Dagblaðið Vísir - DV - 11.06.1990, Síða 5
20
MÁNUDAGUR 11. JÚNÍ 1990.
MÁNUDAGUR 11. JÚNÍ 1990.
21
Skóbúðin hættir að Snorrabraut 3816. júní.
Lokaútsala
Strigaskór frá kr. 300,-
Leðurskór frá kr. 900,-
Nauðungaruppboð
þriðja og síðasta sala á bújörðinni Litlu-Tungu II, Holtahreppi, þinglýstur
eigandi Vilhjálmur Þórarinsson, fer fram á eigninni sjálfri mánudaginn 11.
júní 1990 kl. 15.00.
Uppboðsbeiðandi er Magnús Norðdahl hdl.
Uppboðshaldarinn Rangárvallasýslu.
Fundarboð
Hluthafafundur verður haldinn í íslenska útvarps-
félaginu hf. mánudaginn 18. júní 1990 kl. 16.00 að
Hótel Loftleiðum.
Fundarefni:
1. Tillaga að samruna Islenska útvarpsfélagsins
hf, og íslenska sjónvarpsfélagsins hf.
(Stöð 2).
2. Önnur mál.
Ofangreind tillaga, drög að samningi milli félaganna,
reikningsyfirlit beggja félaganna og drög að upphafs-
reikningi þessfélags sem við tekur liggja fyrir hluthöf-
um til skoðunar á skrifstofu íslenska útvarpsfélagsins
hf., Sigtúni 7, Reykjavík.
Stjórn íslenska útvarpsfélagsins hf.
HEILBRIGÐISEFTIRLIT REYKJAVÍKUR
Tvær stöður heilbrigðisfulltrúa við Hellbrigðiseftirlit
Reykjavíkur eru lausar til umsóknar. Önnur staðan
er vegna afleysinga og veitist frá 1. ágúst 1990 til
jafnlengdar 1991. Hin staðan er ótímabundin og
veitist frá sama tíma.
Umsækjendur skulu hafa lokið háskólaprófi í heil-
brigðiseftirliti, dýralækningum, líffræði, efnafræði,
umhverfisfræði (mengunarvarnarsvið) eða hafa sam-
bærilega menntun.
Umsókn ásamt gögnum um menntun og fyrri störf
skulu hafa borist formanni svæðisnefndar Reykjavík-
ursvæðis (borgarlækninum í Reykjavík) fyrir 1. júlí
nk. en framkvæmdastjóri heilbrigðiseftirlitsins veitir
nánari upplýsingar.
Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur.
Iþróttir
Iþróttir
Nauðungaruppboð
á eftirtöldum fasteignum fer
fram á skrifstofu embættisins,
Ránarbraut 1, Vík í Mýrdal,
á neðangreindum tíma:
Þykkvibær II, Kirkjubæjarhreppi,
þinglýstur eigandi Óskar Þorleiisson,
fimmtudaginn 14. júní kl. 14.00. Upp-
boðsbeiðendur eru Byggingarsjóður
ríkisins, Búnaðarbanki íslands og
Kristinn Hallgrímsson hdl.
UPPBOÐSHALDARIVESTUR-SKAFTAFELLSSÝSLU
VÍK í MÝRDAL & JÚNÍ 1990.
________SIGURDUR GUNNABSSON, SETTUR
Nauðungaruppboð
annað og síðara
á eftirtöldum fasteignum fer
fram á skrifstofu embættisins,
Ránarbraut 1, Vík í Mýrdal,
á neðangreindum tíma:
Sigtún 8, Vík í Mýrdal, þinglýstur
eigandi Sigurjón Rútsson, fimmtudag-
inn 14. júní kl. 14.00. Uppboðsbeiðandi
er Jón Eiríksson hdl.
Skaganesl, Mýrdalshreppi, þinglýstur
eigandi ríkissjóður, ábúandi Páll Ric-
hardson, fimmtudaginn 14. júní kl.
14.00. Uppboðsbeiðendur eru Bygg-
ingarsjóður ríkisins og Ólafur Axels-
son hrl.
UPPBOÐSHALDARl VESTUR-SKAFTAFELLSSÝSLU
VÍK í MÝRDAL 8. JÚNÍ 1990.
SIGURÐUR GUNNARSSON, SETTUR
Nauðungaruppboð
þriðja og síðasta
á eftirtalinni fasteign:
Víkurbraut 21, Vík í Mýrdal, þinglýst-
ur eigandi þrotabú Nýland hf., mið-
vikudaginn 13. júní kl. 15.00. Upp:
boðsbeiðandi er Ingimundur Einars-
son, bústjóri þrotabúsins.
UPPBOÐSHALDARIVESTUR-SKAFTAFELLSSÝSLU
VÍK í MÝRDAL 8. JÚNÍ1990.
SIGURÐUR GUNNARSSON, SETTUR
A-rlðill:
Ítalía - Austurríki......„...1-0
(1-0 Salvatore Schillaci 78. Ahorf-
endur 72,303)
Tékkóslóvakía - Bandaríkin ...5-1
(1-0 Tomas Skuhravy 24., 2-0 Mic-
hal Bilek 38. (vití), 3-0 Ivan Hasek
51., 3-1 Paul Caligiuri 61., 4-1 Tom-
as Skuhravy 79., 5-1 Milan Luhovy
90. Ahorfendur 33,266.)
Næstu leikir:
14.6. Ítalía-Bandaríkin
15.6. Austurríki - Tékkóslóvakía
B-riðill:
Kamerún - Argentina........1-0
0-0 Francoís Omam-Biyik 66.
Ahorfendur 73,780)
Rúmenía - Sovétríkin.......2-0
(1-0 Marius Lacatus 40.., 2-0 Mar-
ius Lacatus 55. (víti). Ahorfendur
42,907)
Næstu leikir:
13.6. Argentína - Sovétríkin
14.6. Kamerún-Rúmenia
C-riðill:
Brasilía - Svíþjóð.........2-1
(1-0 Careca 40., 2-0 Car.eca 63., 2-1
Tomas Brolín 78. Áhorfendur
62,000)
Næstu leikir:
11.6. Costa Rica - Skotland
16.6. Brasilía - Costa Rica
16.6. Sviþjóð - Skotland
D-riðill:
Kólombía - Furstadæmin......2-0
(1-0 Bemardo Redin 50., 2-0 Carios
Valderrama 87. Ahorfendur 30.791)
V-Þýskaland - Júgósiavia...4-1
(1-0 Lothar Mattháus 29., 2-0
Jíirgen Klinsmann 40., 2-1 Davor
Jozic 55., 3-1 Lothár Metthaus 63.,
4-1 Rudi Völler 70. Ahorfendur
74,765)
Næstu leikir:
14.6. Júgóslavía-Kólombía
15.6. V.Þýskaland - Furstadæm-
in
E-rlðill:
Fyrstu léikir:
12.6. Belgía - Suöur-Kórea
13.6. úruguay - Spánn
F-riðill:
Fyrstu leikir:
11.6. England-írland
12.6. Holland-Egyptaland
Markahæstir á HM
Careca, Brasilíu.............2
Marius Lacatus, Rumeníu......2
Lothar Matthaus, V-Þýsk......2
Tomas Skuhravy, Tékkósl......2
Argentínumenn tefla væntan-
lega fram tveimur reyndum
köppum þegar þeir mæta Sovét-
mönnum á miðvikudag. Ricardo
Giusti og Julio Olarticoechea,
sem báðir voru i heimsmeistara-
liðinu 1986, koma líklega inn í
byrjunarliðið en þeir sátu á vara-
mannabekknum gegn Kamerún.
Giusti er 33 ára en Olarticoechea
31 árs.
Tvær aðferðirtil
að stöðva Rúmena
Valeri Neporaniachi, hixm so-
véski þjálfari Kamerún, sagði í
gaer að hann ætti í pokahominu
tvær leiðir til að sigrast á Rúmen-
um þegar þjóðimar mætast á
fimmtudag. Aðra myndi hann
nota ef Rúmenar lékju eins og
gegn Sovétmönnum en hina ef
þeir breyttu leik sínum. Nepomn-
iachi vildi að sjálfsögðu ekki láta
uppi hveijar ráöageröir hans
væru. „Við verðum að vera raun-
sæir, Argentína, Rúmenía og
Sovétríkin eru með betri lið en
við þannig að við þurfum aö lesa
leik þeirra vel og frnna réttu leíð-
imar til að spila gegn þeim,“
sagði Sovétmaðurinn.
Kanar áhugalitlir
Bandaríkjamenn fylgjast litt með
frammistöðu landsliðs síns á ítal-
íu, enda margar íþróttagreinar
þeim hugstæöari en knattspyrn-
an. Aöeins tvö kapalkerfi í
landinu sýndu leikinn gegn
Tékkum en stóru sjónvarps-
stöðvarnar einbeittu sér aö
körfubolta og homabolta og
nefndu ekki hrakfarirnar á Ítalíu.
Heimsmeistarakeppnin í knattspymu:
Sóknarleikur
er dagskipun
þjálfaranna
- Vestur-Þjóðverjar og Tékkar 1 markaham í gær
• Rudi Völler hefur betur I baráttu við Tomislav Ivkovic, markvörð Júgó-
slava, og skorar fjórða mark Vestur-Þjóðverja I gærkvöldi.
Eftir rólega byrjun, sex mörk í fyrstu fjórum leikjum heims-
meistarakeppninnar á Ítalíu, opnuðust flóðgáttirnar í gær. Fjórtán
mörk voru skoruð í þremur leikjum og þau hefðu getað orðið
mun fleiri ef til dæmis Brasilíumenn hefðu nýtt betur færi sín
gegn Svíum og Tékkar ekki látið markvörð Bandaríkjanna verja
frá sér vítaspyrnu.
Sóknarleikur er greinilega dagskipun flestra þjálfaranna, ekki
varnarleikur eins og margir óttuðust fyrir keppnina, og þar fara
Vestur-Þjóðverjar fremstir í flokki. Þeir léku grimma sóknar-
knattspyrnu gegn Júgóslövum í gærkvöldi og unnu glæsilegan
sigur, 4-1. Rúmenar sýndu snúldartakta gegn Sovétmönnum og
ítalar hefðu hæglega getað skorað fjögur til fimm mörk hjá Aust-
urríkismönnum en urðu að láta eitt duga.
- nú tel ég öruggt að við komumst
áfram í keppninni," sagði Marius
Lacatus, rúmenski sóknarmaðurinn
sem sló í gegn þegar Rúmenar lögðu
Sovétmenn að velli, 2-6, í B-riðlinum
í Bari á laugardaginn.
Lacatus skoraði bæði mörk Rúm-
ena, það fyrra með hörkuskoti og það
síðara úr umdeildri vítaspyrnu.
Hann var óheppinn að bæta ekki við
marki eða mörkum en eftir síðara
markið réðu Rúmenar lögum og lof-
um á vellinum og hefðu getað unnið
stærri sigur.
„Ég var óstyrkur í byrjun en síðan
náði ég mér á strik og fór að leika
fyrir áhorfendur,“ sagði Lacatus sem
er einn fljótasti knattspymumaður
heims og auk þess mjög leikinn og
útsjónarsamur. Hingað til hefur hon-
um ekki gengið of vel að skora fyrir
rúmenska landsliðið en breytti því á
réttum tíma.
„Ég er ánægður með þær viðtökur
sem mitt lið fékk í leiknum. Ég hef
oft sagt að ég óttast enga andstæð-
inga, aðeins hvort mínir menn nái
sér á strik,“ sgði Emerich Jenei,
þjálfari Rúmena, kampakátur á
blaðamannafundi eftir leikinn.
„Lacatus hefur skorað mörg mörk,
sérstaklega fyrir Steaua, en fyrra
mark hans hér í Bari er það mikil-
vægasta sem hann hefur gert,“ sagði
Jenei. Rúmenar léku án stjörnu
sinnar, Gheorghe Hagi, sem var í
leikbanni.
„Við töpuðum vegna þess að við
gerðum fleiri mistök en Rúmenarnir.
Fyrra mark sitt gerði Lacatus eftir
keðju mistaka hjá mínum mönnum,
meðal annars hjá Dasajev mark-
verði,“ sagði Valeri Lobanovski,
þjálfari Sovétmanna, en uppi eru
raddir um að hann setji Dasajev úr
liði sínu fyrir leikinn gegn Argentínu
á miðvikudag.
„Andrúmsloftið hjá okkur er þrúg-
andi, allir riija upp leikinn aftur og
aftur og reyna að átta sig á hvað fór
úrskeiðis," sagði Gennadi Logofet,
talsmaður sovéska liðsins, í gær.
„Ósigurinn er engum einum að
kenna en Rats, Kuznetsov og Khi-
diatullin léku sérstaklega illa,“ sagði
Logofet. Sovétmenn hófu undirbún-
ing fyrir leikinn gegn Argentínu í
Napólí í morgun en raddir eru uppi
um að Lobanovski geri einar fimm
breytingar á liði sínu fyrir þann slag.
Mattháus var
í aðalhlutverki
Það var fyrirliði Vestur-Þjóðverja,
Lothar Matthaus, sem lék stærsta
hlutverkið í 4-1 sigrinum á Júgóslöv-
um í Mílanó í gærkvöldi. Hann skor-
aði tvö glæsileg mörk með hörku-
skotum og Júgóslavar, kallaðir
„Brasilíumenn Evrópu“ fyrir keppn-
ina, áttu aldrei möguleika í leiknum.
Mattháus skoraöi fyrst og síðan
skallaði Júrgen Klinsmann í mark
Júgóslava eftir sendingu frá Andreas
Brehme, 2-0. í síðari hálfleik minnk-
aði Davor Jozic muninn í 2-1 en
Matthaus svaraði jafnharðan og
Rudi Völler skoraði síðan fjórða
markið eftir mistök hjá Tomislav
Ivkovic í marki Júgóslava.
Mattháus og Brehme, sem báðir
léku mjög vel, voru svo sannarlega
á heimavelli í leiknum því þeir leika
báðir með Inter Mílanó.
Brasilíumenn
á réttri leið
Brasilíumenn sýndu gegn Svíum í
E-riðlinum í Tórínó í gærkvöldi aö
þeir eru með heilsteyptara lið en oft
áður. Varnarleikur og markvarsla
eru í betra lagi en á undanfórnum
heimsmeistaramótum og þeir sýndu
á köflum þá knattspyrnu sem Brasil-
íumenn eru frægir fyrir.
Careca kom Brasilíu í 2-0 með
tveimur mörkum en hann og sér-
staklega Muller fóru illa með mörg
góð færi í leiknum. Svíar tóku vel
við sér undir lokin eftir laglegt mark
frá hinum tvítuga Thomasi Brolin
ogvoru ekki fjarri því að jafna metin.
„Ég er að sjálfsögðu mjög ánægður
með að hafa náð í tvö stig og ég held
að enginn efist um að við verðskuld-
uðum þau,“ sagði Sebastiao Lazar-
oni, þjálfari Brasilíu, eftir leikinn.
„Svíar voru með góða liðsheild,
jafna leikmenn, en Brolin var okkur
þó erfiðastur,“ sagði Lazaroni.
Olle Nordin, þjálfari Svía, lýsti yfir
vonbrigðum með úrslitin en var ekki
óánægður með leik sinna manna.
„Við hefðum þó átt að sækja meira
í fyrri hálfleiknum því viö gátum
komið Brasilíumönnum úr jafnvægi
með því seinni part leiksins. En bras-
ilíska liðiö er mjög gott og það þarf
að leika frábærlega til að sigra þaö í
þessari keppni," sagði Olle Nordin.
Lacatus sló í gegn
gegn Sovétmönnum
„Þetta var óhemjumikilvægur sigur
Svíinn Roland Nilsson og Brasilíumaðurinn Careca hafa báðir augastað á knettinum. Careca gerði útslagið I leiknum þvi
hann gerði bæði mörk Brasilíu. Símamynd Reuter
Fyrsti HM-sigur Kólumbíu
Kólumbíumenn sigruðu lið Samein-
uðu arabísku furstadæmanna, 2-0, í
fyrsta leik D-riðilsins í Bologna á
laugardaginn.
Kólumbía var betri aðilinn allan
tímann en gekk illa að brjóta niður
sterka vörn Arabanna sem síðan
voru hættulegir í skyndisóknum og
tvívegis nálægt þvi að skora.
Bernardo Redin skoraði fyrra
markið með skalla í byrjun síðari
hálfleiks og Carlos Valderrama, besti
leikmaður Kólumbíu, innsiglaði síð-
an sigurinn með marki rétt fyrir
leikslok.
Þetta var fyrsti sigur Kólumbíu-
manna í úrslitakeppni HM en í eina
skiptið sem þeir komust áður svo
langt, fyrir 28 árum, unnu þeir ekki
leik.
Yfirburðir ítala
en aðeins eitt mark
ítalar höfðu mikla yfirburði í leik
sínum við Austurríkismenn í A-riðl-
inum í Róm á laugardaginn. En þrátt
fyrir að sýna allar sínar bestu hliðar
úti á vellinum gekk þeim bölvanlega
uppi við markið - gerðu allt nema
að skora. Markstangirnar og Klaus
Lindenberger, markvörður Austur-
ríkis, héldu markatölunni jafnri í 78
mínútur.
Þá skoraði nýliðinn Salvatore
Schillaci, sem aðeins fjórum mínút-
um áður kom inn á sem varamaður,
meö skalla eftir sendingu frá
Gianluca Vialli og 1-0 urðu lokatöl-
urnar. Schillaci lék þarna sinn ann-
an landsleik fyrir Ítalíu.
„Þetta var ótrúlegt. Ég stökk upp á
milli tveggja hávaxinna Austurríkjs-
manna og hélt að ég myndi aldrei
ná boltanum," sagði Schillaci sem
skoraði 15 mörk fyrir Juventus síð-
asta vetur en ekkert þeirra með
skalla!
„Það er frábært að byrja heims-
meistarakeppni á sigri. Við erum
gestgjafar og því hvílir á okkur mik-
il ábyrgð að leika vel. Liðið á eftir
aö slípast betur eftir því sem líður á
keppnina en þó að okkur hefði ekki
tekist að sigra hefði ég ekki getað
kvartað yfir því hvernig það lét,“
sagöi Azeglio Vicini, hinn aldni þjálf-
ari ítala, eftir leikinn.
„Það er engin skömm að tapa fyrir
ítölum, þeir voru mjög sannfærandi
og réðu gangi leiksins. En mér fannst
við vera búnir að ná tökum á þeim
þegar á leið og taldi okkur eiga mikla
möguleika á jafntefli," sagði Josef
Hickersberger, þjálfari Austurríkis-
manna.
Létt hjáTékkum
Bandaríkjamenn eiga enn langt í
land til aö ógna stórþjóðum í knatt-
spyrnunni. Það sást best í gær þegar
þeir steinlágu fyrir Tékkum í Flór-
ens, 5-1. Sigur Tékka var aldrei í
hættu eftir að Skuhravy og Bilek
skoruðu í fyrri hálfleik og Hasek
snemma í síðari hálfleik.
Eric Wynalda hjá Bandaríkjunum
var rekinn af velli fyrir kjaftbrúk en
þó náði Paul Caliguiri að minnka
muninn í 3-1. En Skuhravy og
Luhovy bættu við mörkum og Bilek
lét meira að segja Tony Meola, mark-
vörð bandaríska liðsins, verja frá sér
vítaspyrnu undir lokin.
-VS
• Silviu Lung, markvörður og fyririiði Rúmena,
fagnar sigrinum á Sovétmönnum.
• Bernardo Redin fagnar eftir að hafa skorað
fyrra mark Kólumbíu gegn Sameinuðu arabísku
furstadæmunum.
Andre Kana-Biyik og
Benjamin Massing frá
• I Kamerún eru fyrstu
leikmennimir sem
reknir eru út af í opnunarleik HM
í 52 ár. Síðast gerðist það þegar
Þjóðverjinn Hans Pesser var rek-
inn út af i leik gegn Sviss árið
1938.
Spjaldagleði dómara
er mjög umdeild
Dómararnir á HM fengu ströng
fyrirmæli frá Alþjóða knatt-
spyrnusambandinu um að koma
í veg fyrir grófan leik í keppninni
á Ítalíu. Mörgum þykir þeir hafa
tylgt þeim fyrirmælum á óvæg-
inn hátt, sérstaklega Frakkinn
Michel Vautrot sem rak út af tvo,
leikmenn Kamerún og bókaði
fjóra aðra í opnunarleiknum gegn
Argentínu. Jack Charlton, lands-
liðseinvaldur íra, sagði að þessi
stefha væri ekki að sínu skapi -
dómaramir væru of taugatrekkt-
ir fyrir vikið.
Spjaid eftír
fjórar mínútur
Enski dómarinn George Court-
ney var buinn aö lyfta gula
spjaldinu eftir íjórar mínútur í
leik Kólombíu og Sameinuðu
arabísku furstadæmanna. Hann
áminnti þá Eisa Meer, leikmann
arabíska liðsins, og gerði síðan
það sama við tvíburabróður
hans, Ibrahim Meer, síöar í leikn-
um. í leik Ítalíu og Austurríkis
fór gula spjaldið á loft eftir 5 mín-
útur, það fékk Andreas Herzog í
Uði Austurríkis fyrir grófan leik.
Það sama henti Vestur-Þjóðveij-
ann Andreas Brehme eftir 7 mín-
útur í leiknum við Júgóslavíu.
Dómurum hótað
brottrekstri
Dómararnir eru undir mikilli
pressu því Joao Havelange, for-
seti FIFA, sagði áður en keppnin
hófst að dómarar, sem ekki færu
að fyrirmælum sambandsins,
yrðu sendir heim. Þeir ættu að
koma i veg fyrir að leikmenn
væru sparkaöir niöur aftan frá
og önnur gróf brot.
Leikmenn Kamerún
snemma i háttinn
Leikmönnum Kamerún var hald-
in veisla eftir sigurinn á Argent-
ínu á fóstudagskvöldið. Þeir feng-
u stórsteikur og annað ljúfmetí
og máttu meira að segja skála í
kampavíni. En sovéski þjálfarinn
þeirra, Valeri Nepomniachi,
sendi þá í rúmið fyrir miðnætti
og beint á æfingu snemma á laug-
ardagsmorguninn. Sovétmaður-
inn kom þó mjög á óvart um
kvöldið, tók niður alvarlegu grí-
muna og réð sér varla fyrir fögn-
uði yfir urslitunum.
Austurríkismaður
fékk hjartaáfall
Siegfried Kandl, 33 ára gamall
Áusturríkismaður, hné niður
þegar Italir skoruðu sigurmark
sitt gegn Austurriki á ólympíu-
leikvanginum í Róm á laugardag-
inn. Hann fékk hjartaáfall og ligg-
ur á gjörgæslu á sjúkrahúsi í Róm
en er úr lífshættu.
Preud’homme má
leika með sólgleraugu
MichelPreud’homme, markvörð-
ur Belga, hefur- fengið leyfi hjá
FIFA til að vera með sérstaka
gerð af sólgleraugum í markinu.
Fyrir hvern leik fyrir sig verður
þó viðkomandi dómari að leggja
blessun sína yfir notkun gler-
augnanna.
Belgar síðastir
Belgar mættu síðastir til leiks á
Ítalíu, hö þeirra kom ekki fyrr en
á laugardag, en það mætír Suð-
ur-Kóreu i fyrsta leik E-riöils á
morgun. Þjálfari Suöur-Kóreu er
bjartsýnn fyrir þann leik, segist
stefha að sigri þar og jafntefli
gegn Uruguay eða Spáni, og það
myndi duga til að komast áfram
í keppiúnni.
VATNS -LÁSAR,
-LOK, -R0FAR,
FLORIDANA
HVAÐ?
Aðeins 100% hreinan
Floridana safa í
(•
umbúðum!
Munið orðaleitina!
)
Scaníool
.i i
i
Vandaðar súluborvélar
3 stærðir
Verð frá 12.213,- + VSK.
Greiðslukjör
MARKAÐSÞJÓNUSTAN
Skipholti 19 3. hæð
| (fyrir ofon Rodíóbúdino) ■
tl\ sími: 2 6911 m