxtar-
rækt verður haldið á sunnudaginn
á Hótel íslandi. Forképpnin hefst
kl. 14.00 en úrslitakeppnin er um
kvöldið og hefst kl. 20.00. Keppt er
í nokkrum flokkum. í kvennaflokki
er keppt í -52 kg, -57 kg, +57 kg
og heildarkeppni. í karlaflokki er
keppt í -70 kg, -80 kg, -90 kg og
+ 90 kg og heildarkeppni.
Kynnir á mótinu verður enginn
annar en Jón Páll Sigmarsson.
Álafosskórinn.
Álafosskórinn með tónleika