Dagblaðið Vísir - DV - 05.05.1990, Síða 8
34
LAUGARDAGUR 5. MAÍ 1990.
Sérstæö sakamál
Fagra María
María Bertone var falleg og þeir
voru margir, ungu mennirnir, sem
leist vel á hana. En þaö var hættu-
legt aö umgangast hana.
María og bræöur hennar tveir,
Carlos og Ramos, bjuggu i San Di-
ego í Kaliforníu. Þegar þau voru
enn ung aö árum, María þrettán
ára, Carlos sautján ára og Ramos
tvítugur, missu þau foreldra sína í
slysi. Frá þeirri stundu tóku bræð-
urnir við stjórn heimilisins og
ábyrgöinni á systur sinni. Þaö
geröist aö vísu ekki átakalaust því
að yfirvöldin litu svo á i fyrstu aö
þeir væru ekki hæfir til aö sjá um
systur sina en þeir stóöu fast á því
aö þeir gætu það og loks fór svo
aö þeir fengu tækifæri til aö sýna
hvað þeir gætu í þeim efnum. Mar-
ía fékk því að vera áfram á heimil-
inu en ætlunin haföi verið aö setja
hana á munaðarleysingjahæli.
Brátt kom í ljós aö Carlos og Ram-
os stóöu viö orö sín. Þeir stóöu
þannig aö heimilishaldinu aö ekki
varð aö fundið og þeir hugsuöu vel
um systur sína. Þaö kom aö vísu
oft í hlut Maríu aö elda mat en
hvorki hún né yfirvöldin settu þaö
fyrir sig.
Er árin liðu varö ljóst aö María
yrði mjög lagleg ung stúlka og þar
kom aö piltar fóru aö sýna henni
áhuga.
Barsmíðar
Carlos og Ramos stóöu skyndi-
lega frammi fyrir nýjum vanda.
Þeir voru þriðja kynslóð mexíkan-
skra innflytjenda og höföu í háveg-
um þaö siögæöi sem sagöi hvernig
hegðan systur þeirra ætti aö vera
þegar piltar áttu i hlut.
Er þar kom að margir skóla-
bræöra Maríu vildu bjóöa henni
út fóru bræðurnir tveir aö hafa
áhyggjur af því aö illa kynni að
fara fyrir systur þeirra. Þar kom
að piltur einn, Sammy Spears, bauð
henni út og þáöi hún boðið.
Skömmu síöar kom hann í skól-
ann handleggsbrotinn og haíði aö
auki misst nokkrar tennur. Hann
hafði oröiö fyrir árás en gat ekki
eöa vildi ekki segja neitt sem orðið
gat til aö varpa ljósi á hver haföi
valdið áverkunum.
Sammy og María höföu farið í
útikvikmyndahús í bíl Sammys og
þegar María kom heim um kvöldiö
þótti bræðrunum ljóst aö hegöan
hans heíði verið óafsakanaleg.
Kjóll Maríu var rifinn og duldist
bræörunum ekki aö hún hafði orö-
ið að taka á til að veija heiður sinn.
María þagöi
I skólanum gengu margar sögur
eftir þennan atburö. Einhver haiði
lúbariö Sammy en hver þaö hafði
verið vissi enginn.
En María vissi það. Hún var ekki
í neinum vafa um að þaö heföu
verið bræöur hennar en hún sagði
ekki neitt.
Bræðurnir fóru nú aö gera
strangari kröfur til systurinnar en
fyrr um þaö meö hverjum hún færi
út. Fengju þeir minnstu hugmynd
um að ekki væri allt með felldu um
framkomu piltanna sem sýndu
henni áhuga var hurðinni skellt á
þá þegar þeir komu aö dyrum íbúö-
arinnar sem systkinin bjuggu í. Þar
kom aö flestir skólabræöur Maríu
fóru aö sniðganga hana. Þegar hún
varð átján ára hætti hún því í skóla
og fékk sér vinnu í stórmarkaði.
Meginástæðan var sú að hún
taldi aö þá öðlaðist hún meira
frelsi.
María Bertone.
Sammy Spears.
Stefnumótin urðu
ekki íleiri en eitt
Er hér var komið fannst bræör-
unum ekki síður ástæöa en fyrr að
hafa eftirlit meö siögæöi systurinn-
ar. Og enginn veit í raun og veru
hvað geröist eftir að Josh Pfeitz fór
aö sýna Maríu áhuga fyrir alvöru.
Hann var ungur samstarfsmaður
hennar í stórmarkaönum og þar
kom aö hann bauð henni út. Þau
áttu þó aðeins eitt stefnumót. Eftir
það hvarf Josh og hún sá ekki
meira til hans. María var mjög
undrandi yfir hvarfmu en eftir
hálft ár kynntist hún Danny Car-
oni. Þau hittust en svo hvarf hann.
María sýndi enn undrun þvi hún
hafði kunnað vel viö Danny.
Næsti ungi maður sem María
kynntist hét Harlek Crebb. Hann
Carlos Bertone.
Grunsemdir Maríu
Enginn vafi lék nú á því að María
var búin að fá grunsemdir um að
bræður hennar bæru ábyrgð á
dauða Dillards. Hún dró sig því að
miklu leyti í hlé og forðaðist að
stofna til kynna við unga menn sem
sýndu henni áhuga. Þannig liðu
þrjú ár áöur en hún stofnaði á ný
til kynna af því tagi.
Þegar María var orðin tuttugu og
Josh Pfeitz.
bauð Maríu út aö boröa og síðan í
veislu á einkaheimili. Þegar hann
fylgdi Maríu heim um fimmleytið
um morguninn sátu Carlos og
Ramos á tröppunum og biðu. Til
alvarlegrar deilu kom og nokkru
síöar hætti María að sjá hann. Þaö
var sem hann væri horfmn af yfir-
borði jarðar.
Fullyrt ér að fram til þessa hafi
María ekki látið sér til hugar koma
að neitt alvarlegt hefði gerst. Það
mun því fyrst hafa verið er næsti
vinur hennar, Kane Dillard, hvarf að
hún fékk hugmynd um aö eitthvaö
alvarlegt hefði komið fyrir ungu
mennina sem hún hafði kynnst en
sá svo ekki framar en hálfum öörum
mánuði eftir hvarf Dillards kom lög-
reglan til Maríu og spuröi hana um
samband þeirra. Þá hafði lík hans
fundist á auöri byggingarlóð.
Ramos Bertone.
þriggja ára kynntist hún ungum
manni, Adam Petruzzi að nafni.
Hann var tveimur árum yngri en
hún og ekki leið á löngu þar til þau
urðu ástfangin. Hitti María hann
nokkrum sinnum án þess aö bræö-
ur hennar heföu um það nokkra
vitneskju. Þar kom þó að þeir kom-
ust á snoðir um samband þeirra
og létu þá í ljós óánægju meö Adam
og ekki leið á löngu þar til vofveif-
legur atburður gerðist. Það var sem
siögæði Maríu skipti þá Carlos og
Ramos meira en allt annað.
María hélt dagbók og um þetta
leyti skrifaði hún í hana aö Ramos
heföi heimsótt Adam. Heföi hann
sagt honum að hann skyldi ekki
framar koma nærri Maríu ellegar
skyldi hann hafa illt af.
Tók aðvörunina
ekki alvarlega
Adam Petruzzi hlustaði á aövör-
unarorö Ramosar en fannst ekki
ástæöa til aö taka mark á þeim.
Hann hafði því aftur samband við
Maríu en tveimur dögum síðar
fannst hann látinn undir stýri á bíl
sínum. Veski hans var horfið og
leit lögreglan svo á að um ránmorö
hefði verið aö ræða.
María frétti af því hvernig farið
haföi fyrir Adam. Segir ekki af því
hvaö hún hugsaöi um þessar
mundir. Síöari atburöir uröu hins
vegar til þess aö lögreglan hóf á ný
rannsókn Petruzzimálsins.
Næstu tvo mánuöi fór María
aldrei út en þar kom aö hún þáöi
boö ungs manns sem vann með
henni í stórmarkaðnum. Hét hann
Gary Kerwin og var jafngamall
henni.
Nú var helst aö sjá að Gary heföi
fundiö náð fyrir augum Carlosar
og Ramosar. Þeim fannst hann al-
vörugefinn ungur maður sem
sýndi ábyrgö í orðum og gerðum.
Flekkuð fortíð
Þar kom, eftir að Gary haföi
umgengist Maríu um nokkurt
skeiö, að hann skýrði henni frá því
aö hann væri fráskilinn og ætti
barn. Maríu brá mjög viö þetta,
sleit fundi þeirra og hélt beint heim
til sín. Þar hitti hún fyrir bróður
sinn, Carlos. Hann sá að hún var
miður sin, gekk á hana og sagöi
hún honum þá allt af létta.
Skömmu síöar kom Ramos heim
og tóku þeir bræður þá aö leggja á
ráöin um hvernig þeir ættu aö
stytta Gary Kerwin aldur. Maríu
varö Ijóst hvaö þeir voru að ræða
um og krafðist þess af þeim að þeir
hættu viö þessa fyrirætlan sína.
Ekkert mætti koma fyrir Gary.
Hún elskaði hann og vildi fyrirgefa
honum það sem áöur heföi gerst í
einkalífi hans.
Orð hennar urðu þó ekki til þes's
aö breyta afstööu bræöranna. Um
þrjúleytið um nóttina héldu þeir
aö heiman til aö ráöa Gary af dög-
um.
Örlagarík nótt
Meðan bræöurnir voru á leiðinni
hringdi María heim til Garys. Hún
hringdi hvaö eftir annað en enginn
svaraði. Það var heldur ekki von.
Gary bjó hjá móöur sinni og hún
haföi það fyrir venju aö taka sím-
ann úr sambandi á kvöldin er hún
gekk til náöa.
María sá nú aðeins eitt ráö. Hún
hringdi á lögregluna og brá hún
skjótt við. Lögreglubíll ók heim aö
húsinu sem Gary og móöir hans
bj uggu í en þegar hann var aö stæö-
næmast fyrir framan þaö kváðu viö
fimm skothvellir. Augnabliki síðar
komu Carlos og Ramos hlaupandi
út á tröppurnar. Þar tókst aö af-
vopna þá og handtaka.
Lögreglan hafði hins vegar komið
of seint til að bjarga lífi Garys.
Hann var látinn. Þrjár kúlur höfðu
hæft hann í brjóstiö og tvær í höf-
uðið.
María Ieysir
frá skjóðunni
Rannsóknarlögreglumenn héldu
nú heim til Maríu. Henni var mjög
brugöið er hún frétti aö Gary væri
látinn. En reiði hennar yfir því að
bræður hennar skyldu hafa skotiö
hann til bana var mikil. Og í reiði
sinni fór hún aö segja rannsóknar-
lögreglumönnunum sögu sem átti
eftir aö komast i blööin og vekja
mikla athygli. Hún greindi þeim frá
örlögum allra sinna fyrri vina. í
fyrstu ætluðu lögreglumennirnir
ekki að taka mark á henni en hún
var greinargóö í frásögn sinni og
gat ekki aðeins nefnt nöfn heldur
einnig skýrt frá því hvenær ungu
mennirnir hefðu horfið.
Rannsókn leiddi svo í ljós að hún
haföi greint rétt frá um nöfn og
tíma.
Bræöurnir Carlos og Ramos Ber-
tone sitja nú í fangelsi. Þeir voru
ákæröir fyrir morðiö á Gary Ker-
win. Og yfir stendur rannsókn á
hvarfi hinna ungu mannanna sem
þeir eru grunaðir um aö hafa ráðið
bana til aö verja heiður og siögæöi
systur sinnar.