Dagblaðið Vísir - DV - 05.05.1990, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 05.05.1990, Blaðsíða 2
24 LAUGARDAGUR 5. MAl 1990. Bílar DV Reynsluakstur: Renault 19 Chamade: I>róaöri og meiri bíll Þegar Renault 19 kom fram á sjón- arsviðið sló hann þegar í staö í gegn, bæði heima í Frakklandi og annars staðar í Evrópu. Umsögn DV um þennan bíl var eitthvað á þá leið að hann væri stórt stökk fram á viö. Mazda 323 Sedan árg. ’88, rauður. Verð 650.000. Suzuki Swift 1300 árg. ’87, ekinn 40.000, rauður. Verð 490.000. Suzuki Vitara, árg. '89, svartur, ek- inn 23.000, verð 1.040.000. Daihatsu Charade, árg. 88, 3ja dyra, Ijósbl., ekinn 16.000, verð 550.000. BÍLASALA BILDSHÖFÐA 5 • 112 REYKJAVÍK BÍLALEIGA SÍMI (91)674949 Audi 100 cc árg. '88, ekinn 35.000, dökkbl. Verð 1.450.000. Cadillac DeVille Coupé, árg. ’85, ekinn 47.000, hvítur, verð 1.480.000. Ford Sierra 1600 árg. ’86, rauður, ekinn 49.000. Verð 580.000. Mazda 626 2000 árg. ’88, sjálfsk. Verð 1.100.000. Ford Bronco XLT árg. ’88, ekinn 16.000. Verð 1.850.000. MMC Pajero, langur, bens., árg. ’87, hvítur, ekinn 85.000. Verð 1.600.000. sími 674949 I__________________________________________________________________________________________________________________________________I Þetta er það sjónarhorn sem aðrir ökumenn eiga oftast eftir að sjá. Bíllinn er snyrtilegur að aftan og auðveldara fyrir ökumann að sjá aftur ur þessum bíl heldur en grunngerðinni. En - varadekkið er á vondum stað ... Enn eru Fransmenn að bæta við sig. Þeir hafa þróað Renault 19 enn frekar og nú heitir hann Renault 19 Chamade. Nú er hann kominn með öflugri vél, aflstýri og skott og satt að segja er ekki ýkja margt sem hægt er að finna að honum. Það leynir sér ekki að það er meira lagt í Chamade en „gömlu“ grunn- gerðina af Renault 19. Strax og sest er inn í hann kemur í ljós aö í viðbót við gömlu, hefðbundnu stillingarnar á framsætunum er hægt að hækka ökumannssætið og lækka. Það er líka hægt að breyta stýrishallanum lítið eitt. Lesljós við hvert sæti Annað sem vekur athygli strax við fyrstu sýn er að Chamade er kominn með skott meðan grunngerð 19 bíls- ins er hlaðbakur - það er að segja með hlera sem lýkur upp öllum aft- urenda bílsins, alveg upp á topp. Farangursrúm í grunngerðinni er betra en í mörgum sambærilegum bílum, en í Chamade er það orðið gott. Að því viðbættu að síðan má halla fram aftursætinu, að hluta eða öllu leyti, verður ekki annað sagt en að Renault Chamade sé vel rúmgóð- ur bíll. Sætin í honum eru líka prýðilega góð og frágangur allur að innan. Vinnustaður ökumannsins er með miklum ágætum. Stýrishjólið gott og liggur vel í hendi, öll stjórntæki inn- an eðlilegra hreyflngarmarka. Þeir hjá Renault hafa lagt sig fram um lýsingu bílsins að innan; það er les- Ijós fyrir hvert sæti í bílnum sem ekki á að trufla aðra, allra síst öku- manninn. Þó fannst mér það athuga- vert að ef lesljós aftan við aftursæti voru skilin eftir logandi fann ég ekki aðra leið til að slökkva á þeim en að fara út til þess og opna afturdyrnar. Renault 19 Chamade virkar stærri bíll en grunngerðin. Hann er „full- vaxinn” bíll og ber það með sér. Hann orkar þannig á mann að hann sé efnismikill og traustur og líklegur til að skila manni örugglega á leiðar- enda í mörg ár. Sá bíll sem hér var reynsluekið er með fjarlæsingu/miðlæsingu. Fjar- læsing þýðir að við lyklakippuna er dulítið hulstur sem maður miðar að bílnum og klípur það; þá ýmist læsist bíllinn allur eða lýkst upp eftir því sem við á. Þetta eru þægindi sem ég hef einkum kynnst á frönskum bílum fram til þessa, en enginn vafi að aðr- ir framleiðendur koma í þetta kjöl- far. Rafdrifnar rúöur og handvirkt innsog Bíllinn var búinn rafdrifnum rúö- um í framhurðum en handdrifnum í afturhurðum. Ég hef áður gert grein fyrir blendnum huga mínum gagn- vart rafdrifnum rúðum, en því verð- ur ekki á móti mælt að þær eru um sumt þægilegar. Kannski er það ein- Hér er allt við höndina til að gera ökuferðina ánægjulega. Takið eftir lokinu efst fyrir miðju í mælaborðinu: þar undir er útvarpið ... BHAVIÐSKIPTANNA ERHJÁ Bíiasöiunni Skeifan Skeifunni 11, sími 689555, 4 línur

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.