Dagblaðið Vísir - DV - 11.05.1990, Síða 8
24
FÖSTUDAGUR 11. MAÍ 1990.
Mynd-
bönd
Umsjón.
Sigurður M.
Jónsson
Hilmar Karlsson
DV-LISTINN
Loksins gefur Indíána-Jónas eftir
1. sætiö en það er „hundamyndin"
K-9 sem grípur sáetið eftirsótta.
Að öðru leyti eru þetta mest sömu
myndirnar sem skipta á milli sín
sætunum.
Tvær nýjar myndir koma inn á
listann. Manhunter er athyghs-
verður sálfræðiþriller sem býður
upp á óvænta spennu og nýstárleg
efnistök.
1.(2)
2. (1)
3- (5)
4. (4)
5. (3)
6. (7)
7. (6)
8. (8)
9. (-)
10. (-)
K-9
Indiana Jones and
the Last Crusade
Criminal Law
The Dream Team
Batman
Deep Star 6
Clara’s Heart
Fly 2
Manhunter
Scandal
Fjölskylduraunir
FAR NORTH
Útgefandi: Arnarborg
Leikstjóri og handritshöfundur: Sam
Shephard. Framleiðandi: Carolyn Pfeif-
fer og Malcolm R. Harding. Aðalhlut-
verk: Jessica Lang, Charles Durning,
Tess Harper, Donald Moffat, Ann
Wedgeworth.
Bandarísk. 1988. 95 min. Bönnuð yngri
en 12 ára.
Shephard gengur greinilega með
kvikmyndaleikstjóra í maganum
en hefði ef til vOl betur lært af
reynslu Arthurs Millers. Það er
eins og þessir blessaðir rithöfundar
átti sig ekki almennilega á því að
kvikmyndin er allt annar miðil en
bókin og liggja aðalmistökin í þess-
ari mynd í því að Shephard tekst
einfaldlega ekki að laga sig að tján-
ingu myndarinnar.
I stað þess að spila inn á táknmál
kvikmyndarinnar þá drekkir hann
henni í hrútleiðinlegum „monolog-
um“ persónanna. Hann virðist
vera að eltast við fjölskyldudrama
í ætt við Tennessee Williams og
gengur brösulega. Hann hefði átt
að fá leikstjóra til verksins - þó ég
sé ekki viss um að það hefði getað
breytt neinu.
-SMJ
ick'A
Morðtilræði
BIONIC SHOWDOWN
Útgefandi: Laugarásbíó
Leikstjóri: Alan J. Levi. Aðalhlutverk:
Lee Majors, Lindsay Wagner.
Bandarisk. 1989. Bönnuð yngri en 12
ára.
Það er margt ákaflega spaugilegt
við þessa mynd en ekki er ég viss
um að það hafi alltaf verið ætlun
framleiðenda. Áður hafa verið
gerðar myndir um hetjur þessarar
myndar (The Six Million Dollar
Man og The Bionic Woman) en þar
er sagt frá hálfgerðu súperfólki sem
hefur aukið starfsgetu sína með
tæknilegum endurbótum.
Hér er sviðið friðarviðræður
stórveldanna en einhverjir leiðin-
legir leyniþjónustukarlar vilja
helst eyðileggja allt. Það getur sú-
perfólkið ekki sætt sig við og hefst
því baráttan.
Það virðist eitthvað vera bogið
við frásögnina því það er eins og
það hafi myndast skallar í henni
hér og þar. Fyrir utan það að vera
heimskuleg gera fátæklegar tækni-
brellur bara illt verra. - Og að lok-
um: Hver getur hugsað sé óhetju-
legri mann en Lee Majors?
-SMJ
AMERICAN GRAFFITI
Leikstjóri: George Lucas. Handrit: Ge-
orge Lucas, Gloria Katz og Willard Hu-
yck. Framleióandi: Francis Ford Copp-
ola. Aðalhlutverk: Richard Dreyfuss,
Ronny Howard, Paul Le Mat, Charlie
Martin Smith, Candy Clark.
Bandarisk. 1973. 112 min. Öllum leyfð.
Fáar myndir frá 8. áratugnum
hafa haft eins mikil áhrif á banda-
ríska kvikmyndagerð og þessi
mynd Georges Lucas og er reyndar
óþarfi að orlengja mikið um efni
hennar eða áhrif. Þó má nefna að
hún þeytti Lucas upp á stjörnuhim-
ininn þar sem hann hefur verið
síðan í æðsta flokki meðal afþrey-
ingasmiða Hollywood (óháð því
hvaða áht menn hafa yfirhöfuð á
stjömustríðsmyndum hans). Einn-
ig hafði Ameríska grafskriftin
ómæld áhrif á gerð unglingamynda
sem reyndar hefur þróast á verri
veg undanfarið. Sviðsmynd er oft
glæsileg og kitlar óneitanlega að sjá
langa götulifsmynd fulla af göml-
um amerískum köggum.
Myndin segir á snilldarlegan hátt
lífsreynslusögu nokkurra unglinga
sem á einni kvöldstund upplifa at-
burði sem hafa mikil áhrif á líf
þeirra. Myndin er uppfull af
skemmtilegum atvikum en þó
furðu heildstæð í frásögn sinni;
einhvern veginn tekst Lucas að
veQa saman mörgum þráðum í
hnitmiðaða frásögn. Tónlistin
gegnir stóru hlutverki enda em hér
flutt mörg af þekktustu lögum 6.
og 7. áratugarins.
-SMJ
Slagsmál í fangelsi
PENITENTIARY III
Útgefandi Bergvik.
Leikstjóri: Jamaa Fanaka.
Aðalhlutverk: Leon Isaac Kennedy, Ant-
hony Geary og nic Mancini.
Bandarísk, 1987-sýningartími 91 mín.
Bönnuö börnum innan 16 ára.
Penitentiary III er víst þriðja
myndin sem fjallar um litaða
hnefaleikarann sem Leon Isaac
Kennedy leikur. í þetta skiptið er
hann dæmdur til fangelsisvistar,
þar sem hann hafði orðið manni
að bana í hringnum, þótt það hafi
aðeins verið vegna þess að honum
var án hans vilja gefið örvandi lyf.
Hann fær ekki frið í fangelsinu, því
þar eru slagsmál í heiðri höfð og
keppt vikulega. Er skipt niður í tvo
flokka og er öðrum stjórnað af
fanga en hinum af fangelsisstjóran-
um.
Eins og sjá má af þessari lýsingu
er hér ekki um trúverðugan sögu-
þráð að ræöa, enda skiptir hann
kannski minnstu máli. Öll áhersla
er lögð á barsmíðar og hnefaleika
og fyrir þá sem vilja ómælt ofbeldi
er Penitentiary III sjálfsagt sæmi-
legasta afþreying.
-HK
Hneykslið sem felldi ríkisstjóm
SCANDAL
Útgefandi: Háskólabíó.
Leikstjóri: Michael Caton-Jones.
Aðalhlutverk: John Hurt, Johanna Whal-
ley-Kilmer, lan McKellen, Bridget Fonda
og Jeroen Krabbe.
Bresk, 1989 - sýningartími 114 min.
Fá hneykslismál hafa vakið jafn-
mikla athygli almennings og haft
jafnalvarlegar afleiðingar og svo-
kallað Profumohneyksli sem kom
upp á yfirborðið í byrjun sjöunda
áratugarins. Það varð til þess að
þáverandi hermálaráðherra Breta
varð að segja af sér og skömmu
síðar féll ríkisstjórn Harolds Mac-
Millan vegna þessa hneykslismáls.
Aðdragandinn er kunnur öllum
þeim sem muna þennan tíma. Það
Súpervitleysa
Amerísk grafskrift
RED KING, WHITE KNIGHT
Útgefandi: Steinar hf.
Leikstjóri: Geoff Murphy.
Aðalhlutverk: Tom Skerrit, Max von
Sydow, Helen Mirren og Tom Bell.
Bandarísk, 1989-sýningartimi 90 mín.
Bönnuð börnum innan 16 ára.
Það ríkir hálfgert vandræða-
ástand í Hollywood. Ástæðan er
einfaldlega sú að Rússar eru allt í
einu orðnir góðu mennirnir í aug-
um almennings og ekki hægt að
gera þá að vondu körlunum í eins
ríkum mæli og áður.
Það hlaut samt að koma að því
að kvikmynd væri gerð um hugs-
anlegt tilræði við Gorbatsjov vegna
þess að sú þíða í alþjóöamálum,
sem nú ríkir, er ekki að allra skapi.
Red King, White Knight er ein-
mitt um hugsanlegt tilræði við leið-
togann þótt hann sé aldrei nefndur
á nafn. Kvikmyndin gerist að
mestu leyti í ónefndu austantjalds-
landi. Þar hyggst yfirmaður leyni-
þjónustunnar losa sig við aðalrit-
ara sovéska kommúnistaflokksins.
Til þess fær hann IRA-skæruliða
(Gott að einhverjir vondir eru eftir)
til að framkvæma verkið.
CIA kemst að ráöabrugginu og
gamalreyndur leyniþjónustumað-
ur, sem hættur er störfum, er send-
ur á staðinn til að rannsaka, ekki
til að koma í veg fyrir verknaðinn,
vegna þess að ráðamenn í Was-
hington eiga eftir að kanna hvort
kemur sér betur fyrir þá, að hafa
aðalritarann lifandi eða dauðan.
Fyrir austan hittir leyniþjónustu-
maðurinn kollega sinn sem settur
er honum til höfuðs. Þegar sá fær
að vita hvað stendur til bregður
honum og sameinast þeir um að
bjarga leiðtoganum.
Red King, White Knight er fyrst
og fremst afþreying, þar sem hugs-
anlegt morðtilræði er uppdiktað en
væri vel hugsanlegt í raunveru-
leikanum. Max von Sydow og Tom
Skeritt leika leyniþjónustumenn-
ina. Þetta eru traustir leikarar sem
eiga í engum vandræðum með hlut-
verk sín og hjálpa til aö gera mynd-
ina að góöri skemmtun.
-HK
við stúlku, sem einnig hélt við rúss-
neskan sendiráðsmann sem hæg-
lega gat verið njósnari, sem var
hneykslið í augum Breta.
Það er mjög auðvelt fyrir áhorf-
endur að finna til vorkunnar með
Ward og Keeler. Eins og þ'au koma
fyrir eru þau að mörgu leyti fórn-
arlömb aðstæðna. Ward, sem síðar
framdi sjálfsmorð, og Keeler eru
þau einu sem ákærð eru og þótt
ekki hafi þau viljandi skapað þær
aðstæður sem komu upp á yfir-
borðið þá má segja þeim til saka
að þau hefðu átt að sjá hvað verða
vildi. Ward var dæmdur, Keeler
var dæmd. Aðrir sluppu við dóm.
Profumo varð síðar meir sæmdur
heiðursmerki.
Það er ekki síst að þakka góðum
leik Johns Hurt að áhorfandinn
hefur samúð með Ward. Einnig er
Johanna Whalley-Kilmer eins og
sköpuð í hlutverk Christine Keeler.
Hún fær mann til að skilja þær
kenndir sem karlmenn á borð við ■
ráðherra báru til stúlkunnar.
Scandal er fyrst og fremst raunsæ
kvikmynd um Profumo-máhð. Það
sem skilur hana frá öðrum álíka
myndum er að allt sem hér er bor-
ið á borð er sannleikanum sam-
kvæmt og vonandi hefur myndin
boðað betri tíma fyrir Keeler, en
hún er sú eina sem var viðloðandi
málið sem ekki náði sér á strik í
lífinu.
-HK
® I
sýnir hversu viðkvæmt þetta mál
er bresku þjóðinni að það er ekki
fyrr en nú, tuttugu og sex árum
síðar að gerð er kvikmynd um
hneyksliö.
Samkvæmt mati handritshöf-
undar eru tveir þolendur í Prof-
umohneykslinu, læknirinn Step-
hen Ward, sem kynnti Christine
Keeler fyrir John Profumo og rúss-
neska sendiráðsmanninum
Ivanov, og svo Keeler sjálf.
Það er einmitt sú staðreynd að
Profumo skyldi hafa lagt lag sitt