Dagblaðið Vísir - DV - 05.07.1990, Qupperneq 1

Dagblaðið Vísir - DV - 05.07.1990, Qupperneq 1
Sjónvarp á laugardag: Tónleikar í Rómaborg í beinni útsendingu ítalir luma á fleiri stórviðburðum en tómri knattspyrnu þessa dagana. Laugardaginn 7. júlí munu sjón- varpsáhorfendur um víða veröld geta fylgst með einstökum tónleikum frá Rómaborg er sjónvarpað verður um gervihnött í beinni útsendingu. Flytjendur þetta kvöld verða ekki af lakara taginu, því þarna verða saman komnir þrír af frægustu ten- órum samtímans, þeir José Carreras, Placido Domingo og Luciano Pava- rotti, í traustri fylgd hljómsveitar- stjórans Zubins Mehtas. Hver hinna þriggja tenóra mun syngja fjögur verk, ýmist óperuaríur eða sönglög, en að lyktum sameina stjörnurnar raddir sínar á sviði hins forna Therme di Caracalla í Rómaborg og syngja syrpu þekktustu söngva sinna er útsett hefur verið sérstaklega af þessu tilefni. Tónleikamir standa í eina og hálfa klukkustund en útsendingin hefst kl. 20.15. Sjónvarp um helgina: Bein útsending frá Wimbledon-mótinu í tennis Ekkert lát er á beinum útsending- um Sjónvarpsins. Að undanfömu hafa HM í knattspymu verið gerð góð skil en þeirri keppni lýkur á sunnudag. Um helgina er komið að tennisáhugamönnum og þeim er boðið upp á úrslitaleikina í einiiða- leik karla og kvenna á Wimbledon- mótinu. Á laugardag kl. 13 er á dag- skrá úrslitaleikurinn hjá kvenfólk- inu og á sunnudag, á sama tíma, er það úrslitaleikurinn í karlaflokki. Wimbledon-mótið er elsta og virt- asta tenniskeppni í heimi en það hóf göngu sína árið 1877. Fyrst í stað léku eingöngu karlar í þessari keppni en að fáum árum liðnum var kómið á fót keppni kvenna. Mótið, sem er árlegur viðburður, þykir vera nokk- urs konar óopinber heimsmeistara- keppni atvinnumanna í tennis og það þykir mikil upphefð að bera sigur úr býtum. Á Wimbledon, sem er í suðurhluta Lundúna, er eingöngu leikið á grasi og það hefur reynst mörgum erfitt í gegnum árin. Keppninnar í ár er beðið með mik- ilh.eftirvæntingu og ljóst að til mik- ils er að vinna. Sigurlaunin á Wimbledon eru ekki neinir smáaur- ar. Sigurvegarinn í karlaflokki í fyrra, Boris Becker, fékk tæpar 190 mifljónir í vasann en Steffi Graf, sem vann í kvennaflokki, fékk aðeins minna, eða 170 mifijónir. Til saman- burðar má geta þess að sigurlaunin árið 1968 voru tæpar 200 þúsund í karlaflokki og um 75 þúsund í kvennaflokki. í fyrra voru það V-Þjóðveijar sem hrósuðu sigri í báðum þessum flokk- um. í karlaflokki sigraði Boris Bec- ker Svíann Stefan Edberg, 6-0, 7-6 og 6-4. Þetta var þriðji sigur Beckers á þessu móti en árið 1985 varð hann yngstur manna til að vinna sigur, þá 17 ára og 228 daga gamall. í kvenna- flokki í fyrra sigraði Steffi Graf Mart- inu Navratflovu, USA, 6-2, 6-7 og 6-1. í ár eru margir útkallaðir en aðeins einn mun hrósa sigri. Líklegastir til afreka eru Boris Becker, V-Þýska- landi, Stefan Edberg, Svíþjóð, og Ivan Lendl, Tékkóslóvakíu í karlaflokki. En á hæla þeirra koma væntanlega Mats Wflander, Svíþjóð, Michael Chang, USA, og Pat Cash, Ástralíu, en kjaftaskurinn John McEnroe, USA, hefur þegar verið sleginn út. I kvennaflokki telst Steffi Graf, V- Þýskalandi, vera sigurstranglegust en hún fær örugglega harða keppni frá sér mun yngri keppendum. Þar eru fremstar í flokki þær Monica Seles, 16 ára, Júgóslavíu, og Jennifer Capriati, 14 ára, USA. Ekki má held- ur gleyma Martinu Navratilovu, Boris Becker er yngsti sigurvegar- inn á Wimbledon en hann hefur þrf- vegis unnið keppnina og hefur titil að verja. Simamynd Reuter USA, sem hefur unnið þessa keppm átta sinnum. Þrátt fyrir að Wimbledon-mótið sé breskt fyrirbæri hefur framganga heimamanna í þessari keppni verið afspyrnuslök á undanfórnum árum og þeir þykja ekki líklegir til stór- ræðna í ár. Reyndar er það svo að elstu menn muna vart lengur eftir því hvæner Breti fór síðast með sigur af hólmi. Jeremy Bates, sem er núm- er 96 á heimslistanum, og Monique Javer, sem er númer 113 á samskon- ar lista, teljast vera fremstu tenn- isleikarar Breta og staðsetning þeirra á heimslistunum segir meira en mörg orð um styrkleika heima- manna. í fyrra voru áhorfendur á þessu móti um 404 þúsund og áhuginn í ár er engu minnu þrátt fyrir að HM í knattspyrnu beri upp á sama tíma. Útsendingar báða dagana hefjast kl. 13.00 og það getur tekið dágóöa stund að klára þessa leiki og því til stað- festingar er rétt aö hafa í huga viður- eign á þessu móti sem fram fór árið 1969. Þá áttust við þeir RA Gonzales og C. Pasarell og stóð viðureign þeirra í fimm klukkustundir og tólf mínútur. -GRS Steffi Graf er aðeins 21 árs en hún fær væntanlega harða keppni frá mun yngri stúlkum og þá væntanlega þeim Seles og Capriati. Símamynd Reuter Pavarotti er einn þriggja stórsöngvara sem fram koma í útsendingunni frá Rómaborg. HM í knattspymu: Enda- spretturinn _ * er hafinn - úrslitaleikurinn á sunnudag Heimsmeistarakeppnin í knatt- spymu er nú senn á enda. Á sunnu- dag er úrslitaleikur mótsins en á laugardag verður leikið um 3. sæt- ið. Tæpur mánuður er síðan keppn- in hófst og margir svitadropar hafa fallið frá því boltinn fór að rúlla. Sjónvarpið verður að venju með beinar útsendingar frá þessum við- burðum og hefst útsending báða dagana kl. 17.45 en stundarfjórö- ungi síðar hefjast leikimir. Leikur- inn um 3. sætið verður háður í Bari en leikvangurinn þar tekur 57 þúsund manns. Vellirnir á Ítalíu þykja hver öðmm betri enda hefur gífurlegu fjármagni verið eytt til að hafa þá sem glæsilegasta. Úr- slitaleikurinn sjálfur fer fram á Ólympíuleikvanginum í Róm en hann tekur 80 þúsund manns. Völl- urinn í Róm er jafnframt heima- völlur 1. deildar liðanna AS Roma og Lazio. Úrslitaleiksins er beðið með mik- illi eftirvæntingu en leikurinn um 3. sætið hefur yflrleitt þótt rislíffll enda leikmenn vart búnir að jafna sig eftir ósigrana í undanúrsútun- um. Þegar þetta er skrifað er ekki ljóst hvað lið leika til úrslita en þau fjögur lið, sem koma við sögu í leikjum helgarinnar, era Ítalía, V- Þýskaland, Argentína og England. Landsliðeinvaldarnir Bobby Rob- son og Franz Beckenbauer ætla að V-Þjóðverjar státa af framúrskar- andi árangri í heimsmeistara- keppninni. Simamynd Reuter láta af störfum eftir þessa keppni en óvíst er með þá Carlos Bilardo og Azegilo Vicini. Þeir fjórir leik- menn, sem koma tfl greina með að lyfta sigurlaununum, eru ítalinn Franco Baresi, V-Þjóðverjinn Lot- har Mattháus, Argentínumaðurinn Diego Maradona og Englendingur- inn Terry Butcher. Hver þeirra hreppir hnossið kemur ekki í ljós fyrr en laust fyrir klukkan átta á sunnudagskvöld svo framarlega sem ekki kemur tfl framlenging og vítaspymukepnni. -GRS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.