Dagblaðið Vísir - DV - 11.06.1990, Qupperneq 7
MÁNUDAGUR 11. JÚNÍ 1990.
23
Iþróttir
• Veðurguðirnir léku við keppendur meðan á Flugleiðamótinu í Vestmannaeyjum stóð. Keppendur voru alls
99 og voru leiknar 36 holur. DV-mynd Ómar
Ragnhildur og
Björgvin unnu
gotfmót í Eyjum
- spennandi keppni 99 þátttakenda
Berglind Ómaisdóttir, DV, Eyjum;
Hið árlega Flugleiðamót Golf-
klúbbs Vestmannaeyja fór fram á
dögunum og voru þátttakendur 99
og voru leiknar 36 holur. Keppnin
var jöfh og spennandi allt að síð-
ustu holu en í lokin stóðu Björgvin
Sigurbergsson, Golfklúbbi Reykja-
víkur, í karlaflokki, og íslands-
meistarinn, Ragnhildur Sigurðar-
dóttir, í kvennaflokki, uppi sem sig-
urvegarar.
í keppni með forgjöf var Gústaf
Þórarinsson efstur, fór holumar á
133 höggum. Næstur honum kom
Ársæll Ámason, GV, og í þriðja
sæti var Sæbjörn Guðmundsson,
GK, á 137 höggum. í stigamótinu,
þar sem keppt var án forgjafar var
keppnin æsispennandi og skildi
aðeins eitt högg að þrjá efstu menn.
Björgvin Sigurbergsson, GK, varð
á endanum í efsta sæti með 146
högg. Á hæla honum kom Jón
Haukur Guðlaugsspn, GK, á 147
höggum og Gylfi Garðarsson í því
þriðja á 148 höggum.
• Ótvíræður sigurvegari í
kvennaflokki varð Ragnhildur Sig-
urðardóttir, GR, bæði með og án
forgjafar. Með forgjöf fór hún hol-
urnar á 138 höggum, næst kom
Kristín Einarsdóttir, GV, á 148
höggum og Sjöfn Guðmundsdóttir
í því þriðja á 149. Án forgjafar fór
Ragnhildur hringinn á 156 höggum,
önnur varð Þórdís Geirsdóttir, GK,
á 165 höggum og Sjöfn Guðjóns-
dóttir í þvi þriðja á 177 höggum.
Flugleiðir gáfu öll verðlaun og
fengu sigurvegarar bikara og skildi
að launum. Auk þess voru veitt
ferðaverölaun inannanlands fyrir
að vera næst holu. Þau hlutu Sturla
Bergsson, GV, Ragnhildur Sigurð-
ardóttir og Hjalti Atlason.
Aðstæður í Vestmannaeyjum til
golfiðkunar eru nú eins og best
verður á kosið. Völlurinn var mjög
góður og ennfremur veðrið alla
mótsdagana, sérstaklega á sunnu-
deginum en þá var sól og bhða all-
an daginn.
Suður-Kórea leikur nú öðru
sinni í úrshtakeppni HM. Áður
náðu Kóreubúarnir svo langt árið
1954 en þá fengu þeir á sig sextán
mörk í tveimur leikjum. í þetta
skiptið má búast við betri árangri
því hð Suður-Kóreu hefur farið
mjög batnandi á undanfomum
ámm og er tvímælalaust það besta
í Asíu um þessar mundir.
HM-hópur Suður-Kóreu er þann-
ig skipaður (númer, aldur);
Markverðir:
1 KimPung-joo,Daewoo.......28
19 Jeong Gi-dong, Pohang....29
21 Choi In-young, Hyundai...28
Varnarmenn:
2 ParkKyung-hoon.Pohang....29
3 Choi Kang-hee, Hyundai...31
4 Yoon Deuk-yeo, Hyundai...29
5 ChungYong-hwan,Daewoo....30
13 Chung Jong-soo, Yukong...29
15 Cho Min-kook, Goldstar....27
17 Gu Sang-bum, Goldstar.....26
20 HongMyung-bo,K.Univ.......21
Miðjumenn:
7 Noh Soo-jin, Yukong.......28
8 ChungHae-won.Daewoo.......30
9 Hwang Bo-kwan, Yukong.....25
10 Lee Sang-yoon, Ilhwa......21
12 Lee Hung-sil, Pohang......28
16 Kim Joo-sung, Daewoo......24
22 Lee Young-jin, Goldstar...26
Framherjar:
6 Lee Tae-ho, Daewoo........29
11 Byon Byung-joo, Hyundai...29
14 Choi Soon-ho, Goldstar....28
18 HwangSeon-hong,Konkook..,21
Þjálfari Suður-Kóreu er Lee Hoe-
taik, 43 ára gamall, sem var talinn
besti sóknarmaður í Asíu um miðj-
an áttunda áratuginn. Hann tók við
landsliðinu eftir ólympíuleikana
1988.
Sigríður
kosin
formaður
hjá BSÍ
Á dögunum fór fram 24. ársþing
Badmintonsambands íslands. Fór
þingið fram í íþróttamiðstöðinni í
Laugardal.
Hæst bar umræða um reglur varð-
andi deildakeppnina og önnur mót.
Magnús S. Jónsson, sem verið hef-
ur formaður Badmintonsambands-
ins undanfarin 3 ár, gaf ekki kost á
sér til endurkjörs og var nýr formað-
ur kosinn og kom það í hlut Sigríðar
Jónsdóttur að taka við af Magnúsi.
Aðrir í stjórn BSÍ eru: Sigríður M.
Jónsdóttir varaformaöur, Sigfús
Ægir Árnason gjaldkeri, Friðrik Þ.
Halldórsson meðstjómandi, og Jó-
hannes Helgason meðstjórnandi.
-SK
V
Kvennalistakonur
Fundur um umhverfismál á
Laugavegi 17 í kvöld kl. 20.30
Munið vorþingið
Vorþingið verður 22.-24. júní í Garðalundi
í Garðabœ.
Nánari upplýsingar í fréttabréfinu.
Skráið ykkur sem fyrst.
Síminn er: 91-13725
Kvennalistinn
L
LANDSVIRKJUN
ÚTBOÐ
Landsvirkjun óskar eftir tilboðum í efni og vinnu við smíði
stálmastra fyrir fjarskiptaloftnet og stálturna fyrir 132 kV
Blöndulínu í samræmi við útboðsgögn BLL-12.
Útboðsgögn verða afhent frá og með þriðjudeginum 12.
júní 1990 á skrifstofu Landsvirkjunar að Háaleitisbraut 68,
Reykjavík, gegn óafturkræfu gjaldi að upphæð kr. 3.000,-
Um er að ræða heitgalvanhúðað stál, ca. 225 tonn, að
meðtöldum boltum, róm og skífum.
Verklok éru 1. mars 1991.
Tilboðum skal skila á skrifstofu Landsvirkjunar, Háaleitis-
braut 68, 103 Reykjavík, eigi síðar en mánudaginn 20.
ágúst 1990 kl. 13.00 en tilboðin verða opnuð þar þann
dag kl. 14.00 að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess
óska.
Reykjavik 7. júní 1990.
Heimsmeistara-
keppnin
íknattspyrnu 1990
ERUM AÐ SELJA SÍÐUSTU PAKKANA
Nú styttist óðum í heimsmeistarakeppnina á
Ítaiíu 1990. Fjöldi knattspyrnuáhugamanna ætla
ekki að láta þennan viðburð fram hjá sér fara og
eftirspurn verið mjög mikil. Ef þú ætlar að vera
meðal þeirra sem fara á heimsmeistarakeppnina
skaltu bóka sem fyrst.
PAKKAR SEM INNIHALDA UNDANÚRSLIT
OG ÚRSLITALEIK. 12 PAKKAR ÓSELDÍR.
PAKKAR SEM ÍNNIHALDA AÐRA LEIKI.
18 PAKKAR ÓSELDIR.
Hafðu samband sem fyrst, bæklingar á
skrifstofunni ásamt nánari upplýsingum.
HAMRABORG 1-3,
200 KÓPAVOGUR
SÍMI641522
RAWÍS
x raiiiA