Dagblaðið Vísir - DV - 22.06.1990, Síða 4
20
Messur
FÖSTUDAGUR 22. JÚNÍ 1990.
FÖSTUDAGUR 22. JÚNÍ 1990.
21
Guðsþjónustur í Reykjavíkur-
prófastsdæmi
Árbæjarprestakall: Guðsþjónusta kl.
11 árdegis. Organleikari Jón Mýrdal.
Sr. Guðmundur Þorsteinsson.
Ásprestakall: Vegna sumarleyfa
sóknarprests og starí'sfólks er minnt
á messu í Laugarneskirkju kl. 11.
Sóknarprestur. f
Bústaðakirkja: Guðsþjónusta kl. 11.
Organisti Guðni Þ. Guömundsson.
Sr. Pálmi Matthíasson.
Dómkirkjan: Laugardagur 23. júní:
Messa í Viðeyjarkirkju kl. 14 á Jóns-
messuhátíð Viðeyingafélagsins. Sr.
Jakob Ágúst Hjálmarsson. Sunnu-
dagur 24. júní. Jónsmessa. Kl. 11
prestsvígsla. Biskup íslands herra
olafur Skúlason vígir til prestsþjón-
ustu eftirtalda kandidata í guðfræði:
Guðnýju Hallgrímsdóttur til þjón-
ustu við fatlaða. Hjört Hjartarson til
Ásaprestakalls í Skaftafellsprófasts-
dæmi. Sigríði Guðmarsdóttur til
Staðarprestakalls í ísafjaröarpróf-
astsdæmi, sr. Sigurð Kristin Sigurðs-
son til Setbergsprestakalls í Snæ-
fellsness- og Dalaprófastsdæmi.
Vígsluvottar verða sr. Ingiberg J.
Hannesson prófastur, sr. Karl Matt-
híasson, sr. Sighvatur Birgir Emils-
son, sr. Sigurður H. Guðmundsson.
Auk þeirra annast ritningalestur
Arnþór Helgason, formaður Ör-
yrkjabandalagsins. Altarisþjónustu
annast sr. Jakob Ágúst Hjálmarsson
dómkirkjuprestur. Dómkórinn og
kór Víðistaöakirkju syngja við at-
höfnina. Orgelleikari Marteinn Hun-
ger Friðriksson. Dómkirkjan.
Elliheimilið Grund: Guðsþjónusta kl.
14. Sr. Kristinn Hóseasson prédikar.
Sr. Grímur Grímsson þjónar fyrir
altari. Félag fyrrverandi sóknar-
presta.
Fella- og Hólakirkja: Guðsþjónusta
með altarisgöngu kl. 20.30. (Ath.
breyttan messutíma). Þorvaldur
Halldórsson og félagar sjá um söng.
Prestur sr. Guðmundur Karl Ágústs-
son. Samverustund fyrir M.E. félaga
(lútersk hjónahelgi) eftir guðsþjón-
ustana.
Fríkirkjan í Reykjavík: Guðsþjón-
usta kl. 14.00. Miðvikudagur 27. júni
morgunandakt kl. 7.30. OrgeUeikari:
Pavel Smid. Cecil Haraldsson.
Grensáskirkja: Guðsþjónusta kl. 11.
Organisti Árni Arinbjamarson.
Prestamir.
Hallgrimskirkja: Messa kl. 11. Sr.
Sigurður Jónsson á Patreksfirði
prédikar. Sr. Karl Sigurbjörnsson
þjónar fyrir altari. Þriðjudagur: Fyr-
irbænaguðsþjónusta kl. 10.30. Beðið
fyrir sjúkum.
Landspítalinn: Messa kl. 10. Sr. Bragi
Skúlason.
Háteigskirkja: Hámessa kl. 11. Sr.
Arngrímur Jónsson. Kvöldbænir og
fyrirbænir eru í kirkjunni á mið-
vikudögum kl. 18. Prestarnir.
Kópavogskirkja: Guösþjónusta í
Kópavogskirkju kl. 11. Sr. Þorbergur
Kristjánsson.
Langholtskirkja: Kirkja Guðbrands
biskups. Guðsþjónusta kl. 11. Norski
kórinn Raumklang syngur gospellög,
Þór Hauksson guðfræðinemi prédik-
ar. Organisti Þóra Guðmundsdóttir.
Kaffi í safnaðarheimilinu eftir stund-
ina. Sr. Þórhallur Heimisson.
Laugarneskirkja: Messa kl. 11. Altar-
isganga. Heitt á könnunni eftir
messu. Organisti Ronald V. Turner.
Síðasta hádegiskyrrðarstundin fyrir
sumarfrí á fimmtudaginn kl. 12, or-
gelleikur, fyrirbænir, altarisganga.
Sóknarprestur.
Neskirkja: Guðsþjónusta kl. 11. Sr.
Frank M. Halldórsson. Organisti
Reynir Jónasson. Miðvikudagur:
Fyrirbænamessa kl. 18.20. Sr. Frank
M. Halldórsson.
Seljakirkja: Guðsþjónusta kl. 20. Alt-
arisganga. Ólöf Sesselja Óskarsdóttir
leikur á selló. Organisti Kjartan Sig-
uijónsson. Molasopi eftir guðsþjón-
ustu. Sóknarprestur.
Seltjarnarneskirkja: Messa kl. 11.
Organisti Gyða Halldórsdóttir. Sókn-
arprestur sr. Solveig Lára Guð-
mundsdóttir kveður söfnuðinn fyrir
orlof sitt.
Kjarvalsstaðir:
íslensk höggmyndalist
Að Kjarvalsstöðum stendur yfir í
öfiu húsinu yfirlitssýning á íslenskri.
höggmyndalist fram til ársins 1950.
A sýningunni eru verk eftir Einar
Jónsson, Ásmund Sveinsson, Sigur-
jón Ólafsson, Gunnfríði Jónsdóttur,
Guðmund frá Miðdal, Ríkharð Jóns-
son, Magnús Á. Árnason, Nínu Sæ-
mundsson og Martein Guðmunds-
son.
Sýningin er framlag Kjarvalsstaða
til Listahátíðar 1990.
Á Kjarvalsstöðum gefur að lita höggmyndalist fram til ársins 1950.
Herminjar skoðaðar
Náttúruverndarfélag Suövestur-
lands stendur fyrir skoðunarferð á
herminjum á Suðurnesjum á laugar-
dag.
A Stapanum verður rætt um um-
svif hersins á Suðurnesjum á stríðs-
árunum, síðan ekið um flugvallar-
svæðið og herminjar skoðaðar. Það-
an verður ekið út undir Þórshöfn og
gengin stutt leið yfir að Básendum
og Stafnesi. Frá Stafnesi verður ekið
með ströndinni um Sandgerði, Garð
og Leiru. í bakaleiðinni verður við-
koma á Fitjanesti og í Vogum.
Leiðsögumaður er Friðþór Eydal.
Sýningarsalurinn í Þernunesi er nýinnréttaður og þar eru fyrirhugaðar
myndlistarsýningar annað veifið.
Þernunes í Garðabæ:
Gunnar I. Guðjónsson sýnir
Gunnar I. Guðjónsson listmálari
hefur opnað sýningu á verkum sýn-
um í nýjum sýningarsal að Þemu-
nesi 4 í Arnarnesi í Garðarbæ. Á
sýningunni era olíumálverk, bæði
ný af nálinni og frá ýmsum tímum á
ferli Gunnars.
Hinn nýi sýningarsalur er í eigu
Gunnars Gunnarssonar og nefnist
Gunnarssalur, kenndur við föður
Gunnars, Gunnar Sigurðsson, sem
látinn er fyrir allmörgum árum en
hann var þekktur unnandi myndlist-
ar og fyrsti maðurinn hér á landi sem
rak gallerí en það var í Ásmundarsal
við Freyjugötu.
Það er margt hægt að fá í krambúðinni sem sett hefur verið upp í Árbæjarsafni.
Árbæjarsafn:
Þrjár sýningar í gangi
Upplagt er að upplifa lifandi fortíð
í Árbæjarsafni um helgina. Nýlega
voru opnaðar þrjár nýjar sýningar
og margt nýtt annað er að sjá í Ar-
bæjarsafni. Safnið er opið frá kl.
10-18. Kaffihús safnsins, Dillonshús,
er ávallt opið á sama tíma og safnið.
Gestum til ánægju mun Karl Jónat-
ansson leika á harmóníku í Dillons-
húsi á sunnudag.
Á Árbæjarsafm hefur verið opnuð
krambúð aö hætti aldamótakaup-
manns við hlið Dillonshúss. Á19. öld
verslaði fólk í krambúðum og hélst
það verslunarlag langt fram yfir síð-
ustu aldamót. í krambúðinni er
ýmislegt á boðstólum, meðal annars
nýmalað kaffi, þurrkaðir ávextir,
kandís og fleira. í sama húsi er til
sýnis merkilegt safn vigta og voga
er nýlega bárust Árbæjarsafni að
gjöf.
í tilefni 550 ára afmælis prentlistar
á íslandi er prentminjasýning á Ár-
bæjarsafni. Þar er í einu safnhús-
anna heimili og verkstæði prentara
og bókbindara og munu fagmenn
sýna þar handbragð fyrri tíma.
Liðin eru 50 ár fráþví breskur her
steig hér á land og Island dróst inn
í hringiðu síðari heimsstyrialdarinn-
ar. Ein af sumarsýningum safnsins
er um mannlífið í Reykjavík á stríðs-
árunum og greint frá þeim áhrifum
er stríðið hafði. Til sýnis eru munir
frá stríðsárunum er tengdust mann-
líf íslendinga, hlutir frá hemum og
skyggnst er inn á heimili í bragga.
Dómkórinn í Reykjavík heldur Jónsmessutónleika í Dómkirkjunni á laugardag kl. 22. Á efnisskrá eru bæði kirkju-
leg og veraldleg kórlög.
Ferðaleikhúsið - Light Nights:
Fróðleikur og skemmtun
fyrir erlenda ferðamenn
Fyrsta sýning sumarsins hjá
Ferðaleikhúsinu var um síðustu
helgi. Sýningar í sumar verða haldn-
ar í Tjarnarbíói, Tjarnargötu lOe.
Sýningarkvöld verða fjögur í viku
hverri í allt sumar, það er á fimmtu-
dögum, föstudögum, laugardögum og
sunnudögum og hefjast sýningar kl.
21.00 og lýkur um kl. 23.00.
Tuttugu og fimm ár eru liðin frá
stofnun Feröaleikhússins. Sýningar
eru nokkuð breytilegar frá ári til
árs. Sýningin er sérstaklega færð upp
til skemmtunar og fróðleiks ensku-
mælandi ferðamönnum. Efnið er allt
íslenskt, en flutt á ensku að undan-
skildum þjóðlagatextum og kveðnum
lausavísum.
Meðal efnis má nefna: þjóðsögur
af huldufólki, tröllum og draugum,
gamlar gamanfrásagnir og einnig er
atriði úr Egilssögu sviðsett. Sýning-
aratriðin eru alls 24 og eru ýmis leik-
in eða sýnd með fjölmyndatækni.
Stærsta hlutverkið í sýningunni sem
er hlutverk sögumanns fer Kristín
G. Magnús með. Stofnendur og eig-
endur Ferðaleikhússins eru Halldór
Snorrason, Kristín G. Magnús og
Magnús S. Halldórsson.
Kristin G. Magnús fer með hlutverk
sögumanns.
ívIn'IST f
, itSt 4iji í
Sumarhátíðin á Kópavogshæli stendur til 30. júní.
Sumarhátíð á Kópavogshæli
Dagana 24.-30. júni verður hin ár-
lega sumarhátíð haldin á Kópavogs-
hæli. Þessa viku leggur heimilisfólk
að mestu niður vinnu til að taka þátt
í hátíöahöldunum. Kjörorð hátíðar-
innar er „eitthvað fyrir alla“ og á
allt heimihsfólk að finna eitthvað við
sitt hæfi.
Meðal þeirra skemmtiatriða, sem
boðið er upp á, má nefna Brúðubílinn
og flugsýningu og Ómar Ragnarsson
Franska listakonan Christine
Quoiraud, sem heillaði gesti Listahá-
tíðarklúbbs með sýningum sínum,
hefur komið á fót leiksmiðju í Kram-
húsinu og stendur hún til 24. júní.
Christine byggir starf sitt einkum á
hugmyndafræði japanska dansarans
Min Tanaka. Til grundvallar liggur
brennandi áhugi á mannslíkaman-
um sem tæki til tjáningar.
Að sögn Christine beinast aðferð-
irnar að því að leysa úr læðingi þann
kraft sem býr í huga og líkama og
eru þær einkum fólgnar í því að
og Valgeir Guðjónsson skemmta.
Allir sem koma fram á hátíðinni gera
það endurgjaldslaust.
Heimatilbúið efni skipar stóran
sess og Leikfélagið Loki, sem er starf-
rækt af heimilisfólkinu, mun sýna
leikverkið Bóndinn og skáldið. í vik-
unni eru einnig skipulagðar styttri
dagsferöir, m.a. í Viðey og Hvera-
gerði.
þjálfa næmi líkamans og hlúa að
honum jafnt yst sem innst. Ennfrem-
ur teygjuæfingar, einbeitingarþjálf-
un og athuganir á mannlegri tilveru
sem samspil sjálfstæðra krafta eru í
brennidepli.
Christine bætti því við að þeir sem
aðhylltust kenningar Min Tanaka
litu á dansinn sem uppákomu milli
dansarans og umhverfisins. Og að
þeir leituðust við að rannsaka, spyria
áleitinna spurninga og auka þekk-
ingu okkar á sjálfum okkur og því
sem í kringum okkur er.
Isafjörður:
Sýning í
Slunkaríki
Hafin er sýning á verkum Söru
Vilbergs í Slunkaríki á ísafirði. Sara
Jóhanna yilbergsdóttir er fædd og
uppalin á ísafirði en hún lauk námi
frá Myndlista- og handíðaskóla ís-
lands árið 1985 og stundaöi síðan
framhaldsnám við Statens Kunst-
akademi í Osló.
Sara hélt sína fyrstu einkasýningu
í Slunkaríki fyrir fimm árum en hef-
ur síðan tekið þátt í samsýningum
hérlendis, í Svíþjóð, Noregi og
Bandaríkjunum.
Sara sýnir olíumálverk, unnin á
striga eða masónít, máluð á þessu
ári og því síðasta. Sýningin stendur
til 1. júlí.
Þingvellir:
Fræði-
menn koma
saman
Á laugardag verður haldin ráð-
stefna á Hótel Valhöll á Þingvöllum
sem ber yfirskriftina, Þingvellir, um
upphaf, eðh og staðsetningu alþingis.
Ráðstefnan verður sett kl. 13.30 með
stuttum inngangserindum.
Á meðal þátttakenda eru Svein-
björn Beinteinsson allsheriargoði,
Þorleifur Einarsson jarðfræðingur,
Kolbeinn Þorleifsson kirkjusagn-
fræðingur, Guðrún Ása Grímsdóttir
sagnfræðingur, Haraldur Ólafsson
mannfræðingur og Árni Björnsson
þjóðháttafræðingur.
Hugmyndin að baki ráðstefnunni
er að fá saman á einn stað fræðimenn
úr ólíkum greinum til að skiptast á
skoðunum um hið forna alþingi og
það þjóðfélag sem að baki því stóð.
Kramhúsið:
Leiksmiðja
Christine Quoiraud
Tilkyniiingar
Hugleiðsla í Gerðubergi
Sunnudaginn 24. júní fer fram hugleiösla
í tilefni Jónsmessu. Leifur Leopoldsson
„vökumiöil" ásamt aðstoðarfólki mun
íeiða hugleiðsluna og halda stuttan fyrir-
lestur. Húsið verður opnað kl. 20.30
stundvíslega. Aðgangur ókeypis.
Hljómsveit allra landsmanna,
Stuöménn, er nýlega lögð af stað í hljóm-
leikaferð um landið og leikur á þrennum
miðnæturhljómleikum og einum síðdeg-
istónleikum um þessa helgi. í kvöld leik-
ur hljómsveitin á Akranesi og síðdegis á
laugardag að Varmalandi í Borgarfirði. Á
laugardagskvöld leikur sveitin í Njálsbúð
og á sunnudagskvöld á Selfossi. Hljóm-
sveit allra landsmanna er um þessar
mundir að senda frá sér nýja 12 laga plötu
sem ber nafnið „Hve glöð er vor æska“
en platan kemur formlega út um næstu
helgi. í næstu viku skemmtir hljómsveit-
in í Reykjavík og í Vestmannaeyjum.
Sýningar
Fjórir hraustir kappar að bera inn
hvítabjörn sem fenginn er að láni
hjá Dýrasafninu á Selfossi.
Sýning undir stærsta glugga
landsins.
Dagana 23 júní nk. til 1. júlí efnir At-
vinnuþróunarsjóður Suðurlands til veg-
legrar sýningar í hinu glæsilega skóla-
húsi Fjölbrautaskólans á Selfossi. 75-80
aðilar viðs vegar af Suðurlandi taka þátt
í sýningunni og kynna þar iönaðarfram-
leiðslu sína og þjónustu. Nafn sýningar-
innar er BERGSVEINN ’90. Nafnið vísar
til bergrisans í skjaldarmerki landsins.
Iðnaðarmenn hafa unnið hörðum hönd-
um síðustu vikur við uppsetningu á sýn-
ingarbásum og einnig við að koma fyrir
tækjum og tólum á svæðinu fyrir utan
skólann. Margt nýstárlegt verður til sýn-
is. Báða sunnudagana verður þjóðbún-
ingasýning. Ungar stúlkur koma fram og
sýna dans. Syngjandi Flóamenn
skemmta öðru hverju, bæjarkeppni í fót-
bolta á milli Selfoss og Vestmannaeyja
verður háö og keppt um Bergsveins-
bikarinn. Hestaleiga verður fyrir böm
og torfærutúrar verða í boði á kraftmikl-
um jeppum frá 4x4 klúbbnum, sigling á
þurru landi með Víkur-útgerðinni, stór-
laxar verða í ftskabúri og Iþróttamiðstöð
íslands verður með líkamlegt léttmeti
fyrir alla. Þetta og margt fleira skemmti-
legt verður á boðstólum á Selfossi 23.6 til
1.7. nk. Framkvæmdastjóri sýningarinn-
ar er Sigurður Jónsson.
Ferðalög
Ferðafélag íslands
Laugardagur 23. júni kl. 20
Jónsmessunæturganga Ferðafélagsins
Sog - Djúpavatn - Ketilstígur. Fjöl-
breytt ganga í Reykjanesfólkvangi.
Stöðuvötn, gígar, litrík hverasvæði og fl.
Þægileg ganga. Komið til baka upp úr
miðnætti. Verð kr. 1.000. Brottfór frá
BSÍ, austanmegin. Allir velkomnir.
Jónsmessuhelgi í Þórsmörk
22.-24. júní.
Ný Þórsmerkurferð með góðri dagskrá
fyrir unga sem aldna á sérstöku kynning-
arverði. Tilvalin fjölskylduferð. Gist í
Skagfjörðsskála, Langadal, og tjöldum.
Meðal dagskrárliða eru ratleikur, leikir,
pylsugrill, kvöldvaka (ljóð og lög Þórs-
merkurskálda rifjuð upp), Jónsmessu-
næturganga og margt fl. Ennfremur
verða í boði lengri og styttri gönguferðir,
m.a. inn á afréttinn Almenninga (Kápa,
Lakar). Afbragðs grillaðstaða.
Aðrar góðar helgarferðir um Jóns-
messuna
22.-24. júní
a. Eiríksjökull. Tjaldað í Hvítárdrögum.
Göngu á Eiríksjökul gleymir enginn. Lit-
ið í Surtshelli og fl. Fararstjóri: Jón Viðar
Sigurðsson.
B. Hellakönnunarferð - Borgarfjörður
(uppsveitir). Þetta er einstakt tækifæri
til að kynnast neöanjaröarheimi ís-
lenskrar náttúru. Farið í marga af
stærstu hraunhellum landsins í fylgd
jarðfræðinganna Björns Hróarssonar og
Sigurðar Sveins Jónssonar. Tjaldað á
Húsafelli. Sundlaug. Upplýs. og farm. á
skrifstofunni, Öldugötu 3.
Sunnudagur 24. júní.
1. kl. 8. Þórsmörk, dagsferö og til sum-
ardvalar. Verð kr. 2000 í dagsferðina
(hálft gjald fyrir 7-15 ára). Fjölskyldutil-
boð á sumardvöl. Miðvikudagsferð 27.
júní. 2. kl. 13. Verferö 3: Selatangar.
Á Selatöngum eru merkar minjar um
útræði fyrri tíma. Lok vorvertíðar sam-
kvæmt fornu tímatali. Fiskbyrgi, ver-
búðaminjar, refagildrur, sérstæðar
klettaborgir, Nótahellirinn o.fl. merkilegt
skoðað. Tilvalin fjölskylduferð. Verð 1000
kr., frítt f. 15 ára og yngri í fylgd foreldra
sinna. Brottfór í ferðirnar frá Umferðar-
miðstöðinni, austanmegin. Allir vel-
komnir.
Útivistum helgina
Jónsmessunæturganga
Laugardag, 23. júní. Með Akraborginni
upp á Akranes. Gengið út með ströndinni
og á Akrafjall þaðan sem fylgst verður
með sólarlagi. Rútuferð til baka eftir
miðnætti. Framhaldsganga í nágrenni
Reykjavíkur. Brottfór kl. 18.30 frá Grófar-
bryggju.
Þórsmerkurgangan, 11. ferð,
sunnudag 24. júní.
Holtahreppur hinn forni. Fylgt verður
gömlu þjóðleiðinni frá Ásahverfi yfir að
Ytri-Rangá. Komið verður við hjá Hellis-
tjöm. Auðveld ganga. Staðfróðir Rangæ-
ingar verða með í for. Ath. breyttan brott-
farartíma. Það verður farið kl. 9.30 frá
Umferðarmiðstöð - bensínsölu. Stansað
við Árbæjarsafn.
Tapað-fondið
Kettlingur fannst á Grenimel
Grábröndóttur ketthngur, um það bil 3
mánaða, fannst á Grenimel. Kisi er ólar-
laus en er sýnilega heimilisköttur. Upp-
lýsingar um kisa er að fá í sima 14945.
Tinna er týnd
Hún er svört, frekar lítil læða með hvítar
loppur og hvítt á trýni. Hún er með gráa
ól og rautt spjald. Þeir sem eitthvað vita
um ferðir hennar era vinsamlegast beðn-
ir um að hringja í síma 623087 eða koma
í Þingholtsstræti 23.
Ljár tapaðist
á Lynghaga á miðvikudaginn. Ljárinn er
hættulega beittur. Finnandi vinsamleg-
ast hringi í síma 13064.
Þessar þrjár stúlkur héldu nýlega tom-
bólu til styrktar Rauða krossi Islands.
Þær heita Sóley Ósk Óttarsdóttir, Ragn-
heiður Valdimarsdóttir og Hrefna Björk
Tryggvadóttir. Þær söfnuðu 2.100 krón-
um.
Fundir
Aglow, kristileg
samtök kvenna
hafa nú starfað í þrjú ár hér á íslandi og
eru skráðir meðhmir rúmlega 150. Fyrsti
fundur Aglow-kvenna á Akureyri var
haldinn í síðasta mánuði á Hótel KEA
og mættu 25 konur á þann fund. Fundur
verður í Bústaðakirkju mánudagskvöldið
25. júní kl. 20-22 og mun Janet Cosshall,
sem er í Veginum k.s., tala Guðs orð.
Einnig verður skráð til þátttöku á sveita-
fundinn sem haldinn verður að Varma-
landi í Borgarfirði þann 14. júlí nk. Allar
konur eru hvattar til aö mæta og bjóða
með sér gestum til að lofa Guð og eiga
samfélag viö hann.
Aðalfundur Utvarðar
(samtaka um jafnrétti milli landshluta)
verður haldinn dagana 23.-24. júní nk. í
félagsheimilinu Glaðheimum í Vogum á
Vatnsleysuströnd. Fundurinn verður
settur á laugardag kl. 10 og er opinn öllu
áhugafólki um byggðamál.
Tölvumiðlun og IBM
hefja samstarf
IBM og hugbúnaðarfyrirtækið Tölvu-
miðlun undirrituðu nýlega samning um
samstarf fyrirtækjanna. Mun Tölvumiðl-
un taka að sér sölu á IBM-tölvubúnaði
og þjónustu við hann. Tölvumiðlun er
fimm ára gamalt fyrirtæki sem hefur
sérhæft sig í ýmiss konar hugbúnaðar-
þjónustu við fyrirtæki og stofnanir.
Helstu verkefni tölvumiðlunar hafa verið
fyrir fyrirtæki og stofnanir, þar með talin
sveitarfélög og sjúkrahús. Markmið
Tölvumiðlunar er að veita góða þjónustu,
þ.e. skila heildarlausnum til viðskipta-
vina hvað varðar hugbúnað, vélbúnað
og þjónustu. Tölvumiðlun hefur yfir-
gripsmikla þekkingu á þeim stýrikerfum
sem eru í notkun í dag og því sérstöðu
hvað varðar flutning forrita og gagna
milli stýrikerfa.