Dagblaðið Vísir - DV - 30.03.1990, Page 7
FÖSTUDAGUR 30. MARS 1990.
23
Verður Bubbi
íslandsmeistari
í lyftingum?
- mikið um að vera í íþróttunum hér innanlands um helgina
Bubbi Morthens poppsöngvari verður á meðal þátttakenda á íslandsmót-
inu í ólympiskum lyftingum sem fram fer i Garðaskóla (Garöalundi) á
laugardag.
Íslandsmótið í ólympískum lyft-
ingum fer fram í Garðaskóla
(Garðalundi) um helgina, nánar til-
tekið á laugardag. Allir bestu lyft-
ingamenn landsins mæta til móts-
ins og þar með taldir þeir lyftinga-
menn sem skipuðu landslið íslands
sem varð Evrópumeistari smá-
þjóöa á Möltu í byrjun þessa mán-
aðar.
Af einstökum keppendum má
nefna Harald Ólafsson, LFA, Guð-
mund Helgason, KR, Baldur Borg-
þórsson, KR, og Guðmund Sigurðs-
son, ÍR. Þá má geta þess að popp-
söngvarinn Bubbi Morthens verð-
ur á meðal keppenda og telja fróðir
menn aö hann muni koma til með
að blanda sér í baráttuna um ís-
landsmeistaratitilinn í 75 kg flokki.
Keppendur frá fimm félögum eru
skráðb' til leiks.
Handknattleikur
Heil umferð fer fram að venju í
1. deild karla í handknattleik. KA
og KR leika á Akureyri, Stjarnan
tekur á móti HK í Garðabæ, Víking-
ur leikur gegn toppliði FH í Laugar-
dalshöll, IR mætir Val í Seljaskóla
og loks leika Grótta og ÍBV á Sel-
tjamarnesi. Allir leikirnir heíjast
klukkan 16.30 á laugardag.
• í 2. deild karla fara fram þrír
leikir á sunnudag. Þór og B-lið
Vals leika á Akureyri klukkan
20.00, B-Uð FH mætir Keflavík í
Hafnarfírði klukkan 18.00 og loks
leika Haukar og Njarðvík á sama
stað klukkan 19.15.
• Fjórir leikir eru á dagskrá í 1.
deild kvenna. Nýkrýndir íslands-
meistarar Fram leika gegn Stjörn-
unni í Laugardalshöll á laugardag
klukkan 13.30 og klukkan 15.00
leika Víkingur og KR í Höllinni.
Loks leika Valur og FH klukkan
16.30 á laugardag að Hlíðarenda. Á
sunnudagskvöld klukkan 20.30
leika síðan Haukar og Grótta í
Hafnarfirði.
Skíði
í dag, fostudag, fer fram á skíða-
svæöinu í Böggvisstaðafialli við
Dalvík, FlS-mót í stórsvigi kvenna
og svigi karla. Mót þetta er liður í
Vetraríþróttahátíðinni nyrðra en
meginefni hátíðarinnar fer fram á
Akureyri eins og kunnugt er. Búist
er viö góðri þátttöku og eru nokkr-
ir erlendir skíðamenn þar á meðal.
Blak
Deildakeppninni í blaki lauk um
síðustu helgi en enn er eftir að
ljúka bikarkeppninni. Tveir leikir
fara fram í kvennaflokki um helg-
ina og leika KA og Breiðablik tví-
vegis á Akureyri. Fyrri leikurinn
fer fram á fostudag klukkan 20.00
í íþróttahöllinni og sá síðari í
íþróttahúsinu í Glerárhverfi
klukkan 12.00 á laugardag.
Knattspyrna
Tveir leikir fara fram í Reykja-
víkurmótinu í knattspymu um
helgin. Leiknir og KR eigast við á
Gervigrasvellinum í Laugardal
klukkan 17.00 á laugardag og á
sunnudagskvöld klukkan 20.30
leika Valur og Þróttur.
íþróttaþáttur Sjónvarps
íþróttaþáttur Sjónvarpsins er að
venju á dagskrá á laugardaginn
klukkan 14.00-18.00. Enska knatt-
spyrnan verður í hávegum höfð og
sýnt verður beint frá leik Liverpool
og Southampton. Einnig verður
sýnt beint frá íslandsmótinu í
handknattleik og hugsanlega verð-
ur vetraríþróttahátíðin nyrðra og
meistaragolf á dagskrá. Bjarni Fel-
ixson hefur umsjón með þættin-
um.
Sýningar
Listasafn Sigurjóns
Ólafssonar
Laugarnestanga 70
Þar stendur yfir sýning á verkum er Sig-
urjón gerði á árunum 1960-62. Þetta eru
aðallega verk úr jámi. Þá eru einnig sýnd
aðfóng og gjafir sem safninu hafa borist
undanfarin ár, þar á meðal myndir frá
árunum 1936-46 sem hafa verið í einka-
eign í Danmörku. Sýningin, sem mun
standa uppi í vetur, er opin laugardaga
og sunnudaga kl. 14-17 og öll þriðjudags-
kvöld kl. 20-22.
Sjóminjasafn íslands
Vesturgötu 8
Hafnarfirði sími 52502
Opið laugardaga og sunnudaga kl. 14-18
eða eftir nánara samkomulagi í síma
52502.
Póst- og símaminjasafnið
Austurgötu 11
Opið á sunnudögum og þriðjudögum kl.
15-18. Aðgangur ókeypis.
SPRON
Álfabakka 14
í Sparisjóði Reykjavíkur og nágrennis
stendur yfir sýning á múrristum eftir
Gimnstein Gíslason í útibúinu, Álfa-
bakka 14, Breiðholti. Gunnsteinn hefur
haldið nokkrar einkasýningar og tekið
þátt í fjölda samsýninga. Sýningin mun
standa yfir til 27. apríl nk. og verður opin
frá mánudegi til fóstudags kl. 9.15-16.
Sýningin er sölusýning.
Vinnustofa Ríkeyjar
Hverfisgötu
Þar eru til sýnis og sölu postulínslág-
myndir, málverk og ýmsir litlir hlutir.
Opið er á verslunartíma þriðjudaga, mið-
vikudaga, fimmtudagá og fóstudaga og á
laugardögum kl. 10-16.
Þjóðminjasafnið
Safnið er opið alla daga nema mánudaga
kl. 11-16.
Málverkasýning í bóka-
safni Kópavogs
í Bókasafni Kópavogs stendur nú yfir
sýning á olíumyndum ungs Thailend-
ings, Kims (Tawatchai Wiriyolan). Mynd-
imar eru málaðar á síðustu vikum og er
myndefnið aðallega sótt til íslands en
einnig til Thailands. Myndirnar eru allar
til sölu. Sýningin stendur til páska og er
opin á sama tíma og bókasafnið, mánu-
daga til fóstudaga kl. 10-21, laugardaga
kl. 11-14. Öllum er heimill ókeypis að-
gangur.
Myntsafnið á Akureyri
Aðalstræti 58 - sími 24162
Opið er kl. 13.30-17 alla daga vikunnar.
Eden, Hveragerði
Hinn þekkti indverski listamaður, Edwin
-Jbseph, sýnir myndlist í Eden, Hvera-
gerði. Sýningin stendur til 2. apríl.
Málverkasýning í Borgarnesi
Sunnudaginn 1. apríl kl. 14 verður opnuð
sýning á málverkum eftir Hring Jóhann-
esson í húsi Verkalýðsfélags Borgamess
í Borgarnesi. Aðgangur að sýningunni
er ókeypis.
Sýning á Siglufirði
Á morgun verður opnuð sýning á verkum
Siguijóns Jóhannssonar, leikmynda-
teiknara og málara, í bæjarstjómarsaln-
um á Siglufirði. Sýningin verður opin
daglega kl. 16-21.
Breyttur afgreiðslutími
Frá aprílmánuði 1990 verður afgreiðsla vor í Tryggva-
götu 28 opin frá kl. 8.15-15.00 daglega.
Tryggingastofnun ríkisins
géturá
felmtótur
Hádegistilboð
alla daga
Pizzasneið og
bökuð kartafla
kr. 390,-
Laugavegi 73, sími 23433
KNAUF
GIFSPÚSSNING
Gerum föst tilboð,
einnig í hleðslu
og einangrun
Múrarameistari, sími 91-674469 og 98-34357 e. ki. 19
Aðalfundur
Náttúruiækningafélags ReyKjavíkur
verður haldinn laugardaginn 31. mars kl. 14.00 í
Templarahöllinni við Eiríksgötu.
Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf.
Lagabreytingar.
Grímur Sæmundsen flytur erindi um starfsemi Máttar.
Léttar veitingar frá heilsuhæli NLFÍ.
Stjórnin
Sendlar óskast
á afgreiðslu DV
strax.
Uppl. í síma 27022.
Smáauglýsing
í Helgarblað
þarf að berast
fyrir kl. 17
föstudag!!!
27022